Morgunblaðið - 22.09.1963, Side 5
Sunrjuðagur 22 sept. 1§69
MORGUNBLADIÐ
29
BIRGIR GUÐGEIRSSON SKRIFAR UM
HLJÓMPLÖTUR
EITT þeirra tónskálda, sem ó-
maklega er vanrækt af mörg-
um tónlistarunnendum, er
Josef Haydn. Ekki er hægt
um að kenna, að hann hafi
samið svo fá tónverk í að-
gengilegu formi. Sinfóníur
hans eru t.d. á annað hundrað
að tölu, og er mikill hluti
þeirra hinar mestu meistara-
smíðar. Ef til vill veldur ein-
hverju það fálæti, sem Haydn
er sýnt af svo mörgum, að þeir
álíti tónlist hans léttmeti, á
sama hátt og margir, svo grát
lega margir, afskrifa Mozart,
sem þó er ef til vill meistari
meistaranna, þegar allt kem-
ur til alls. Ekki alls fyrir löngu
kom á markaðinn hljóðritun
með tveimur af sinfíníum
Haydns, þ.e. no. 88 í G-dúr og
no. 98 í B-dúr. Philharmoníu-
hljómsveitin í Berlín leikur
undir stjórn Eugen Jochum.
Það er augljóst í báðum þess-
um verkum, að þeim, sem
flytja, þykir vænt um þau.
Flutningurinn er léttur og lif-
andi og hljómsveitin leikur
með hlýjum og fallegum tón.
Hér er ekki um að ræða kalda
og stífa „Kapellmeister“-túlk-
un eða þurra og útreiknaða
spilamennsku eins og í hinum
nýju útgáfum Decca á nokkr-
um af sinfóníum Haydns undir
stjórn Ernest Ansermet. í B-
dúr sinfóníunni, sem er ein af
beztu og að sumu leyti frum-
legustu sinfóníum Haydns, er
á þessari upptöku harpsi-
chord continuo, eins og
Haydn sjálfur notaði við
frumflutning verksins í Lon-
don, en þá stjórnaði Haydn
hljómsveitinni og lék einnig
á harpsichordið. Hljóðritunin
er tvímælalaust með því
bezta, sem heyrzt hefur og
kemur harpsichordið hæfilega
skýrt fram og sérlega effekt-
ivt og í coda seinasta þáttar
næstum á óvart, a.m.k. þekki
menn ekki verkið eða hafi
partitur. Allir þeir kostir,
sem prýða flutninginn á þessu
verki, gæða sömuleiðis G-dúr
sinfóníuna því lífi, sem með
þarf. Margir munu kannast
við þá sinfóníu, en hún var
flutt hér fyrir nokkrum árum
af okkar eigin sinfóníuhljóm-
sveit, og þá við svo miklar
vinsældir, að endurtaka varð
síðasta þáttinn. Það er
kannske rétt að benda á, að
G-dúr sinfónían er fáanleg á
Heliodor-merki ásamt fjórðu
sinfóníu Schumanns undir
stjórn Furtwanglers. Og þó að
hlutur Jochums sé mjög góð-
ur, heyrum við samt gerla
muninn á meistara og læri-
sveini. Eins og áður er sagt,
er hljóðritun eins og hún ger-
ist bezt. Ekki eins og heil
hljómsveit sé komin inn í
stofu til manns, sem mvn
reyndar óþekkt fyrirbrigði, og
vafasamt hversu æskilegt
það væri! Enda mun og eng-
inn maður óska eftir slíku!
Númer: LPM 18823 (m),
SLMP 138823 (s).
Rétt er um leið að vekja at-
hygli á tveimur nýlegum
hljóðritunum á verkum eftir
Haydn. í fyrsta lagi hljóðrit-
un Decca á tveimur af vinsæl-
ustu sinfóníum tónskáldsins,
þ.e.a.s. no. 83 í g-moll og no.
100 í G-dúr. Philharmóníu-
hljómsveitin í Wien leikur und
ir stjórn Karl Miinchinger.
Túlkun Munchingers er
kannske nokkuð þung og
massív, en um það geta verið
skiptar skoðanir. Tæknileg
gæði hljóðritunar eru frábær.
Númer: LXT 5647 (m), SXL
2284 (s). f öðru lagi hljóðritun
frá Argo á svonefndri Nelson
Messu í d-moll, sem að
margra dómi er bezta verk,
sem Haydn samdi fyrir hljóm-
sveit, kór og einsöngvara.
Messan er hljóðrituð í kirkju
og gætir þess mjög í upptök-
unni, sem er vel af hendi
leyst. Verkinu er stjórnað af
David Willcocks, en flytjend-
ur eru m.a. Sinfóníuhljóm-
sveitin í London, Sylvia Stahl
mann, Tom Krause o.fl. Af
þeim fjórum einsöngvurum,
sem verkið flytja, er Tom
Krause áberandi beztur.
Krause er ungur Finni, sem
vakti alheimsathygli, er hann
fór með hlutverk Kurwenal í
hinni annars nokkuð um-
deildu hljóðritun Decca á
óperunni „Tristan und Isolde“
eftir Wagner, undir stjórn
Georg Solti. Þó að eitthvað
megi út á flutning Messunnar
setja, og þá helzt drengjakór-
inn, er verkið slíkt, að það
verður að mæla eindregið
með þessari upptöku og er
ekki ólíklegt, að það komi
mörgum talsvert á óvart og
það ánægjulega á óvart. Núm-
notað sem ásláttarhljóðfæri.
Nýjasta upptakan á þessu
verki kom út nú í sumar á
vegum CBS í flutningi Rudolf
Serkin og Columbia sinfóníu-
hljómsveitarinnar undir
stjórn hins nafntogaða hljóm-
sveitarstjóra Georg Szell.
Þessi nýja hljóðritun er trú-
lega sú bezta, sem völ er á, þó
ekki sé nema vegna þess eins,
hve vandlega er farið eftir
fyrirniælum tónskáldsins uni
staðsetningu slagverksins mið
að við einleikarann. í öðrum
þætti skiptir það mjög miklu
máli, en þar á slagverkið að
skipa sér fyrir aftan píanóið.
Þetta kemur einkar vel fram
í stereo-upptökunni. Þess má
Eugen Jochum
er: RG 325 (m), ZRG 5325 (s).
Ungverska tónskáldið Bela
Bartok samdi fyrsta píanó-
konsert sinn árið 1926. Hann
var frumfluttur ári síðar af
tónskáldinu, sem lék á píanó,
en hljómsveitarstjóri var
Wilhelm Furtwángler. Saman
borið við hinn vinsæía þriðja
píanókonsert höfundar, er sá
fyrsti talsvert barbarískur og
sumir segja næstum ljótur, en
aðrir álíta hann fallegan og
bezta verk sinnar tegundar,
sem Baftok samdi. Píanóið er
í þessu verki fyrst og fremst
geta, að annar þáttur kons-
ertsins er skrifaður nær ein-
ungis fyrir slagverk auk ein-
leikshljóðfærisins. Hlutur
Serkins er slíkur, að á betra
verður vart kosið. Og manni
finnst ekki svo fjarri lagi, að
þetta sé bezti píanókonsert
Bartoks, þegar hlýtt er á
þessa upptöku. Á sömu plötu
er næstum óþekkt verk, en
það er píanókonsert fyrir
vinstri hendi, no. 4, op. 53,
eftir Prokofiev. Hann var,
eins og lesandanum kannske
dettur í hug, saminn fyrir
píanóleikarann Paul Wittgen-
stein, sem missti hægri hand-
legginn í heimsstyrjöldinni
fyrri. Svo furðulegt sem það
má virðast, þótti Wittgen-
stein verkið svo nýtízkulegt,
að hann neitaði að spila það,
en konsertinn er saminn
árið 1931. Það var svo ekki
fyrr en árið 1956, að annar
píanisti, Siegfried Rapp, sem
misst hafði hægri handlegg-
inn í seinustu heimsstyrjöld,
skrifaði ekkju Prokofievs og
bað hana um að senda sér
verkið, sem enn þann dag í
dag er aðeins til í handriti.
Tónverkið var svo flutt
í fyrsta sinn opinberlega í
Vestur-Berlín í september
1956, eða 25 árum eftir að það
var samið. í Bandaríkjum
Norður-Ameríku var það
frumflutt árið 1958 af Serkin
og Philadelphiahljómsveit-
inni undir stjórn Eugene Or-
mandy, og það eru einmitt
sömu listamenn, sem flytja
verkið í þeirri upptöku, sem
hér um ræðir. Vart muh kons-
ertinn verða talinn með beztu
tónsmiðum Prokofievs, en
hann bendir til þess, sem síð-
ar kom, eins og t.d. „Romeo
og Júlía“ og „Öskubuska“.
Flutningur Serkins er glitr-
andi og skilningsríkur og
hljómsveitin undir stjórn Or-
mandy fáguð. Hljóðritun er
yfirleitt góð. Númer: BRG
72109 (m), SBRG 72109 (s).
„Harold en Italie", op. 16,
eftir Hector Berlioz kom út i
síðasta mánuði á vegum His
Masters Voice. Yehudi Menu-
hin leikur á viola ásamt hljóm
sveitinni Philharmóníá í Lon-
don undir stjórn Colin Davis.
Verkið samdi Berlioz fyrir
fiðlusnillinginn fræga, Paga-
nini, sem varð ekki alltof
hrifinn af, þar eð violan
gegnir að heita má eingöngu
obligatohlutverki. Ekki hefur
Menuhin áður leikið opinber-
lega á viola svo vitað sé, en
eftir þessari upptöku að
dæma gæti hann alveg eins
hafa gert það alla ævi. Hljóm
sveitarstjórinn Colin Davis
hefur verið mikið uppblásinn
af enskum gagnrýnendum
sem mikill Berlioz-hljómsveit
arstjóri. Hann stjórnar þessu
verki hér af blóðlausri snyrti-
mennsku og er naumast hægt
að mæla með þessari upptöku
af verulegri sannfæringu.
Hljóðritun er allgóð, en hljóm
ur nokkuð stífur og tæplega
nægilega lifandi. Númer: ALP
1986 (m), ASD 537 (s).
Birgir Guðgeirsson.
^ — -»■ ■ *«■-»--- - --— ri —i— r» —l-.~ .r»—m.r jjt_
SÍ-SLÉTT POPLIN
(N0-IR0N)
MINER
Verksmiðjan KÍSILL
Lækjargötu 6B. — Sími 1-59-60.
MÁ BERA Á í FROSTI . . . ER ALVEG GLÆRT .... LITAR EKKI .... SMÝGUR ALLT AÐ 5 mm
SKEMMIR EGGI GLER . . . AUÐVELT í NOTKUN . . . OKETPIS SÝNISHORN
FÆST UM Al.LT LAND.
SUPER
SILICONE
VATNVERJA
VAR SETT Á ÞENNAN MJÖG
GLJÚPA MÚRSTEIN:
TAKIÐ EFTIR HVERSU ERFITT ER
FYUIR VATNIÐ AÐ FARA INN
í SPRUNGUR.
GENERAL@ ELECTRIC
SlllCONE PROUUCI5
. . . . er notað í okkar framleiðslu.
. . . . er einasta silicone efni á íslandi.
sem stenzt kröfur amerísku og kana-
disku byggingareglugerðarinnar
. • • . er einasta efni, sem notað er eins
og grunnur undir málningu sem við
ábyrgjumst, að eykur endingu máln-
ingar (með því skilyrði að málningin
sé rétt borin )
STRAUNING
ÓÞÖRF