Morgunblaðið - 05.07.1963, Síða 22
22
kíORGUNBLAÐIÐ
Fostudagur 5. júlí 1963
IÞROTTAfRETTIR MORGOAIRLAÐSINS
KR vann meistara Finniands 6-2
KR hafði heppnina með
og eftir 17 mín. stóð 4-2
FINNLANDSMEISTARARNIR
í knattspyrnu, liðið Haka, mætti
bikarmeisturum KR í gærkvöldi
og það varð ekki för til fjár fyrir
Finnana. KR-ingar voru reglu-
lega í essinu sínu — höfðu heppn
ina með sér — og 6 urðu mörk
þeirra gegn 2. Fyrri hálfleikur-
inn var mjög líflegur og eftir
18 mínútur stóð 4—2 fyrir KR
Fölk fékk því eitthvað fyrir pen-
inga sína, mörk spennandi augna
blik og hasar-keppni.
jc Heppnin með
KR-ingar hrósuðu heppni' í
þessum leik Þeim tókst vel upp
við markið og þeim tókst einnig
vel að forða upplögðum sóknar-
færum Finna, þótt stundum á síð
ustu stund væri.
jc fslenzkur svipur
Finnska liðið leikur „typiska“
íslenzka knattspyrnu enda má
telja þjóðirnar á líku stigi knatt-
spyrnulega, .Finnarnir leika til-
breytingalítið, með mjög hröðum
leikkköflum, fá upplðgð tækifæri
en tekst upp og ofan. Megin
þunginn er á vallarmiðjunni eða
alveg úti á köntum. Það er svo-
kallað „pcrsition“-spil og sjaldan
eða aldrei brugðið út af.
Tækni Finnanna með knöttinn
er mjög misjöfn eins og hjá okk-
ur, einstaka mjög liðlegir leik-
menn en aðrir mörgum gæða-
flokkum neðar. Yfirleitt er spilið
þannig að leikmenn missa knött-
inn mjög gjarna langt frá sér og
hafa lítið vald á honum, þess
vegna er skammt á milli góðrar
sóknar og naumrar varnar, alveg
eins og hjá okkur
M 5 r k i n
Þetta var leikur margra marka
og þau komu þétt í byrjun.
jc Á 6. mín skora KR-ingar.
Gunnar Felixsson leikur upp frá
vallarmiðju að endamörkum,
í varnarleikmann Finn og fór í
markstöng og inn. Heppnismark
það.
jr Eftir 9 mín. skorar KR aftur.
Gunnar Felixsson lék að enda-
mörkum hægra megin, gaf fyrir
fast með jörðu og markvörður-
inn sem hafði færi á fyrirgjöf-
inni missti af henni og Ellert fékk
knöttinn. Hann „sneiddi“ hann
fallega og hugðist gefa fyrir, en
knötturinn hafnaði í netinu í fjar
lægara horni. Klauflegt hjá mark
verði.
jf Á 11. mín. tekst Finnum vel
upp. Esko Malm v. innh. á fast
og gott skot af 30—35 m færi.
Gísli markv. er seinn að kasta sér
og knötturinn smýgur undir hann
í netið.
jt Mínútu síðar bæta KR-ingar
marki við. Þórólfur áttan allan
undirbúning marksins, einlék frá
miðju og vippaði lúmskt til
Ellerts er hann nálgaðist vörn-
ina. Ellert var óvaldaður og skor-
aði örugglega.
★ Á 16. mín. minnka Finnar aft
ur bilið. Það kemur langskot frá
Matti Pitko v. útherja frá ysta
horni vítateigs. Gísli teygði sig
en var þungur og knötturinn
sveif yfir hann og í fjarlægara
horn 3—2.
jc Mínútu síðar skora KR-ingar
4. mark sitt. Þórólfur hóf upp-
hlaupið, lék að vítateig og skaut
föstu skoti, Finnski markvörður-
inn hálfvarði en hélt ekki knett-
inum og Gunnar Felixsson kom
aðvífandi og skoraði auðveldlega.
★ Á 36. mín. eykur KR enn for-
ystuna. Ellert sendi laglega til
Gunnars Felixssonar, sem' lék að
marki, lék á markvörðinn og
skoraði í autt markið.
Þannig var staðan í hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var að mikl-
um mun finnskur en þó áttu Finn
ar ekki oþin tækifseri utan það
sem KR-ingar sköpuðu með eing-
Annað mark
Ellert skorar yfir markvörð
fyrirgjöf
Gunnari Felixssyni.
•kaut fyrir markið, skotið kom in klaufaskap. Það kom þó aldrei
að sök því Finnar, einkum miðju
tríóið, fýlgdu illa eftir.
★ Eina mark hálfleiksins skor
aði KR er 2 mín. voru til leiks-
loka. Sigþór átti skot eftir lag-
legt upphlaup af 15 m færi. Mark
vörðurinn háifvarði og lá kylli-
flatur við. Þórólfur fylgdi vel
eftir, kom á fleygiferð og rak
rétta endahnútinn á upphlaupið.
Finnska liðið er misjafnt að
gæðum. Beztir eru v. úth. Pitko
og v. innh. Malm. Margir aðrir
áttu góða leikkafla en mistókst
í önnur skipti Skemmtlegt er að
sjá hversu frísklegir Finnarnir
eru, sýnilega í góðri þjálfun lík-
amlega eins og raunin er með
flesta finnska íþróttamenn.
KR-liðið átti góðan leik en fagn
aði að auki mikilli heppni í byrj
un. Afgerandi var hversu KR
ingar voru ákveðnari og ákafari
og unnu fleiri einvígi.
Þórólfur Beck gerbreytti KR
framlínunni. Hann vann ákaflega
vel en var ekki eigingjarn. En
leikur hans og nærvera tvíefldi
hina. Framverðirnir léku helzt
til aftarlega og það var megin
orsök langvarandi sóknar Finna i
síðari hálfleik. — A. St.
Þórólfur skallar að marki og markvörður finnska liðsins ver naumlega. — Myndir Sv. Þormóðss.
Valsmenn fóru í keppnisför til Noregs
Sveinn Þormóðsson lætur þá veifa til
á miðvikudagskvöldið. —
ykkar hér.
Körfulmattlelksfréitir
af erlendum vettvangi
FUNDUR miðstjórnar Alþjóða-
körfuknattleikssambandsins, FI
BA, var haldinn í Rio de Janeiro
dagana 16. —18. maí sl.
Samkv. skýrslu aðalritarans,
Mr. R. Williams Jones, voru með
limir FIBA á þinginu í Róm árið
1960, samtals 86, en eru nú orðnir
samtals 109. Mun FIBA því orð-
in eitthvert fjölmennasta íþrótta
samband í heiminum í dag.
Samþykkt var á þinginu að
Körfuknattleikssamband Philips
eyja, greiði 2000 dollara í sekt,
vegna þess að nokkrum kepp-
endum í heimsmeistarakeppni
körfuknattleik, sem átti að fara
fram í Manilla, var neitað um
vegabréfsáritun. Flytja varð mót
ið til Rio de Janeiro.
Þátttökurétt í körfuknattleik á
Olympíuleikunum í Tókíó hafa
eftirtalin körfuknattleikssam-
bönd: Bandaríkin, Sovtéríkin,
Brazilía, Ítalía, Tékkóslóvakía,
Júgóslavía, Pólland og Uruguay.
Ennfremur Japan, sem heldur
leikina.
Þátttökurétt með sérstakri
keppni fá eftirtalin lið:
Úr Pan-Amerícanleikjunum
1963 — Puerto Rico og Perú.
’ Tvö efstu liðin úr keppni Ev*
rópuliða, sem haldin verður
snemma á órinu 1964.
Sigurvegari úr II. meistara-
keppni Afríku, sem haldin verð-
ur í Karthoum, Súdan, snemma
á órinu 1964.
Tvö sæti, sem eftir eru, ákveð
ist á sérstöku úrtökumóti, sem
haldið verður í Yokohama,
skömmu fyrir Olympíuleikana.
IV. heimsmeistarakeppni
kvenna verður haldin í Perú í
marz 1964.
V. heimsmeistarakeppni karla
verður haldin í Uruguay 1966.
V. heimmeistarakeppni kvenna
verður haldin í Tékkóslóvakíu
órið 1967.
Meistarakeppni Suður-Amer-
íku, sem haldin var í Lima, Perú,
varð að halda á útileikvelli, sem
tók 25 þús. áhorfendur. Uppselt
var á alla leikina.
Vinsældir körfuknattleiks fara
stöðugt vaxandi á austurströnd
Kanada og á Nova Scotia. Er nú
svo komið að aðsókn á körfu-
knattleikskeppni er orðin meiri,
heldur en á íshokkey, sem þó
hefir verið talÍD þjóðaríþrótt
Kanadamanna.