Morgunblaðið - 22.09.1963, Síða 7
Sunnudagur 22. sept. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
31
BLAÐAMÖNNUM var sl. fimmtu
dag boðið að skoða nýja gerð
skurðgröfu og ámokstursvélar,
sem hér er reynd í fyrsta skipti
í sumar.
Það er Gunnar Ásgeirsson h.f.,
sem flytur tæki þetta inn frá
Noregi en það ber nafnið Bröyt
X2. Tækið er einvörðungu knúið
vökvadælum, en hjól lyftuvagns-
ins ekki drifknúin. Grafan er því
xnjög einföld að allri gerð og ó-
dýr að sama skapi. Sem skurð-
grafa er hún mjög afkastamikil
Skurðgrafan að verki.
Réttir oð
hefjast
RÉTTIR eru nú að hefjast. Marg
ir Reykvíkingar fara í réttir í
nágrenni borgarinnar og jafnvel
lengst austur í sveitir og upp í
Borgarfjörð. Eftir því sem Mbl.
veit bezt, verða þessar réttir
eftirtalda daga:
Á laugardag (21. sept.): Heið-
arbæjarrétt.
A sunnudag: Breiðholtsrétt og
Lækjarbotnarétt (Lögbergsrétt).
Á mánudag: Kaldárrétt, Þing-
vallarétt; Nesjavallarétt og Hús-
múlarétt.
A þriðjudag: Hafravatnsrétt og
Eyjarétt.
Á miðvikudag: Kollafjarðar-
rétt, Þverárrétt, Oddsstaðarétt,
Svarthamrarétt, Selvogsrétt og
Tungnaréttir.
Á fimmtudag: Ölfusrétt,
Hrunamannarétt og Skaítholts-
rétt (í Gnúpverjahreppi).
Á föstudag (27. sept.). Skeiða
réttir og Landréttir.
Tíðar skipakom-
ur á Akranesi
Akrnanesi, 19. sept.: —
Útlent skip var hér í gær og t
morgun. Lestaði það 450 tonn
af síldar’ýsi og 200 tonn af hval
lýsi. Hingað kom ms. Askja i
dag með 60 standarda af timbri
til Haralds Böðvarssonar & Co.
Ms. Langjökull kemur í kvöld og
tekur slatta af dýrafóðri.
Ný gerð skurðgröfu sýnd hérr
og hefir mikla kosti hvað flot-
hæfni snertir á rótlausu og
blautu landi. Þar er hægt að
setja flotpalla undir vélina og
xnjög auðvelt er að flytja hana
til með gröfuarminum. Þurfi að
flytja vélina um langan veg er
skóflan fest á vörubílspalli og
framhjólunum, sem eru úr járni
og með spyrnum, lyft frá jörðu.
Er vélin síðan dregin á aftur-
hjólunum, sem eru með gúm-
hjólbörðum.
Gunnar Ásgeirsson heildsali
f m
lýsti þessu nýja tæki og lét vinna
með því svo menn gátu séð
hæfni þess.
Það eru bræður í Noregi, sem
tækið byggja og hafa einkarétt
á framleiðslu þess víða um heim.
Þeir eru nú að stofna fyrirtæki
í Bandaríkjimum þar sem vélin
verður framleidd, en þeir munu
hins vegar verða eigendur fyrir-
tækisins að meirilhluta.
Meginkostir þessa tækis eru
hvað það er ódýrt (kostar um
900 þús. kr.) samfara því hve
Þannig er grafan færð til með afli mokstursarmsins.
— Ljósm. Sv. Þ.
afköst þess eru mikil, eða hin
sömu og miklum mun dýrari
tækja. Þá er það mikill kostur
hve auðvelt er að flytja tækið,
en allar venjulegar skurðgröfur,
eru mjög erfiðar í flutningi.
Það var Árni G. Eylands frv.
stjórnarráðsfulltrúi, sem fyrstur
benti á tæki þetta hér og fylgd-
ist með gerð þess í Noregi. Árnij
var meðal gesta er tækið skoð-
uðu á fimmtudaginn.
Enn er framleiðsla þessarar'
gröfu ekki meiri en svo að allt
er selt 2—3 ár fram í tímann
miðað við þá afkastagetu, sem
fyrir hendi er nú. Sama fyrir-i
tæki er nú að hefja framleiðslu]
stærra tækis byggðu á svipuð
um grunni.
Grafa sú, er sýnd var, er eign
Baldurs Sigurðssonar á Akureyril
og átti hann fyrir samskonari
gröfu, sem hann fékk í fyrravet
ur og hefir reynst mjög vel. Þál
keyti Ræktunarsambands Austur,
Húnavatnssýslu tækx sem þettaj
í sumar og hefir látið vel yfir.
Grafa þessi var reynd á veg-i
um Vegagerðarinnar við bygg
ingu Keflavíkurvegar við upp-
mokstur hrauns og reyndist hún!
þar einkar vel og sýndi meiri
afkastagetu en aðrar vélar svip-1
aðrar stærðar, ennfremur þurfti
ekki jarðýtu til að losa hraunið;
fyrir þessa gröfu.
Ingólfur Daviðsson :
Gestir blómanna
Smárábreiðan ilmar, fífill-
inn breiðir fagurgula körfuna
móti sól. Skordýr koma fljúg
andi og fara að sjúga hunang
í makindum. Þau fljúga blóm
af blómi. Hvers vegna eru
mörg blóm litfögur og ilm-
andi? Skordýr sjúga hunahg
og eta frjókorn í fallegu blóm
unum. Litirnir vekja eftirtekt
skordýranna og ilmurinn seg-
ir þeim að þarna megi vænta
ætis. En eru skordýrin aðeins
ræningjar eða borga þau mál
tíðina? Allt er með ráði gert
af hálfu náttúrunnar. Blóm-
in beinlínis halda sér til fyr-
ir skordýrunum og egna fyrir
þau með hunanginu. Skordýr
in setjast að veizluborðinu,
eta sig metta og borga greið-
ann. Meðan þau sátu í blóm-
unum festist semsé við loðinn
kropp þeirra heilmikið af lím
ugum frjókornum, sem svo
berast með þeim blóm úr
blómi. Venjulega lendir eitt
hvað af þessum frjókornum
á fræni annars blóms og fest-
ist þar. Árangurinn af því
verður síðan frjóvgun og fræ-
myndun ef um blóm sömu
tegundar er að ræða. Þannig
launa skordýrin greiðann, lík
lega óafvitandi. Þau aðstoða
við frævun og fjölgun fallegu
blómanna. Skordýrin og
blómin eru sköpuð hvort
fyrir annað, og hvort öðru
háð. Ef þið sjáið fallegt
blóm, má ganga að því vísu,
að einhverri skordýrategund,
sé ætlað aðheimsækja það
— og krásin bíði handa henni.
— „Bera bý bagga skoplítinn"
kvað Jónas. En skordýrin eru
mörg og iðin. Okkur þykir
gott hunang og býflugnarækt
er atvinnugrein í mörgum
löndum. Talað er um lynghun
ang, smárahunang o.s.frv. eft-
ir því í hvaða blómum bý-
flugurnar hafa aðallega safn
að hunanginu og borið heim
í bú sín. Skordýrin geta greint
suma liti og ilminn finna þau
langar leiðir. Einstaka skor-
dýr eru hálfgerðir innbrots-
þjófar. í blómi rauðsmárans
sitja hunangskirtlarnir neðst
í hinni löngu krónupípu, svo
mörg skordýr eiga erfitt með
að ná til þess. Taka þá sum
upp á því að bíta gat á krónu-
pípuna neðarlega og sjúga
hunang í gegnum gatið. En
þá festast engin frjókorn við
skordýrin, þau taka aðeins,
en gefa ekkert í staðinn. —
Hunangsflugur og fiðrildi
hafa langan sograna og geta
náð hunangi í fífilblómum og
öðrum djúpum blómum.
Fjólur o.fl. tegundir geyma
hunangið í sérstökum smá-
poka — spora — niður úr
blóminu, svo djúpt þarf að
„kafa“ eftir því. En trýnis-
stuttar flugur verða að láta
sér nægja grunn blóm. Munu
flestir hafa séð hvannablóm
svört af flugum. Sum blóm
anga mest þegar rökkva tek-
ur, t.d. næturfjóla. Slík næt-
urblóm eru venjulega blá
eða ljósleit, svo að þau sjáist
vel þótt dimmt sé. Túlípan-
ar eru skrautlegir, en ekkert
hunang er í þeim. í staðinn
tfLri1 framleiða þeir nóg af lystug-
um frjókornum handa skor-
dýrum. Fallegu blómin mundu
deyja út án aðstoðar skor-
dýranna. Og fjölmörg skor-
dýr geta ekki lifað án hun-
angs og frjódufts blómanna.
Skordýrin og blómin eru und
ursamlega löguð hvort fyrir
annað. í blómi brönugrasa,
varablóma, o.fl. tegunda er
beinlínis útbúinn „flugvöllur“
eða lendingarpallur fyrir skor
dýrin. Kjölur ertublómanna
gegnir sama hlutyerki. Og frá
„pallinum“ liggja stundum
sérstakar rákir, sem vísa skor
dýrunum hagkvæmasta leið
niður að hunanginu, þannig
að fræni og fræflar snerti
skordýrið örugglega um leið
til að tryggja frævun. Um-
ferðinni er sem sagt stjórnað.
— í heitum löndum sjúga
sumir smáfuglar hunang úr
blómum. Blómin halda sér þá
til fyrir fuglunum. Hinir
heimsfrægu, örsmáu kólibrí-
fuglar, sjúga hunang með
löngu, mjóu nefinu og halda
sér á meðan svífandi við
blómin með feikna tíðum
vængjaburði. Þar fer fram
fuglafrævun blómanna. —
Ekki er öll skordýr háð blóm
unum. Sum eru hráætur og
önnur t.d. járnsmiður og jöt-
unuxi, lifa sem rándýr. Ekki
eru heldur öll blóm háð
skordýrum. Mörg ósjáleg
blóm, t.d. blóm grasa, stara
og birkihríslna taka vindinn
í þjónusfu sína í staðinn —
fyrir annað, og hvort
sér til fyrir honum. Vindur-
inn ber frjókornin milli
þeirra. En • þá fer mik-
ið til spillis svo að
blómin verða að fram-
leiða kynstur af frjó-
kornum til að mæta
vanhöldum. — Fræflar
og fræni þurfa að standa út
úr blómunum svo að vindur-
inn nái vel til þeirra. Fræni
vindfrævunarblóma eru oft
hárug og límug til þess að
frjókornin geti tollað á þeim.
— Þið getið auðveldlega
flokkað blómin í skordýra —
og vindfrævunarblóm. — Hag
kvæmast er auðvitað að hver
skordýrategund haldi sig um
tíma sem mest að sömu blóma
tegund, því að gagnslaust
væri að fluga t.d. bæri með
sér frjókorn úr fífli yfir í sól
eyjarblóm. Aðeins náskyld
blóm geta myndað fræ saman
auk blóma sömu tegundar.
Víðitegundirnar íslenzku
mynda t.d. iðuglega bastarða
sín á milli. Jurtakynbótamenn
taka að sér hlutverk skor-
dýranna. Þeir taka frjókorn
úr fræflunum með fíngerðum
pensli og strjúka honum síð-
að á fræni blómsins, sem
fræva skal. Eða núa bara
fræflunum sjálfum á frænið.
Margar tegundir hafa verið
framleiddar þannig með víxl-
frjóvgun og úrvali t.d. kart-
öflutegnudir, korn ýms skraut
blóm o.s.frv.