Morgunblaðið - 05.07.1963, Page 17
VOTtCVlSBL 4 Ð1Ð
17
%■
Dansinn er mití mesta yndi
- segir Sesselja Hansdóttir, sjötug i dag
REYKJAVÍKURBARNIÐ Sess
elja Hansdóttir er kát og hress
í viðmóti og nýtur lífsins, þó
aldurstalan sé farin að hækka.
Við spjölluðum við hana stund-
arkorn i gær á heimili sonar
hennar, Ásgarði 51, og hún sagði
Okkur frá bví hvað lífið hefði
verið skemmtilegt í gamla daga,
og væri raunar enn. Og hún
sýndi okkur myndir af skyldfólki
sínu, gamlar myndir af dansandi
krökkum, og fallegan smábarna-
fatnað, sem hún heklar, til þess
að sitja ekki auðum höndum.
Sesselja Hansdóttir verður sjöt
tig í dag og hún ber aldurinn vel,
enda semur henni vel við lífið
og tilveruna.
„Það var svo dásamlegt í
gamla daga, þegar við krakkarn-
ir vorum að leika okkur og
dansa. Skelfing hefur allt
breytzt, frá því þegar ég var að
alast upp; nú íá allir að læra að
dansa, í þá daga var það erfið-
leikum háð.“
„Ég hef heyrt þér hafið verið
léttar á fæti í meira lagi á yngri
árum.“
„Já, já. Ég var ekkert fyrir
það að stoppa í sokka og bæta
bót, eins og gamla fólkið ætlaðist
til að allar stúlkur gerðu. Ég
lærði að dansa hjá frú Stefaníu
Guðmundsdótlur og um skeið
kenndi ég dans í Bárunni, sem
ivo var nefnd, en var síðar kall-
að KR-húsið. Ég var þá um tvít-
ugt. Þar var oft fjör á ferðum,
og allraskemmtilegust voru loka-
böllin. Þá skemmtu allir sér án
víns. — Ég kenndi aðallega þjóð-
dansa og þá var, eins og nú,
skortur á strákum, sem vildu
læra að dansa, og varð ég oft að
hafa stelpur í strákafötum.
Einnig hef ég alltaf haft af-
skaplega gaman af söng, söng 1
báðum kirkjukórunum og ein-
söng og tvísöng í stúkunni. Ég
hef alltaí verið mikið fyrir fé-
lagsskap. Ég var einn af stofn-
endum Hvatar og starfáði í því
félagi, og í tuttugu ár hef ég
verið í tombólunefnd Slysavarn-
arfélagsins.“
„Þér eruð fædd og uppalin
hér í Reykjavík."
„Já, ég er fædd á Klapparstígn
um í Hansbæ sem kallaður er,
o; stendur nú hálfur. Foreldrar
mínir voru Hans Adolf Guð-
mundsson, trésmiður, og Helga
Hjartardóttir. Faðir minn lézt
þegar ég var ársgömul og ólst ég
upp hjá Hermanni Guðmunds-
syni og Kristínu Magnúsdóttur.
Bróðir minn, Hjört-ur Hansson,
Sesselja Hansdóttir
stórkaupmaður, sem andaðist
fyrir skömmu, ólst hinsvegar upp
með móður minni. Hún var afar
heilsulítil um það leyti sem ég
fæddist, og andaðist á fermingar-
daginn minn.
Maðurinn minn hét Jón Jóns-
son og var frá Fuglavík á Suður-
nesjum. Hann var vélstj. og eign
uðumst við þrjú börn. Tvö þeirra
komust á legg, Hans Adolf og
Magnús, sem ég hef alltaf fylgt.
Ég á nú 12 yndisleg barnabörn,
elztur er Jón Halldór Magnús-
son, sem er mér afskaplega hjart
kær, enda fékk ég hann í faðm-
inn þegar maðurinn minn dó ef
ég má komast svo að orði. Hann
ber nafn manns míns og stundar
nú lögfræðinám við Háskólann.
Ég hef fylgt öllum barnabörn-
unum mínum á dansæfingar í
tuttugu ár. Þau hafa lært að
dansa hjá Rigmor Hansan, þar
Bindindisfélag
íslenzkra
kennara
Aðalfundur Bindindisfélags ís-
lenzkra kennara var haldinn í
Melaskólanum í Reykjavík,
sunnudaginn 16. júní sl.
Félagið nýtur styrks frá Áfeng
isvarnaráði, sem gerir því kleift
að vinna að vissum framkvæmd-
um, einkum útgáfumálum. Blað
félagsins, MAGNI, kom út eins og
fyrr og var sent öllum kennur-
um á barna. og unglingafræðslu-
stigL VINNUBÓK félagsins,
varðandi bindindisfræðslu, kom
út í annarri útgáfu, aukin og
endurbætt, og verður framvegis
dreift út, skv. pöntunum, með
námsbókum ríkisútgáfunnar. Gef
ið var út _ fræðsluritið HVAÐ
FINNST ÞÉR?, og verður sent
öllum 14 ára drengjum í skólum
landsins í haust. Loks vann fé-
lagið töluvért að söfnun og út-
gáfu bindindislesefnis fyrir börn
og unglinga.
Ein ritgerðasamkeppni fór
fram á vegum félagsins í Kenn-
araskóla íslands. Ritgerðarefnið
var: ÁFENGIÐ OG VÉLVÆÐ-
ING NÚTÍMANS. Ein verðlaun
voru veitt, kr. 500.00, og auk þess
góð bók. Verðlaunin hlaut Þórir
Jónsson í Stúdentadeild skólans.
Þá átti félagsstjórnin frum-
kvæði að því að fá tvo kunna
ræðumenn til þess að flytja er-
in.di um áfengisvandamálið í
Kennaraskóla íslands. Menn
þessir voru Helgi Ingvarsson,
yfirlæknir, og Pétur Sigurðsson,
til í vetur hún hætti að kenna.
Ég var ekki nema fimm ára þeg-
ar ég lærði sporið og enn dansa
ég, ef mér er boðið í dans, en
auðvitað bara gömlu dansana. Ég
fer oft með Magnúsi á árshátíð
strætisvagnabílstjóra, en hann
hefur í mörg ár keyrt strætis-
vagn.“
„En þér fáist við hannyrðir,
þó þér séuð mótfallnar sokka-
stagi?“
„Já, ég hef alltaf haft gaman af
að hekla og selt alltaf meira og
minna af hannyrðum mínum. Sal
an hefur svolítið minnkað eftir
að ég fiuttist úr Miðbænum, en
ég átti í 65 ár heima á Smiðju-
stíg 9. Eftir að ég fór þaðan hef
ég dregizt svolítið út úr félags-
lífnu, því það er svo langt að
fara á fund og þess háttar. Ég
var svo óheppin í vetur að hand-
leggsbrjóta mig og er ég ekki orð
in jafngóð í handleggnum, og á
óhægara með að fást við hann-
yrðir en áður. En allan þann
myndarskap, sem ég hef til að
bera, má ég þakka að ég var í
vist hjá frú Kristólínu Kragh,
hárgreiðslumeistara, í nokkur ár,
og sú vist var mér sem bezti hús-
mæðraskóli."
Þegar hér var komið samtalinu
hljóp Sesselja niður og kom að
vörmu spori upp aftur með kaffi
og kökur. „Það dugar ekki að
láta gestinn sitja án þess að fá
vott eða þurrt,“ sagði hún. „Hún
tengdadóttir mín hefur haft nóg
að gera upp á síðkastið við að
baka og þess háttar. Það koma
alltaf margir að heilsa upp á mig
á afmælum mínum og það er
yndislegt að hitta gömlu kunn-
ingjana og eiga með þeim ánægju
stund.“
Hg.
ritstjóri. Voru erindi þeirra hin
merkustu.
Á fundinum voru rædd ýmis
framtíðarmál, sem vinna þarf
ötullega að á næstunni.
Stjórn félagsins skipa nú: Sig-
urður Gunnarsson, form., Marinó
Stefánsson, ritari, Kristinn Gísla
son, gjaldkeri, Helgi Þorláksson
og Ólafur Þ. Kristjánsson.
Nýtt félagsheim-
ili á Hvamms-
tanga
Hvammstanga, 2. júlí.
VORIÐ var fremur kalt, en sauð-
burður gekk vel, grasspretta er
víðast orðin sæmileg og sums
staðar góð. Á nokkrum bæjum
er sláttur þegar hafinn, en al-
menn mun hann byrja seinnipart
þessarar viku.
Mikið er um byggingarfram-
kvæmdir hér í sýslu. Bygging
félagsheimilis er hafin á Hvamms
tanga, standa að henni Hvamms-
tangahreppur og Kirkjuhvamms-
hreppur, ásamt nokkrum félögum
í báðum hreppum. Ráðgert er að
gera húsið fokhelt fyrir haustið.
Stækkun félagsheimilis að Laug-
arbakka er hafin og unnið er við
félagsheimilið í Víðihlíð. Nokkur
íbúðarhús og útihús eru í smíðum
í sýslunni. Unnið er áfram við
slátur- og frystihús, Verzl. Sig.
Pálmasonar og er ráðgert að það
verði fullbúið fyrir sláturtíð
næsta haust. Skortur er á vinnu-
afli svo umræddar framkvæmdir
ganga seinna en æskilegt væri.
— str.
Þórarinn G. Jónsson
ÞÓRARINN Guðmundur Jónsson i
bóndi á Fossi, Skaga lézt af slys-
förum 14. þessa mánaðar. Hann
var fæddur að Brúarlandi. Höfða-
kaupstað (Skagaströnd) 9. janúar
1915, sonur Jóns Bjarnasonar sjó
manns. Jón var þekktur sjósókn-
ari og aflamaður á Skagaströnd,
og Ólínu Sigurðardóttur, Ijós-
móður. Ólína var annáluð dugn-
aðarkona í sínu starfi. Þórarinn
var sjómaður mikinn hluta ævi
sinnar og þótti afburða duglegur
í því starfi, en fyrir 11 árum
varð hann að hætta sjómennsku
vegna lasleika sem olli því, að
hann þoldi ekki sjóinn, festi hann
þá kaup á jörðinni Foss á Skaga
og hóf þar búskap. Þórarinn
reyndist ekki síður dugandi við
búskapinn en sjómennsku og'
dreif búskap sinn af miklum
dugnaði þrátt fyrir að mörgu
leyti erfið skilyrði.
Þórarinn var einn allra dugleg-
asti og ósérhlíínasti maður, sem
ég hef kynnzt og að mínum dómi
um of þar sem hann var ekki
ávallt heilsuhraustur. Hann var
drengur góður og vildi allra
vanda leysa, sem hann mátti. Ég
hef ekki þekkt Þórarinn nema
nokkur ár en er þakklátur fyrir
þau kynni bæði við hann og hans
góða heimili.
Þórarinn giftist 18. júlí 1939
ágætri konu Körlu Berndsen frá
Skagaströnd. Eignuðust þau 4
börn sem öll eru á lifi, þau eru;
Hlöðver bóndi að Lágmúla,
Skaga, Selma gift á Skagaströnd,
Jónbjörn og Regína í heimahús-
um.
Þórarinn var burt kvaddur í
blóma lífsins og að óloknu verki,
er því söknuður mikill þeirra
sem þekktu hann bezt og einkum
Konu hans, börnum og öðrum
skyldmennum. Bi8 ég þeim Gúðs
blessunar frá fjölskyldu minni og
öðrum sumargestum.
Þórarinn var jarðsettur að
Skagaströnd 22. þessa mánaðar
við hátíðlega athöfn og mikið
fjölmenni. Séra Pétur Ingjalds-
son jarðsöng.
Vilberg Guðmundssou,
Avon hjólbarðar seldir og
settir undir.
HJÓIBAMA
VIDGERÐIR
MÚLA/Suðurlandsbraut.
Sími 32960.
Hvert sem
lelðln
liggui*
r lotti
á landl.
Hringið í sínia 11730.
— og leitið upplýsinga.
Vátryggingalélagið
Brunaútsölunni í Listamannaskálanum lýkur í kvöld
Verzlunin Vogue