Morgunblaðið - 14.07.1963, Page 1
24 slðuv
50 árganíjur
156. tbl. — Sunnudagur 14. júlí 1963
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kenningar Marx
og Lenins ráði
.//
— segir i „Alþýðudcrgblaðinu'
Peking, um /e/ð og einskis árangurs
er vænzt nú
Moskvu, Peking, 13. júlí.
— AP — NTB —
„ALÞÝÐUDAGBLAÐIÐ",
sem gefið er út í Peking, skýr
ir frá því í dag-í forystugrein,
að svo kunni að fara, að við-
ræður kínverskra og sov-
ézkra kennisetningameistara
í Moskvu kunni að fara ger-
samlega út um þúfur. — „Al-
þýðudagblaðið“ er aðalmál-
gagn kínverska kommúnista-
flokksins.
Þar segir enn fremur, að
hugsjónaágreiningur komm-
únistaflokkanna hafi harðn-
að, og í öfuga átt hafi mið-
að við samningaborðið í
Moskvu. Er.því haldið fram,
að sovézki kommúnistaflokk-
urinn geri allt, sem í hans
valdi stendur, til að vekja
andúð á Kínverjum.
í greininni segir, orðrétt: „Sov
éski kommúnistaflokkurinn hef-
ur ekki beint árásum sínum að
kínverskum kommúnistum, þann
tíma, sem viðræðurnar í Moskvu
hafa staðið. Hins vegar verður að
leggja á það áherzlu, að ástand
ið er mjög alvarlegt. Kínverska
og sovézka kommúnista greinir
á um mörg grundvallaratriði, og
þessi ágreiningur hefur gert vart
við sig innan alheimskommúnism
ans. Ágreiningurinn er alvarleg-
ur, og okkur fellur það þungt,
að sovézki kommúnistaflokkur-
inn skuli ekki hafa birt bréf
okkar. sem ritað var 14. júní.
Við leggjum sérstaka áherzlu á
einingu Sovétríkjanna og Kína,
og við höfum ekki gripið til gagn
ráðstafana, vegna þeirrar ósann
gjörnu kröfu, að kínverskir borg
arar í Moskvu verði kallaðir
heim. Heldur ekki höfum við
svarað opinberiega þeim ásökun
Dregið í
happdrætti
Blindrafélagsins
I>ESSI númer komu upp í happ
drætti Biindrafélagsins, Hamra-
lhíð 17, þegar dregið var í gær:
1. 13954 Volkswagen, station.
2. 9240 Flugfar fyrir tvo til
London.
3. 13932 Hiutir að eigin vali
íyrir allt að 10 þús. krónur.
4. 4826 Hringferð kringum land
fyrir tvo með ms. Esju.
Blaðumenn
Áriðandi fundur um launamál
i Nausti, uppi ki. 4 á mánudag.
Nauðsynlegt að félagsmenn fjöl-
menni á fundinn.
w Stjórn og launamálanefnd
um, sem miðstjórn sOvézka
kommúnistaflokksins hefur beint
gegn því, sem fram er sett í bréfi
okkar 14. júní. Við vonum, að
sovézki kommúnistaflok'kurinn
falli frá vanhugsuðum ráða-
gerðum, og því komi ekki til al-
gers einstrengningsháttar. Þegar
haft er í huga, hve mjög sovézk
ir ráðamenn leggja sig fram um
að halda á lofti áróðri gegn Kín
verjum, þá verður að varpa fram
þeirri spurningu, hvort sovézki
kcmmúnistaflokkurinn óski eftir
því, að viðræðurnar í Moskvu
fari nú út um þúfur.
Ágreining þann, sem nú ríkir,
má auðveldlega leysa, ef farið er
eftir kenningum Marx og Lenins,
en jafn framt verður að gæta
þess, að viðræður fari fram á
jafnréttisgrundvelli, og annar að-
ilinn má ekki reyna að kúga hinn
Reynist ekki mögulegt að koma
á sættum í dag, þá á morgun, og
ef ekki í ár, þá næsta ár.
Það eru aðeins bandarískir
heimsvaldasinnar og endurskoð-
unarsinnar í Júgóslavíu, sem
óska eftir því, að samningavið-
ræður okkar fari út um þúfur.
Við megum ekki falla í gildru
þá, sem bandarísku heimsvalda-
sinnar hafa egnt fyrir okkur. Við
leggjum enn hart að sovézkum
félögum okkar úm að leggja sig
alla fram, svo að ná megi góðum
árangri.“
Mesti fengur brezkra
gagnnjósnara um árabil
Dolnytsin heitir sovézki njósnarinn,
sem gaf sig fram, segir
Jhe Daily Telegraph"
// *
London, 13. júní — NTB
BLAÐIÐ „The Daily Tele-
graph“, sem gefið er út í
London, skýrir svo frá í dag,
að sovézki njósnarinn, sem
brugðizt hefur löndum sín-
um og gengið hafi á band vest
urvelda, sé maður að nafni
Anatolij Dolnytsin. Mun hann
hafa starfað í London um
nokkurra mánaða skeið 1961,
undir nafninu Dolnitsinij.
■ Mann með því nafni er að
finna í bústaðaskýrslum frá þeim
tíma, og er hann sagður hafa átt
heima í Kensington-hverfi í Lon
don, í bústöðum þeim, sem sov-
ézka sendiráðið hefur til um-
ráða. „The Daily Telegraph“ held
ur því fram, að ekki hafi tekizt
að halda nafni mannsins leyndu
nú, vegna mistaka nefndar þeirr
ar, er samráð skal hafa við
brezk blöð um öll öryggismál rík
isins. Hlutverk hennar er að
sjá svo um, að blöð stofni öryggi
Bretlands ekki í hættu með ó-
tímabærum uppljóstrunum.
Nefndin sendi frá sér tilkynn
ingu til blaðanna, og þar var
nafn njósnarans nefnt. Heldur
„The Daily Telegraph“ því fram,
að jafnvel kunni að hafa sva far
ið, að nafn mannsins hafi verið
sent sovézku fréttastofunni
„Tass“.
Er leitað var til talsmanns ut-
anrikisráðuneytisins brezka í
gær, skýrði hann svo frá, að það
væri blaðanna sjálfra að ákveða
hvort maðurinn skyldi nefndur
með nafni.
Talið er, að Dolnytsin hafi ver
ið sá, sem skýrði frá því, að blaða
maðurinn Harold Philby hafi ver
ið njósnari Sovétrikjanna, og
„þriðji maðurinn" í Burgess-Mac
Lean njósnamálinu.
Annað blað í London, „The
Daily Express“ segir, að ekki
leiki á því neinn vafi, að upp-
lýsingar um Philby hafi komið
frá Washington, þar sem Dolnyts
MYNDIN sýnir 'þrjár ungar 1
stúlkur, sem á næstunni munu
fara tizkusýningarferðir til
franskra baðstaða. Talið frá
vinstri. Karina Hiljander, feg
urðardrottning, Finnlands,
Karin Hyldegaard Jensen,
fegurðardrottning Svíþjóðar,
Og ungfrú ísland, Líney Frið-
finnsdóttir. — (Ljósm. AP).
ij hafi veitt upplýsingar í fyrsta
skipti. Segir í blaðinu, að upp-
lýsingarnar hafi leitt til þess, að
a.m.k. einn afkastamikill njósn
ari Sovétríkjanna í Bandaríkjom
um var handtekinn. Þá er því
haldið fram, að Dolnytsin hafi
stuðlað að því, að upplýst varð
um Vassal-málið svokallaða, s&ta
I mikla athygli vakti í vetur.
Framh. á bls. 23.
Kínverjar draga
lið sitt til baka
Yfirlýsing talsmanns indversku
stjórnarinnar
Nýja-Dehli, 13. júli — AP.
KÍNVERSKIR kommúnistar hafa
dregið til baka herlið sitt í NV-
Ladakhhéraði i Indlandi. Tals-
maður indversku stjórnarinnar
skýrði frá þessu í gær.
Talsmaðurinn, sem mælti fyrir
munn utanríksráðuneytisins ind-
verska, sagði, að Kínverjar hefðu
reist byggingu nokkra nærri Deps
ang-skarði, fyrr í vetur. Væri
byggingin nú jöfnuð við jörðu.
Sagði I ummælum talsmanns-
ns, að staður sá, sem hér væri
um að ræða, væri 4 milur fyrir
innan „línu“ þá, sem kölluð hef-
ur verið „eftirlitslínan frá 1959“.
Var sókn Kínverja í innrásinni á
sl. hausti miðuð við þá línu.