Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 13

Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 13
Laugardagur 14. sept. 1963 MORGU N BLADIÐ 13 Nokkur orð um Braque FYRIR fáum dögum barst and látsfregn Georges Braques um allan hinn siðmenntaða heim. Hann lézt 81 árs gam- all í heimalandi sínu, Frakk- landi. Með honum fellur í valinn einn mesti snillingur málaralistarinnar á þessari öld. Feiknlega skapandi starfi þessa málara er lok- ið. Hann hefur dregið sína síðustu línu, og heimurinn fær ekki fleiri snilldarverk frá þessum ástsæla og hlé- dræga meistara. Hjá okkur íslendingum má finna fótspor Braques í mynd list þessarar aldar. Hann var einn aðal skapandi Kúbis- mans ásamt meistara Pic- asso á sínum tíma, og það er alkunna hve sú hreyfing skóp aldarhvörf í myndlist nútímans. En George Praque gerði fleira en skapa Kúbis- mann. Hann þróaðist í list sinni í ýmsar áttir, en það er engu líkara en hann hafi þó byggt allt sitt málverk meira eða minna á þeirri reynslu, er hann hlaut við hið kúbistíska málverk. Bra- que var mikill náttúruunn- andi og honum tókst meist- aralega að sameina í verk- um sínum stranga mynd- byggingu, franska hefð í málaralist ásamt sínum per- sónulega sköpunarkrafti. Hann er jafn franskur í lita meðferð og Chardin og ást hans á náttúrunni er eins við- kvæm og hjá Corot. Hann byggir verk sín jafn hnit- miðað og Poussen. Þar að auki hefur hann í verkum sínum eitthvað, sem minnir á Norðurálfumann. Eitthvað öruggt og heilbrigt, allt er yfirvegað og skapið ekki lát- ið laust, heldur bundið og þvingað undir vilja lista- mannsins. • Hann var snilling- ur í tækni, og allt sem frá honum hefur komið, er svo vandað, hvergi verður fund- ið að. Hugmyndaflug hans getur notið sín á einkenni- lega frjóan hátt f svo ein- földum viðfangsefnum, að ótrúlegt er. Stíll hans var fimur og þróttmikill, ríkur og sterkur. Ein lína, dregin af þessum meistara, gat ver- ið heilt ævintýri í sjálfu sér. Það má vel segja um list Braqués að hún hafi verið samfelldur óður til einfald- leika lífsins, samræmisins milli mannsins og umhverfís hans. Hann sagði sjálfur: „Ég mála ekki eins og ég vil, ég mála eins og ég get“. Ef nokkurn tímann er hægt að minnast á franska hámenn- ingu, þá ljómar hún í allri sinni auðlegð í verkum mál- arans Georges Braques. Það er í smábænum Arhent euil við Signu, sem George Braque fæðist 13. maí 1882. Skemmtileg tilviljun, þar sem þessi smábær við Signu var á sínum tíma eitt aðal- viðfangsefni impressionist- anna og stundum kallaður bær Impressionismans. Átta ára gamall flyzt Braque með foreldrum sínum til hafnar- borgarinnar Lé Havre, og þar slítur hann berskuskónum. Faðir hans var húsamálari að iðn, en málaði sér til skemmtunar í frístundum, fékk jafnvel málverk eftir sig inn á sýningar í höfuð- staðnum. Á sunnudögum mátti stundum sjá gamla Braque með syni sína, teikn- andi og málandi á endalaus- um hafnargörðum Le Havre. í þá daga voru hin stoltu og fögru seglskip, sem settu svip sinn á þessa hafnarborg. George Braque er settur í menntaskóla en gengur nám ið miður vel, hann er allur með hugann við málverk og teikningar. Hann hættir námi en er látinn feta £ fótspor föður síns og verður útlærð- ur húsamálari. En jafnframt stundar hann myndlistarnám í kvöldskóla. Um aldamótin liggur síðan leiðin til Parísar, þar sem hann hefur listnám af mikl- um krafti og hann er fljótur að aðlagast listalífinu í þess- ari eilífu kviku borg list- anna. Fyrstu verk, sem Bra- que sýnir á Salon d’Automne (Haustsýningunni) 1905 eru sterk í litum og teiknuð með breiðum pensilförum í svoköll uðum fauvistískum stíl. Tveim árum síðar sýnir Braque sex málverk á annarri samsýn- ingu Salon des Indépendants (Þeir sjálfstæðu) og selur þar öll málverk sín. Lista- verkakaupmaður gerir þegar samning við hann um kaup á verkum hans í framtíðinni, og þar með er Braque orð- inn fjárhagslega sjálfstæður. Sama ár kynnir skáldið App- ollinaire hann fyrir ungum Spánverja, Pablo Picasso. Árið 1907 er merkilegt í sögu myndlistar tuttugustu aldar- innnar. Þegar kynni þessa ungu málara hefjast, hefjast einnig fyrstu fæðingarhríðir Kúbismans, og hann er full- skapaður um 10 árum síðar. Það mætti margt segja um þessi ár og þá þróun, sem þá byrjaði £ málaralistinni. Aðeins eitt langar mig til að draga hér fram. Þessir ungu menn voru ekki þess meðvit- andi á nokkurn hátt, að þeir væru að skapa nýjan stil inn- an listgreinar sinnar. Þeir hafa margssinnis lýst þvi yfir, bæði Braqué og Picasso, að það hafi þeim aldrei dottið i hug, þeir voru fyrst og fremst að leita að tjáningar- formum er hæfðu þeim per- sónulega, og sem þeir gátu komið á framfæri hugmynd- um og þekkingu sinni. Jafn- vel mætti með góðri sam- vizku segja, að það hefðu verið tilraunir Cezannes gamla, sem einna efst voru í huga þessara ungu manna, þegar þeir hefja starf sitt. Sú saga hefur verið sögð, að eitt sinn á þessum árum hafi erlendur listunnandi verið á hnotskógi eftir því að kom- ast í persónlegt samband við svokallaða Kúbista-málara. Hann hafi ráfað um göturnar á Montmartre hæðinni, þar sem honum hafði verið sagt að kúbistarnir héldu til. Eng- in lifandi sála kannaðist við þann mannflokk og hafði aldrei heyrt um þá getið. Að lokum datt útlendingnum í hug að spyrja mann, sem hon um fannst líta listamanns- lega út, luralegur til fara, og var að koma úr bakaríi með brauðstöngul, auðsjáanlega að kaupa í matinn. En allt fór á sama veg, svarið var, hef ekki hugmynd um þá. Það vitnaðist áratugum seinna, að þessi náungj var enginn ann- ar en Pablo Picasso sjálfur höfuðpaur hreyfingarinnar.. Árið 1908 heldur Braque sína fyrstu einkasýningu og fékk þá nokkuð misjafna dóma. En frá þeim tíma var hann samt talinn til efnileg- ustu yngri listamanna í París, og þótt tekjurnar væru ekki háar, þá má fulyrða, að frá þeirri stundu þurfti Braque ekki að hafa verulegar áhyggj ur af peningamálum. Hann er einn af þeim fáu lista- mönnum, sem ekki þurftu að lifa hetjulífi í baráttu- við sult og misskilning. Það má geta þess til gamans, að Henri Matisse, sem var 10—15 árum eldri en Braque, var heldur lítið hrifinn af þess- um unga manni, og því hefur verið haldið fram, að Matisse hafi gefið þessum nýja stíl nafn og kallað þéssa list ein- tóma ferninga, þaðan er nafn- ið Kúbismi runnið. En síðar á ævinni margneitaði Matisse þessari sögu og þvertók fyrir að hafa átt nokkurn þátt í nafngiftinni. Braque sagði um þetta seinna, að það hefði verið mjög skiljanlegt, að Matisse hefði ekki verið hrif- inn. Hann var þegar búinn að finna sjálfan sig, og hann var eldri en við hinir. Hann var líka áskynja þess, að við fórum aðrar leiðir en hann og hugsuðum á annan hátt. Um þróun Kúbismans og málverksins á tuttugustu öld er óþarft að ræða hér. Allir, sem eitthvað þekkja til sögu myndlistarinnar á þess- um tíma, eru á einu máli um Pétur Sigurðsson: Ekkert kemst nær því að gera mig að verri manni George Braque hina öru þróun, sem óhugs- andi væri án Kúbismans. Hvaða listamaður eða hvaða persóna átti mestan þátt í þessari hreyfingu, verður vart svarað með fullri sanngirni. Braque hefur sjálfur svarað þessu ágætlega: „Við Pic- asso vorum eins og fjallgöngu menn, bundnir saman með sama kaðli“. Óvæntir atburðir valda hér miklum örlögum, eins og raunar á flestum öðrum svið um í álfunni. Evrópa logar. Braque er sendur á vígvöll- inn til að berjast fyrir Ijóma Frakklands. Hann særist hættulega og missir sjónina um tíma, en til allrar ham- ingju fyrir heiminn tekst að gefa honum sýn. Picasso vinn ur öll stríðsárin óáreittur, Spánn er hlutlaus. Og honum tekst að fulkomna stíl sinn svo, að þegar Braque verður aftur vinnufær, leitar hann í aðrar áttir, gengu'r á vit hefð- inni í franskri málaralist, og smátt og smátt kemur hinn mikli persónulegi munur fram í verkuiji þessara tveggja meistara. - Picasso slær hart og títt í allar áttir með hinu öra geði Spánverjans. Braque leitar meir og meir eftir hinu rólega jafnvægi og öryggi Norðmannans. Einkenni, sem hafa auðkennt verk þessa meistara fram á þennan dag. Það er gríðamikið starf, er liggur eftir George Braque. Verk hans er að finna í flest- um listasöfnum heims, og hef ur bókstaflega verið barizt um að ná í mörg þeirra. Bra- que var feiknlega dáður lista maður, og áhrifa frá honum gætir um allan heim í mynd- list. Hann var mjög hlédræg- ur maður, og honum var jafn- vel ekkert um, hve dáður hann var. Honum leið hvergi betur en i sumarhúsi sínu við ströndina, þar sem hann gat farið langar gönguferðir og athugað formin í fjörunni, eins og hann sjálfur komst að orði. Braque tók aldrei neinn þátt í stjórnmálum, og honum var jafnvel brigzlað um andvaraleysi á því sviði. Braque svaraði ekki slíku, en sagði, að listin væri sér fyr- ir öllu: „Hver mínúta sem fer til spillis frá vinnu minni, eru svik við listina af minni hálfu“. Nú hefur George Braque verið lagður til hinztu hvíld- ar i frakkneska mold. Með honum er horfinn einn falleg asti maður, sem ég hef séð. Þessi snöru og lifandi augu, þetta mjallahvíta þykka hár, þessar óviðj afnanlegu við- kvæmu og öruggu hendur, þessi teinrétti stóri maður, þetta hlýja og dularfulla bros. Allt er þetta horfið, og þó. Þetta lifir allt í verkum þessa mikla meistara, og hvar sem maður sér eitt af verkum Braque streymir þessi seið- andi og lifandi kraftur móti manni. Þannig verður hið ó- dauðlega til. Valtýr Pétursson. 1 DAG er 20. ágúst 1963. Eftir hálfgerða andvökunótt og ekkert næði í matar- og hvíldartíman- um kl. 12—1 í dag, vegna flug- vélanna, sezt eg niður við rit- vélina í heldur slæmu skapi, þótt ljótt sé frá að segja. All- lengi hef eg þó harkað af mér að taka til máls um þessa flug- vélaplágu, sérstaklega vegna þess, að mér er ekkert ljúft að ergja þá góðu menn, sem þess- um málum stjórna. En snemma i sumar rauk eg fram úr rúmi mínu klukkan 5 árdegis, eftir andvökunótt vegna flugvélanna, og skrifaði þá í snatri að mestu leyti það sem hér fer á eftir, en síðan hefur þetta þó legið á skrifborði mínu. Vissi eg það, að eg væri eini maðurinn hér í nágrenni Reykja- víkur, sem finnst þetta gersam- lega óþolandi, þá myndi eg reyna að búa einn að gremju minni, en eg er ekki í neinum vafa um, að flugvélaplágan hér yfir Kársnesinu veldur fólki heilsutjóni, Milli klukkan 1 og 2 í iiótt fóru þrjár af hinum stóru flugvélum hér yfir húsum okkar með meira harki en næstum verstu þrumuveður. Við erum rifin upp af svefni, þegar svefn flestra mun vera einna dýpstur og værastur, og þetta heggur gott skarð í svefntíma okkar. Og fyrir hádegið í dag og fram um matartímann hömuðust þessar vandræða æfingaflugvélar, að minnsta kosti þrjár um tíma, hér yfir húsum okkar. Nægilagt rúm ætti nú að véra í himin- geimnum fyrir þær þótt ekki hringsóluðust þær sí og æ yfir mesta þéttbýlinu. Það var okkur mörgum fagn- aðarefni, þegar flugmennirnir sjálfir tóku að skrifa í fyrravet- ur um Reykjavíkurflugvöll. — Ldrsins, varð mér að hugsa, því að fyrir meira en 10 árum skrif aði eg mína fyrstu smágrein un flugvöllinn. Ritstjórinn, sem ej leitaði fyrst til, sagði að til gangslaust væri að skrifa' un þetta. Hann hefur sennileg; séð rétt, en greinin kom nú sam fyrir almenningssjónir, en mem eru nú sjaldan fljótir á sér a: sinna ábendingum, sérstakleg þagar hagsmunamál er annar vegar. Nokkru eftir öll skrifin un flugvöllinn í fyrravetur, brá sv við að flugið yfir bústöður okkar hér á Kársnesinu hvar næstum alveig um tima, en si blessun stóð ekki lengi. Reyn var að andmæla í blöðunum rök ser tum flugmannanna og hugg Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.