Morgunblaðið - 22.09.1963, Qupperneq 10
3Í
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. sept. 1963
TII. skamms tíma álitu flestir,
sem kunnugir eru stjórnmálum
Ráðstjórnarríkjanna, að Koslov,
áður yfirmaður flokksdeildarinn
ar í Leníngrad, yrði eftirmaður
Krjúsjeffs. Nu bendir hins vegar
allt til þess, að spá þessi muni
ekki rætast. Koslov hefur beðið
mikið heilsutjón, og er hann tal-
inn úr leik. Á sama tíma hefur
vegsauki annars manns, L. Bres-
hnevs, stórum aukizt og þá sér-
staklega eftir að hann hlaut sæti
i miðstjórninni.
Breshnev hefur um þriggja ára
skeið verið forseti æðstaráðsins,
sem að nafninu til er æðsta stjórn
vald Ráðstjórnarríkjanna. Hann
er því líklegur forseti Sovétríkj-
anna. Hann á jafnframt sæti í
flokksráðinu (12 manna) og í
miðstjórninni (14 manna), og er
Ráðstjórnarríkjunum í raun og
veru stjórnað af þessum tveim-
ur aðilum. Undanfarnar vikur
hefur Breshnev auk þess virzt
ganga Krúsjeff næstur að völd-
um, og er því ekki óeðlilegt að
I líta á hann sem eftirmann hans.
j Breshnev, sem er 57 ára, er
' fæ-ddur í Úkraníu og 'nefur lengst
{ af tekið þátt í flokksstarfsemi
kommúnista þar. Sömu sögu er
að segja um Krúsjeff, nema hvað
; hann er ekki hreinræktaður
Úkraínumaður. Fæðingarbær
Breshnevs er Kamenskoje, sem
var endurskirður Dnjeprodshers-
' hinsk árið 1936 til hsiðurs Dshers
hinssky, foringja öryggislögreglu
Ráðstjórnarríkjanna. Eins og
j Krúsjeff er Breshnev af alþýðu-
fólki kominn, og byrjaði eins og
hann 15 ára gamaíl að vinna
j fyrir sér.
Árið 1930 snerist allt um
! fyrstu fimm ára áætlunina, sem
hófst árið 1928. Þöríin á verk-
menntuðum mönnum var mjög
hrýn, og flokkurinn rak mikinn
áróður fyrir eflingu þeirrar stétt
ar. Á þessu ári hóf Breshnev
verkfræðinám í heimabæ sínum.
Talið er, að það hafi verið fyrir
tilstilli félags ungkommúnista, en
þar hafði hann gerzt félagi 1923.
Ári eftir að Breshnev hóf nám
Leonid Breshnev:
Eftirmaður Krjusetís?
sitt, fékk hann inngöngu í Komm
únistaflokkinn. Að námi loknu
vann hann í tvö ár í málmgrýt-
isbræðslu í Dshershinsky. Á þess
um árum, 1935—1937, fóru hinar
illræmdu hreinsanir fram. Það
mun reiknast honum til tekna í
dag, að hann kom þar hvergi
nærri, enda áhrifalítill verkfræð-
ingur í afskekktri borg.
Fjöldahandtökur þessara ára
urðu þess valdandi, að flokks-
starfið allt lamaðist. Alls staðar
varð að leita nýrra liðsmanna og
setja þá til starfa. í lok þessa
tímabils eða 1938 hélt Krúsjeff
frá Moskvu til Kiev, til að taka
við starfi aðalritara (fram-
kvæmdastjóra flokksdeildarinnar
í Úkraníu. Um líkt leyti hætti
Breshnev störfum sem verkfræð-
ingur og tók við starfi flokks-
deildarstjóra á Dnjepropetrovsk-
svæðinu. Ári síðar komst hann
í flokksráðið í sama héraði. Það
er álitið, að Breshnev hafi kynnzt
Krúsjeff um þetta leyti, þótt hafa
verði í huga, að Krúsjeff, sem
er tólf árum eldri, skipaði þá
stórum æðri sess í flokknum en
nýliðinn Breshnev.
Á stríðsárunum var Breshnev
eins og Krúsjeff ábyrgur póli-
tískur yfirmaður í hernum og
starfaði víða á suðurvígstöðvun-
um.
Er stríðinu lauk, sneri Breshnev
sér aftur að flokksstarfinu, og
var 1950 skipáður ílokksforingi
í Sovétlýðveldinu Moldá (Mold-
au, Moldavía). Þar með var veg-
urinn ruddur til æðri metorða.
Eftir dauða Stalíns 1953 var hann
útnefndur annar æðsti yfirmað-
ur pólitísku deildar Rauða hers-
ins.
Þegar Krúsjeff kunngerði ár-
ið 1954 nýbýlaáætlun sína í Sí-
beríu og Kazakstan, sem var þá
helzta áhugamál hans, hófst nýr
áfangi á stjórnmáiaferli Bres-
hnevs. Hann var skipaður annar
og nokkru síðar fyrsti ritari
flokksins í Kazakstan, og honum
tókst, sem engum óðrum hefur
enn tekizt, að sleppa úr þeirri
stöðu án þess að bíða pólitískt
skipbrot. Hann jók meira að
segja hróður sinn, því að staða
hans í Kazakstan varð honum
stökkbretti upp í sjálft forystu-
lið Ráðstjórnarríkjanna. Á hinu
fræga 20. flokksþingi árið 1956,
þar sem Krúsjeff gerði upp sak-
irnar við Stalín og boðaði jafn-
framt nýjar kennisetningar, sem
enn í dag teljast grundvallarat-
riði sovézkra stjórnmála, var
Breshnev í framboði bæði til
flokksráðs og miðstjórnar.
Meðan á deilunum stóð um
æðstu stjórn Ráðstjórnarrikj-
anna, sem oft voru mjög harðar
og Krúsjeff ærið hættulegar,
reyndist Breshnev gamla velunn
ara sínum trúr. Eftir að Krús-
jeff náði algerlega undirtökun-
um í deildum þessum árið 1957,
„flokksfjendurnir“ Malenkoff,
Molotoff og Kaganovitsj höfðu
verið gerðir óvirkir, tók Bres-
hnev sæti sem fullgildur meðlim-
ur flokksráðsins.
Síðan telst Breshnev í hópi nán
ustu samverkamanna Krúsjeffs.
Hann losaði sig fljótlega undan
smærri og staðbundnari verk-
efnum og snéri sér í æ ríkari
mæli að æðri málefnum ríkisins.
Þetta á þó sérstaklega við, eftir
að hann var kjörinn eftirmaður
Vorosjiloffs í æðsta ráðinu, þ.e.
forseti þess eða Ráðstjórnarríkj-
anna.
Breshnev vakti sérstaka at-
hygli fyrir tvennt á 22. flokks-
þinginu 1961: óvenju örugga
framkomu og. harða gagnrýni á
Stalín og aðferðir hans. Hann
húðstrýkti í ræðu þá flokksmenn,
sem rígbundu sig við alls konar
kreddur, og einmg embættis-
menn, sem vildu ofstjórna öllu.
Fundargerðarbækur herma, að
mikill ys hafi orðið í salnum, er
Breshnev lýsti vanþóknun sinni
á því, að yfirvöldin í Davlekan-
ovo segðu t.d. fyrir um það,
hvenær bændur á hverju ein-
stöku samyrkjubúi ættu að taka
sér miðdegislúr; yfirvöldin í
Tsjamsinsk gæfu út sérstaka
reglugerð um, að til borgaralegs
hjónabands yrði aðeins stofnað
á laugardögum. Flokksþingið
fagnaði Breshnev ákaft, er hann
sagði: „Hvers vegna mega menn
ekki alveg eins gifta sig á mið-
viku- eða föstudögum?“ Bres-
hnev hélt því fram, að „slíkir
embættismenn gerðu alltaf úlf-
alda úr niýflugu", og að stjórn-
unarofsinn gengi svo langt hjá
þeim, „að þeir vildu setja reglur
Koslov: Úr leik?
VAUXHALL
VEKUR ALLRA AÐDÁUN
Velox
Cresta
★ GLÆSILEGT ÚJTLIT.
★ FRÁBÆRIR AKSTURSEIGINLEIKAR.
★ RÚMGÓÐUR OG ÞÆGILEGUR.
Gerðirnar VELOX og GRESTA eru sex manna bílar. Útlit þeirra, fallegt litavel og vönduð framleiðsla
á öllu, sem í biinum er, hefur hvarvetna aflað honum álits og vinsælda. — í hinni hörðu samkeppni
bílaframieiðenda eru VAUXHALL-verksmiðjurnar í stórsÓKn. — Það er bezta sönnunin um ágæti
bifreiðanna.
Gætum algreitt nokkrar bifreiðir innan skamms. — Leitið nánari upplýsinga hjá oss.
um það, hvernig brúðguminn
ætti að sitja, og hvernig brúður-
in skyldi stíga dansinn.
Forsetastarf Breshnevs og á-
framhaldandi valda-aðstaða í
flokksstjórnirini gerði honum
kleift að láta að sér kveða í utan
ríkismálum. Hann umgengst mik-
ið erlenda sendiráðsmenn, hefur
setið þing leiðtoga kommúnista
víðs vegar og sótt heim erlenda
þjóðhöfðingja. Meðal landa, sem
hann heimsótti á árunum 1960 til
1962 eru Finnland, Marokkó,
Ghana, Guinea og Júgó-Slavía.
Ört vaxandi ítök Breshnevs á
sviði utanríkismála komu bezt í
ljós í Kúbudeilunni 1962. Þá var
hann einn fimmenninganna, sem
ákváðu gerðir Sovétríkjanna.
Hinir voru Krúsjeff, Mikojan,
Kossygin og Koslov.
Breshnev er ólíkt vinsælli en
Súslov og Kosiov, og ná þær vin-
sældir langt út fyrrr flokksrað-
irnar. Hann er töluvert yngri en
Mikojan og hefur víðtækari
reynslu en Kossygin. Þar við
bætist, að Breshnev er heilsu-
hraustur vel. Ræðumaður þykir
hann og þokkalegur. Eins og nú
er málum háttað, er ekki síður
mikilvægt, að skuggar Stalíns-
tímabilsins hvíla ekki yfir hon-
um. Ýmislegt fleira reiknast Bres
hnev til tekna í valdabaráttunni
í Kreml. V erkf ræðimenntun
hans, full innsýn í skipulag
flokksins og heilbrigð umbóta-
semi, að því er virðist, munu
verða þung á metunum, þegar
til kastanna kemur. Það hefur
líka verið sagt, að eins og í
pottinn sé búið um þessar mund-
ir, komist hann næst hugmynd-
um Sovétborgara um heppilegan
leiðtoga.
Ekki þykir Breshnev standa
Krúsjeff á sporði hvað áróðurs-
snilli snertir, og hann er sagður
hneigjast meira til raunsærrar
íhugunar en hugsjónalegrar túlk
unar. Framtíðin ein leiðir hms
vegar í ljós, hvaða áhrif Bres-
hnev muni hafa á stjórnmála-
stefnu Ráðstjórnarríkjanna.
(„Die Zeit“, 23. ág.)
Peningalán
Útvega pemngalán.
Til nýbygginga.
— endurbóta a íbúðum.
— íbúðarkaupa.
Uppl. kl. 11-12 f.h. og 8-9 e.h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti ó A
Sími 15385 og 22714
VÉLADEILD — SAMBANDSHÚSINU. — Sími 17080
Austurstræti 10.
Laugaveg 116.