Morgunblaðið - 22.09.1963, Síða 6
30
MORCUNBLAÐIÐ
r
Sunnudagur 22. sept. 1963
Sjalfstæóishúsið á Akureyrt.
á Akureyri
í sumar var opnaður glæsi-
legur 1. flokks veitingastað-
ur í Sjálfstæðishúsinu á Akur
eyri. Birtast hér nokkrar
myndir þaðan
Húsið er eign hf. Akurs,
en stjórn félagsins skipa: Ey-
þór Tómasson, form., Árni
Jónsson, Jónas G. Rafnar,
. Kristján Kristjánsson og
Skarphéðinn Ásgeirsson.
Smíði hússins hófst fyrir
tveim árum og er það senn
fullbúið. Á neðstu hæð er
rúmgott verzlunarhúsnæði
á annari hæð veitingasalir og
eldhús, en á þriðju hæð verða
fundaherbergi og salir fyrir
Sverrir Pálsson tók allar ljósmyndir.
á Norðurlandi, svo ekki sé
meira sagt.
Forstöðumaðurinn, Sigurður
Sigurðsson, sem jafnframt er
yfirmatreiðslumaður, leggur
síðustu hönd á veizlumat á
fati.
Forstöðumaður veitinga-
hússins er Sigurður Sigurðs
son, en framkvæmdastjóri er
Þórður Gunnarsson.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi.
Óðinn Valdemarsson.
Söngvari er
glæsiiegasta hús Norðurlands
lítil samkvæmi ásamt hús-
varðaríbúð.
Sjálfstæðishúsið á Akur-
eyri mun tvímæialaust vera
eitt glæsilegasta samkomuhús
Fordyri vínstúkunnar. Þar eru bekkir klæddir kálfskinnum.
Vinstúkan.
Árni Siemsen
Bifvélavirkjar
eða menn vanir bifvélavirkjun óskast nú þegar.
Bifreiðaverkstæðið Stimpill
Grensásvegi 18.
Sími 37534.
ÁRNI SIEMSEN, stórkaupmaður
í Lúbeck og fyrrverandi aðal-
ræðismaður íslands í Hamborg í
Vestur-Þýzkalandi, er 75 ára í
dag. Árni er fæddur í Hafnar-
firði 22. sept. 1888, foreldrar hans
voru þau Franz Edvard Siemsen,
sýslumaður í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, d. 1925, og eigin-
kona hans, Þórunn Árnadóttir,
landfógeta Thorsteinsen, sem lézt
1943.
t
Snemma snerist hugur Arna að
verzlun, og vann hann fyrst hér
heima að þeim störfum hjá Ný-
lenduvöruverzluri Jes Zimsen, en
1904, þá tæplega 16 ára gamall,
réðst hann til verzlunarnáms til
matvörukaupmanns í Slesvik.
Að loknu námi, er tók 4 ár, hélt
hann áfram á verzlunarbrautinni
og vann við nokkur fyrirtæki í
Lúbeck. Þar í borg kvæntist
hann árið 1919 fyrri konu sinni,
Elisabeth, dóttur Ludvig Hart-
vig. Þau hjón eignuðust tvo syni,
þá Ludvig og Franz, sem standa
fyrir Umboðsverzlun Árna Siem-
sen hér í borg. Konu sína missti
Árni 1927. Hann kvæntist aftur
1935 Lislott, dóttur Heinrich
Rosenberg, kaupmanns í Lúbeck,
þau eru barnlaus. Frú Lislott
hefur aðstoðað mann sinn í rík-
um mæli við umboðs- og heild-
verzlun hans í Lúbeck og er pró-
kuristi hans, en þar tók Árni við
verzlun tengdaföður síns, Ludvig
Hartvig. Árið 1922 hóf hann við-
skipti við ísland á sviði út- og
innfltunings. Árið 1947 var stofn
sett Umboðsvezlun Árna Siem-
sen, sem synir hans standa fyrir,
eins og fyrr greinir.
1948 var Árni útnefndur vara-
ræðismaður íslands í Lúbeck, en
hann var hinn fyrsti, eða einn af
þeim fyrstu, sem útnenfdur var
af íslenzka ríkinu, sem ræðismað
ur í Vestur-Þýzkalandi, en því
starfi í Lúbeck og Hamborg og
síðar aðalræðismannsstarfi í
Hamborg gegndi hann þar til
á síðasta ári, en er nú kjörræðis-
maður í Lúbeck.
Árni er alveg sérstakt lipur-
menni í öllum viðskiptum, svo
hrein unun hefur verið að eiga
við hann viðskipti, setn hann
ávallt hefur leyst fljótt og vel
af hendi, synir hans feta dyggi-
lega í spor föðnr —'->s á þessu
sviði.
75 ára
Sem ræðismaður hefur Árni
reynzt löndum sínum mikil stoð,
sem þeir geta seint fullþakkað
honum, en sem hann aldrei hefur
talið eftir sér, en ávallt unnið
með glöðu geði.
Á þessum tímamótum í lífi
Árna Siemsen, munu honum ber-
ast margar hlýjar kveðjur til
heimilis síns að Körnerstrasse
18, Lúbeck, Vestur-Þýzkalandi.
H. N. S.