Morgunblaðið - 31.07.1963, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.07.1963, Qupperneq 14
14 MORCUNBLAÐIÐ MiSvlkudagur 31. Júlí 1963 Hugheilar þakkir flyt ég öllum þeim sem á marg- víslegan hátt sýndu mér vinsemd og hlýhug á 70 ára afmælisdegi mínum 13. júlí s.L Guð blessi ykkur ölL Jóhann Vilhjálmsson, Safamýri 52. Faðir okkar MAGNtíS HÁLFDÁNARSON frá Hnífsdal, lézt á sjúkrahúsinu Blönduósi aðfaranótt 30. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Börn hins látna. Eiginmaður minn JÚLÍUS ÞORBERGSSON Fossvogsbletti 32, lézt 26. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Margrét Einarsdóttir. Eiginmaður minn HARALDUR INGVARSSON fyrrv. bifreiðastjóri, Reynimel 58, er lézt 25. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 2. ágúst kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Laufey Guðmundsdóttir. ÓLÖF EYJÓLFSDÓTTIR Hofteigi 52, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala 29. júlí 1963. Jarðað verð- ur frá Fossvogskirkju 6. ágúst kl. 10,30. Jarðarförinni verður útvarpað. Unnur Fannberg, Erla Karlsdóttir. Jarðarför konu minnar SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR fer fram fimmtudaginn 1. ágúst 1963 og hefst með húskveðju frá heimili okkar Aðalgötu 32 Siglufirði kl. 5 e.h.. — Vegna aðstandenda. Steindór Hannesson. iímilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu SIGRÍÐAR A. E. NIKULÁSDÓTTUR Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunar- liði Landsspítalans fyrir frábæra hjúkrun í hennar lang varandi veikindum. Ragna Sigfúsdóttir, Eggert Sigfússon, Kristín Sigfúsdóttir, Lárus Guðbjartsson, Hrefna Sigfúsdóttir, Jón Kristjánsson, Nikulás Sigfússon, Guðrún Þórarinsdóttir, Sigurður Sigfússon, Anna María Þórarinsdóttir. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og alla hjálp sem okkur var veitt við andlát og jarðarför GUÐMUNDÍNU SIGURÐARDÓTTUR Eyjólfur Finnbogason, börn, tengdabörn og bamabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför GÍSLA SIGURÐSSONAR fisksala. Sérstakar þakkir fyrir góða hjúkrun á St. Jósefs- spítala, Hafnarfirði. Amdís Kjartansdóttir, Hera Gísladóttir, Sigurður Sigurjónsson, Davíð Gíslason, Lilja Sigurðardóttir, Hanna Elíasdóttir, Magnús Elíasson og barnabörn. Faðir okkar og tengdafaðir, ÞÓRÐUR MAGNÚSSON frá Hvítárholti, Öldugötu 41, lézt í Landsspítalanum mánudaginn 29. júlí. Dætur og tengdasynir. Krsútur Þorstesnsson fulltrúi Gæt sjálfur húss þíns, Davíð" »f ÞEGAR hinn víðfrægi Gyðinga konungur, Salómon, féll frá, tók við riki hans og völdum sonur hans, Retrabeam. Salómon kon- ungur hafði verið athafnasamur í sinni stjórnartíð, byggði hið fagra og dýrðlega musteri, sem gerði nafn hans og þjóðarinnar frægt um öll lönd, auk fjölda annarra skrautlegra bygginga, er hann lét reisa í bong sinni. Hann lifði Og viðhafnarmiklu og glæstu hirðlífi, sem eigi átti sinn líka. Jók það og á frægð hans og orðstír. — En allar hinar veg- legu by.ggingar, allt hið íburðar- mikla hirðlíf kostaði óhemju fjármagn, og til að geta klofið þann kostnað varð konungur að leggja æ þyngri skatta á þegna sína. — Urðu þær álögur að lok- um svo þungar að nærri lá að þjóðin kiknaði undir þeim. Og, sem Salómon konungur var dá- inn gengu foringjar lýðsins á fund sonar hans, hins unga verð- andi konungs og báðu hann létta hinum þungu skattbyrðum af þjóðinni og skyldu þeir þá veita honum sömu hlýðni og trú, sem föður hans. — Þeir vitrari og reyndari af ráðgjöfum konungs- sonar réðu honum að ganga til móts við vilja fólksins, en hinn ungi konungur, sem uppalinn var við glaum og sóun hins glæsileg- asta og glaðasta hirðlífs, er um gat á þeim tíma, varpaði fyrir borð ráðum hinna spakari manna en fór að vilja ungra óihófs- gjarnra félaga sinna. Er því fyrirmenn lýðsins komu, að þrem dögum liðnum, á fund konungs Og inntu eftir svörum hans, mælti hann svo: „Faðir minn gerði ok yðar þungt, en ég mun gera það enn þyngra“. Þá er lýð- urinn fékk þessi svör gekk hann á fund Rehabeams og mælti: „Enga hlutdeild viljum vér eiga í ..... Gæt sjálfur húss þins Davíð“. — Á þann hátt gekk helmingur þjóðarinnar undan yfirráðum Rehabeams og ríkið skiptist í tvennt. Hér í vestanverðri Reykjavik- urborg er af grunni risin höll ein hátimbruð og mikil, er þvílíkt ber af öðrum byggingum, sem hallir Salomons báru af sinu umhverfi. Svo glæst, sem höll þessi er ytra að sjá, er þó glæsi- leikinn, er inn í hana er komið sagður enn meiri. — Eru hinar dýrðlegustu sagnir, sem ganga meðal þeirra, er höll þessa hafa heimsótt, um hina innri fegurð hennar, stjörnulýsta glersali, hverra þök eru uppi borin af skrautsúlum og annað skart og íburðartildur. Mundi ekki ólík- legt, að drottningin af Saba, ef uppi hefði nú verið, hefði girnzt að gjöra för sína norður hingað á hjara heims, til að líta augum sínum allan þann glæsileik, svo sem hún á sinni tíð lagði lendur undir fót, til að sjá íburðar- skraut það allt, er rómaðar ^erði hallarbyggingar Salomons ísra- elskonungs. — Og byggingar- kostnaður hallar þessarar ku og eigi hafa á neinum smáupphæð- um oltið, þar sem almennt er talað, bæði leynt og ljóst, og hafa þar eigi verið bornar brigð- ur á, að fullger muni höll þessi aldrei minna kosta en 100 millj- ónir króna og hefði slíkt ein- hverntíma þótt umtalsverður skildingur á landi hér. — Og svo djarft hafa sumir látið orð falla, að bæta mundi mega við þenn- an byggingarkostnað 20-40 millj- ónum, áður en öll kurl eru til grafar komin. Hallarbygging sú, sem hér er um að ræða, er Hót- el Saga, öðru nafni Bændahöll- in. — Nú munu það ýmsir mæla, að eigi sé til undrunar fallið, þó við íslendingar, fáir og smáir á heimsmælikvarða, gerumst svo digrir að reisa skrauthöll fyr- ir hundrað milljónir króna, í líkingu við það, sem gerist hjá milljóna þjóðusa heims. Slíkt sé ekki nema í fyllsta samræmi við annan stórlætisbrag, annað eyðsluóhóf, aðra yfirborðs mennsku, sem nú einkenni og einkennt hafi síðustu áratugi þjóðlífsháttu okkar á flestum sviðum. Og vissulega hafa þeir, er svo mæla, til síns máls of- mikið. — Fátt, eða ekkert mundi meir einkenna þjóðlíf okkar nú, bæði einstaklinga, félagasam- taka og hins opinbera en íburð- arfull og stórtækissjúk yfirborðs- mennska, sem e.t.v. er nær kom- in, en við viljum sjá og viður- Knútur Þorsteinsson kenna að leiða okkur á barm frelsisglötunar. — En enda þótt hundrað millj- óna hallarbyggingin á Melunum í Reykjavík sé táknrænt dæmi um fjármálastefnur og hugsjóna- þroska mikils þorra þeirrar kyn slóðar, sem nú byggir þetta land, er þó eitt, sem undrun margra vekur í því sambandi. En það er að höll þessi skuli vera við bændur landsins kennd og að bændasamtökin í landinu skuli hafa frumkvæði átt að þessari hallarhugsjón og staðið fyrir framkvæmd hennar. — Mundu þó margir mæla, að þrátt fyrir það þó miklar framfarir hafi á þessari öld orðið á sviði land- búnaðarins, hefðu bændur enn ærið verkefni fyrir fjármuni sína, annað en það, að reisa hégómagirnd aldarfarsins minn- isvarða, með byggingu tildur- musteris í höfuðstaðnum, þar sem dýrkendur Mammons, munaðar og samkvæmisfýsna, gætu dýrkað sína hjáguði. í um- ræðum, sem fram fóru á Alþingi í haust um framleiðsluskatt þann, sem lagður er á bændur, vegna þessarar hallarbyggingar, var það upplýst af einum þingmanni bændastéttarinnar, að þessi skattur næmi samtals um 3,6 milljónum króna á ári. — Er þar um dágóða upphæð að ræða, og mundi, þrátt fyrir dýrtíð alla, ýmsu gagnlegu mega til leiðar koma í sveitum landsins fyrir þá fjármuni. — t.d. sýnst öllu nær að þeim skatti hefði verið varið til lagfæringar á lánamál- um bændanna sjálfra, svo mjög sem bændur telja að þar sé þeim þröngur stakkur skorinn. — Og víst mundi eitthvað hafa verið hægt að laga fyrir Grunnvíking- um, Loðmfirðingum og fleirum þeim, er vegna vöntunar á nauð- synlegustu þægindum, hafa yf- irgefið byggðir sínar og bújarðir, í hálfgerðri og algerri auðn. — Rök þau, sem upphafsmenn og málsvarar Bændahallarbygging- arinnar hafa fært fram til rétt- lætingar þessu Salómonssmíði eru þau, að hvortteggju hafi verið að bændasamtök landsins hafi skort nauðsynlegan og við- hlýtandi húsakost fyrir starfsemi sína og höfuðborginni og þjóð- félaginu hafi verið vant fyrsta flokks samkvæmis- og útlend- ingagistihúss. — Enginn sá, sem að verðugu virðir og metur bændastétt landsins og gildi henn ar fyrir þjóðlífið, menningu þess og heilbrigði, mun verða til þess að mæla í gegn því, að félaga- samtök bænda hafi yfir að ráða við höfuðstöðvar sínar hér í Reykjavík, þeim húsakosti er samboðinn sé þeim virðulegu og þýðingarmiklu félágasamtökum og sem fullnægi að öllu hinúm ágætustu kröfum, sem nútíma- aðstæður gera til slíks húsakosts. — En það er jafnvíst að slíkt húsnæði, sem orðið hefði virðu- legur vitnisburður um félags- þroska og samtakamátt bænda- stéttaririnar, hefði mátt reisa fyrir aðeins % til 14 þess verðs, sem timgur tala að Bændahöllin muni að smíði fullloknu kosta. Vafalaust mun það og rétt, að hér skorti á umfullkominn gisti- húsakost fyrir erlent skemmti- ferðafólk, og að auknar komur slíks fólks, færðu þjóðinni vax- andi tekjur í erlendum gjaldeyrL — En að bændum og búaliði hafi öðrum þjóðfélagsþegnum fremur, borið nauðsyn til, að gangast fyrir slíkri byggingu, mundi erf- itt að færa haldgóð rök fyrir. — Mun það óhætt, með ólíkindum að telja, að sú gjaldeyrisaukning, er þjóðinni á komandi árum kann í skaut að falla, af vaxandi straumi útlendinga til landsina verði fyrst og fremst varið til eflir.gar landbúnaði, svo að það geti á nokkurn hátt réttlætt þessa yfirdrifnu lúxussmíð. —• Og hvað það snertir, að tildur- menni og Bingósjúklinga höfuð- borgarinnar hafi skort nógu glæst samkvæmis salarkynni fyrir skemmtanalíf sitt, virðist erfitt að rökfæra lausn slíka máls undir nauðsynjamál land- búnaðarins. Við það fólk, sem svo er rishátt í yfirlæti og í- burðarlifnaði, að því nægir ekki minna en milljónahallir til að eyða í síðkvöldum við vistir og vínföng og sem auka þykist þurfa á gleði brúðkaupsnátta sinna með því að hvíla hinar fyrstu nætur hjónabandsins f slíkum salarkynnum, fremur en að sofa heima hjá sér, áttu bænd- ur landsins góð og gild svör, svo sem lýður ísraels forðum: „Enga hlutdeild viljum við eiga í ísaL Gæt sjálfur húss þíns Davíð“. —- Það fólk, sem slíkan óhófslifnað kýs fremst að stunda, er áreið- anlega það fjarlægt því, að meta eða skilja hlut og lífskjör bænda- stéttarinnar og byggðarlaga hennar, að sízt mundi bændum nauðsyn til bera að gera ok sitt þyngra, með skattlagningu á sjálfa sig til byggingar sam- kvæmishúsa fyrir þá þjóðfélags- borgara. — Ég hygg það sann- mæli eitt, um rök þau, sem reynt hefur verið að færa fram, fyrir byggingu Bændahallarinnar, að frá hvaða sjónarhóli, sem þau eru séð og á hverja vogarskál, sem þau eru vegin, séu þau tál- rök ein, sem bændastétt landsins sé eigi samboðið að hafa látið glepja sér sýn. íslenzk bændastétt hefur frá fyrstu tíð átt við erfið og mis- jöfn kjör að búa. Harðbýli lands- ins, veðurfar og aðrar náttúru- hamfarir, hafa oft árum og öld- um saman, skorið bændum og búandliði þröngan stakk og krappa skó. — En allir þeir örð- ugleikar kenndu bændastéttinni þær dyggðir, sem björgúðu henni til lífs út úr hverri eldraun, þ.e. iðjusemi, hófsemi og hollusta í hverju starfi. — Án þess að rækta með sér slíkar dyggðir hefði bændastéttin aldrei lifað fram á þennan dag, aldrei lyft þeim Grettistökum, sem raun ber vitni um, aldrei orðið sá menningarmeiður þjóðlífsins, sem hún æ hefur verið og á að vera. — Þó miklar og merkar umbætur hafi orðið á þessari öld á sviði landbúnaðarins, sem í öðrum at- vinnugreinum þjóðarinnar, stend ur bændastéttin nú í dag höll- um fæti, — á ýmsan hátt. —- Aukin tækni í atvinnulífi kaup- túna og kaupstaða, ásamt fjöl- þættari atvinnugreinum, keppa um vinnuaflið í æ harðari bar- áttu. — í þeirri baráttu hefur bændastéttin mjög farið halloka. Af ýhasum ástæðum, sem hér Frh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.