Morgunblaðið - 31.07.1963, Blaðsíða 1
24 siður
50 árgangur
170. tbl. — Miðvikudagur 31. júlí 1963
Prentsmiðja Morgunblaðsins
árás Kína
á Indland ?
Nýja-Delhi, 30. júlí.
AP — NTB — AFP
N E H R U, forsætisráðherra
Indlands, beindi í dag þeim
tilmaélum til indversku þjóð-
arinnar, að hún sýndi í hví-
vetna árvekni, og væri við
öllu búin, vegna þeiwar
hættu, sem nú er talin stafa
frá Kína.
Undanfarið hefur orðið
vart við mikla herflutninga
og annan undirbúning við
landamæri Kína og Indlands,
og óttast menn jafnvel,.að
Kínverjar hyggi á nýja innrás
í Indland.
Vék Nehru að þessu hættu-
ástandi í ræðu, sem hann
flutti í dag. Hann kvaðst ekki
vita, hvað vekti fyrir Kín-
verjum nú, en vart gæti það
verið neitt gott.
Lýsti forsætisráðherrann því,
hvaða svæðum indversks lands
Kínverjar réðu enn yfir, eftir
innrásina í fyrrahaust. Þau svæði
liggja í Ladakh-héraði.
Sagði Nehru, að ekki væri
hægt að loka augunum fyrir því,
að Kínverjar drægju saman her-
lið við landamæri Indlands. —
Væri nú svo komið, að kínversk-
ir hermenn hefðu tekið í sínar
hendur 20 km breitt svæði, sem
ákveðið hefði verið, að herir
beggja héldu sig frá. Hefðí verið
gert um það samkomulag, er bar-
dagar hættu í vetur.
Forsætisráðherrann skýrði
enn fremur frá því, að það
væri ekki aðeins á norðurvíg-
Framh. á bls. 23.
Óvenju mikið hefur verið um bifreiðaslys að undanfömu og framundan er ein mesta umferða-
helgi sumarsins. Blaðinu fannst ástæða til að birta þessa mynd til aðvörunar ökumönnum en frétt
er um þetta á bls. 24. Hér sést hvemig hliðin er rifin úr Morris-bifreiðinni, þar sem hún stendur
á hjólunum eftir eina eða tvær veltur. Ljósm. Kristinn Guðmundsson.
Ráðamenn í Peking:
„Þriðja heimsstyrjöldin mun
færa kommúnismanum lokasigur
kk
Fremsti hugmyndafræðingur Sovetríkjanna telur
afstöðu Kínverja tilræði við mannkyn
Tokyo, 30.
Moskva, London,
júlí — AP-NTB
SOVÉZKI kommúnista-
flokkurinn réðst í dag enn
gegn kínverskum kommún-
Nýtt og betra and-
rúmsloft í Genf,
er afvopnunarráðstefna 17 ríkja hefst á ný
Genf, 30. júlí — AP — NTB
í DAG hófst aftur í Genf af-
vopnunarráðstefna 17 ríkja,
en hlé hefur verið á störfum
hennar um nokkurt skeið. —
Enn' ríkir sama afstaða
Frakka til ráðstefnunnar, og
taka þeir ekki þátt í samn-
ingatilraunum.
Meiri bjartsýni þykir nú
ríkja um árangur, en oft áður.
Þakka menn það Moskvusam-
komulaginu, um takmarkað
tilraunabann.
Aðalfulltrúar Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna lýstu í
dag ánægju sinni yfir árangr-
inum á þríveldaráðstefnunni,
sem lauk í Moskvu í fyrri
viku. Bandaríski fulltrúinn,
Charles Stelle, lýsti því yfir,
að gerbreyting á alþjóða-
ástandi kunni að vera á næsta
leiti.
Fréttamenn, sem viðstaddir
voru fyrsta fund ráðstefnunnar í
dag, voru á einu máli um, að and-
rúmsloftið í fundarsölum væri
allt annað og betra, en þekkzt
hefði um mjög langt skeið. Þó bú
ast menn ekki við því, að sam-
komulag náist á næstunni, um
bann við tilraunum neðanjarðar,
þar sem vísindamönnum ber ekki
saman um, hvort tryggilega sé
hægt að framfylgja slíku banni,
með • eftirliti utan landamæra
kj arnorkuveldanna.
Stelle, bandaríski fulltrúinn,
bar lof á aðalfulltrúa Sovétríkj-
anna, Zarapkin, og taldi starf
hans á afvopnunarráðstefnunni
til þessa mikið og gott.
Lýsti Stelle því enn fremur yf-
ir, að þótt afstaða Sovétríkjanna
til neðanjarðartilrauna sé ó-
breytt, þá sé svo kveðið á í
Moskvusamningum, að megintil-
gangur samningsaðila sé fast-
ákveðinn: Þeir beiti sér fyrir alls-
herjartilraunabanni, og haldi á-
fram samningatilraunum um það
mál.
í ræðu sinni sagði Zarapkin, að
Moskvusamningurinn hefði „opn-
að dyrnar“ fyrir frekara sam-
komulagi. Lagði hann áherzlu á,
að lokatakmarkið hlyti að vera
endanleg afvopnun.
Framh. á bls. 23.
istum. Er þar gengið feti fram
ar í ásökunum, en áður hefur
verið gert.
Þekktasti hugmyndafræð-
ingur sovézka kommúnista-
flokksins, Pyotr Pospelov,
lýsti því yfir í grein í
„Pravda“ í dag, að leiðtogar
kínverskra kommúnista séu
annað hvort svo fáfróðir, að
aigerri undrun sæti, eða
þeir séu haldnir glæpsamlegri
ævintýramennsku.
Er því haldið fram, að sú
skoðun ráðamanna í Peking,
að þriðja heimsstyrjöldin
muni tryggja lokasigur komm
ú.iismans í heiminum, sé al
ger léttúð með tilliti til örlaga
mannkyns.
í grein Pospelovs segir:
Það er erfitt að segja, hvaða
dóm á að leggja á yfirlýsingar
kínversku leiðtoganna; furðu-
leg fáfræði um afleiðingar
kjarnorkustyrjaldar, glæp-
samleg ævintýramennska,
eða alger léttúð varðandi ör-
lög mannkynsins."
(Sjá grein á bls. 23).
Sovézka fréttastofan Tass lýsti
í dag afstöðu Fospelovs, eins og
hún kom fram í grein „Pravda“.
1 tilkynningu fréttastofunnar
segir, orðrétt eftir hugmynda-
fræðingnum: „Þýðingarmesta tak
markið nú er, að koma 1 veg
fyrir kjarnorkustyrjöld. Ekkert
nema slík styrjöld getur komið
í veg fyrir sigur kommúnismans,
að náð verði lokamarkmiðinu,
sem stefnan var tekin að, er októ-
berbyltingin var gerð.“
Tass segir Pospelov hafa kvart
að yfir því, að kínverskir ráða-
menn beri sovézkum kommún-
istum það á brýn að hafa glatað
öllum byltingaranda.
Um þetta segir Pospelov: „Það
er ekkert nýtt í þessum ásökun-
um... þær eru sömu, sem Trot-
skyistar settu fram á sínum
tíma.“ Segir Pospelov enn frem-
ur, að rógburður kínverskra
kommúnista skipi þeim í hóp
þeirra manna, sem styðji af-
stöðu sína svipuðum rökum og
heiftúðugustu öfgasinnar.
Alþýðublaðið í Peking segir í
dag, og ver til þess tveimur síð-
um af fjórum, að stefna Krús-
jeffs nú sé hrein kúvending frá
því, sem áður var.
Rekur blaðið ummæli Krús-
jeffs við ýmis tækifæri undan-
farin 4 ár, og kemst að þeirri
niðurstöðu, að forsætisráðherr-
ann hafi áður verið á móti sams
konar tilraunabanni, og samið
var um í Moskvu s.l. fimmtudag.
Alþýðudagblaðið heldur því
fram, að nú séu haldnir fundir
um gervallt Kína, og sé þar gerð
grein fyrir andstöðu kínverskra
ráðamanna gegn Moskvusamn-
ingnum.
í kvöld bárust frekari fregnir
af skrifum í „Pravda" í dag. Þar
birtist yfirlýsing undirrituð af
258 samtíðarmönnum Lenins, og
kommúnistum, sem segja, að kln-
verskir ráðamenn stefni inn á
brautir, sem sovézkir kommún-
istar hafi löngu vikið af
Rusk og
Home til
Moskvu
London, 30. júlí —
AP — NTB.
, TALIÐ er nú víst, að utan-
J ríkisráðherra Bandaríkjanna,
Dean Rusk, og utanríkisráð-
herra Bretlands, Home lávarð
ur, muni halda til Moskvu
síðar í þessari viku til að
undirrita Moskvusamninginn
um takmarkað tilraunabann.
Tekið er þó fram í frétt-
um, að utanríkisráðherrarn-
ir muni ekki undirbúa fund
æðstu manna. Þó mun Rusk
taka með sér bréf frá Kenn-
edy, Bandaríkjaforseta, til
Krúsjeffs, forsætisráðherra
Sovétríkjanna. Er það svar við
boðskap Krúsjeffs, þeim er
hann lét frá sér fara í fyrri
viku, en þá lýsti hann ánægju
sinni yfir þríveldasamkoinu-
laginu.
1000 lík fundin
í Skoplje I gær
Jarðskjálfta enn vart í gærkvöldi
Skoplje, 30. júlí — NTB
SEINT í kvöld var tilkynnt, að
tala látinna, sem fundizt hefðu
í Skoplje, væri 1000. I þann
mund, er tilkynningin var gefin
út, varð aftur vart jarðskjálfta í
borginni. Hrundu nokkur hús,
en ekki er vitað um frekara
manntjón.
6000 börn hafa verið flutt til
annarra borga, en meginhluti
borgarbúa, 66.000 manns, býr nú
í tjöldum umhverfis rústir borg
arinnar.
Jarðfræðingar hafa fundið allt
að 180 m langar og 10 sm breiðar
sprungur í jörðinni í Skoplje.