Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 17

Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 17
1 Laugardagur 14. sept. 1963 MORCUN BLAÐIÐ 17 Laxveiðistöðin í Kollafiröi heimsótt. Veiðimálastjóri, I*ór Guðjóns son, segir frá starfsemi stöðvarinnar. UTGEFANDI: SAMBAND UNGHÁ SJALFSTÆÐISMANNA ni j HITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSL GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON iÆskan og hið opinbera Æskulýðsmálaefni hafa verið ailmikið umræðuefni að undanförnu, enda sums staðar verið all róstusamt, þar sem ungt fólk hefur kom ið saman. Slæm hegðun æskufólks er þó ekkert ný- mæli, sem sérstaklega ein- kennir þennan áratug aldar- innar. Slíkt hefur komið upp hvað eftir annað og má í því sambandi t.d. minna á hinar frægu Þingvallar-„org iur“, er Æskulýðsfylkingin efndi til á árunum um og eft ir 1950. Segja má þó, að ald- ur þeirra sem farnir eru að neyta áfengis, hafi færst nið- ur nú hin síðari ár. Að fráteknum stílfærðum frásögnum dagblaðanna og annarra fréttahlaða, má segja að blaðaskrif um æskulýðs- málefni hafi verið með meiri raunsæisblæ nú en oft áður V'eynt er að skilja vandamál- ið til hlítar og víða er að því unnið að finna raunhæfa lausn. Hinsvegar er minna um sleggjudóma og órök- studdar fullyrðingar. Þegar rætt er um vanda- mál æskulýðsins, hlýtur at- hyglin að beinast að þeim að- ilum, sem sérstaklega láta mál þessi til sín taka. Ann- ars vegar æskulýðsfélögin, sem safna ungu fólki undir merki sitt, og hins vegar hið opinbera, ríki og sveitarfé- lög. Krafan um aukin afskipti hins opinbera af félagsmál- um æskufólks verður stöðugt háværari, enda hefur sú enn fremur orðið raunin í ná- grannalöndum okkar. Þá vaknar spurningin um það, í hvaða formi hin op- inberu afskipti eigi að vera. Á hið opinbera að halda sjálft uppi víðtækri félags- starfsemi fyrir æskufólk með öllum þeim starfskröftum og aðstöðu til félagsstarfsemi, sem slíkt þarfnast. Eða á *hið opinbera með fjárstyrkjum eða á annan slikan hátt að styrkja hin frjálsu æskulýðs félög, skapa þeim möguleika tii aukinnar og fjölþættari starfsemi og laða fram til árangursríkara starfs þá krafta, sem þau búa yfir. Sjáifsagt verður að fara bil beggja í þessum efnum og finna heppilega stefnu. Æsku lýðsfélögin verða að fá mögu- leika á því að styrkjast og eflast frá því sem nú er. Það hlýtur að vera hlutverk hins opinbera að stuðla að því. Ríki og sveitarfélög ættu sið- an sjálf að beina þeim starfs kröftum, sem þau hafa yfir að ráða i þessum efnum, til að fást við þau ungmenni, sem eru raunverulegt vanda mál fyrir umhverfi sitt. Reykjavíkurborg hefur ver ið braiitryðjandi í þessum efn um með því að setja Æsku- lýðsráð Reykjavíkur á stofn. Ráðið hefur sjálft haldið uppi viðtækri félagsstarfsemi fyrir æskufólk. Æskulýðsráðið hef ur nú starfað í mörg ár og því er nú tími til kominn að staldra við og endurskipu- leggja starfsemi ráðsins, enda er nú þegar að því unnið. Þegar rætt er um að styrkja æskulýðsfélög, kemur enn sá vandi upp, eftir hvaða leið- um slíkt eigi að gera. Ekki alls fyrir löngu birtist hér á siðunni viðtal við tvo sænska æskulýðsleiðtoga, þar sem þeir skýrðu stuttlega frá, hvernig þessi mál eru skipu- lögð í Svíþjóð. Þar kom m.a. fram, að rekstrarstyrkir til æskulýðssamtaka eru í því formi, að félögin undirbúa starfsáætlanir fyrir ákveðið tímabil og sækja síðan um styrki til hins opinbera til að standa straum af kostn- aði við framkvæmd ákveð- inni liða starfsáætlunarinnar. Síðan er það metið af sam- starfsnefndum æskulýðsfélag anna og hins opinbera, hvort viðkomandi starfsemi hafi al- mennt félagslegt gildi og reynist svo vera, er styrkur veittur til þeirrar starfsemi. Eftirtektarvert er, að í þess- um efnum sitja hin stjórn- málafélög æskunnar við sama borð og önnur æskulýðsfélög. Þegar rætt er um gildi æskulýðsfélaga hér á landi, gleymast hin pólitísku æsku- lýðsfélög oftast. Meðai ná- grannaþjóða okkar opnast augu manna hinsvegar stöð- ugt betur fyrir gildi slíkra félagssamtaka. Hin pólitísku æskulýðsfélög eru reyndar ávallt tengd ákveðnum stjórn málaflokki. En margt af þeirri starfsemi, sem þar fer fram, hefur hinsvegar al- mennt þjóðfélagslegt gildi og er líklegt til þess að skapa þroskaðri og ákveðnari þjóð- félagsþegna. f slíkum félög- um eru t.d. rædd ýmis þjóð- félagsvandamál, sem önnur samtök fjalla ekki um. Ef einhverntíma kemur að því hér á landi að hið opin- bera veiti æskulýðssamtök- um rekstrastyrki í svipuðu formi og gert er í Svíþjóð, virðist sjálfsagt að sá hluti af starfsemi hinna pólitísku æskulýðsfélaga, sem hefur al- mennt þjóðfélagslegt gildi, njóti styrkja eins og starfsemi annarra æskulýðssamtaka. Það hlýtur og að verða skil- yrði að um fulkomlega lýð- ræðisleg samtök sé að ræða. — BÍG. Heimdallarfer&ir á sumrinu MYNDIRN AR á síðunni eru teknar í kvöldferð Heimdallar um Reykjanes svo og í eftirmið- dagsferð félagsins þegar Trölla- foss var m. a. skoðaður. Þá efndi félagið til ágætra kynnisferðar í Sementsverksmiðjuna á Akra- nesi, þar sem þátttakendurnir 80 sátu einnig fund með ungum Sjálfstæðismönnum á Akranesi og tóku þátt í dansleik, sem Þór F.U.S. hélt. ★ Fyrri ferðin, sem hér birtast myndir frá, var kvöldferð um Reykjanes og þótti hún takast með ágætum. Leiðsögumaður í ferðinni var Helgi S. Jónsson. Ekið var um Keflavík, þaðan út í Garðskagavita, en gengið var upp í hann og útsýnisins notið. Þá var ekið um Sandgerði og gengið um 15 mín. leið niður í Bátsenda þar sem mikill verzlun- arstaður var allt til flóðanna miklu 1799. Tröllafossferðin svokallaða var farin sl. laugardag og voru þátt- takendur mjög ánægðir með hana, enda víða komið við. Dælustöðin í Mosfellssveit var m.a. skoðuð undir leiðsögn Guð- mundar Jóhannssonar. Að því loknu var ekið að Þverárkoti og gengið upp með Leirvogsá að Tröllafossi, en sú leið tekur um 25 mínútur. Dáðust þátttakendur þar mjög að hinu tröllslega um- hverfi fossins, sem sjálfur var heldur vatnslítill. Dvalið var um stund við fossinn og timinn not- aður til þláberjatínslu. Við Laxeldisstöðina í Kolla- firði tók á móti hópnum Þór Guðjónsson veiðimálastjóri. Var í fyrstu ekið upp á hæð nokkra, sem er til hliðar við stöðina og gefur gott útsýni yfir Laxeldis- stöðina. Þar útskýrði veiðimála- stjóri undirbúningsframkvæmdir við stöðina, starfsemi hennar og framtíðarmöguleika. Stöðin mun kosta 12 milljónir fullgerð, en talið er að hún geti borgað sig upp á 8 árum. Mjög ánægjulegt var að heimsækja stöðina og sjá hversu miklu hefur verið áorkað á þessum tveim árum, síðan framkvæmir hófust þar efra. Óráðið er hvort fleiri ferðir verði farnar í sumar, en í vetur verður sem fyrr efnt til kynnis- ferða um Reykjavik og nágrenni þar sem merk fyrirtæki og stofn- anir verða skoðaðar. Þær ferðir verða með sama fyrirkomulagi og ferðir Heimdallar í Vinnu- fatagerð íslands, Kassagerðina, Hörpu, Isbjörninn, Mjólkurbú flóamanna, Sementsverksmiðj- úna, Steingrímsstöð Og fleiri stofnanir, sem mjög fróðlegt var að heimsækja.. Kjördæmisþing S. U. S. í norðurlandskjördæmi eystra KJORDÆMISÞING ungra Sjálfstæðismanna í Norður- landskjördæmi eystra verður haldið á Húsavík laugardag- inn 14. september n.k. og hefst strax að loknu fjórðungsþing inu, sem getið er um annars staðar hér á síðunni. Rétt til setu hafa fulltrúar félaga ungra Sjálfstæðis- manna í kjördæminu, svo og fulltrúar úr héruðum þar sem ekki eru félög samkvæmt nán ari ákvörðun kjördæmisþings hverju sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.