Morgunblaðið - 14.09.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.09.1963, Qupperneq 22
22 MORCU N BLADIÐ ' taugardagur 14. sept. 1963 40 íþróttaleiðtog- ar á f undi við Geysi f DAG hefst í Haukadal í Bisk- upstungum fundur helztu íþrótta leiðtoga landsins. Það er fram- kvæmdastjórn ÍSf sem boðar til fundarins og kallar saman for- menn allra sérsambanda og allra héraðssambanda innan ÍSÍ. Eru formennirnir 33 talsins og auk þeirra eru framsögumenn og framkvæmdastjórnarmenn ÍSÍ samtals yfir 40 manns. Fundur Vestur- bæingar lakastir NORRÆNU sundkeppninni lýkur á sunnudag. Þá verða 'sundstaðirnir í Reykjavík opn ir til kl. 20.00 fyrir þátttak- endur. í hverfakeppninni í Reykja- vík skara Austurbæingar fram úr, en borginni er skipt í þrjú svæði. Vesturbærinn nær að Klapparstíg, Skólavörðustíg, Eiríksgötu og Barónsstíg. Mið- bærinn nær austur að Grens- ásveg, Suðurlandsbraut og Lækjarteig. Þátttaka er orðin: Austurbær 3512 eða 13% Miðbær 2733 eða 11% Vesturbær 2278 eða 10% í gær kom til Mbl. sundmað ur úr KR og bað okkur fyrir áskorun frá deildinni til allra KR-inga og annarra Reykvík inga að synda nú þegar 200 metrana. Kópavogs- meistaramót í frjálsum Kópavogsmeistaramót í frjáls- um íþróttum verður haldið á íþróttasvæðinu við Fífuhvamm í dag og á morgun og hefst keppnin kl. 2 báða dagana. í dag fer fram keppni stúlkna og sveina en á sunnudag keppn; karla. Enska knat spyrnan ÚRSLIT leikja í ensku deildar- keppninni, sem fram fór fyrri hluta þessarar viku, urðu þessi: 1. deild West Ham — N. Forest 0-2 Wolverhampton — Liverpool 1-3 Arsenal — Aston Villa 3-0 Burnley — Fulham 4-1 Birmingham — W.B.A. 0-1 Chelsea —- Blackburn 1-0 Everton — Bolton 2-0 Leicester — Sheffield W. 2-0 Manuhester U. — Blackpool 3-0 Sheffield U. Stoke 4-1 2. deild Middlesbrough — Rotherham 2-2 Preston — Plymouth 0-0 Scunthorpe — Sunderland 1-0 Framhald á bls. 23. þessi er alger nýjung í starfi ÍSÍ og binda stjórnarmenn sambands ins miklar og góðar vonir við hann. Sex framsöguerind' Á fundinum verður fjallað um 6 mál, framsaga flutt í hverju þeirra, nefndir starfa síðan og fjalla um málin og síðan koma þau aftur til umræðu. Framsöguerindin eru þessi: 1. Reikningar félaga og héraðs sambanda (Sigurgeir Guðmanns son). 2. íþróttamerki ÍSÍ (Jens Guð- björnsson). 3. Á hvern hátt er hægt að auka íþróttastarfið (Þorsteinn Einarsson, Benedikt Jakobsson og Gísli Halldórsson). 4. Kennsluskýrslur og fjármál (Þorsteinn Einarsson). 5. íþróttablaðið (Gísli Hall- dórsson og Þorsteinn Einarsson). 6. Heitstrenging íþróttamanna. Norrænt nám- skeið frjáls- íþróttaþjálfara DAGANA 17. til 19. nóvember 1963 verður háð norænt nám- skeið frjálsíþróttaþjálfara í Vejle, Danmörku. Á námskeiði þessu verða flutt fjölmörg fróð- leg erindi um nýjungar í þjálfun og hinn heimsfrægi þýzki þjálf- ari, Toni Nott mun m.a. ræða um nýjungar í þrekþjálfun. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að hafa samband við for mann FRÍ, Inga Þorsteinsson, símar 10969 og 10090, en hann veitir allar nánari upplýsingar. Séð yfir hluta af lauginni. Sundlaug vígð á Eskifirði SUNNUDAGINN 1. sept. sl. var vígð ný sundlaug á Eskifirði. — Sundlaugin, sem er útisundlaug, er 12,5x6,5 m. Áfast við hana eru búnings- og baðklefar, afgreiðslu salur, kennaraherbergi og her- bergi fyrir sundlaugarvörð, er það hús 132,5 ferm. Laug og hús er hitað upp með olíu. Um fram- kvæmdir sá nefnd skipuð af hreppsnefnd Eskifjarðar. Um alla hita- og vatnslögn sá Karl Sím- Úrslit í 4. flokki ídag I DAG leika á Melavellinum Vík- ingur og Akurnesingar til úrslita í landsmóti 4. flokks. Leikurinn hefst kl. 5. Á morgun leika Hafnfirðingar og Vestmannaeyingar í Hafnar- firði kl. 2 og á Akranesi leika kl. 4.30 Víkingur og B-lið Akurnes- inga. Eru þetta leikir í 3. umferð bikarkeppninnar. onarson. Rafmagnslögn Elis Guðnason. Málning Guðmundur Auðbjörnsson. Múrverk Þorvald- ur Friðriksson og Jóhann Guð- GuÖmundur Vilhjálmsson gjaldk. sundlaugarnefndar lýsir aðdraganda og byggingar- framkvæmdum. Barizt um hvert stig á meistaramóti Rvíkur \ jónsson. Mósaik á gólf og veggi I baðklefum Haraldur Logason, Reykjavík. Kostnaður við laugina er orð- inn um 2 millj. kr. Er þá eftir frágangur á lóð og ýmsu smá- vegis, sem ekki vannst tími til að ljúka við fyrir opnun laugar- innar. Sunkennari hefur verið ráðin ungfrú Guðlaug Kristófersdóttir frá SandgerðL Aðalhluti mótsins i dag og á morgun dEISTARAMÓT Reykjavíkur í frjálsum íþróttum fer fram að mestu nú um helgina. Hefst keppnin kl. 3 í dag á Laugardals velli og verður þá keppt í 10 greinum en í 11 á sunnudaginn á sama tíma. Alls eru keppendur 50 talsins, 26 frá ÍR, 19 frá KR, 3 frá Ármanni auk 2 gesta utan- bæjar. Þessi meistarakeppni er jafn framt stigakeppni milli Reykja- j víkurfélaganna um titilinn — „bezta frjálsíþróttafélagið 1963“ Stig eru reiknuð þannig að 1. maður hlýtur 7 stig, annar 5, þriðji 4, og áfram, 6. maður 1 st. Lokið er keppni í 3 greinum, hindrunarhlaupL 10 km hlaupi og tugþraut. Eftir þær greinar hefur KR hlotið, 40 stig, ÍR 7 og Ármann ekkert. Spennandi keppni Allir beztu frjálsíþróttamenn borgarinnar . eru með í mótinu og stigakeppnin hefur gefið mót inu spennandi svip þó stundum hafi verið sótt af of miklu kappi. Hér er loks til gamans tímaseð ill keppninnar um helgina. Laugardagur: Kl. 3.00: Kúluvarp — Hástökk. Kl. 3,15: 200 m hlaup. A-riðill. Kl. 325: 200 m. hlaup. B-riðill. Kl. 3.40: Spjótkast. Kl. 3.45: 5000 m. hlaup: Kl. 4.00: Langstökk. Kl. 4,30: 400 m grindahl. A-riðill. KI. 4,40: 400 m. grindahl. B-riðill. Sunnudagur: Kl. 3.00: Stangarstökk — 110 m grinda- hl. A-riðill — Kringlukast. Kl. 3,10: 110 m grmdabl. B-riðilL Kl. 3.35: 100 m hlaup. A-riðill. Kl. 3.45: 100 m hlaup. B-riðill. Kl. 3.50: Þrístökk. Kl. 4.05: 400 m hlaup. A-riðill. KI. 4.15: 400 m hlaup. B-riðill. Kl. 4.15: Sleggjukast. KI. 4.45: 1500 m hlaup. Fimmtarþraut MI endurtekin 22 september KEPPNI í þeim greinum Meistaramóts íslands í frjálsum íþróttum, sem ólokið er, þ.e. 4x100 og 4x400 m boðhlaupi, 3000 m hindrunarhlaupi og fimmtarþraut fer fram á Mela- vellinum sunnudaginn 22. sept- I ember n.k. og hefst kL 14. ÞRÁTT fyrir að háværar radd ir séu uppi um það að Liston heimsmeistari og Ingimar Jo- hansson mætist í hnefaleika- hringnum, þá er Ingimar ekki á lista yfir 10 þungavigtar- "kappa, sem alþjóða hnefa- i leikasambandið birtir við og við yfir „næstu og líklegustu“ láskorendur á heimsmeistar- ann. Cassius Clay er þar efstur á lista og síðan koma 2) Doug, Jones 3) Cleveland Williams 4) Ernie Terell 5) Billy Dani- els 6) Henry Cooper 7) Flloyd Patterson 8) Zora Folley 9), Roger Rscher og 10) T. iSpencer. Ársþing FRÍ í nóvember ÁRSÞING Frjálsíþróttasam- bands íslands fer fram í Reykja- vík dagana 23. og 24. nóvem- ber 1963. Tillögur og lagabreyt- ingar, sem sambandsaðilar ætla að leggja fram, þurfa að berast stjórn FRÍ, Pósthólf 1099 í síð- asta lagi tveim vikum fyrir þing ið. Stjóm FRI hefur valið þá Val- björn Þorláksson, KR og Kjart- an Guðjónsson, KR sem keppend ur íslands á landskeppni þjóða í tugþraut. Keppni þessi fer fram í Lúbeck, Vestur-Þýzka- landi dagana 5. og 6. október. Danir og íslendingar senda sam eiginlegt lið. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.