Morgunblaðið - 31.07.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.07.1963, Blaðsíða 2
2 MORCVNnrsniB Miðvikudagur 31. júlí 1963 >ara ef veðriö skánar, segja síldveiðimennirnir SÍÐASTLIÐINN sunaudag predikaði biskupinn yfir ts- landi hr. Sigurbjörn Einarsson í Niðaróssdómkirkju á hátíð Ólafs helga, sem þar er árlega haldin. Biskupinn var á ferð til Finnlands á þing Lútherska heimssambandsins, sem hald- ið er um þessar mundir í Hels ingfors. Syndið 200 metrana AÐ undanförnu hefur lítið veiðzt af síld. í gær var megnið af flot- anum fyrir austan land. Þar hafði létt til um nóttina, en var aftur að koma bræla síðdegis. Um það leyti náði Morgunblaðið tali af Jakobi Jakobssyni, fiskifræðingi og tveimur síldarskipstjórum, þeim Sigurði Sigurðssyni á Jóni Garðari frá Landgerði og Hálf- dáni Einarssyni á Einari Hálfdáns frá Bolungarvík. Ekki var þó mjög slæmt í þeim hljóðið. Þeir kenndu veðrinu um þetta síldar- leysi, en töldu allir að þetta gæti lagast „bara ef veðrið vildi skána“. Verðmunur meiri en aflamunur Jakob Jakobsson sagði að veður hafi verið þannig óslitið í hálfan mánuð, að ekki hafi verið hægt að vera við veiðar. Norð- menn hafi t.d. legið óslitið í vari í 3 vikur og ekkert veitt. Og þó íslenzku bátarnir séu alltaf að kasta, þá sé þungur sjór og í raun inni ekkert vinnuveður. Eitthvert síldarmagn væri á miðunum, en þó taldi hann það Fjölmenn héraðsmót í Króksfjarðarnesi og V. Skaftafellssýslu HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Austur-Barðastrandarsýslu var haldið síðastliðinn sunnudag að Vogalandi í Króksfjarðarnesi. — Húsfyllir var og fór mótið ágæt- lega fram. Samkomuna setti og stjómaði siðan Sveinn Guðmundsson, bóndi, Miðhúsum. Dagskráin hófst með einsöng Kristins Hallssonar, óperusöngv- Lax tók maðk hjá 2 veiðimönnum í einu - og veiðimaður veiddi stöng félaga síns AKUREYRI, 30. júlí. — Svo undarlega vildi til ný- lega að tveir Akureyringar, sem voru við laxveiðar í Hofsá í Vopnafirði veiddu báðir sama laxinn og drógu hann á land. Þeir Birgir Stef- ánsson og Jón Steinbergsson voru við laxveiðar í Hofsá framan við byggð og stóðu á klöpp við ána, Birgir á syllu á klöppinni en Jón efst á henni um 30 metrum neðar við ána. Sér Jón þá hvar lax rennir sér á maðk Birgis og bítur á. Þegar Birgir hafði fengizt við laxinn í 3 mínút- ur og leikurinn borizt niður ána snýr laxinn við rennir sér upp í strauminn og gleyp- ir til viðbótar öngul Jóns, sem einnig beitti ánamaðki. Hjálp uðust þeir félagar síðan við að koma laxinum á þurrt og skiptu fengnum bróðurlega á milli sín. Laxinn var 8 pund nýgenginn. Sjaidgæft mun að laxar veiðist á tvær stengur sam- Við þessa skemmtilegu veiði sögu má bæta annarri, sem fréttamaður Mbl. heyrði, er hann var staddur norður við Laxá í Þingeyjarsýslu fyrir mánuði. Maður nokkur sunnan úr landi var að veiðum við Kistu- kvísl í júnímánuði sl. Hafði hann hresst sig töluvert á dýr- um veigum og raunar meira en talið er ráðlegt á þessUm slóðum. Fór svo, að á Hell- unni tók lax hjá veiðimann- inum, sem beitti garðflugu, svo sem þeir veiðimenn, sem vandir eru að virðingu sinni, nefna eitt vinsælasta agnið. Veiðimaðurinn var ekki við búinn þessu og hrataði stöng- in út í ána á eftir laxinum. Veiðifélagi hans stóð nokkru neðar við kvíslina, og kast- aði. Vissi hann ekki fyrri til en tekið var í hjá honum. Dró hann þá inn línu sína, en „fiskurinn“ reyndist þá vera hin glataða stöng félag- ans sem ofar stóð. Tók veiði- maðurinn upp stöngina, og var tíipis og kpmi að landi með tvo öngla í munm en þó vita laxinn ennþá fastur á. Tókst menn þess dæmi i Laxá í Suð að landa honum, en ekki fara ur-Þingeyjarsýslu fynr nokkr sögur af þyngdinni, né á hvers ' ""úrii árum. Sá var 3já punda. nafn fiskurinn var skráður í :•■■■» i Sv. P. veiðibækur! ara, undirleik annaðist Ólafur Vignir Albertsson, píanóleikari. Þessu næst flutti Jóhann Haf- stein, bankastjóri, ræðu. Að lok- inni ræðu Jóhanns söng Sigur- veig Hjaltested, óperusöngkona, einsöng. Þá flutti Sigurður Bjarnason, alþingismaður, ræðu. Kristinn Hallsson söng síðan nokkur lög. Næst var leikþáttur, er Bryn- jólfur Jóhannesson, leikari, fór með, en síðan sungu þau Krist- inn Hallsson og Sigurveig Hjalte- sted tvísöngva við undirleik Ól- afs V. Albertssonar. Að lokum söng Brynjólfur Jó- hannesson gamanvísur. Ræðumönnum og listafólki var ágætlega tekið. Mótiru lauk svo með dansleik. EYRARLAND 1 V-SKAFT. Síðastliðið sunnudagskvöld efndu Sjálfstæðismenn í Vestur- Skaftafellssýslu til héraðsmóts, er haldið var í félagsheimilinu við Eyrarland. Var mótið ágæt- lega sótt og komu menn á það víðsvegar að. Samkomuna setti og stjórnaði síðan Gísli Skaftason, bóndi, Lækjarbakka. Dagskráin hófst með einsöng Guðmundar Guðjónssonar, óperu söngvara, undirleik annaðist Skúli Halldórsson, píanóleikari. Þá flutti Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, ræðu. Er ráð- herrann hafði lokið máli sínu, söng Guðmundur Guðjónsson öðru sinni. Þessu næst flutti Steinþór Gestsson, bóndi að Hæli, ræðu. Síðast á dagskránni var gam- anþáttur, er þeir fluttu leikararn- ir Árni Tryggvason og Klemens Jónsson. Vár gerður mjög góður rómur að máli ræðumanna og einnig var listafólkinu ágætlega tekið. Lauk síðan þessari samkomu með dansleik. Fór héraðsmót þetta hið bezta fram or vac öUum aðilum til sóma minna en í fyrra. Torfurnar væra orðnar sundurtættar í þessum veðrum, en ef skánar ætti að vera hægt að ná síldinni. Annars hefði reynsla fyrri ára sýnt að þegar kalt er í sjónum, eins og núna, þá er seinni hluti síldveiðitímans oftast betri. Úthaldið hjá sumum bátunum væri orðið slæmt, sem kunnugt er. Þó væri bót í máli, að ÖU sú síld sem fæst, fer í söltun og því hlutfallslega ekki eins mikiU verðmunur og aflamunur. Síldin sem fæst syðst á austursvæðinu væri svolítið blönduð, en gæti lagast, norðar á austursvæðinu væri ágæt sUd og það litla sem veiðzt hefði af Norðurlandssíld- inni væri prýðisfallegt. Hún væri bara svo dreifð ennþá. Sem sagt, Jakob taldi að þetta gæti staðið til bóta, ef veður breyttist og því nær að tala við veðurfræðinga en fiskifræðinga. Of snemmt aS vera svartsýnn Einar Hálfdáns frá Bolungar- vík var í vikulokin búinn að fá 4304 mál og tunnur. Við náðum í skipstjórann, Háldán Einarsson, á Seyðisfirði. Hann kvaðst lítið hafa að segja um síldina. Nei, nei, hann væri ekkert svartsýnn. Þó ekki of ánægður. Maður yrði bara að vona það bezta. Sérstaklega ef veðráttan færi nú að batna. Það væri eitthvað dálítið af síld í sjónum, a.m.k. úti af Austfjörð- um. Veðrið væri bara svo óhag- stætt og þessvegna leitaðist líka illa. Þó þeir væru að reyna að kasta, mætti veðrið ekki vera verra. Hvort síldveiðimenn væru nokkuð farnir að tala um að hætta. Nei, hann hafði engan heyrt minnast á það. Það væri nú of snemmt. Allir vonast eftir að þetta lagist. Hálfdán kvaðst ætla strax út aftur, þegar harin væri búinn að landa þessum 250 tunnum, sem hann kom með í söltun, þó veðr- ið væri ekki sem bezt. mss. Síldin liggur niðri i þessu veðri Jón Garðar frá Sandgerði er 4. hæsti bátur á síldveiðunum, hafði í vikulokin fengið 10.411 tunnur og mál. — O-o, það er ekki gott að segja, svaraði Sig- urður Sigurðsson, skipstjóri á Jóni Garðari, þegar við spurðum hann í símtali hvernig honum lit- ist á síldarvertíðina. — Veðrið er alltaf svo slæmt, það eyðileggur allt. Kannski er líka lítið síldar- magn í sjónum, það er ekki gott að segja. Þó öll tækifæri séu gripin til að kasta, þá er alltof mikið af landlegum. Alltaf er þó verið að skælast við þetta, það gera nýju tækin. En síldin liggur niðri við botn í þessu veðri og kemur bara ekki upp. Sigurður sagði að mest hefði verið saltað af síldinni í sumar, og lítið farið í bræðslu. Fái sjó- menn auðvitað betri hlut þess- vegna. Síldin fyrir austan væri þó misjöfn, smásíld innan um, og væri ekki borgað fyrir síldina fyrr en uppsaltaða. Þó lengi hefði ekki komið nema nokkurra klukkutíma sæmi legt veður í einu, þá telur Sigurð- ur ástæðulaust að vera svartsýnn. Þetta gæti lagast af veðurfarið batnaði. Ingeborg Finsen látin Var jarðsett í kyrrþey nýlega Einkaskeyti til Mbl., — Kaupmannahöfn, 30. júlí, — Frú Ingeborg Finsen, ekkja Niels Finsens, Iézt fyrir skömmu á 95- aldursári. Fór útför hennar fram í kyrrþey. Ingeborg var dóttir C. F. Bal- slev í Ribe í Danmörku. Hún kvæntist Niels Finsen tveimur árum eftir að hann lauk embætt isprófi í læknisfræði. Var hún stoð og stytta manns síns í braut ryðjendastarfi hans að því, er varðar notkun ’msgeisla við lækningar. Hún stóð jafnan við hlið manns síns, á þeim tímum, er hann varð fyrir hvað harðastri gagnrýni, einkum í Danmörku, áður en kenningar hans hlutu al menna viðurkenningu. Aldamótaárið gengu þau hjón in hlið við hlið, er ljóstækni- stofnun sú, sem kennd er við Finsen, var opnuð í Kaupmanna- höfn, en fjórum árum síðar lézt Niels Finsen, aðeins 44 ára að aldri. í 59 ár lifði hún mann sinn og síðustu árin lifði hún mjög kyrr látu lífi. Er 100 ár voru liðin frá fæð- ingu Niels Finsens, brá Inge- borg þó út af venju sinni, og lýsti manni sínum og störfum hans í mörgum blaðaviðtölum. — Rytgaard. SL. FÖSTUDAG lenti bíll sá, sem mynd þessi er af, í á- rekstri við aðra fólksbifreið í Bröttubrekku skammt neðan við efri stórbrúna, sem er á veginum upp frá Dalsmynni vestur í Dali. Afleiðingin varð sú, að Opel-bifreiðin sem myndin er af, hentist út af veginum og rann niður brekk- una og stöðvaðist fáa metra frá hengiflugi, sem þarna er niður í gljúfrið, um 40 metra fall. Mátti því litlu muna að þarna yrði stórslys. Myndina tók B. Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.