Morgunblaðið - 14.07.1963, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.07.1963, Blaðsíða 15
MORGVISBLAÐIÐ 15 tíunnudagur 14. júlí 1963 Sextugur i dag: Svanbjörn Frímanns- son bankastjóri í DAG er Svanbjörn Frímanns son, bankastjóri í Landsbanka ís- lands, sextugur a3 aldri. Hann er faeddur á Akureyri 14. júlí 1903 og þar ólst hann upp. Að loknu gagnfræðaprófi á Akureyri vorið 1920 hóf hann störf við útibú íslandsbanka þar á staðnum. Síðan hefur Svan- björn nær óslitið starfað að bankamálum eða um fjörutíu ára skeið. Fyrst starfaði hann hjá íslandsbanka og síðan Útvegs- bankanum á Akureyri frá 1920 til 1935. Þá sagði hann starfi sínu lausu og dvaldist um hríð við nám í London. Svanbjörn gerðist starfsmaður Landsbanka íslands 21. marz 1936. Árið 1938 varð hann aðal- féhirðir bankans. Þegar hann var skipaður formaður Viðskipta ráðs í ársbyrjun 1943 fékk hann leyfi frá því starfi. Arið 1945 tók hann svó við aðalbókara- starfi í Landsbankanum og gegndi því til ársins 1957 að hann var ráðinn bankastjóri. En sem aðalbókari bankans hafði hann oft verið settur-bankastjóri og var því starfinu þá þegar vel kunnugur. Starfsferill Svanbjörns er mjög óvenjulegur. Ungur að árum og reynslulítill hefur hann banka- störf. í dag er hann einn reynd- asti bankamaður, sem við eig- um, með víðtæka þekkingu á öllum atvinnuvegum þjóðarinn- ar. Hann hefur þrætt öll þrep bankastarfseminnar, frá hinu lægsta til hins æðsta. En fyrir þá, sem þekkja Svanbjörn, þá er það ekkert undrunarefni, því afkastamaður er hann með af- brigðum, áhugasamur um lausn verkefna, samvizkusamur, geð- prúður og hinn bezti drengur. Það er ekki lítið lán fyrir Lands- banka íslands að njóta starfs- krafta manns, sem á slíka mann- kosti. Áður en Svanbjörn gerðist bankastjóri tók hann mikinn þátt í félagslífinu í Félagi starfs- manna Landsbanka íslands. En þótt hann sé ekki lengur í okk- ar hóp, þá lætur hann sig starfs- fólkið miklu varða, fylgist vel með félagsstarfseminni og tekur þátt í ferðalögum og hátíðarhöld- um starfsfólksins, þegar hann á þess kost. Starfsfólkið í Landsbanka Is- lands skiptir nú hundruðum, en Svanbjörn kann skil á hverjum manni og þekkir til verka hans. Þrátt fyrir erilsamt starf og lang- an vinnudag þá gefur hann sér tíma til að fylgjast með í þessu efni. Og starfsfólk Landsbankans kann vel að meta slíkan yfir- mann og virðir hann mikils. Svanbjörn hefur hið mesta yndi af útiveru og hefur tekið miklu ástfóstri við Þingvalla- vatn, en við það byggði hann sér sumarbústað fyrir mörgum ár- um. Laxveiðar stundar hann, þegar hann á þess völ og á yngri árum var hann hinn mesti ferða- garpur. Svanbjörn er kvæntur Hólm- fríði Andrésdóttur og eiga þau þrjú börn. Hann dvelur nú er- lendis ásamt konu sinni. Ég leyfi mér að senda Svan- birni Frímannssyni mínar beztu heillaóskir með von um að Lands banki íslands og starfsfólk hans megi njóta starfskrafta Svan- björns sem lengst. V.K.L. •? ?-■ - . . ð ■ ■ Richard Öbacz, Mary kona hans og synir þeirra tveir. Mnydin er tekin á Tempelhof flugvelli. Eiginkonan vissi ekkert um flóttaundirbúninginn EINS og frá var skýrt í blaðinu fyrir helg'ina, flýði pólsk fjölskylda til Vestur- Berlínar á miðvikudaginn í kennsluflugvél. Er þetta í fyrsta skipti, sem flóttamenn koma til Vestur-Berlínar í flugvél. , Fjölskyldufaðirinn Richard Obacz, majór í pólska flug- hernum, hefur verið tilrauna- flugmaður undanfarin ár. Hann á' sjálfur kennsluflug- vélina, er hann notaði til flóttans. Obacz, sem er 34 ára, felldi sig ekki við þjóð- félagshætti í Póllandi og á- kvað að gera tilraun til flótta. Ekki ræddi hann ákvörðun sína við nokkurn mann, jafn- vel ekki konu sína. Þegar hjónin lögðu af stað til Vest- ur-Berlínar með syni sína tvo, hélt konan, að þau vaeru að- eins að fara í -stutt skemmti- flug eins og oft áður. Þegar flugvélin var komin á loft, sagði maður hennar hénni hvað hann ætlaðist fyrir og var hún samþykk ákvörðun hans. Frú Obacz er fædd og uppalin í Þýzkalandi. Flóttamennirnir voru rúma klukkustund á leiðinni til Tempelhof flugvallarins í Vestur-Berlín. Obacz flaug mjög lágt til þess að reyna að koma í veg fyrir, að flug- vélin sæist á ratsjám. Þetta heppnaðist þar til hann flaug inn yfir Berlín. Þá urðu sex sovézkar orustuþotur varar við flugvélina, en engin skot heyrðust. Þegar Obacz hafði lent flug- vélinni á Tempelhof flugvell- inum, steig fjölskyldan út og hann hrópaði, „Það heppn- aðist, það heppnaðist“. Þeg- ar fjölskyldan gekk á fund eins yfirmanna flugvallarins, lýsti Obacz. ánægju sinni með því að faðma hann að sér og kyssa hann á báðar kinnar. Obacz var í einkennisbún- ingi pólska flughersins á flótt- anum. Hann hefur verið í hernum frá 1948. VBIR V0IR FOAM BACK SPORT JAKKINN ÞÆGILEGUR FISLÉTTUR KLÆÐILEGUR SVAMPFÓÐRAÐUR 5986 SPORTJAKKINN MEÐ SÖÐULSTUNGU SAUMUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.