Morgunblaðið - 14.09.1963, Page 23
Laugardagur 14. sept. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
23
Greinargerð frá Sjómannafélaginu
Samninganefnd Sjómannafé-
lags Reykjavíkur, í deilu þeirri
er nú stendur yfir á verzlunar-
flotanum, leyfir sér vegna vill-
andi upplýsinga útgerðarmanna
um kaup og kjör háseta á verzl-
unarskipum, sem fram hafa kom
ið í blöðum undanfarna daga,
að taka fram það er hér fer • á
eftir:
í greinargerð útgerðarmanna
er því slegið föstu að mánaðar-
laun háseta, ásamt meðalyfir-
vinnu séu þær „er þeir síðan
birta í tölum.“ í þeim tölum er
reiknað með á annað hundrað
yfirvinnustundum á mánuði fram
yfir venjulegan dagvinnustunda
fjölda, sem sjálfsögðum hlut, eins
og þeir hafi aldrei heyrt getið
um 8-stunda vinnudag.
Sjómenn hafa ekkert um yfir-
vinnu á skipunum að segja og
ekki í þeirra valdi hvort hún
er meiri eða minni. Á sumum
skipum er hún óhæfilega mikil,
öðrum lítil sem engin. Nokkuð
stór hópur farmanna hefur allt-
af litla sem enga yfirvinnu, en
það eru dagmenn í vél, þótt há-
setar vinni jafnvel sólarhring-
um saman. f landi geta þeir, sem
yfirvinnu vinna, horfið frá og
farið heim, afneitað allri yfir-
vinnu, ef heilsa eða aðrar á-
stæður bjóða svo.
Á farskipunum eru það yfir-
menn f.h. útgerðanna, sem skipa
fyrir um alla vihnu og verða
hásetar og aðrir undirmenn, skv.
sjólögum, að vinna alla þá vinnu,
sem til fellur, hvenær sem skip-
un kemur þar um og hafa engan
rétt til íhlutunar um lengd henn
ar. Hluti yfirvjnnu í tekjum far-
manna er því algjörlega und-
ir útgerðunum sjálfum komið.
Afskipti Sjómannafélagsins af
þessum lið eru þau ein, að krefj-
ast sambærilégra launa til handa
m.a. vegna hinnar ódýru yfir-
vinnu háseta.
Útgerðarmönnum bar að sjálf-
sögðu að taka árstekjur og vinnu
stundafjölda, og þar sem slíkur
samanburður er til fyrir árið
1962, skulu birt nokkur dæmi:
Hásetar hjá einu skipafélaganna
sem voru með yfir 300 skráning
ardaga (meðaltal 323) höfðu í
meðaltekjur fyrir 1962 kr. 96.290,-
að meðtöldu orlofi en ekki líf-
eyrissjóðsgjaldi 6%. Til þess að
ná þessum tekjum þurftu þeir
að skila 3422 vinnustundum eða
tæpum 12 klst. á vinnudag. Fast
ir hafnarverkamenn hjá Eim-
skipafélaginu höfðu á sama ári
að meðaltali 91,8 þús. kr. tekjur
en skiluðu 2802 vinnustundum.
Þetta er með orlofi en án 1% í
sjúkrasjóð.
Kranastjórar hjá Kol & Salt
kr. 120 þús. með 2967 vinnust.
Vkm. hjá Olíufélaginu 112,5 þús.
með 3008 vinnustundir.
Vkm. hjá Héðni kr. 96,8 þús.
. með 2615 vinnustundir.
Vkm. hjá Sænska ísl. frystih.
kr. 95,1 með 2759 vinnustundir.
Birgðav. hjá Áburðarverksm.
kr. 134,2 þús. með 3402 vinnust.
Svona mætti lengi halda áfram,
en hér skal staðar numið að
sinni.
Sjómannafélagið neitar ein-
dregið, að miða nokkrar launa-
kröfur sínar við óhæfilega mikla
yfirvinnu.
Ef útgerðirnar vilja láta vinna
slíka vinnu verður að greiðast
fyrir það sambærilega og hjá öðr
um stéttum.
Mánaðarkaup og kröfur far-
manna voru og eru:
Mánaðarkaup fullgildra háseta
í júní 1963 á þrískiptri vakt með
SVi klst. vinnu á sólarhring að
meðaltali:
Samkomnlag Kröfur
2/9 1963 9/9 1963
Fast mánaðarkaup 5216.39 5.607.62 7.600.00
Orlof 312.98 336.46 456.00
Lífeyrissjóður 6% 312.98 336.46 456.00
Samtals kr. 5.842.35 6.280.00 8.512.00
Fullgildur háseti á tví-
skiptri vakt, 12 klst.
á sólarhring í sjó.
Fast mánaðarkaup 5.216.39 5.607.62 7.600.00
Vaktatillegg 743.93 799.72 2.500.00
Orlof 6% 357.62 384.44 606.00
Lífbeyrissjóður 6% 357.62 384.44 606.00
Jamtals kr. 6.675.56 7.176.22 11.312.00
farmönnum og aðrar starfsgrein-
ar hafa, fyrir sambærilega vinnu.
Sérstaða ýmissa starfsgreina
hefur verið viðurkennd á síðustu
misserum, svo að þótt Vinnu-
veitendasamband íslands o.fl.
hafi samið við vmf. Dagsbrún
um einhverja hækkun fyrir
verkamenn hefur það ekki verið
mælikvarði í öllum tilfellum á
þær launbætur er einstakar aðr-
ar starfsgreinar hafa þurft að
fá og krafist.
Samanburður við hinar mörgu
starfsgreinar sem yfirborga,
verkafólk sitt, munum við ekki
gera, enda sá samanburður og
annar fáránlegur, nema um leið
sé getið þess vinnustundafjölda
sem skila þarf, til að hljóta
ákveðnar launatekjur, auk ann-
arra atriða svo sem fríðinda og
vinnuaðstöðu og þá m.a. hvort
einstaklingurinn vinni nálægt
heimili sínu, og geti því nýtt
frístundir sínar til frekari tekju
öflunar beint eða óbeint, eða búi
við hina miklu fjarveru far-
manna og mikil útgjöld af þeim
sökum.
Algjörlega er þýðingarlaust
fyrir útgerðarmenn að taka sem
dæmi um launatekjur farmanna,
þann mánuð ársins, sem vinnu-
þyngstur er hjá hásetum vegna
viðhaids skipanna hjá því skipa
félagmu sem ósparast er á slikt
Ath. Til þess að geta fengið
kaup fullgills háseta þurfa þeir
Álit sérfræð-
inga á flugvelli
VEGNA mikilla blaðaskrifa
s.l. vor um öryggismál Reykja-
víkurflugvallar, sneri flugmála-
stjóri, Agnar Kofoed Hansen,
sér til Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar og fór fram á, að
sérfræðingur hennar athuguðu
allar aðstæður við völlinn. Stofn
unin sendi hingað tvo sérfræð-
inga, annan öryggisfræðing en
hinn flugvallafræðing. Þeir hafa
nú skilað tveimur sjálfstæðum
álitsgerðum, sem verða væntan-
lega birtar í næstu viku.
Nýir póst- og sím
stjórar
TVEIR nýir póst- og símstjór
ar hafa verið skipaðir, annar á
Húsavík og hinn á Patreks-
firði. Ragnar Helgason var skip-
aður póst- og símstpóri á Húsa-
vík, en Eggert Haraldsson á
Patreksfirði. Báðir hafa þeir ver
ið símvirkjar við bæiarsimann
í Reykjavik.
að hafa siglt í 12 mánuði sem
viðvaningar á miklu lægra kaupi
Ef 'menn í rólegheitum at-
huga kröfur þær er Sjómanna-
íeiagið hefur gert vegna far-
manna, miðað við allar aðstæð-
ur og þá jafnframt samanborið
við þau laun sem ýmsar aðrar
starfsstéttir hafa, komast þeir á-
byggilega að raun um að þær
em fyllilega sanngjarnar.
Reykjavík 13. september 1963
Samninganefnd Sjómannafélags
Reykjavíkur
Ur deild H. Ben. & Co.
Skrifstofutœkni 7963
í GfflR var sett í nýjum húsa-
kynnum Verzlunarskóla íslands
fyrsta samsýning skrifstofuvéla,
sem haldin héfur verið hér á
landi. Stjórnunarfélag íslands
átti frumkvæðið að þessari sýn-
ingu, sem nefnist „Skrifstofu-
tækni 1963“. en á henni sýna fjöl
margir innflytjendur vörur sýn-
ar. Frarnkvæmdastjóri sýningar-
innar er Árni Þ. Árnason, en
uppstillingu og skreytingu ann-
aðist Kjartan Guðjónsson, teikn-
ari. ,
Auk 22 innflytjenda taka Iðn-
aðarmálastofnun íslands og
Póst og Símamálastjórnin þátt
£ sýningunni. Iðnaðarmálastofn-
unin sýnir fyrstu íslenzku staðl-
anir (standarda).
J akob Gíslason raforku-
Viðskiptamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, skoðar sýninguna.
Kirkjudagur
Langholts-
safnaðar
KIRKJUDAGUR Langholtssafn-
aðar verður á morgun og hefst
með guðsþjónustu kl. 2. Þá leik-
ur lúðrasveitin Svanur, og séra
Ólafur Skúlason flytur ræðu. —
Liðin eru tíu ár síðán Langholts-
söfnuður tók upp þann sið að
hafa kirkjudag einu sinni á ári.
— Síðdegis verður fjölbreytt
barnaskemmtun með söngvum,
sýningu og leikum, en að kvöldi
helgisamkoma í kirkjunni. Þar
verða flutt ávörp, lesið upp, leik-
ið á celló, og kirkjukórinn syng-
ur. Kaffisala, sem kvenfélag
safnaðarins annast, verður allan
daginn eftir messu. Hátíðahöld
verða úti á skrautlýstu svæði við
safnaðarhúsið, ef veður leyfir.
— /jb róttir
Framh. af bls. 22
Grimsby — Charlton 0-2
Huddersfield — Swansea 1-0
Swindon — Manuhester City 3-0
Cardiff — Bury 2-1
Derby — Leyton O. 1-0
Leeds — Portsmouth 3-1
Newlastle — Southampton 2-2
Norwich — Northampton 3-3
Manchester United er í efsta
sæti í 1. deild með '10 stig, en
W.B.A. er nr. 2 með 9 stig.
1 2. deild er Swindon efst með
12 stig, en í öðru sæti er
Middlesrough með 9 stie.
Akranesi, 13. september.
LANDLEGA er hjá hvalbát-
unum. Veðráttan er óhagstæð,
eins og sakir standa. Þrír hval-
bátanna liggja inni á Reykja-
víkurhöfn, og einn liggur fyr-
ir akkerum vestur undir Jökli.
Vinnsla hætti í bili á hvalkjöti
í hraðfrystihúsi Heimaskaga h.f.
á hádegi í dag. Þá var búið að
hraðfrysta birgðirnar, sem fyrir
lágu. — Oddur
málastjóri, formaður Stjórnunar-
félags íslands, opnaði sýninguna
og bauð velkomna gesti, en með-
al þeirra var viðskiptamálaráð-
herra, dr. Gylfi Þ. Gislason.
Jakob sagði meðal annars i
ræðu sinni:
— Aukningu viðskipta og
framkvæmda á síðustu manns-
öldrum hefur fylgt síaukin
skriffinnska. Þeim, er að alls
konar skrifstofustörfum vinna,
hefur fjölgað í hlutfalli við ann-
að starfandi fólk.
Þessi þróun hefur oft verið tal-
in óæskilegt og neikvæð, en hún
er það ekki í sjálfu sér. Aukn-
ing skrifstofustarfanna í víðustu
merkingu þess orðs hefur verið
nauðsynlegur þáttur í hinni öru
þróun verkmenningar og óhjá-
kvæmilegt skilyrði vaxandi af-
kasta einstaklingsins í allri fram
leiðslu og margvíslegu atvinnu-
rekstri. Skrifstofustörfin eru snar
þáttur stjórnunar og bætt
Og fullkomnuð stjórnun er jafn
snar þáttur í þróun verklegrar
menningar á vorum tímum. En
vélvæðingar- og hagræðingar er
ekki síður þörf við skrifstofu-
störfin en á öðrum sviðum. Þó
verða skrifstofustörfin lengi vel
nokkuð útundan í þessu efni.
Þótt segja megi að verkmenn-
ingu vorri með vélvæðingu sinni
og sjálfvirkni, hafi að vissu
leyti verið útungað á skrifstof-
um fylgdist sjálft skrifstofustarf-
ið ekki strax með í þeirri þróun.
Nú er að verða á þessu ör breyt-
ing Og með nýrri og fullkomnari
skrifstofutækni aukast og marg-
faldast afköst skrifstofustarfs-
liðsins jafnframt því em nýir
möguleikar opnast, sem áður
vóru alls óþekktir til að beita
skrifstofutækninni í þágu enn
fullkomnari stjórnunar í at
vinnulífi mannanna með þeim
framförum sem því fylgir eða
eins og segir í vígorði 13. ráð-
stefnu CIOS — Alþjóðanefndar-
innar um vísindalega stjórnun:
„Human Progress through better
Management“.
— Ferb okkar
Framh. af bls. 24
inn hefði verið sendur ein-
faldlega vegna þess, að hann
sé hæfasti maðurinn til að
vinna verkið).
— Það gleður mig mjög að
koma nú til íslands, en hingað
hef ég ekki komið frá þvi í
Þorskastríðinu 1958. Ég
hlakka til að hitta minn gamla
vin Eirik Kristófersson aftur,
en hann kemur um borð á
mórgun til að snæða hádegis-
verð.
— Við Eiríkur vorum harð-
ir andstæðingar á sínum tima,
en ég bar alltaf virðingu
fyrir honum. Við börðumst
með tilvitnunum í biblíu og
nokkrum þorskum, en það er
allt Iiðið sem betur fer.
— Við gerum ráð fyrir því,
að vera um 14 daga í ferðinni
í allt. Slæðingarnar sjáifar
taka kannski 2—3 daga.
— Ég er nú að fara ásamt
skipherrum mínum til að hitta
Gunnar Bergsteinsson hjá
Landhelgisgæzlunni. Munum
við fara yfir og ræða áætlanir
nm slæðingarnar, sem eru
gerðar í samráði við Land-
Landhelgisgæzluna.
Skip Anderson taka olíu í
Reykjavik og munu líklcga
einhver þeirra þurfa að koma
til Reykjavíkur í næstu viku
til að fá olíu, en vegna verk-
falls á olíuflutningaskipum er
ólíklegt, að olia fáist úti á
landi. Síldarskipin ganga fyrir
þeirri olíu sem til er.
Með slæðingarflotanum fer
Lárus Þorsteinsson frá Land-
helgisgæzlunni og mun fylgj-
ast með framkvæmdinni.
f dag mun Barry Anderson
ganga á fund Guðmundar f
Guðmundssonar, utanrikisráð
herra, og síðar á fund Geirs
Hallgrímssonar, borgarstjóra.
Um hádegið býður Ander-
son Eiríki Kristóferssyni til
veizlu í Reclaim og auk hans
Gunnari Bergsteinssyni yfir-
manni Landhelgisgæzlunnar í
fjarveru Péturs Sigurðssonar,
Herði Helgasyni, formanni
varnarmálanefndar, Aðal
steini Júliussyni, vitamála-
stjóra, og yfirmanni brezka
sendiráðsins í fjarveru Ba.sU-
Boothby, ambassadors.