Morgunblaðið - 29.08.1963, Page 2

Morgunblaðið - 29.08.1963, Page 2
2 MORGUNBLAÐIO Fimmt'udagur 29. ágúst 1963 wwbSkwwwiIW Maðurinn í Silfurtúni fluttur af slysstað. Ljósm. Sv. Þ. Fjögur slys í gær IJM kl. 7.40 í gsermorgun varð harður árekstur í Borgartúni þar sem tvær fólksbifreiðir komu ak- andi hver á móti annarri. Bifreið- in, sem vestan að kom hægði ferð ina og hugðist bifreiðastjórinn beygja inn í port sunnan götunn- ar, en hleypa austan bifreiðinni framhjá fyrst. í því skall vöru- bifreið aftan á vestan bifreiðina og kastaði henni á þá er að aust- an kom með þeim afleiðingum að báðar fólksbifreiðarnar urðu ó- ökufærar og bifreiðastjórar beggja slösuðust svo flytja varð þá í Slysavarðstofuna. Laust fyrir kl. 2 í gærdag varð 10 ára drengur, Ólafur Þór Gunn- arsson, fyrir stórri fólksflutninga bifreið á homi Hverfisgötu og Barónsstígs. Ðrengurinn var á reiðhjóli og lenti það undir fram- hjóli bifreiðarinnar. Óttast var að drengurinn hefði höfuðkúpu- brotnað og var hann fluttur í sjúkrahús. Laust fyrir kl. 6 í gærdag varð 7 ára drengur fyrir bifreið á Lönguhlíð skammt sunnan Há- teigsvegar. Drengurinn heitir Sigurður Jóhannsson og var hann fluttur í Slysavarðstofuna og síðan heim til sín. Loks varð í gærkvöldi um kl. IMinna tjón en talið var — af skýstrók í Danmörku Kaupmannahöfn, 28. ágúst — NTB. LJÓST er nú að tjón hefur orðið miklu minna en talið var í fyrstu í þorpinu Faar- vang á Jótlandi, en þar fór um skýstrókur í gærmorgun Rúður brotnuðu víða í þorp inu, og skemmdust þar alls um 20 hús. Komið hefur á daginn að flestir eigendur húsanna höfðu tryggt þau fyrir skemmdum af völdum náttúruhamfara, þannig að tjónið var allt miklu minna en í fyrstu var talið. Áætlað er að tjónið nemi vart 1 mill- jón danskra króna. 20.30 slys í Silfurtúni þar sem starfsmaður á skurðgröfu var að huga að bilun á vél sinni. Lenti hann á jarðföstum járnteini og hlaut af slæm meiðsli svo flytja varð hann í Slysavarðstofuoa. Maðurinn heitir Þórólfur Magn- ússon til heimilis að Gnoðar- vogi 84. Aldarafmælis Rauöa krossins minnzt á sunnudag NÆSTA sunnudag, 1. september, er aldarafmælis Rauða Krossins minnzt hátíðlega um heim allan. Meginhátíðin verður í aðalbæki- stöðvunum í Genf, en í öllum löndum, þar sem Rauði krossinn starfar, 91 talsins, verður afmæl- isins minnzt. Nú eru 170 milljónir manna í félögum Rauða krossins. Flestir eru í Bandaríkjunum. Starfsemi Rauða krossins hefur álls Staðar verið árekstralaus, enda er fyllsta hlutleysis gætt að öllu leyti. f löndum Múhameðstrúar- manna nefnist félagsskapurinn Rauði hálfmáninn, en í íran Rauða ljónið og í Japan Rauða sólin. Rauði krossinn er fyrsti félagsskapur kristinna manna, sem Múhameðstrúarmenn vildu taka þátt L Wennerström áður grunaður um njósnir Öryggislögreglan fylgdist með honum d stríðsdrunum Stokkhólmi NTB. 28. ágúst. — STIG WENNERSTRÖM, hinn 57 ára gamli ofursti, sem játað hef- ur á sig njósnir fyrir Sovétríkin í Svíþjóð, var þegar á styrjaldar- árunum grunaður af öryggislög- reglunni vegna hinna tíðu sam- skipta hans við sendimenn þýzku nazistastjórnarinnar í Stokk- hólmi. Svo sem kunnugt er telja margir að Wennerström hafi njósnað fyrir nazista, Rússar komizt að þvi og neytt hann til njósna fyrir sig síðar. Upplýst hefur verið að lög- reglan tilkynnti varnarmálaráð- herra Svía 1959 að hún hefði á- huga á Wennerström. Um svipað leyti þótti ekki allt með felldu varðandi Wennerström, en hann gat gefið eðlilegar skýringar á hlutunum. í árslok 1962 vöknuðu enn grunsemdir varðandi Wenner- ström, og öllu sterkari en áður. Þá var Wennerström ráðgjafi stjórnarinnar í afvopnunarmál- um og sótti fast að komast á af- vopnunarráðstefnuna í Genf, þar sem Svíar gegndu miklu hlut- verki. Torsten Nilsson, utanríkis- ráðherra, neitaði þá að taka beiðnir Wennerströms um Genf- arferð til greina. Þessar nýju upplýsingar var að finna í greinargerð, sem í dag var afhent blöðum í Sviþjóð. Er greinargerðin frá sérstakri • ■efnd, sem rannsakað hefur mál Wennerströms. Öryggisráðið * ur Israels og ræðir kær- Sýrlands Stevenson fordæmir drdp tveggja Israelshermanna New York 28. ágúst. , NTB-Reuter. ÖRYGGISRÁÐIB kom saman til fundár í dag til að ræða ástandið í Austurlöndum nær, eftir árekstrana sem orðið hafa á landamærum ísraels og Sýr- lands. Hafa þessi lönd kært hvort annað fyrir öryggisráðinu. U. Thant. aðalritari S.Þ. tók fyrstur jil máls á fundinum í dag. Sagði hann að vopnahléð virtist nú að mestu haft í heiðri af báðum aðilum. Sagði hann að vopnahlésnefnd S.Þ. hefði geng ið úr skugga um að ekki væru fleiri hermenn baggja vegna landamæranna en leyfilegt væri samkvæmt vopnahléssamningun um frá 1949. Vopnahlésnetfndin rannsakaði svæðin beggja vegna landamæranna sl. mánudag. Adlai Stevenson, fulltrúi Bandaríkjanna, tók einnig til máls. Taldi hann að öryggisráð- inu bæri að taka afstöðu til þess að tveir ísraelskir hermenn hefðu verið skotnir til bana 20. ágúst sl. Sagði Stevenson að dráp þessi bæri að fordaema með tilliti til virðingar fyrir alþjóða- lögum. Stevenson sagði að staðreynd irnar mótmæltu kæru Sýrlands á hendur ísrael. Taldi hann það miður farið að bæði löndin hefðu skotið málum sínum beint til öryggisráðsins án þess að um þau væri fjallað af vopna- hlésnefnd samtakanna. Bætti Stevenson því við að Banda ríkjastjórn liti ekki einungis þann atburð alvarlegum augum að tveir ísraelsmenn hefðu verið drepnir, heldur einnig þá stað reynd að sýrlenzkir hermenn hefðu rænt þremur borgurum ísraels, þar af tveimur stúlkum. Dey Ould Sidiibaba, fulltrúi Marokkó, sagði að skýrsla sú, sem formaður vopnahlésnefndar innar, norski hershöfðinginn Slysavarnakonur í heimsókn Akranesi 28. ágúst. RÚMLEGA 20 slysavamar- konur sunnan úr Garði komu hingað í bæinn kl. 3 í dag. Var þeim tekið með kostum og kynjum og veizla haldin að að Hótel Akranesi. Hópur slysa varnakvenna héðan fylgdi þess- um góðu gestum héðan inn að Ferstiklu. Þar verður drukkið kaffi og skipzt á kveðjum. — Oddur Sir Charles Hambro látinn London 28. ágúst. NTB-Reuter. SIR Charles Hamtoro, stjórnar- formaður hins þekkta Hambros- banka í London, lézt í dag 65 ára gamall. Sir Charles hefur einnig verið bankastjóri við Englandsbanka í 35 ár. Er hann tók við þeirri stöðu var hann yngsti maður, sem það hefur gert. — Svo sem kunnugt er hafa íslendingar haft mikil við- skipti við Hambrosbankann. Odd Bull, hefur lagt fyrir ör- yggisráðið, benti til þess að kæra ísraels væri komin til vegna grunsemda en ekki stað reynda. Sagði fulltrúinn að svo virtist sem kæran hefði verið lögð fram í flýti. Að vísu væri það sorgleigt að tveir menn hefðu látið Hfið, en það eitt væri ekki næg ástæða til þess að valda nágrannaríki örðugleikum, og til þess að kalla saman skyndi- fund í Öryggisráðinu. Þrír fulltrúar Rauða kross fs- lands sitja afmælishátíðina 1 Genf, Þorsteinn Scheving Thor- steinsson, dr. Jón Sigurðsson, form. Rauða kross íslands, og frú Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir. Rauði kross íslands gengst fyr- ir samkomu í Þjóðleikhúsinu á sunnudagskvöld vegna afmælis- ins. Lúðrasveit Reykjavíkur leik ur á tröppum leikhússins frá kL 20 til kl. 20.30, en þá verður há- tíðin sett. Ávörp flytja heilbrigð- ismálaráðherra, Bjami Bene- diktsson, landlæknir, Sigurður Sigurðsson, og borgarstjóri, Geir Hallgrímsson. Valur Gíslason, leikari, flytur þætti úr aldar- sögu Rauða krossins. Um hljóm- list sjá Einar Sveinbjömsson, fiðluleikari, Guðmundur Jóns- son, óperusöngvari, Rögnvaldur Sigurjónsson, píanóleikari, og Þorkeli Sigurbjörnsson, píanó- leikari. — AUir félagar Rauða krossins em velkomnir, svo og allir vinir hans, meðan húsrúm endist. Áí■ ■ ■•«:*****>> ' ■ , 'y''§*s, - ValdimarS.Lofts son, rakarameist- ari, látinn SÍÐASTLIÐINN þriðjudag lézt að Landakotsspítala Valdimar S. Loftsson, rakarameistari. Valde- mar varð 92 ára gamall og einn af kunnari eldri borgurum Reykjavíkur. Hann var fæddur að Mölshús- um á Álftanesi 28. apríl 1871. Valdimar var í hópi fyrstu manna er gerðu rakstur að ævi- starfi. Hann stundaði þá iðn allt fram til 72 ára aldurs, fyTst á Vitastíg og síðar í rakarastofu þeirri er enn starfar á Lauga- vegi 65. Valdimar var kvæntur Ólafíu Magnúsdóttur, sem látin er fyrir 10 árum. Þeim varð 4 barna auðið. í gærmorgun var hæg rign ing á Suðvesturlandi og allt norður um Borgarfjörð, en létti í lofti er leið á daginn. Á Vestfjörðum var enn sem fyrr hið fegursta veður, logn og sól, en skýjað í öðrum héruðum og þokuslæðingur um rismál á Norðurlandi. — Lægðirnar renna ennþá eina slóð austur fyrir sunnan land, en við V-Grænland er ný lægð, sem kann að end- urnýjast á Grænlandshafi og valda suðlægri átt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.