Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 1
24 siðuE
Gunnfáni brezka flotans blakti á finun skipum hennar hátignar í Reykjavíkurhöfn í gær.
Skipin eru komin til að slæða gömul tundurdu flasvæði í Eyjafirði og Seyðisfirði. Yfirmaður
flotadeildarinnar er Barry Ancer »n, kapteinn. Sjá baksíðu. — Ljósm.: Sv. Þ.
_ruj—irúnri-rúw—nri-n* ifV*“" “*• *~~ * * •f ~ ■ **
Fundur kommúnista
ekki við Háskólabíi)
Morgunblaðinu barst í
gær eftirfarandi fréttatil-
kynning frá lögreglustjór-
anum í Reykjavík:
Fimmtudaginn 12 þ.m.
barst lögreglustjóraembætt-
inu bréf frá Samtökum her-
námsandstæðinga, þar sem
skýrt er frá því, að sendi-
nefnd frá samtökunum muni
afhenda varaforseta Banda-
ríkjanna, Lyndon B. John-
son, orðsendingu að Hótel
Sögu kl. 18 mánudaginn 16.
september n.k. í tilefni af-
hendingarinnar muni sam-
tökin gangast fyrir því, að
nokkur hópur manna safnist
saman við Háskólabíó sama
dag kl. 17-18 undir borðum
með áletrunum, er túlki skoð
anir samtakanna. Fluttar
verði í gjallarhorn stuttar til-
kynningar til þess fólks, sem
þarna kemur saman.
í tilefni þessa kvaddi ég í
dag á minn fund forráðamenn
hernásandstæðinga. Var
þeim skýrt frá því að aðrir
aðiljar hafi þegar boðað til
opinbers fundar í Háskólabíói
á framangreindum tíma og
lögreglan geti því ekki fallizt
á, að útifundur verði haldinn
á umræddum stað og tíma né
gjallarhorn notuð þar, vegna
þess að slíkt fundarhald gæti
leitt af sér truflun á umferð
og raskað allsherjarreglu.
Jafnframt var forráðamönn
um samtakanna tjáð, að lög-
reglan hafi ekkert við það
að athuga, þótt samtökin 1
haldi fund á öðrum heppi-
legri stað. Var þeim m.a.
bent á, að lögreglan væri
fyrir sitt leyti ekki mótfall-
in því, að fundur þeirra fari
fram á Melavellinum við Suð
urgötu.
Lögreglustjórinn
i Reykjavík,
13. september 1963
Johnson hœftir v/ð
Grœnlandsheimsókn
—- og nœturgistingu í Reykjavík - Fœrir
Háskóla og Slysavarnafélagi gjafir
Castro neitar að
framselja fanga
Innrás á brezkt landsvæði
„réttlætanleg44
Kaupmannahöfn, Reykjavík,
13. september.
TILKYNNT var í dag í
Reykjavík og Kaupmanna-
höfn, að Lyndon B. Johnson,
varaforseti Bandaríkjanna,
hafi ákveðið að hætta við
fyrirhugaða ferð sína til
Grænlands, svo og fyrirhug-
aða næturgistingu á íslandi.
Mun varaforsetinn halda
flugleiðis til Bandaríkjanna
um kl. 22 á mánudagskvöld,
þar sem hann þarf að vera
kominn til Washington á
þriðjudagsmorgun, vegna á-
ríðandi starfa, sem þar bíða
hans.
í fregnum frá Danmörku í gær
hermdi, að varaforsetinn hefði
sagt, að honum þætti leitt að
geta ekki heimsótt Grænland að
þessu sinni.
Á fundi með blaðamönnum í
gær skýrði Hannes Jónsson, full-
trúi í utanríkisráðuneytinu, svo
frá, að að hádegisverði loknum
að Hótel Sögu, muni v&raforset-
inn afhenda Gunnari Friðriks-
6yni, forseta Slysavarnafélags ís-
lands, þrjár færanlegar talstöðv-
ar, sem gjöf til félagsins.
Þá var einnig skýrt frá því, að
Johnson, varaforseti, myndi heim
sækja Háskóla íslands kl. 16.30,
og afhenda rektor, Ármanni
Snævarr, bókagjöf tit hinnar
nýju vísindadeildar skólans.
Með varaforsetanum koma 10
bandarískir blaðamenn. — Nöfn
þeirra fara hér á eftir, staða í
svigum: William Broome (Riddle
Publications), Robert Hulbrun
(Ft. Worth Star-Telegram), Bart
McDonald (National Geograp-
hic), Folkman Wentzel (Nation
Geographic Photographer), Ro-
bert Ruth (U.S. News & World
Report), Lawrence Reardon
(USIA Photographer), wilson
Dizard (USIS Coordinator), Ge-
orge Reedy (VP’s Press Secre-
tary), Larimer Moe (Information
Officer) og Muto (VP’s Official
Photographer ).
London, 13. sept. (AP-NTB)
BREZKA utanríkisráðuneytið
skýrði frá því í dag að Castro-
stjórnin á Kúbu hafi vísað á bug
mótmælum Breta vegna strand-
höggs kúbanskrar flotadeildar á
eyjunni Anguilla Cay í Bahama-
eyjaklasanum í síðasta mánuði.
Segir í orðsendingu Kúbu-
stjórnar að innrásin hafi verið
réttlætanleg, og neitar stjórnin
að framselja 19 faiiga, sem flutt-
ir voru nauðugir frá eyjunni.
Bretar fara með stjórn á Angu-
illa Cay, og segir utanríkisráðu-
neytið að í athugun sé til hverra
ráða skuli gripið.
Þessi orðsending Kúbustjórnar
er svar við mótmælum, sem
brezka stjórnin sendi Kúbu hinn
21. ágúst s.l. Segja Bretar að
herflugvél hafi fylgzt með því
hinn 13. ágúst er tveir kúbanskir
tunduskeytabátar og ein þyrla
gerðfl atlögu að Anguilla Cay.
Sjóliðar voru sendir á land, og
höfðu þeir á brott með sér 19
Castro-andstæðinga, sem flúið
höfðu Kúbu. Krefjast Bretar þess
að Kúbustjórn biðjist afsökunar
á þessum aðgerðum, gefi yfir-
lýsingu um að þær verði ekki
endurteknar, og skili aftur föng-
unum 19.
í svari sínu neitar Kúbustjórn
því auðsjáanlega ekki að árásin
hafi verið gerð. Hinsvegar segir
stjórnin að aðgerðirnar hafi ver-
ið réttlætanlegar þar sem flótta-
menn frá Kúbu dvöldu á eyjunm-
• FAGERHOLM HÆTTIR.
Helsingfors, 13. sept. (NTB)
KARL August Fagerholm,
fyrrverandi forsætisráðherra
og þingforseti Finnlands, lýsti
því yfir í dag aS hann yrði
ekki í framboði við næstu
þingkosningar.
Tjónið í minkahúinu
einu nam 450 þús. kr.
Stóra vegakafla tók af í úrhellinu í Færeyjumj
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins — Þórshöfn, Fær-
eyjum, 13. september.
TJÓNIÐ, sem hlauzt af úr-
fellinu í gær, hefur enn
ekki verið metið til fjár.
Ljóst er þó, að það kann að
skipta allverulegum fjár-
hæðum, því að tjón Poul
Hansens, útgerðarmanns,
sem átti minkabúið, nemur
a. m. k. 450.000 ísl. kr.
Kennsla hefst aftur á
morgun, laugardag, bæði í
barnaskólanum og mennta-
skólanum.
Mest hefur tjónið senni-
lega orðið í Vogum, sér-
staklega Sörvogi, en þar
tók vegi af á stórum svæð-
um. Verður ástandið rann-
sakað sérstaklega, vegna
óska fólks í héraðinu.
Fréttaritari Mbl. skýrði svo
frá, að minkar þeir, sem dráp-
ust í búi Hansens, hefðu verið
700, ekki 1000 eins og talið
var í fyrstu. Minkabúið, en
þar voru alls 12.000 minkar,
var um tíma í mikilli hættu.
Brú er skammt frá búinu,
og varð vatnsflaumurinn í far-
veginum svo mikill, að vatnið
beinlínis hlóðst upp ofan við
brúna. Þaðan flæddi það yfir
að búinu, og drekkti minkun-
um. Það var ekki fyrr en
menn voru búnir að sprengja
af brúna, að vatnsuppistaðan
komst leiðar sinnar fram hjá
búinu, og var það þá ekki
lengur í hættu.
Barnaskólahúsið var um
tíma umflotið vatni, og varð
slökkviliðið í Þórshöfn að
starfa við það margar klukku-
stundir að verja húsið, en þá
hafði allmikið vatn komizt í
kjallara þess. Um 800 börn
gátu ekki sótt skóla í dag,
vegna þess, að ekki hafði tek-
izt að laga til eftir flóðin.
Menntaskólanum varð að
loka í dag, þar eð nemendur
þurfa að fara yfir ána, þar
sem brúin var sprengd. Skóla-
ganga hefst þó aftur á morgun
í báðum skólunum.
Landsstjórninni í Færeyj-
um hefur borizt beiðni frá í-
búum í Vogum, þess efnis, að
send verði þangað rannsókn-
arnefnd til að kanna skemmd-
irnar. Þær eru taldar miklar,
því að víða hefur vegina tek-
ið af á stórum köflum.
Flugvöllurinn hefur ekki
orðið fyrir neinum skemmd-
um, en hins vegar hefur far-
þegaflugvélin ekki komizt
leiðar sinnar í tvo daga vegna
óhagstæðs veðurs.
Þess má að lokum geta, að
hingað eru væntanlegir fær-
eyskir blaðamenn í stutt*
heimsókn, á vegum Flugfé-
lags íslands. Hefur komu
þeirra hingað seinkað, en
fréttaritari Mbl. sagði, að bú-
izt væri við, að þeir kæmust
hingað ekki síðar en á sunnu-
dag.