Morgunblaðið - 31.07.1963, Side 8

Morgunblaðið - 31.07.1963, Side 8
8 MORCVNBLAÐIB Miðvikudagur 31. júlí 1963 Þórshöfn, 23. júlí. í DAG kom leiguflugvél Flug félags íslands í fyrstu áætlun arferðina til Færeyja. Veður var gott, er vélin lenti á flug- vellinum í Vogum um hádeg- isbil. Farþegarnir létu vel af ferðinni og fögnuðu því, að loksins er unnt að ferðast loft leiðis til og frá Færeyjum og að þær hafa nú færzt nær nágrannalöndunum í vestri, austri og suðri. Margt manna var saman- komið á flugvellinum til að Flugvél Flugfélagsins fer frá flugvellinum á Vogey áleiðis til Bergen. um Vogafjörð, þannig að þá er aðeins um landleiðina að ræða. Er þá farið af flugvell- inum í bíl til Fútakletts við Vestmannasund, þaðan á báti til Vesmanna, áfram í bíl til Kollafjarðar og svo loks á báti til Þórshafnar. Þetta ferðalag tekur að minnsta kosti þrjár og hálfa klst. eða lengri tíma en flugferðin milli íslands og Færeyja eða Færeyja og Bergen tekur. Næsta sumar er áætlað að ljúka veginum á Straumey, sem gerir mönnum kleift að aka milli Vestmanna og Þórs- hafnar. Við það styttist ferð- in nokkuð, en ekki þó meir en svo, að ferðin úr Þórshöfn til flugvallarins á Vogey mun taka 214 klukkustund. Þrátt fyrir tímalengdina má telja, að ferðamönnum muni þykja leiðin forvitnis- leg, þar sem landslagið er fag urt og margbreytilegt. — Arge. Færeyingar fagna flugi taka á móti flugvélinni, þar á meðal þrír fulltrúar Flug- félags Færeyja, sem eru um- boðsmenn Flugfélags íslands. Danska flugmálastjórnin hefur ákveðið að byggja á flugvellinum og verða þar einnig skrifstofur og biðsalir, en þessi bygging verður ekki tilbúin fyrr en í ágúst og til bráðabirgða hefur Flugfélag íslands sett upp skála fyrir skrifstofu, biðsal og salerni. Tveir menn munu starfa við flugafgreiðsluna, og verð- ur Haraldur Jóhannsson, starfsmaður F. f. í Reykjavík, þeim til aðstoðar fyrst í stað. Enn eiga Færeyingar í mikl- um erfiðleikum með ferðir til og frá flugvellinum í Vogey. Það tekur að minnsta kosti 2Vz klst. að fara sjóleiðina úr Miðvogi og ekki er alltaf fært Stjórnarmenn Flugfélags Færeyja, sem hefur umboð fyrir F. f. í Færeyjum. Talið frá vinstri; Ragnar Larsen, Hugo Fjörðoy og Lars Larsen. Strákarnir í Færeyjum gefa jafnöldrum sinum á íslandi ekkert eftir hvað áhuga á flugmálum snertir. TVyfv nHirnar tnlr ÁcmnnH Pnills^TV Aðalfundur Sambands norð- lenzkra kvenna var haldinn í Húsmæðraskólanum á Laugum í S-Þing. dagana 14. og 15 júní sl. Sambandið er í 8 deildum og nær yfir Norðurland frá N-Þing. til Strandasýslu. Auk stjórnar sátu fundinn fulltrúar frá sambands- deildunum, svo og nokkrir gestir. Fundur hófst með helgistund. Séra Sigurður Guðmundsson á Grenjaðarstað flutti bæn og stutta ræðu, en konur sungu sálma. Auk venj.ulegra aðalfundarstarfa vonj rædd á fundinum helztu á- hugamál sambandsins að þessu sinni: uppældismál, heimilishjálp, heimilisiðnaður, garðrækt og or- lof húsmæðra. Þessar konur fluttu erindi: Aðalbjörg Sigurðardóttir: Bri- :í Bjarnhéðinsdóttir. Kristín Jónsdóttir: Uppeldis- mál. Ragna SÍÉt'u-ðawióttir: Garð- laski. Ragnheiður O. Björnsson: Ull- arvinna. Halldóra Bjarnadóttir: íslenzka sauðkindin. í sambandi við fundinn var heimilisiðnaðarsýning, mest- megnis unnir úr S-Þing., gamlir og nýir, þ.á.m. handavinna eins nemanda Húsmæðraskólans á Laugum sl. vetur. SNK verður 50 ára á næsta ári. Formaður þess er frú Hulda Stefánsdóttir, Blönduósi. Hér fara á eftir nokkrar álykt- anir fundarins: 1. Fundurinn telur sér skylt að beina þeirri áskorun til hins háa Dómsmálaráðuneytis, að það sjái um, að menn, sem staðnir verða að því að selja eða útvega óreynd um unglingum áfenga drykki, hljóti sömu refsingu og þeir, sem önnur siðferðisbrot fremja gegn unglingum. 2 Fundurinn telur það brýna nauðsyn, að sem ílest bæjarbörn fái notið sumardvalar í sveit. — Var um það rætt, að samræma þyrfti að nokkru undirstöðuatriði varðandi meðgjöf og kaupgjald sumardvalarbarna, því að í ljós kom, að mjög gætti þar misræmis milli byggðarlaga, en æskilegra hiyti að vera, bæði fyrir foreldra og sveitaheimili að í þessu giltu einhverjar höfuðreglur, sem hægt væri að byggja á í stórum drátt- um, t.d. að meðlag sé greitt með börnum innan 10 ára aldurs og 10—12 ára börn ynnu fyrir sér. Eftir 12 ára aldur verði þeim greitt kaup eftir getu þeirra og hæfni. Þá þótti ástæða til að vara við því að börn innan 12 ára væru látin aka dráttarvélum. Þess væri gætt að ofþyngja þeim ekki með vinnu og veita þeim fulla viðurkenningu fyrir vel unnin störf. 3. Fundurinn óskar eindregið eftir því, að hið háa Landbúnað- armálaráðuneyti setji ákvæði um að kennd verði í Garðyrkjuskóla ríkisins ræktun og meðferð mat- jurta, svo að fólk, sem þaðan út- skrifast verði fært um að ferð- ast um byggðir landsins og kenna á vegum kvenfélaganna þessa bráðnauðsynlegu nytja- grein. Telur fundurinn, að mál þetta þoli enga bið, og hér ríki hið mesta ófremdarástand. Kvenfélagasamband S-Þing, bauð fundarkonum í skemmti- ferð. Var þá farið að Grenjaðar- stað og byggðasafnið skoðað. Þá bauð Kvenfélag Aðaldæla ferða- fólkinu til kaffidrykkju í barna- skólahúsinu að Grenjaðarstað. Vilja að þeim sé refsaö er útvega unglingum áfengi Frá aðalfundi Sambands norðlenzkra kvenna CooodAear HJÓLBARÐAR P. Stefánsson hf. Laugavegi 170—172. ^ ftOOP^riABj

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.