Morgunblaðið - 14.09.1963, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 14.09.1963, Qupperneq 15
Latögardagur 14. sept. 1963 MORCUNBLAÐIÐ lv> - x*iu j*ii.i~iriAu —iVTinr-‘ •*-—■■*•-**—^ . n.« »— Fró Grænlandi Framh. aí bls. 10 gátur um að eskimóarnír hafi eytt veiðidýrunum eða þau farizt í slæmum árum og þeir sjálfir ekki getað haldið í sér líftórunni í þessu harða landi. Við fljúgum inn með Hurry- firði, sem liggur norður úr Scoresbysundi. f>ar á að vera margt sauðnauta, enda má með athugun og í kíki greina ofurlitla rauða flekki af lyngi í dalskorningum og víðir og fjallajurtir eiga að vera þar í dældum, ef vel er að gáð. Og mikið rétt, við komum auga á eitthvað á hreyfingu. Björn rennir vélinni niður og við sjáum að þarna eru 4 lura- leg sauðnaut. Skriðjöklarnir, sem teygja sig vinstra megin við okkur sinn hvorum megin við rauð- an hnjúk, heita Hans og Gréta. Víða má sjá slíka þver- sprungna skriðjökla teygja sig alveg niður í firðina, og þegar jökullinn er kominn nokkuð út í sjóinn, lyftir vatn ið undir endann og brýtur af stórt stykki, sem síðan flýtur af stað út fjörðinn sem glæsi- legur borgarísjaki, allt upp í 100 m. á hæð. Þessir ísrisar eiga það svo til að leggja í ferðalag og berast með straum um suður í haf, 8/9 hlutar þeirra marrandi í kafi, og skapa hættu á siglingaleiðum. Þó eru enn hættulegri þeir borgarísjakar, sem myndast á vötnum úr bráðnum snjó uppi á jöklinum, því þeir eru hreinir og bláglærir og sjást illa, jafnvel í radar. En falleg- ir eru þessir risar, þar sem þeir gnæfa fannhvítir og með fögrum útlínum upp úr græn- um sjónum. 16 menn hafa vetursetu í Meistaravík Meistaravík er sunnan meg- in við næsta fjörð fyrir norð- an, Konungs-Óskarsfjörðinn. Þar er flugvöllur og veðurstöð og nokkur rauðmáluð hús fyr- ir starfsmenn, sem 1 vetur verða 16 talsins. Blýnámunni, sem er í 12 km. fjarlægð, hef- ur verið lokað. Blýið er upp- urið og námubærinn, þar sem höfðust við nokkrir tugir námumanna, er auður. Hækj- urnar hanga enn fyrir utan læknisskálann, skiltið með sauðnautsmyndinni fyrir ofan læstar búðardyrnar og stráin í litla glerkassanum, þar sem reynt var að rækta svolítinn reit við rafmagnsljós, visin. Skálarnir við höfnina niðri við fjörðinn eru líka auðir, nema þegar áhöfn og farþegar úr íslenzkri flugvél fá að liggja þar inni í svefnpokum. Að bryggjunum leggst sumar- skipið með ársvistir handa í- búum Meistaravíkur. Og þar er að finna allt það matar- og drykkjarkyns, sem Ðani getur óskað sér, enda sjálfsagt að gleðja sig eftir föngum í ein- angruninni. Og þó! Ýmislegt getur vantað, svo sem 74 tólf punda kassa af smjöri, sem í sumar urðu eftir á hafnarbakk anum í Kaupmannahöfn. Ef til vill verður höfnin þó notuð einhvern tíma í framíð- inni aftur, er reynt verður að vinna hið dýrmæta efni molyb den úr fjalli nokkuð langt uppi í landi. Eins og er þykir of erfitt að þurfa' að bora gegnum heilt fjall jarðgöng eða leggja yfir það veg, en þetta háa fjall er fyrir á leið milli hafnar og námu. Þarna kemur ekki kvenfólk á hverju ári, og því er flug- freyjan ekki látin liggja í svefnpoka í skúr niðri við höfnina, heldur fær danski herinn, sem þarna hefur litla eftirlitsflugvél með áhöfn, henni „Aðmírálshöllina“ til af nota. En það er lítið rautt hús með hvítum gluggahlerum og fána uppi og minnir á brúðu- húsin, sem notuð eru til skreyt ingar á tertu. En þar er upp- búið rúm, kósangasupphitun og öll þægindi. Hundarnir ýlfra í kór Ekki er þó mikill svefn- friður. 12 stórir og þreknir hundar, sem bundnir eru með keðju hver í sinn stólpa, standa upp og spangóla og leyfa einum hundi að ganga lausum og er sá sem frelsið fær í það skiptið himinglað- ur. En ef annar hundur losn- ar, er gamanið búið. Hundarn ir eru ekki hættulegir mönn- um, þ.e.a.s. þar sem þeim er gefið reglulega. En eskimóarn ir, t.d. í Scoresbysundi, láta þá bjarga sér sjálfa á sumrin Nokkrir Grænlandsfaranna, með selskinn, gjafir frá veiði- mönniun. Talið frá vinstri: Björn Ingimarsson, vélvirki, Björn Pálsson, flugmaður, Jóhanri Gíslason frá F. í. og hr. Nissen frá dönsku flugmálastjórninni. ýlfra í kór á þriggja tíma fresti. Grænlandshundar gelta ekki, þeir ýlfra eins og úlf- ar, svo biðjandi að það sker mann í hjartað. Og þeir eru ósköp vinalegir, ef maður kemur nálægt þeim. En um leið og einhver þeirra losnar úr tjóðrinu verður uppi fótur og fit á staðnum. Allir rjúka út með gúmmíslöngu að vopni, til að handsama leys- ingjann og binda aftur áður en hann hefur ráðist á ann- an hund. Því þá er blóðugur bardagi þangað til annar ligg ur dauður. Þeim í Meistara- vík hefur þó feynzt óhætt að og snapa sorp eða veiða læm- ingja sér til matar, og verða hundamir þá oft hungraðir og grimmir. Það koma því árlega fyrir slys hjá eskimó- unum. Barn dettur og hund- arnir hlaupa til, ef eitthvað skyldi vera þar ætilegt, og áður ' en nokkur veit hafa þeir rifið barnið í sig. Hund- arnir þurfa ekki mikla fæðu. Hæfilegt er einn þurrkaður fiskur og ofurlítill fleskbiti á dag. Og þeir koma aldrei í hús alla sína ævi, standa bara bundnir við staur og ýlfra. Á vetrum búa þeir sér til holu í snjóinn, og ef frost- ið fer niður fyrir 30 stig, þá hringa þeir sig saman og leggja stórt loðið skottið yfir trýnið. Það er það eina, sem þarf að verja. Þá líður þeim vel. Hundarnir eru notaðir í Austur-Grænlandi, til að draga sleða, sem er eina hugsanlega farartækið á vetr um, og án þeirra yrðu menn að bera allan sinn farangur á bakinu. Þeir sem hafa kom izt upp á það að aka sleða með 7—9 hundum fyrir yfir hjambreiðuna í tunglskins- biftu og renna á skíðum með fram sleðanum, segja að ekk- ert jafnist á við það. En til þess þarf talsverða leikni með hundasvipuna, um 7 m langa ól úr gransela- skinni, sem verður að hitta nákvæmlega . á hægra eða vinstra eyra forystuhunds- ins, til að stýra eykinu, eða> aftan á þann hundinn, sem er að reyna að svíkjast um- að taka sinn þátt í -drættin um og lætur sleðann þarmeð sveigjast. Til að stjórha svip- unni þarf æfingu og leikni, því að öðrum kosti getur þykk ólin allt eins vel vaf- ist um höfuðið á manni sjálf- . um í bakaleiðinni. Á hlað- : inu í Meistaravík stóð líka ? einn af starfsmönnuhum og ; æfði sig af kappi í að, hitta ■ ■stöng með svipunni. J Við gistum aðeins eina . nótt í hvorri leið-í Meistara- vík og flugum síðan;áfram í norðurátt, yfir veðurátöðina í ; Danborg á 74. breiddarbáug ; og til veðurstöðvarinnar 1 j Danmarkshavn á 76,7 breidd- • arbaug, en þar fyrir norðan - er aðeins ein mannabyggð, . stöðin Station Nord á 82. - breiddarbaugnum, nærri nyrst á Grænlandi. Þessar stöðvar, með 12—14 menn í hverri, eru einasta byggðin á hálft annað þúsund km svæði í Norðaustur-Grænlandi. —,E. Pá. Sýníng á skrifstofutækjum haldín í húsakynnum Verzlunarskóla Islands á vegum Stjórnunar- félags íslands 13.-21. september BORGAHFELL HF. EINAR J. SKÚLASON G. HELGASON & MELSTED H F. GEORG ÁMUNDASON <S CO. GÍSLI J. JOHNSEN V GOTTFRED BERNHÖFT <5. CO. HF. GUNNAR ÁSGEIRSSON HF. H. BENEDIKTSSON HF. H. ÓLAFSSON <5, BERNHÖFT I. BRYNJÓLFSSON & K^ARAN IDNAÐARMÁLASTOFNUN ÍSLANDS LANDSSTJARNAN H F. OPIÐ K L. S- LARUS FJELDSTED MAGNÚS KJARAN O. KORNERUP HANSEN OFFSETPRENT HF. ORKA HF. OTTÓ A. MICHELSEN OTTÓ B. ARNAR PÓSTUR OG SÍMI RADIÓ- OG RAFTÆKJASTOFAN t SNORRI P. B. ARNAR VÉLAR OG VIÐTÆKI Þ Ó R H F. . ro VJ1 oo vo Q\ ú) ro

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.