Morgunblaðið - 31.07.1963, Blaðsíða 10
10
TUORCVISBI 4 Ð1Ð
Miðvikudagur 31. júlí 196a
HÉR Á síðunni birtast nokkrar
myndir af afleiðingum jarð-
skjálftans í borginni Skoplje í
Júgóslavíu. Björgunarstarf er
þar nú í fullum gangi og fjöl-
margar þjóðir hafa sent ýmiss
konar aðstoð.
Borgin skoplje hafði sérstaka
þýðingu fyrir íbúana í Makedón
íu. Stjórn Títós hefsvr undanfarin
ár lagt á það kapp að koma þar
upp makedónsku menningar-
setri og efla jafnframt hag íbú
anna eftir mætti, samkvæmt sér
stökum sósíalistískum hugmynd-
um sjálfs Títós, forseta. íbúar
borgarinnar voru nálægt 200.000
en fjölmargir eru nú flúnir vegna
ótta við að upp komi taugaveiki
í Skoplje er einn háskóli og
þrjú leikhús. Þar hefur gífurleg
ur fjöldi íbúðarhúsa verið reist
ur síðusíu árin og nýir vegir lagð
ir um borgina og nágrenni. Eru
óvíða í Júgóslóvaíu breiðari göt
ur, en helztu og nýjustu götum
ar í Skoplje. Borgin ber sterk
merki þess, að mikiil hluti íbú
anna er ennþá múhameðstrúar,
þar eru t.d. margar moskúr, sum
ar reyndar að falli komnar, en
flestar hafa þær allt til þessa
verið mikið sóttar, einkum af
eldra fólki.
Myndin efst til hægri á síð-
unni er frá þeim hluta borgar-
innar, er einna verst varð úti.
Fólk leitar leifanna af eignum sínum, sumir eru hálfnaktir, aðrir sveipaðir lökum.
Morgunblaðið tekur á móti gjöfum í Skopije - söfnunina