Morgunblaðið - 29.08.1963, Page 6

Morgunblaðið - 29.08.1963, Page 6
6 MORGUU*! AOIÐ Fimmtudagur 29. ágúst 1963 Norðlenzk iyndni og ierskeytlni Ásmundur Sveinsson og Korn erup-Hansen við listaverkið í g arðinum við Suðurgöíu 10. _ Ljósm. Mbl. Sv. >. Fuglinn Fönix í Suðurgötu „ÉG VONA, að Reykvíkingum, og þá sér í lagi yngri kynslóð- inni, takist senn að skilja, að listaverk eru til þess að horfa á og njóta þeirra, en ekki til að hanga í og róla sér,“ sagði Ás- mundur Sveinsson, myndhöggv- ari í gser, er Kornerup Hansen, stórkaupmaður, bauð fréttamönn um og fleiri gestum að sjá lista- verk Ásmundar, fuglinn „Éönix“, sem komið hefur verið upp í hinum smekklega garði Korner- up Hansen og fjölskyldu hans í Suðurgötu 10. Sem kunnugt er hefur Korner- up Hansen rekið umboðsverzlun- ina Fönix hér í bæ um 28 ára skeið og á sextugsafmaeli hans í fyrra ákvað fjölskylda hans að gefa honum listaverx Ásmundar í afmælisgjöf. Gerði listamaður inn drög að því fyrir tveim ár- um og hafði Andrés Kornerup Hansen fengið hugmyndina um að gerð yrði eftirmynd af skiss- um „Ásmundar af Fönix, sem birtust á mynd í dagblöðunum, þannig að fjölskyldan gæti síðan gefið föður hans myndina. Hefur Ásgeir Matthíasson, starfsmaður blikksmiðjunnar Glófaxa haft veg og vanda af að smíða „Fön- ix“ úr stálrörum eins og hann birtist gestunum í gær. en fugl- inn er um þrír metrar á hæð og breidd. Hafði Kornerup Hansen orð á því, að hann vonaðist til að Glófaxi gæti fengið fleiri slík verkefni í framtíðinni og minnk- að við sig um sinn gerð niður- fallsröra, ef svo vel til tækist að fleiri einstaklingar og fyrirtæki fengju áhuga á að skreyta um- hverfi sitt með eftirmyndum af skúlptúr, sem listamenn okkar hafa þegar gert skissur að, og koma almenningi þannig í nánari snertingu við listina og veita listamönnunum flein tækifæri. Kvaðst hann hugsa vel til þeirra móttaka, er fuglinn Fönix fengi hjá bæjarbúum, Sjálfur sagðist hann þegar vera bújnn að fá mikið dálæti á horium og finn- ast hann njóta sín vel, þar sem honum hefur verið fyrir komið. í sama streng tók listamaður- inn Ásmundur. er hann þakkaði Kornerup Hansen og fjölskyldu hans fyrir það tækifæri er þau hefðu veitt honum með því að láta gera eftirmynd af þessari mynd sinni. Kvaðst hann eiga fjölda slíkra mynda, en „Fönix“ og „Rafmagn“ við Steingríms- stöð hjá Efra-Sogi, eru þær einu, sem hingað til hafa verið settar upp á almannafæri. jEgyptarnir fornu hafa löng- um haft áhrif á mig í list sinni — ég hefi hrifizt af þeim, jafn- vel meir en af Grikkjunum, af því að þeir eru svo óskiljanleg- ir. Fólkið segir í dag: „Ég skil ekki þessa list“ — en það er einmitt þetta óskiljanlega, sem alltaf er að gefa eitthvað nýtt- Ég hefi mikið hugsað um Fönix, ai því að hann er svo stór, hann er eilífðarhugmynd Egyptanna. Ég þakka Kornerup Hansen og fjölskyldu hans, mér finnst stað urinn vera upplagður og mynd- in njóta sín vel. Abstraktið á að vera stórt, þá nýtur það sín, því að það spennir rúmið svo miklu betur“, sagði Asmundur Sveins- son að lokum. NÝLEGA er komið út fjórða hefti af norðlenzkri fyndni og ferskeytlum. Ber það titilinn ,Nú er ég mátulegur". Áður eru Viðskipti við Tékkóslóvakíu UNDANFARIÐ hefur dvalið hér á landi viðskiptanefnd frá Tékkóslóvakíu til að semja um viðskipti landanna fyrir tíma- bilið 1. september 1983 — 30. september 1966. Samkvæmt vörulistum sem nú hefur verið samið um, er gert ráð fyrir, að ísland selji, eins og áður: Fryst flök, frysta síld, saltsíld, fiskimjöl, lýsi, fisk niðursuðu auk fleiri vara. Frá Tékkóslóvakíu er m.a. gert ráð fyrir kaupum á vefnaðarvöru, skófatnaði, búsáhöldum, sykri, rúðugleri, járni og stálvörum, margs konar iðnaðarvélum og verkfærum, bílum, auk fleiri vara. Af íslands hálfu önnuðust þessa samninga: Dr. Oddur Guðjónsson, sem var formaður nefndarinnar, Björn Tryggva- son, Pétur Pétursson, Yngvi Ó- lafsson og Árni Finnbjörnsson. Samningur um framangreind viðskipti var í dag undirritaður af utanríkisráðherra, Guðmundi í. Guðmundssyni, og Ing. Jaro- slav Kohout, varautanríkisverzl unarráðherra Tékkóslóvakíu. Viðstaddur undirritunina var einnig sendiherra Tékkóslóvak- íu á íslandi, Dr. Alexej Voltr. (Frá utanríkisráðuneytinu) Frá undirskrift samninganna. • Hraðfrystir karlmannamagar Eftirfarandi bréf hefir okkur borizt frá langþreyttrj eigin- konu og þarf það ekki skýr- inga. „Elskulegi Velvakandi! >ökk sé þér, sem leyfir kvart andi sálum rúm í dálkum þín- um. Mig langar til að létta á mínu áhyggjufulla hjarta, í þeirri von að þú ljáir áhyggj- um minum eyra. Tilefni þessa pistils er grein sem ég las í tímaritinu Úrval fyrir all löngu. Grein þessi fjallaði um maga- sár, of háar sýrur í maga og lækningu á þessum sjúkdóm- um. í greininni var sagt, frá nýrri aðferð til lækningar á magasýrukvillum sem eta gat á magann af mikilli grimmd og útkoman vérður magasár. Lækn ing þessi er fólgm * því ' að frysta maga sjúkbngsins í 1 . klukkutíma. Strádrepast þá hin ar herskáu sýrur og sjúklingur inn hleypur syngjandi út, al- bata og má borða allt sem hann langar í og drekka allt nema alkohol. Ég er ein þeirra langþreyttu eiginkvenna, sem fóðra verða karlinn sinn á soð- inni ýsu, hafragraut og græn- meti (sem hann kallar kanínu- fóður), sem kunnugt er eru komin út þrjú hefti í þessu safni. Hét hið fyrsta þeirra „Nú er hlátur nývakinn", annað hefti hét „Nú er grátur tregur", og hið þriðja „Nú er ég kátur nafni minn“. Rósberg G. Snædal, rit- höfundur á Akureyri, hefur safn að þessum kímnissögum og kveðlingum og kemst m. a. að orði um þær á þessa leið í for- mála fyrir síðasta heftinu: „Hér er um að ræða samtíning af ýmsum toga spunninn og mis- jafnan að gæðum, fyndni og sannleiksgildi. Viðvíkjandi þvi síðasttalda vil ég taka það skýrt fram, að ekki má leggja sagn- fræðilegt mat á þær sögur, sem hér eru sagðar. — Og tilgangur með skrásetningu þeirra er i rauninni alls ekki sá að höfða til staðreynda, heldur að segja sögur, sem skemmt geti lesand- anum eða áheyrandanum. Staða og mannanöfn skipta hér engu meginmáli í flestum tilfellum, því ekki nema fáir af þeim, sem þetta lesa, þekkja svo vel til, að staðhættir og persónur geti hald- ið sögunni uppi, ef annað kemur ekki til. Það er frásögnin öll og hápunktur hverrar sögu — rúsín an í þylsuendanum, mætti segja, sem gefur þeim gildi ef nokkurt er“. Bergen, 26. ágúst NTB • Það, sem af er þessu ári, hafa um það bil 90.000 banda- rískir ferðamenn komið til Nor- egs og hafa þeir aldrei fyrr ver- ið svo margir. Fjölgunin frá 1 fyrra nemur um 20%. karlmenn erfiðustu og verstu sjúklingarnir, þeir kvarta há- stöfum yfir meðferðinni á sér þó maður sé aðeins að fram- kvsema skipanir læknis um matarkúr. Núverandi lækning samanstendur af matarkúr í nokkur ár og að endingu Hara- kiri og brottnám magans að %. Þetta eru ekki sem hugguleg- astar horfur, enda fara fórnar- lömbin ekki undir nnífinn fyrr en í síðustu lög. Hvenær meg- um við eiga von á að hægt verði að hraðfrysta magann í þeim magaveiku? Vonandi fljót lega. Enginn sannur karlmaður hefur á móti því að rennt sé ofaní hann alkohoii í lítratali, jafnvel þó það sé gert með slöngu og vökvinn langt undir frostmarki. Tæki þessi ættu ekki að vera ofsalega dýr, þar sem sagt er í greinmni að þau samanstandi af 2 slöngum, sekk sem er mátulegur í mag- ann, frystivél pum.pu og nokkr- um lítrum af alkoholi, auk þess rafhitað teppi svo sjúklingur- inn frjósi ekki allur. Hingað þarf þetta galdratæki endilega að koma sem fyrst, þar sem annar hver maður er með of háar sýrur í maga. í marg- nefndri grein stóð að yfir 50 sjúkrahiis í U.S.A. hefðu tekið þetta tæki í notkun og árang-' urinn væri 100 prósent. En Ameríkuferðir eru nokkuð dýr- ar svo ég sé mér ekki kleift að senda karlinn minn þangað, og Harakiri aðferðina er hann mjög hræddur við. Framvegis verður því soðin ýsa hér á borðumll Langþreytt eiginkona. BOSCH Höfum varahluti í flestar tegundir Bosch BOSCH startara og dynamóa. Kaupfélag Eyf., AkureyrL Véladeild BOSCH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.