Morgunblaðið - 22.09.1963, Síða 3
Sunnudagur 22 sept. 1963
MORGUNBLADID
27
B ler em beir
I ÞEGAR litlu bílarnir frá
Evrópu með Volkswagen í
broddi fylkingar héldu inn-
reið sina á bandaríska mark-
aðinn fyrir nokkrum árum
og ógnuðu bandarísku fram-
leiðendunum, sáu kunnugir
að eina mótbragðið væri að
smíða svipaða smábíla.
Um haustið 1959 voru þeir
orðnir fjórir að tölu, meðal
annars Rambler, sem Gener-
al Motors framleiddu. Þeir
voru allir tiltölulega litlir, til-
tölulega ódýrir, tiltölulega
máttlitlir of tiltölulega hóg
værir.
Síðan þá hefur listinn
lengst. Nú eru þeir orðnír tíu.
Margir þeirra eru hins vegar
vaxnir upp úr drengjabux-
unum og aukið við sig. Þeir
eru ekki mikið stærri, aðal-
lega lengri, en þeir eru marg
breyttnari. Þeir eru þyngri.
Þeir eru að verða dýrari. Að-
albreyting þeirra er þó hin
mikla aukning á hestöflum
þeirra. Þeir eru ekki lengur
smábílar, þegar græna ljósiö
kemur. Hvað hlutfallið milli
hestafla og þyngdar snertir,
slá þeir mörgum stórum bil-
unum við.
Tæknisíða Morgunblaðsins
biríir hér myndir af fimm
hinum fremstu af súpermús-
unum. Corvair, Falcon, Olds
Mobile, Pontiac og Studebak-
er. Gjörið svo vel.
EFTIRFARANDI skák var tefld
í 12. umferð á mótinu í Los
Angeles. Najdorf teflir þessa
skák í sínum bezta stíl. Hann
notfærir sér til hins ítrasta mis-
tök andstæðings síns.
Hvítt: M. Najdorf.
Svart: P. Keres.
Hollenzk vörn (Keres vöm).
1. d4, e€
2. c4 Bb4f
Á árunum um og eftir 1935 tefldi
Keres svona, og síðan hefur þessi
leikur skotið upp kollinum öðru
hvoru í skákum hans.
3. Rc3
Najdorf býður upp á Nimzo-
indverskt tafl, en Keres heldur
sínu striki.
3. — f5
4. e3 Rf6
5. Bd3 0-0
6. Rge2 d6
7. 0-0 c5
8. b3
Vafalítið bezta leiðin til þess að
koma Bcl í sem sterkasta að-
6töðu.
8. — Rc6
9. Bb2 e5?
Með þessum leik reisir Keres
sér hurðarás um öxl. Að sjálf-
sögðu var 9. — De7 einfaldur og
góður leikur. Hvítur hefur ekki
xnöguleika til þess að ná tökum
á miðborðinu með 10. a3, Ba5;
11. dxc5, dxc5; 12. e4 vegna
12. — Hd8 auk þess sem Rc6
á d4 reitinn.
10. dxe5 dxe5
11. Rd5!
Nú koma skuggahliðar 9. — e5
í Ijós. Bb2 hefur nú eignazt
glæsilega línu, auk þess sem all-
ir „léttu“ menn hvíts eru vel
staðsettir.
11. — Be6
Auðvitað ekki 11. — Rxd5;
12. cxd5, Dxd5??; 13. Bc4.
12. Rg3
Ef 12. — Rxd5; 13. cxd5, Bxd5;
14. Bxf5, þá hefur hvítur fyrst
og fremst yfirráð á e4 auk þess
sem skálínan bl—h7 er gjörsam-
lega á valdi Bf5.
12. — gfi
13. f4!
Svona leiki þarf Najdorf ekki að
hugsa. Skilningur hans á slíkum
stöðum se*n þessari er mjö'g
djúpur.
13. — Rxd5
14. cxd5 Bxd5
15. fxe5 Be6
16. Re2!
eru engin grið
Rg3-e2-f4 þar sem hann stendur
bezt.
16. —
17. Rf4
De7
Rd8
Ekki 17. — Bf7; 18. e6!, Be8
(18. — Bxe6?; 19. Rxe6 ásamt
Bc4) 19. Rd5.
18. Df3 Hc8
19. Hadl a6
Keres reynir eftir föngum að ná
mótsókn á drottningarvæng til
þess að vega upp á móti yfir-
burðum hvíts á miðborðinu. En
sóknin verður aldrei að veru-
leika.
20. Bc4 Bxc4
21. bxc4 Rf7
22. e6 Rg5
23. Dd5 Hc6
24. De5 Rxe6
25. Dh8t Kf7
26. Dxh7t Ke8
27. Dxe7t Kxe7
28. Rxg6t Ke8
Hér gat Keres eins vel gefizt upp.
29.Rxe8, Rxe8; 30. Hxf5, b5;
31. cxb5, axb5; 32. h4, Ha6;
33. a3, Bxa3; 34. Bxa3, Hxa3;
35. Hxc5, gefið.
IRJóh.
Fréttamyndir með
íslenzkum texta
daglega í Laugarásbíó
Frá Iðnsýningunni í Tampere, 1922.
- ALTO
Framhald af bls. 25.
kimiemi, útborg Helsinki, ör-
skammt frá íbúðarhúsi sinu,
er hann byggði árið 1935.
Áður höfðu vinnustofur hans
verið í íbúðarhúsinu. í nýja
húsinu er ein stór teiknistofa,
þar sem aðstoðarmenn hans
starfa, en auk þess einka-
teiknistofa meistarans sjálfs
og nokkur minni herbergi;
setustofa, móttökuherbergi,
aðsetur tveggja einkaritara
og loks forsalur, þar sem
Aaito tekur gjarna á móti
gestahópum. Aalto er nú
kvæntur Elissu Makinimi,
sem er arkitekt og teiknari og
starfar við fyrirtæki þeirra.
Fyrri konu sinni, Aino Aalto,
kvæntist hann árið 1925, en
hún lézt árið 1949. Þau áttu
tvö börn, — son, sem er verk
fræðingur og dóttur, sem er
gift kona og móðir.
★ ★ ★
Fyrir Alvar Aalto liggja
ávallt óþrjótandi verkefni. Á
síðustu árum hefur verksvið
hans aftur færzt út fyrir
landamæri Finnlands, en
heima fyrir starfar hann af
L.AUGARÁSBÍÓ hefur nú um
langt skeið fengið að staðaldri
fréttamyndir frá Pathe í London,
en það fyrirtæki er þekktast í
Evrópu á þeirri tegund kvik-
mynda. Berast kvikmyndahúsinu
myndir þessar vikulega, og sýna
þær alla helztu viðburði síðustu
daga á undan í ýmsum löndum.
Þær hafa alltaf verið sýndar hér
jafnskjótt og þær hafa borizt til
landsins, og hefir almenningi því
jafnan gefizt kostur á að sjá
nýjustu viðburði á ýmsum svið-
um aðeins fáeinum dögum eftir
að þeir hafa gerzt úti í löndum.
kappi. Árið 1957 teiknaði
Aaito stórt fjölbýlishús, sem
byggt var á sýningarsvæðinu
„Interbau" í Berlin — þar
sem færstu arkiteknum heims
var falin uppbygging Hansa-
svæðisins. Árið 1955 vann
hann samkeppni um teikn-
ingu ráðhúss Gautaborgar, ár-
ið 1953 gerði hann uppdrætti
að kapellu og líkbrennslu
stöð utan við Kaupmanna-
höfn og á árinu 1958 gerði
hann uppdrætti að listamið-
stöðvum í Álaborg í Dan-
mörku og Volkswagen-borg-
inni Wolfsburg í V-Þýzka-
landi. Loks hefur hann nýlega
teiknað listasafn í borginni
Bagdad í írak.
Þess má að lokum geta, að
Alvar Aalto hefur verið
smædur mörgum heiðurs-
merkjum, þar á meðal guil-
medalíu Konunglega brezka
arkitektafélagsins. Hann var
og sæmdur heiðursdoktors-
nafnbót við Princeton háskól-
ann árið 1947, um það bil sem
hann lét af störfum við Tækm
háskólann í Massaschusettes.
Hersteinn Pálsson ritstjóri hefur
tekið að sér að þýða og tala inn
á fréttamyndirnar.
Fréttamyndir þessar hafa orðið
mjög vinsælar hér, eins og raun-
in hefir á orðið í öðrum löndum,
en stjórn Laugarásbíós hefir gert
sér grein fyrir því, að áhorfend-
ur mundu hafa af þeim meira
ánægju og gagn, ef þær væru
með íslenzku tali í stað þess
enska, sem sett er í þær í upp-
hafi. Að undanförnu hafa þess
vegna farið fram tilraunir í þá
átt að hafa íslenzkt tal með mynd
um þessum, og hefir það nú
tekizt svo vel, að fréttamyndir
þessar munu verða sýndar
þannig framvegis. Þeir, sem hafa
ekki náð valdi á enskri tungu,
geta því notið þessarra mynda
egi síður en hinir, sem vanir
eru enskunni.
Hefir þess orðið vart, undan-
farnar vikur, meðan á tilraun-
um þessum hefir staðið, að þetta
þykir góð tilbreyting og ágæt
þjónusta við gesti kvikmynda-
hússins.
Þá hefir og verið afráðið, að
íslenzkur skýringartexti verði
felldur inn í ýmsar meiriháttar
kvikmyndir, sem Laugarásbdó
hefir samið um leigu á. Er það
í samræmi við það, sem fyrr
er sagt um fréttamyndirnar, og
þá viðleitni stjórnar kvikmynda
hússins, að gera sem flestum
unnt að njóta myndanna sem
allra bezt, og láta það ekki vera
til trafala, þótt sumir gestir húss
ins kunni ekki erlendar tungur
til hlítar. Mun kvikmyndahúsið
kappkosta að gera texta þessa
sem allra bezt úr garði, svo að
sem mestu gagni verði fyrir á-
horfendur.
Til sölu
Fokheldar ibúðir í Kópavogi
2ja, 3ja og 4ra herb. Verð og
skilmálar mjög hagstæðir.
FASTEIGNASALAN
Hamarshusi við Tryggvagötu,
5. hæð (lyfta),
símar 15965, 20465 og 24034.