Morgunblaðið - 06.09.1963, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.09.1963, Qupperneq 23
FÖstudagur 6. sept. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 23 Stéttarsambandsfundurinn krefst hærri verðgrundvaltar en fulltrú- ar bænda hafa lagt fram í nefnd Gert var ráð fyrir að fundur stæði fram á nott AÐALFUNDUR Stéttarsam- sauðfjárframleiðslu.“ bandsins stóð enn er blaðið £ór í prentun og voru stór mál þá óafgreidd, svo sem til- lögur til breytinga á fram- leiðsluráðslögunum. Þýðingarmikið mál hafði þó verið afgreitt þar sem eru tillögur um verðlagsmál. í þeim er krafizt verulegrar hækkunar frá þeim tillögum til verðlagsgrundvallar, sem fulltrúar bænda í 6-manna- nefnd hafa lagt fram, sem þýddu 36,2% hækkun á verð- lagi og 13—15% launahækkun til bænda. í þeim var gert ráð fyrir að kaup bóndans næmi 122 þús. kr. en í tillögum fund arins var krafizt 150 þús. kr. lágmarkslauna. Fundur Stéttarsambandsins hófst kl. 4 í gærdag með því að lagðar voru fram tillögur reikn- inganefndar um samþykkt reikn- inga og fjárhagsáætlunar. Var svo gert. Samþykktar voru tillögur frá allsherjarnefnd um bætta vara- hlutaþjónustu, að bændur beri ekki skaða af sauðleysi vegna fjárskipta og að hamlað verði gegn því að fjársterkir menn kaupi hlunnindajarðir. Þá var samþykkt tillaga stjórn arinnar, sem birt var hér í blað- inu í gær utan það að fellt var úr tillögunni þar sem stendur: „Með þessum athugunum skal leitt í ljós, hvort landbúnaðar- framleiðsla hérlendis skuli mið- ast við þarfir þjóðarinnar eða vera jafnframt til útflutnings." í>á kom fram tillaga um niður- fellingu búnaðarmálasjóðsgjalds þess er rennur í stofnlánadeild landbúnaðarins. Ennfremur til- laga um að tekið sé tillit til þessa gjalds í verðlagsgrundvellinum og dagskrártillaga frá Hermóði Guðmundssyni um að þar sem búnaðarsamtök væru að hefja mál út af því hvort gjald þetta mætti leggja á samkvæmt stjórn- arskrá, væri ekki ástæða til að taka nú afstöðu til málsins. Dagskrártillagan var felld með 20 atkv. gegn 16, tillagan um að taka gjaldið inn í verðgrundvöll- inn var felld með 12 atkv. gegn 5 en tUlagan um niðurfellingú gjaldsins samþykkt með 31 atkv. gegn 9 en 6 sátu hjá og 1 var fjarverandi. Viðhaft var nafna- kall. I>á voru lagðar fram tillögur verðlagsnefndar og höfðu þær hlotið afgreiðslu kl. rúmlega 11 í gærkvöldi. Þær eru svohljóðandi: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 telur að þróunin í landbúnaðinum undanfarin ár sýni að afkoma sauðfjárframleið enda hafi verið mun lakari en mjólkurframleiðenda. Stækkun búanna er miklu meiri þar sem mjólkurframleiðsla er stúnduð, en grisjun byggðanna er hins vegar miklu meiri, þar sem sauð fjárrækt er stunduð. Af þessum sökum legg- ur fundurinn áherzlu á, að við verðlagningu á þessu hausti komi leiðrétting á blutföllum verðs milli mjólkur- vara og sauðfjárframleiðslu og leggur tii að 20% af hugsanlegri bækkun mjólkurverðs færist á „Aðalfundur Stóttarsamibands bænda 1963 vekur atnygli á því að í sumum landshlutum vanti mikíð á að sú fratnþróun sé í landbúnaðinum, sem nauðsynleg er til að bændur hafi viðunandi lífsafkomu og að tryggð verði nægjanleg búvöruframleiðsla í næstu framtíð fyrir þéttbýli þess ara héraða. Þebta á við um Vest- firði, Austur- og Norðausturland og víðar. Fundurinn telur að jafnframt hækkuðu verðlagi tii bænda og bættum launakjörum þeirra, þurfi ríkisvaldið að gera sérstak- ar ráðstafanir til að bæta aðstöðu landbúnaðarins í þessum lands- hlutum, t.d. með aukinni aðstoð við stofnframkvæmdir skv. jarð ræktarlögum og með sérstökum framlögum til ákveðinna fram- kvæmda, þar á meðal félagslegra bygginga, eins og mjólkurbúa. Þessi framlög verði óafturkræf eins og þau sem veitt eru til end- urbygginga íbúðarhúsa. Fundurinn felur sljórn Stétt- arsambandsins að vinna að því við ríkisstjórn og Alþingi, að þessi mál verði tekin til úr- lausnar á næsta þingi.‘ „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 vill enn á ný ítreka fyrri samþykktir um að verð- lagsgrundvöllur undanfarinna ára um verð landbúnaðarvara, fullnægi ekki þörf landbúnað- arins um eðlilega uppbyggingu og framþróun, og hafi ekki gef ið bændastéttinni þær tekjur, sem henni eru ætlaðar skv. 4. gr. laga um framleiðsluráð land búnaðarins o.fl. Telur fundurinn að landbún- aðurinn sé kominn í varanlega hættu verði framhald á þessari þróun. Með tilliti til þeirra almennu verðhækkana, sem orðið hafa í landinu að undanförnu og jafn framt stórfelldra launahækkana hjá öllum almenningi, gerir fund urinn kröfu til þess að laun bænda verði stórhækkuð á þessu hausti. Fundurinn telur að tillögur framleiðenda í sex-manna-nefnd sem nú eru fram komnar séu of lágar miðað við það hvað bændur eru orðnir langt á eft- ir öðrum stéttum í launamálum. Hann vill benda á að ýmsir liðir þess verðlagsgrundvallar eru of lágt áætlaðir þ.á.m. stofn fé búsins og fyrningar og vext- ir af því. Á þetta sérstaklega við um húsakost og vélakost. Viðhald húsa er víða van- rækt, vegna fjárskorts bænda. Viðhald og fyrning ræktunar hefur ekki verið tekin til greina á undanförnum árum. Fleiri reksturskostnaðarliði mætti nefna, sem of lágt eru áætlað- ir. Þá vill fundurinn leggja áherzlu á sjálfan launaliðinn. Sérstaklega vekur hann athygli á: 1. Að kaup bóndans sé áætl- að of lágt miðað við þá gild- andi kauptaxta, sem það er mið að við, svo og með tilliti til þeirra launahækkana annarra þjóðfélagsþegna sem þegar hafa verið viðurkenndar. Ennfremur vill fundurinn vísa til þeirrar staðreyndar, að bændur vinna alla helgidaga ársins án þess að nokkuð sé gert fyrir því í kaupliðnum. Lágmarkslaun bóndans telur fundurinn því að þyrftu að vera kr. 150 þúsund. 2. Að i úrtaki því, sem við er miðað um laun annarra stétta, eru ekki taldar tekjur barna inn- an 16 ára aldurs né kvenna og ekki heldur tekjur af eign- um. í þessu efni er því stórlega hallað á bændur, þar sem kon- ur þeirra og börn vinna meira og minna að búrekstrinum, án þess að þeim séu ætluð sér- stök laun fyrir þá vinnu og enn- fremur eru leigutekjur af eign- um, svo sem hlunnindum, tald- ar til launa bænda. í þessu fellst misrétti, sem krefjast verður leiðréttingar á. 3. Að bændur bera ábyrgð á áhættusömum rekstri og oft verða áföll í búrekstrinum, sem engar tryggingar ná til og gera þarf ráð fyrir að það fáist bætt í verðlaginu. Ennfremur vill fundurinn benda á þann stórfellda aðstöðu mun, sem bændur búa við í ýmsum efnum og alveg sérstak- lega til þess, að koma börnum og unglingum til náms“. Að síðustu var borin fram til laga um, að loks ákvæði fundur- inn að samningsuppkast 6- manna nefndarinnar að nýjum verðlagsgrundvelli skyldi lagt fyrir sérstakan aukafund Stéttar- sambandsins. TiUaga þessi var samþykkt með 16 atkv. gegn 14 og hafa því 7 setið hjá og verið fjarver- andi. Allharðar umræður urðu um verðlagsmálin og búizt var við miklum umræðum fram eftir nóttu. I Iok fundarins fer fram stjórnarkjör og landbúnaðarráð- herra ávarpar fundarmenn. — Borgcirstjórn Framh. af bls. 2 hins vegar kæmi of mikið fram, að þeir vildu allt fyrir alla gera. Tillögurnar miðuðu að því að tryggja sem beztan hag allra og í rauninni færi hagur neytenda og verzlunareigenda að mestu leyti saman í þessu máli. Sigurður óskaði eftir því, að borgarráðsfulltrúar legðu fram breytingartillögur tímanlega, svo hægt væri að samræma þær í tíma í því skyni, að endanleg niðurstaða yrði öllum almenn- ingi, verzlunarfólki og verzlunar eigendum til hagsbóta. Að lokum var samþykkt sam- hljóða til borgarráðs, heilbrigðis nefndar og 2. umræðu tillaga Sig urðar um rannsókn á því, hvort heimila skuli matvöruverzlun- um að selja mjólk og mjólkur- vörur. — Hinir tátnu Framh. af bls. 1 in á loft. Þá hafa vitni skýrt frá því, að hlutar úr þotunni hafi fundizt 10 km frá slys- staðnum, en rannsóknarnefndin hefur enn ekki fullkannað hvort hér sé raunverulega um að ræða hluta úr flugvélinni. Minningarguðsþjónusta vegna slyssins verður haldin á laugar- dag. Seint í kvöld fannst hinn svonefndi „flight-recorder“ Cara velle-þotunnar, en það eí sterk byggður kassi, sem inniheldur ýmis mælitæki, sem taka niður Johnson Framh. af bls. 24 Frá Keflavíkurflugvelli er haldið til Bessastaða, en þar mun forseti fslands, herra Ásgeir Ás- geirsson, og forsetafrúin ræða við gestina um stund. Þaðan heldur varaforsteinn bandaríski í heimsókn í Stjórnarráðið. Skilja þá leiðir gestanna. Johnson held- ur í Stjórnarráðið, frú Johnson til bandaríska sendiráðsins, en dóttiriin til Sundlaugar Vestur- bæjar. Þessar heimsóknir fara fram kl. 11 f. h. Að heimsókninni I Stjórnar- ráðið lokinni, kl. 11.15, heldur varaforsetinn að Leifsstyttunni, og fer í stutta ökuferð um bæ- inn, fram til þess tíma, er hann snæðir hádegisverð í boði ísl. for setahjónanna, kl. 12.30, að Hótel Sögu. Þar hafa varaforsetahjón- in aðsetur, meðan á dvöl þeirra stendur hér. Johnson, varaforseti, heldur að loknum hádegisverði með þyrlu til Þingvalla, og verður þar um kl. 15.00 síðd. Þar segir dr. Kristján Eldjárn frá sögu stað- arins. Dvölin á Þingvöllum verð- ur stutt, og mun verða komið aftur að Hótel Sögu Um kl. 15,30. Rúmri hálfri annarri klukku- stund síðar, kl. 17.10, flytur vara forsetinn ávarp í Háskólabíói, en á tímabilinu kl. 17.45—18.00 verða viðtöl við fundarmenn í kvikmyndahúsinu. Ríkisstjórnin býður varafor- setanum til kvöldverðar að Hótel Borg kl. 19.30, og þar dvelst hann það, sem eftir er kvölds. Svo sem fyrr segir, þá er gert ráð fyrir, að leiðir gestanna skilji, er varaforsetinn heldur í heimsókn í Stjórnarráðið. — Frú Johnson mun eftir þann tíma, þ.e. eftir kl. 11.00 árdegis, halda til bandaríska sendiráðsins. Þár verður haldin kaffidrykkja með hálfum öðrum tug íslenzkra kvenna. Síðdegis heldur varafor- setafrúin til Blikastaða, en hún hefur mikinn áhuga á landbún- aði, ræktunarmálum o.þ.h., en sjálf rekur hún búgarð í Texas. Ungfrú Linda Johnson, dóttir varaforsetahjónanna, fer kl. 11.00 í heimsókn til Sundlaugar Vest- urbæjar. Hún snæðir hádegis- verð í Klúbbnum með ungum stúdentum, en kvöldverð mun hún snæða á vegum Varðbergs, í Naustinu. Varaforsetafrúin mun að öllum líkindum snæða hádegisverð í Þjóðleikhúskjallaranum, en ekki mun fullákveðið, hvar hún snæðir kvöldverð. Heimsókninni lýkur að morgni þriðjudags, 17. september, er gest irnir verða kvaddir fyrir utan Hótel Sögu. Viðstaddir verða þá m.a. forsætisráðherra, Ólafur Thors, og utanríkisráðherra. allt varðandi flugið. ar kassinn óskemmdur, og er fundur hans talinn mjög mikilsverður. Við fyrstu rannsókn mun hafa kom ið í ljós að annar þrýstilofts- hreyfla vélarinnar hefur losnað frá henni áður eu bún skall í jörðina. - Iþróttir Framh. af bls. 22 „Núna“, öskruðu stuðnings- menn Lakers, núna var þeirra tími kominn. Og núna náðu þeir Elgin Baylor og Jerry West sér fyrst á strik. Þeir æddu niður leikvöllinn, hittu úr ótrúlegustu skotum og hirtu öll fráköstin i fyrsta skipti í leiknum. Vörn Boston virtist leysast upp. For- skot þeirra minkaði niður í 8 stig, síðan í 6 og enn niður í 4 stig. Inni í búningsklefanum var Cousy að ærast á meðan verið var að binda um öklann, sem' óðum blés upp. „Ég datt um sjálfan mig,“ stundi hann. „Er þetta ekki stórkostlegt? Ég hefi aldrei fyrr snúið á mér öklann. Ellin virðist vera að ná mér —• tíu mínútum of snemrna." Fyrir Cousy var það nú eða aldrei. Hann vissi að öklinn mundi aldrei þola sjöunda leik- inn. Grettur af sársauka staul- aðist hann inn á leikvöllinn og Boston lifnaði aftur við. Tvisvar tókst Lakers að skera forskotið niður í eitt stig og tvisvar tókst hinum endurnærðu Celtics að rétta hlut sinn. 2 mín. og 20 sek. til leiksloka. Staðan var Boston 104, Los Angeles 102 og Lakers voru með knöttinn. Á vallarmiðju stóð Tommy Heihn- son framherji Geltic og horfði á Jerry West „dribbla“ upp leik- völlinn. Vinstra kné Heihnsons var reifað og það var alveg að gefa sig. „Ég var svo þreyttur sagði hann seinna, „að ég hélt að ég gæti ekki staðið lengur, því síður hlaupið. Ég ákvað að hætta á allt. Jafnvel þótt ég félli dauð- ur niður, þá var það þó betra heldur en að tapa.“ Jerry West sendi lausan háan knött til miðherjans Rudy La Russo. Heihnson þaut fram fyrir LaRusso og tókst að sló knött- inn í burtu. Hann hrasaði, tókst einhvernveginn að ná jafnvægi aftur og slagaði niður völlinn —I lagði knöttinn 1 körfuna, Celtics höfðu yfirhöndina 106:102. Þessi meistaralegi knattstuldur hefði átt að draga kjarkinn úr Lakers, en það var nú eitthvað annað. Liðin skiptust á um að skora og þegar 43 sek. voru til leiksloka skoraði Dick Barnett fyrir Lakers með öfugu snún- ingsskoti og var hindraður um leið. Barnett skoraði úr vítakastinu og Boston hafði nú aðeins 1 stig yfir. Næsta karfa mundi ráða úr- slitum. Cousy tók stökkskot, knötturinn hitti hringinn og féll niður í þvögu af uppréttum hand leggjum. Öskur frá áhorfendun- um. Nýliði Lakers, Gene Wiley náði knettinum úr frákastinu. Annað öskur. Aftur tókst Tommy Heihnson að stela knettinum og um leið og hann ætlaði að skjóta var hann víttur af Wiley. „Hittu ekki! Hittu ekki!“ æptu áhang- endur Lakers. En andlit Heihn- sons, með arnarnefið, sýndi eng- ing svipbrigði á meðan hann tók vítaköstin. Hviss — eitt stig, hviss — annað stig og Boston leiddi 110:107. Lokatölurnar voru samsvarandi, Boston 112 og Los Angeles 109. „Húrra“, hrópaði Heihnson, þegar komið var inn í búnings- kefann. „Við skulum slá upp veizlu. Hvar er kampavínið, hvar er músíkkin?“ Úti í horni lá hinn örmagna Cousy á bekk og ræddi við blaða menn. Á 13 ára leikferli hafði hann skorað 18.973 stig og aðstoð að við 7.786 körfur. Honum hafði tekist að sanna, að innan um alla risana, getur smávaxinn (6 fet 1 þuml.), skjótur og gáf- aður leikmaður, náð því að verða einhver skærasta tjarnan, sem nokkru sinni hefir skinið á himni körfuknattleiksins. Hann hættir nú atvinnumensk unni sem meistari og gerist þjálf ari hjá Boston College. „Maður getur ekki óskað sér meira, maður getur ekki óskað sér neins meii'a,“ muldraði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.