Morgunblaðið - 06.10.1963, Side 1
36 síður (I.)
50 árgangur
217. tbl. — Sunnudagur 6. október 1963
PrentsmiSja Morgunblaðsins
Leiötogar uppreisnar-
manna ákaft hylltir
llad] hafnar f riðartilboði Ben BeBla
Algeirsborg, 5. okt - AP-NTB:
Mohand Ou E1 Hadj, ofursti, leid
togi uppreisnarmanna í 91sír, hef
nr hafnað tilboði Ben Bella, for
seta, um friðarsamninga og lýst
Jiví yfir að andstaðan við „ein-
veldið“ muni breiðast um allt
landið. Sagði Hadj á fjöldafundi
í nágrenni Michelet í gær að upp
reisnarmenn myndu ekki leggja
niður vopn fyrr en „réttlætið
rikti í'Alsír á ný“.
Seint í gærkvöldi gáfu leiðtog
ar uppreisnarmanna út yfirlýs-
ingu þess efnis að leiðtogarnir
hafi lengi án árangurs reynt að
koma á málamiðlun innan frels
ishreyfingarinnar (FLN). Sé því
tilgangslaust að ræða við Ben
Bella.
Síðdegis í dag söfnuðust 3000
Berbar saman í Azazga í Kabýlía
fjöllum og hylltu leiðtoga upp-
reisnarmanna. Azazga er borg í
fjöilunum, aðeins 100 km frá
Aigeirsborg.
Á útifundinum á Azazga talaði
Bandaríkja-
menn
ahyggjufullir
Washington 5. okt. NTB.
DEAN Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir í
gærkvöld, að Bandaríkih litu
mjög alvarlegum augum á atburð
ina í Dominikanska lýðveldinu
og Honduras. Rusk sagði, að
Bandaríkin hefðu alla hernaðar-
lega og efnahagslega aðstoð til
ríkjanna tveggja og að þegar
hafi verið hafizt handa um að
kalla heim nefndir þær, sem ann-
*st hafa þá aðstoð.
Rusk sagði, að ekki væri unnt
•ð halda áfram neinu samstarfi
milli Bandaríkjanna og þessara
tveggja þjóða innan starfsviðs
Framfarastofnunar Ameríku.
Mohand Ou E1 Hadj, ofursti, leið
togi uppreisnarmanna, og var á-
kaft hylltur af Berbum. Lýsti
hann því yfir að fyrsti maðurinn
í þeim átökum, sem framundan
an væru, hefði særzt j viðureign
við fiermenn Ben Bella, og sagði
jafnframt að hermenn þessir
hefðu verið handteknir af upp-
reisnarmönnum.
■ „Ef þið viljið vopn til þess að
berjast með gegn Ben Bella, þá
munum við útvega ykkur þau“,
sagði Hadj, og laust mannfjöld-
inn þá upp miklu fagnaðarópi:
„Lengi lifi frelsið".
Mohand Ou Hadj, ofursti (t.v.) og Hocine Ait Ahmed, leiðtogar uppreisnarinnar gegn Ben Bella,
-4» ræða saman.
brennir sig
lifandi í Saigon
Lögregla Diems ber á bandariskum blaðamönnum og
hrifsar af þeim myndavelar — Yfirmaöur CIA kallaður heim
Saigon og Washington, 5. okt. — AP —
'if í dag gerðist það í Saigon að ungur Búddamunkur
brenndi sig lifandi á markaðstorgi einu til þess að mótmæla
aðgerðum stjórnar Ngo Dinh Diem í S-Vietnam. Munkurinn,
sem er hinn sjötti sem brennir sig lifandi, steig fyrirvaralaust
út úr leigubíl með stóra gúmmíblöðru fulla af benzíni í hend-
inni. Settist hann á gangstéttina, hellti yfir sig benzíninu og
kveikti í. Var hann látinn eftir þrjár mínútur.
■Jc Fjöldi manns safnaðist þegar á staðinn til þess að
íylgjast með atburði þessum, og þustu lögregla og herlið
einnig á vettvang. Fréttamenn komu að heita strax á staðinn,
og gerðist þá það, að óeinkennisklæddir lögreglumenn réðust
að þremur bandarískum fréttamönnum, börðu þá og hrifsuðu
af þeim myndavélar. Einn fréttamannanna, John Sharkey
frá NBC, var sleginn í götuna af lögreglunni og hlaut heila-
hristing. l»á börðu lögreglumenn einnig annan fréttamann
frá NBC og fréttaritara New York Times í Saigon, David
Halberstam.
Nokkru eftir atburð þennan var handsprengju varp-
að að íbúðarskálum bandarískra liðsforingja í Saigon, en
manntjón varð ekki. Þá reyndu stúdentar að efna til upp-
þots í öðrum borgarhluta, en lögreglan stöðvaði það.
Griðasáttmáli hneppir 97
milljónir í eilífan þrældóm
i
— segir IMixon — Krúsjeff reynir
oð halda lokinu á púðurtunnunni
New York, 5. okt. — NTB
R I C H A K D Nixon, fyrrum
varaforseti Bandaríkjanna,
ritar grein í vikublaðið Satur-
day Evening Post í dag, og
segir að ef til griðasáttmála
milli vVarsjárbandalagsins og
NATO komi, geti hann gert
97 milljónir manna að þræl-
um að eilífu.
í grein sinni segir Nixon m.a.
„Krúsjefi, íorsætisráðlherra,
veit að hann situr á púðurtunnu,
og tilgangurinn með utanríkis-
málastefnu þans er sá einn, að
gæta þess að lokið haldist á tunn
unni. Hann vonast til að honum
takizt 'þetta með því að semja
um griðasáttmála, og margir
Bandaríkjamenn, bæði með og
móti Kennedy, æskja slíks sátt-
mála. En það væri í hæsta máta
óviðeigandi ef ■ Bandaríkin,
beint eða óbeint, gleyptu við
þessari beitu Krúsjeffs, sem
þýðir á rauninni, að til þess að
viðhalda friðsamlegri samlbúð
verði að draga línu þvert yfir
Evrópu, og viðurkenna endan-
lega þrælahald austan þessarar
línu.
„Bandaríkin verða að halda
frelsishugsjóninni lifandi með í-
búum A-Evrópu með því að
standa á móti sérhverri spvézkri
tilraun, sem miðar að því að fá
yfirráð kommúnista í löndum
þeirra viðurkennd. Bandaríkin
mega ekki gera neitt það fyrir
stjórnir A-Evrópu, sem ekki mið
ar að því að leysa lönd þessi
undan oki kommúnista“, segir
Nixon.
Vitni að sjálfsmorði munksins
segja að hann hafi fyrirvaralaust
stigið út úr leigubíl á markaðs-
torgi í miðhlúta borgarinnar,
'sezt með krosslagða fætur á
gangstéttina, hellt yfir sig benz-
íninu og kveikt síðan í. Var
klukkan þá um 12:30 eftir staðar
tíma (04:32 ísl. tími). Var hann
þegar umsveipaður eldtungum,
og kipptist lítillega til, en virt-
ist að öðru leyti æðrulaus. Þrem-
ur mínútum síðar féll hann á
gangstéttina, látinn.
Lögreglan ög herlið komu á
staðinn nokkrum mínútum síð-
ar í skriðdrekum og brynvörð-
um bílum, og voru gaddavírs-
tálmanir settar upp viða í ná-
grenninu.
Mannfjöldi hafði þegar safn-
azt fyrir nokkrum sekúndum
eftir að munkurinn kveikti
klæðum sínum, og virtist í fyrstu
sem lögreglan hliðraði sér við að
ryðjast í gegnum mannþröngina.
Loks tók einkennisklæddur mað
ur sig til og fleygði strámottu
yfir afmyndað lík munksins og
slökkviliðsmenn, sem einnig
komu á staðinn, hófu að sprauta
á það úr handslökkvitækjum.
Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn hlupu síðan að hópi frétta
manna, og urðu slagsmál er þeir
Morgunblaðið
*
/ dag
Morgunblaðið í «dag:
Blað I.:
Bls. 3 Landleiðir
— 6 Aldan, sjóm.fél.
— 10 Erlend tíðindi
— 11 Reykjavíkurbréf
Blað n.:
Bls. 1 „Hlébarðinn"
— 3 Vestureyjar
— 7 Kristmann Guð-
mundsson: bók-
menntir
reyndu að hrifsa myndavélar af
þeim. John Sharkey frá banda-
ríska útvarps- og sjónvarpsfyrir-
tækinu NBC var laminn í höfuð
og herðar unz hann féll blæð-
andi í götuna. Varð að sauma
Framhald á bls. 2.
Við munum
berjast
— segir Sukaino
Jakarta 5. okt. — NTB.
SUKARNO, Indónesíuforsetl
lýsti því yfir í ræðu hér í da@
í tilefni „V arnardagsins", að
Indónesía muni ekki hika við
að grípa til vopna sé ástæðst
fyrir hendi. „Við munum haldai
áfram baráttu okkar við að eyði
leggja Malaysía-ríkjasambandiði,
sem stofnað var í óþökk fólks-«
ins á N-Borneó“, sagði hann. Su-
karno bætti því við að Indónesíai
væri nú umkringd og mætti sig
ekki hræra. „Heimsvaldasinn-
arnir vilja nú enn einu sinni ná
yfirráðum í Indónesíu," sagðj
hann.
Rauða Stjarnan
hótar nú Dönum
Moskva 5. okt. — NTB.
„Rauða Stjarnan", málgagn sov
ézka hermálaráðuneytisins, segir
í dag öð öryggi Danmerkur sé
ekki bezt borgið í samvinnu við
stjórnmálamenn í Bonn, heldur
sé lausnin sú, að taka ekki þát*
í hernaðarsamtökum og við-
halda hlutleysi.
Skrif „Rauðu stjörnunnar"
standa í sambandi við sameigin-
Framhald á bls. 2.