Morgunblaðið - 14.09.1963, Síða 14

Morgunblaðið - 14.09.1963, Síða 14
14 MORGUNBLAÐID ' Laugardagur 14. sept. 1963 Guðfinnur Marelsson Minning I DAG fer fram í Eyrarbakka- kirkju minningarathöfn um Guðfinn Marelsson frá Eyrar- bakka sem tók út af vélbátnum Erlingi III. er hann var á leið heim af síldveiðum þann 6. ágúst sL Guðfinnur var fæddur á Eyr- arbakka þann 24. janúar 1927, og var því aðeins 36 ára að aldri er hann lézt. Foreldrar hans eru þau hjónin Sigríður Gunnars- dóttir og Marel Þórarinsson frá Eyrarbakka. Eftir uppvaxtarár sin á Eyrarbakka lá leið hans til Reykjavíkur, og nam hann þar járnsmíði hjá Stálsmiðjunni hf. Eftir að hafa unnið við það í 8 ár, varð hann að hætta því starfi heilsunnar vegna. Hefir hann síð- an verið á sjónum, lengst af á vélbátum sem vélstjóri, en þeirra réttinda hafði hann aflað sér. Það mun mörgum hafa orðið hverft við er þeir fréttu lát Guðfinns, eins og alltaf hlýtur að vera þegar vaskir menn á bezta aldri eru burtu kvaddir svo snögglega. Finni, eins og hann var kallaður, var sérlega vel gerður maður sem vann sér hyili allra sem hann þekktu og með honum störfuðu, bæði hús- bænda og félaga. Hann var trúr í starfi og verklaginn, og öllum reyndist auðvelt að starfa með honum, enda var lundin létt. Og þótt hann hefði sig ekki mik- ið í frammi, þá hafði hann ákveðnar skoðanir á hlutunum. Hann var drengur góður, sem öllum vildi hjálpa, og kom þá bezt í Ijós höfðingslund hans, enda urðu margir góðvildar hans aðnjótandi. Hans er því saknað af vinum og félögum víða þar sem spor hans hafa legið, en mestur harm- ur er þó kveðinn að eftirlifandi foreldrum og systkinum hans, sem eiga að baki að sjá góðum syni og kærum bróður. Einungis minningin um góðan dreng getur grætt þau sár — minning sem hvergi fellur skuggi á. Við fjölskyldan í Heiðargerði þökkum þér Finni rnirui sam- fylgdina og allt. Friðþjófur Björnsson. Innilegar þakkir færi ég börnum mínum, tengda- börnum, barnabörnum, frændfólki og vinum, sem heiðruðu mig gjöfum, heillaskeytum og heimsóknum á 75 ára afmæhsdaginn. — Lifið heil. Bergsteinunn Bergsteinsdóttir, Álfaskeiði 3, Hafnarfirði. Innilegar hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu mér hlýhug á 70 ára afmæli mínu 9. sept. 1963. Svandís Árnadóttir. Þakkir sendi ég þeim, er minntust mín á sextugsaf- mæli mínu 7. ágúst síðastliðinn. Sérstaklega þakka ég sveitungum mínum rausnarlegar gjafir og vináttu alla. Sigurður S. Haukdal. Konan mín JÓHANNA ÞORSTEINSDÓTTIR Sæfelli, Seltjarnarnesi, andaðist 12. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Guðni Jóhannsson. Maðurinn minn OSVALD EYVINDSSON útfarastjóri, andaðist þann 12. þ. m. á Bæjarsjúkrahúsinu. Jóhanna Guðmundsdóttir og böm. ELÍN ÓLADÓTTIR andaðist í Landakotsspítala föstudaginn 13. september. Helga Valtýsdóttir, Hulda Valtýsdóttir. Hulda A. Stefánsdóttir. Maðurinn minn og faðir okkar SÓFÓNÍAS FRIÐRIK SVEINSSON húsasmiður, andaðist að heiniili sínu Kambsvegi 11, Rvík, aðfaranótt 12. september. Ingibjörg Gisladóttir og börn. f Tæplega 4. hver Akur- eyringur hefor synt MIKILL AHUGI hefur verið á Akureyri á Norrænu sundkeppninni og hefur „boð sundið“ til Grímseyjar gert sitt til að koma 4. hverjum Ak ureyring 200 metrana. Þátt- taka hefur einnig aukizt á öðr um stöðum, þótt ekki sé það í jafn ríkum mæli og á Akur- eyri, t.d. eru Reykvíkingar og Hafnfirðingar aðeins hálf- drættingar á við Akureyringa síðustu 3 vikurnar. Þátttakan á þessum 3 stöðum er nú orðin: Akureyri 2035 manns eða 22% (viðbót 4%). Hafnarfj. 1435 manns eða ... 19% (viðbót 2%). ÍReykjavík 11050 manns eða 15% (viðbót 2%). Aðeins eru eftir 3 dagar á keppnistímabilinu, og er ekki ráðlegt að draga til síðasta dags að synda, því að sund- staðirnir eru opnir skemur á sunnudögum en virkum dög- um. — Flugvallarmál Framh. ai bls. 13 fólkið með því að alls öryggis væri gætt. Mætti nú spyrja: Var ekki alls öryggis gætt, þegar slysið vildi til við Oslóarflug- völlinn fyrir skömmu? Litlu mátti þá muna að slysið yrði enn átakanlegra. Og er ekki ör- yggis gætt, þótt iðulega verði flugslys hér oig þar Mjög ný- lega var sagt frá einu. Þar hrap- aði vélin niður á bóndabæ og hvað eftir annað hefur komið fyrir erlendis, að flugvélar hafa hrapað niður ýmist á skóla og drepið mörg börn eða niður á hús. Flugslys geta auðvitað orð- ið hér eins og annars staðar, þótt við vonum allir og biðjum, að svo verði ekki. Fyrir ahmörgum árum urðu hér tvö allalvarleg flugslys, og fleiri hafa þau orðið, þótt öryggis hafi verið gætt. Mér er minnisstætt kvöldið fyrir hvítasunnudag í vor, þá var alveg hamslaus flugvélastraumur hér yfir okkur allt kvöldið, og eitt kvöldið um þetta leyti lék ein flugvél sér að því að hring- sóla hér yfir okkur fulla klukku- stund um miðnættið. Flugvöllur I miðri Reykjavík er eitt af stríðstímafávizkunni, en hefðu ráðamenn þjóðarinnar ag ráðamenn flugmálanna, ætlað sér að halda framvegis þessu hernámsfyrirbæri, hefðu þeir átt að koma í veg fyrir byggð hér á Kársnesinu, en nú legg eg það til málanna, að þessir að- ilar kaupi hér öll húsin okkar, og allt þjónustulið flugmálanna, eigendur fyrirtækjanna og stjórn endur þeirra flytji svo hingað í húsin og búi sjálfir að allri ánægjunni. Það er hlægileg mótbára, að þjóð sem ver fjögur hundruð milljónum kr. árlega til áfengis- og tóbakskaupa, orki því ekki að gera nýjan flugvöil, hafi ekki f '.rmagn til þess. Það hefði matt vera búið að gera nýjan fiugvöll, ef menn hefðu viljað hugsa mélið í tæka tíð eða lagt eyrun að ábendingum. Það er engin furða, þótt uppþot, árekstr- ar og stríð verði hér og þar í heimi manna, ef búið er að þeim á þann hátt, sem hér er gert í sambandi við þessa flugvélaplág r. Á þessum 70 æviárum mínum held eg að ekkert hafi komizt nær því að gera mig að verri manni, en þetta atriði. ag svo ilia er mér orðið við flugvélar og allt sem að fiugi lýtur. að eg vildi óska þess, að eg ætti aldrei eftir að stíga upp í flugvél. En þessu verður sennilega haldið áfram, þar til eitthvað mjög alvarlegt kemur íyrir, ea þá munu allir setja upp sakleysissvip, þurrka sér um munninn en segja ekkert, fyrirskipa rannsókn etnhverjum til huggunar. Pétur Sigurðsson. Akranesi, 2. sept.: — Tveir bátar lönduðu hér i dag, Ólafur Magnússon 2,7 og Hrefita EA 2,3 tonn af humar. Færeyskt flutningaskip, sem áður var enksur togari kom hing J að frá Grænlandi sl. laugardag. deitir skipið Hólmur og er um | i00 brúttólestir að stærð. Lestaði | ,kipið hér 66 tonn af humar- jkeljamjöli og 45 tonn af fiski- njöli. Enga síld fundu þeir við Vestmannaeyjar í nótt, frétti ég. Landlega var hjá bátum hér yfir helgina, en 6 síldarbátar fóru út á veiðar héðan í morgun og ætl- uðu þeir að leita síldar til og frá á Faxaflóasvæðinu. — Oddur. Syndið 200 metiana 2 dagar eftir Frá gagnfræða- skólum Reykjavíkur Nemendur mæti í skólunum mánudaginn 16. þ. m., . 4—7 síðdegis, til skráningar (1. og 2. bekkur) og til aðfestingar umsóknum sínum (3. og 4. bekkur). . BEKKUR: Skólahverfin verða hin sömu og gilda fyrir barna- skólana, Fyrsti bekkur gagnfræðastigs verður í Austur- bæjarskóla, Hlíðaskóla og Laugalækjarskóla. Allir nem- endur 1. bekkjar, busettir í Melaskólahverfi, sækja Hagaskólann. U. BEKKUR: Nemendur mæti hver í sínum skoi— III. bekkur LANDSPRÓFSDEILDIR: Þeir sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Hagaskóla, Vogaskóla, og Réttarholtsskóla, mæti hver í sínum skóla. Nemendur frá Lindargötuskóla komi í Gagn- fræðaskóla Austurbæjar, en nemendur frá Langholts- skóla í Vogaskcla. Aðrir er sótt hafa um landsprófs- deild, komi í Gagnfræðaskólann við VonarstrætL III. bekkur ALMENNAR DEILDIR: Nemendur mæti hver í sínum skóla, með eftirtöldum undanteknum: Nemendur frá Laugarnesskóla komi í Gagnfræðaskólann við Lindargötu. Nemendur frá Mið- bæjarskóla 1 Gagnfræðaskóla Austurbæjar og nem- endur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla. III. bekkur VERZLUNARDEILDIR: Nemendur frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Mið- bæjarskóla og Laugarnesskóla komi í Gagnfræðaskól- ann við Lindargötu. Nemendur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla. Aðrir umsækjendur um verzlunardeild mæti. þar, sem þeir luku unglingaprófi. HI. bekkur VERKNÁMDEILDIR: Hússtjórnardeild: Umsækjendur komi í Gagnfræða- skólann við Lindargötu. Sauma- og vefnaðardeild: í Gagnfræðaskólann við Lindargötu komi umsækjendur, er unglingaprófi luku frá þeim skóla og frá Miðbæjarskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Hagaskóla. Aðrir umsækjendur, um sauma- og vefnaðardeild komi í Gagnfræðaskóla verk- náms Brautarholti 18. Trésmíðadeild: í Gagnfræðaskóla verknáms komi um sækjendur, er iuku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Laugarnesskóla, Gagnfræðaskólanum við Lindargötu, Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Aðrir um- sækjendur um trésmiðdeild komi í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar Hringbraut 121. Járnsmíða- og vélvirkjadeild: Umsækjendur mæti í Gagnfræðaskóla verknáms. Sjóvinnudeild: Umsækjendur komi í Gagnfræðaskól- ann við Lindargötu. Umsækjendur 3. bekkjar hafi með sér prófskirteinL IV. BEKKUR: Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa sótt um skóla- visL Nauðsyrilegt er, að nemendur mæti eða einhver fyrir þeirra hönd, annars eiga þeir á hættu að missa aí skólavist. Kennarafundur verður í skólanum sama dag kl. 2 e.h. FRÆÐSLUSTJÓRINN í REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.