Morgunblaðið - 06.10.1963, Side 11
Fr Sunnudagur 6. október 1963
11
MORCUNBLAÐIÐ
HEYKJAVIKURBREF
LaugarA 5. okt
„Vita ekki hvað
vekur mönnum
£66
unaö
Sumarið 1772 kom hingað til
lands sænskur maður, Uno von
Troil að nafni, er síðar varð
nafnkunnur í heimalandi sinu.
Veturinn eftir skrifaði hann bréf
til vinar síns, þar sem hann rek-
ur ferðasögu sína. Þar segir m.a.:
„Ferðinni var haldið áfram frá
Suðureyjum og loks náðum við
. til íslands hinn 28. ágúst og vörp-
uðum akkerum úti fyrir Bessa-
stöðum, hinu fræga setri Snorra
Sturlusonar. Okkur þótti sem við
værum komnir í annan heim. í
6tað fagurra héraða, sem áður
mættu augum okkar, var hér
ekkert annað að sjá en ofboðs-
legar minjar sundurleitustu eyði
leggingar. Gerið yður í hugar-
lund land, þar sem hvergi sést
annað en nakin fjöll með eilífum
jökli á efstu brúnum. Á láglend-
inu milli fjallanna rísa gleraðar
klappir með háum og hvössum
brúnum, sem keppast við að fela
hinn litla gróður, sem var á milli
þeirra. Að baki þessara skugga-
legu múra leynast byggðir lands-
manna, dreifðar út um allt.
Hvergi sést nokkurt tré, sem*
skýlt geti vináttu og sakleysi.
Ég vænti þess varla, minn herra,
að þessi frásögn veki yður mik-
inn hug á að gerast fslendingur.
Ég þori að ábyrgjast, að við
fyrstu sýn kæmi engum manni
til hugar að slíkt land væri
byggilegt mannlegum verum, ef
ekki væru alls staðar bátar
Ströndinni.
Varla getur nokkurt land, sem
náttúran hefur búið jafn fátæk-
lega að, og þar sem hún birtist
hvarvetna í jafn óhugnanlegum
myndum. Þó lifa þarna nálega
60 þúsundir manna. Ekki eru
þeir beinlínis óhamingjusamir,
því að þeir vita ekki, hvað vek-
ur mönnum unað á öðrum stöð-
„Lifa þeir á kostn-
að Ameríkana?44
Víst er veðrátta betri á íslandi
nú en hún var fyrir tæpum 200
árum. Árið 1772 áttu landshagir
þó enn eftir að versna. Þá voru
Móðuh'arðindin enn ekki geng-
in í garð. Mesta niðurlæging
lands og þjóðar varð ekki fyrr
en nokkru árum síðar. Nú eru
þetta löngu liðnir tímar og okkur
þykir furðulegt, að nokkur skuli
hafa litið land okkar þessum aug
um. En þótt okkur þyki landið
bæði fagurt og mikilfenglegt, þá
undrast enn margir, sem upp
hafa alizt í frjósömum löndum,
hversu hér er harðbýlt. Munur-
jnn er sá að nú spyrja menn
ekki, hvórt íslendingar séu óham
ingjusamari en annað fólk, held-
ur hvernig á því standi, að vel-
megun sé svo mikil sem hvar-
vetna blasir við í jafn erfiðu
landi.
í sumar kom hingað erlendur
etjórnmálamaður, sem reyndi að
kynna sér allar aðstæður. Þegar
hann sá, hvað hér hafði verið
gert á fáum árum, og bar saman
lifnaðarhætti á íslandi og í sínu
velstæða landi, fór hann að velta
fyrir sér, hverjar væru undir-
stöður efnahags íslenzku þjóðar-
innar. Hann kom til kunningja
BÍns og sagði:
„Skýringin hlýtur að vera sú,
»ð Ameríkanar borgi íslending-
um stórfé fyrir að hafa her-
itöðvar á landinu.“
Hann varð meira en lítið hissa,
þegar honum var sagt, að þetta
væri fullkominn misskilningur.
Ameríkanar borguðu ekki einn
eyri í leigu fyrir varnarstöðv-
arnar. Þær væru framlag ís-
lendinga til varna hins frjálsa
heims, og árið 1962 hefðu tekjur
íslendinga af varnarliðsvinnu og
viðskiptum við varnarliðið ekki
numið nema 3,5% af þjóðartekj-
unum. Skýringar á velmegun ís-
lendinga yrði þess vegna að leita
annars staðar.
Frelsi, manndáð og
tækni
Hver er þá skýringin á þeim
umskiptum, sem hér hafa orðið?
Um síðustu aldamót var ástand-
ið betra, en ekki stórkostlega
betra, en þegar Uno von Troil
kom hingað 1772. í upphafi þess-
arar aldar, fengum vlð aukið og
síðar fullt frelsi. Það hefur ráðið
miklu. En margt fleira hefur
einnig komið til. Margs konar
samtök almennings hafa valdið
miklu, bæði um stórframkvæmd
ir og jöfnuð í lifskjörum. Tvær
heimsstyrjaldir hafa gjörbreytt
aðstöðu landsins, og fært okkur
mikla fjármuni í bili. Mestu ræð-
ur þó e.t.v. tænkiþróunin, sem
raunar er ekki einstæð fyrir ís-
land, heldur hefur átt sér stað
um heim allan. En við höfum
haft hug og dug til að nota okk-
ur hana e.t.v. 'flestum framar.
Frumherjar þeirrar tækni
þróunar, sem aldaskiptum réði,
lifa sumir enn. Nú í vikunni var
haldið samsæti til heiðurs Þór-
arni Oigeirssyni, ræðismanni ís-
lands í Grimsby, áttæðum. Þar
var því lýst, að hann hefði verið
kjörinn heiðursfélagi í Félagi ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda.
á Áður höfðu einunigs tveir menn
hlotið þann heiður: Thor heit
inn Jensen og Halldór Þorsteins-
son. Halldór var staddur í þessu
hófi, enn við góða heilsu, 86 ára
gamall. Togaraútgerð hefur geng
ið treglega allra síðustu árin.
Því má þó ekki gleyma, að með
upphafi hennar hefst tækniöld á
íslandi. Hug og dug þeirra, sem
þar höfðu forystu, á þjóðin óend-
anlega mikið að þakka.
Vegna frelsisins fékk manndáð
in að njóta sín í nýjum verkefn-
um. Enginn skyldi ætla, að það
væri einber tilviljun, að bróðir
Halldórs Þorsteinssonar, séra
Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði,
vann þau tónlistarafrek, sem
minnst var á aldarafmæli hans í
fyrra, eða að náfrændi Þórarins
Olgeirssonar skuli vera snilling-
urinn Jóhannes Kjarval. Lífs-
þróttur dugmikils en áður niður
bælds fólks brauzt út með marg
víslegum hætti jafnskjótt og
tækifærin gáfust.
Engin ástæða til
kvíða
Um þessar mundir er mikið
rætt um óvissy í fjármálum og
stjórnarandstæðingar tala eins og
allsherjar hrun sé yfirvofandi.
Því miður er þjóðfélag okkar svo
lítið og atvinnuvegir svo einhæf-
ir, að við megum ekki við miklu.
Stundum mikla menn fyrir sér
gæði landsins og getu þjóðar-
innar; tala eins og okkur sé allt
fært. Við lifum í erfiðu landi og
erum svo fáir, að mun merki-
legra er, hverju við höfum feng-
ið áorkað, heldur en hitt, þótt
ýmsu sé ábótavant. Viðurkenn-
ing þessa má ekki verða tjl þess
að við drögum úr áhuganum fyr
ir að bæta úr ágöllum. En við
verðum að ætla okkur af.
Við getum enn síður ,en
aðrir gert allt samtímis. Á árun-
um milli 1930—40 þjáði okkur
böl atvinnuleysis. Nú er víðast
á landinu keppt um hverja vinn-
andi hönd. Það kapphlaup má
ekki verða til þess, að við
sprengjum okkur, svo að sams
konar eymd og við reyndum fyr-
ir 30 árum, blasi við á ný. Aldrei
hefur verið betur í haginn búið
en nú. Velferð okkar er borgið,
einungis ef við kunnum að gtæa
hófs.
Úttekt á viðreisn-
inni
Stjórnarandstæðingar segja,
að með þeim hækkunum sem
úrskurðaðar voru á kaupi opin-
berra starfsmapna með kjara-
dómi og á verðlagi landbúnaðar-
afurða af yfirnefnd sex manna
nefndar, hafi verið framin út-
tekt á viðreisninni og hún reynst
meingölluð. Við skulum viður-
kenna, að þarna kemur fram
mat hlutlausra manna. En á
hverju byggist það? Um úrskurð
kjaradóms segjr berum orðum í
lögum:
„Kjaradómur skal við úrlausn
ir sínar m.a. hafa hliðsjón af:
1. Kjörum launþega, er vinna
við sambærileg störf hjá öðr-
um en ríkinu.
2. Kröfum, sem gerðar eru
til menntunar, ábyrgðar og sér-
hæfni starfsmanna.
3. Afkomuhorfum þjóðarbús-
ins.“
Hækkunin til opinberra starfs
manna kemur þess vegna af því,
að hlutlausir menn meta það, að
aðrar stéttir hafi þegar áður
fengið svo góð kjör, að opin-
berjr starfsmenn þurfi þessa
hækkun til að standa jafnfætis
þeim. Alveg sama máli gegn
ir um bændur. Hækkunin á af-
urðum þeirra er úrskurðuð fyrst
og fremst vegna þess að aðrir
hafa þegar áður fengið 26%
hækkun. Þar er því um að ræða
afleiðingar af stórbættum hag
annarra. Hitt er svo annað mál,
hvort þjóðfélagið sé svo efnað,
að það getj í raun og veru stað-
ið undir þessum bjög bættu kjör-
um allra stétta. Sjálfsagt er að
reyna það, en enginn getur gert
irieira en hann megnar.
Hóflaus kröfugerð
bætir engra liag
Almennur fögnuður ríkti að
vonum þegar í vor tókst með
þjóðhátíðarsamningunum, að af-
stýra allsherjar verkföllum. í
þessum dálkum var þó þá þeg-
ar bent. á, að öruggast væri að
taka öllu með varúð. í Reykja-
víkurbréfi, sem birtist hjnn 23.
júní segir m.a.:
„Kauphækkunin, sem um var
samið, 7*4, er þó veruleg. Ekk-
ert sýnir betur hverju hófleysi
menn eru vanir, en að svo mikil
hækkun skuli talin sanngirnis-
vottur. Því miður er engin vissa
fyrir, að efnahagur þjóðarinnar
þoli hana ofan á þá 5% hækkdn,
sem hinir lægra launuðu fengu
fyrr á árinu. Vonandi verða afla-
brögð í sumar svo góð, að undir
lessu verði hægt að standa áfalla
laust“.
Síðar í sama Reykjavíkurbréfi
segir:
„Af Þjóðviljanurn er greini-
legt, að í herbúðum hans ríkir
síður en svo óskipt ánægja
yfir þjóðhátíðarsamkomulaginu.
Hann tók orðsendingu ríkis-
stjórnarinnar strax í upphafi fá-
lega, svo ekki sé sagt fjand-
samlega, og nú eftir á hefur
hann á orði, að ríkisstjórnin
eigi að koma í veg fyrir verð-
hækkanir, meðan á rannsókn
greiðslugetu atvinnuveganna
stendur. Þjóðviljinn veit þó jafn
vel og aðrir, að slíkt tal er út
í bláinn. Eftir því sem tilkostn-
aður, þ.á.m. af launagreiðslum,
hækkar, hlýtur verðlag að
hækka. Um landbúnaðarvörurn-
ar er þetta berum orðum ákveð-
ið í lögum, sem allir flokkar
hafa samþykkt og staðið að
framkvæmd á. Fyrir kosningar
lýstu kommúnistar og ekki síð-
ur en aðrir yfir því, að verð
á landbúnaðarvörum til bænda
þyrfti að hækka“.
Aðp;át öllum til
góðs
Nú býsnast Þjóðviljinn og
Tíminn yfir hækkunum. f sum-
ar brást Timinn hið versta við
aðvörun Reykjavíkurbréfs og
hellti hinn 26. júní úr skálum
reiði sinnar af því tilefni. Auð
vitað geðjast neytendum ekki
að hækkun landbúnaðarvöru
verðs. Tíminn reynir nú sam
tímis að æsa þá upp og egna
bændur til óánægju yfir að hækk
anirnar hafi ekki verið nógu
miklar! Allur almenningur er
búinn að fá meira en nóg af
þessum sífellda tvískinnungi og
ögrunum á alla vegu. Innantóm
kröfugerð og níðskrif koma_eng
um að haldi. Ríkisstjórnin sagði
fyrir, að allsherjarhækkanir
myndu nú sem fyrr bitna á hin
um lægst launuðu og varaði við
þeim aðförum. Hún og hennar
blöð hafa stöðugt flutt þennan
sama boðskap.
Stjórnarandstæðingar vitna
hinsvegar til þess, að ýms verka
lýðsfélög, þar sem stjórnarstuðn
ingsmenn hafi meirihluta láti
ekki á sér standa um kröfu-
gerð. Enginn vill verða aftur
úr í kröfugerðinni. Játa þó all
ir í öðru orðinu, jafnt stjórnar-
stuðningsmenn sem andstæðing-
ar, að í óefni sé stefnt með
þvílíkum aðförum. Þessvegna er
meira en tími til kominn að
breytt verði til, að menn játi,
að það er raunveruleg fram
leiðsluaukning og tekjuaukning
þjóðarbúsins, sem ein getur stað
ið undir kjarabótum. Ef menn
leggjast á eitt um að gera þá
aukningu sem allra me^ta, verða
þeim þar með tryggðar hinar
mestu kjarabætur. Jafnframt er
eðlilegt, að launþegar vilji
tryggja, að ekki sé á sinn hlut
gengið. Þar eiga hinir lægst
launuðu vissulega mest í húfL
Reynslan er búin að sýna að
kröfugerðarkapphlaupið er þeim
ætíð til ófarnaðar. Hagur þeirra
og alþjóðar krefst þess, að ný
vinnubrögð verði tekin upp. Á
grundvelli þekkingar Og stað-
reynda verður að finna við-
hlítandi lausn.
Sveinn sárreiður
sannleikanum
Arnór Sigurjónsson gerði
Sveini á Egilsstöðum lítinn
greiða með því að misnota stöðu
sína við Árbók bænda til að
segja þar rangt frá framboðs-
raunum Syeins. Vonandi verður
tekið fyrir slíka misnotkun í
framtíðinni, enda ber forráða-
mönnum Árbókarinnar skylda
til að leiðrétta rógskrif Arnórs.
Vegna sannrar frásagnar af
þessum atburðum í Reykjavík*
urbréfi skrifar Sveinn á Egils-
stöðum um málið frá sínu sjón-
armiði í Tímann ekki alls lyr-
ir löngu. Sveini á Egilsstöðum
er að sjálfsögðu vorkunn. Hmn
varð fyrir miklum vonbrigðam.
Þótt hann sé mikill myndar-
bóndi, þá skortir hann sjálfs-
gagnrýni til að skilja hinar
sönnu orsakir fylgisleysis síns.
Hann kýs heldur að lifa í eig-
in hugarheimi. Sjálfum sér til
uppörvunar vitnar hann til Ól-
afs Thors um staðfestingu á pví,
að rangt hafi verið frá sag't í
Reykjavíkurbréfi. Að þessu til-
efni hefur Ólafur beðið fyrir
þau skilaboð, að hann sé sam-
mála frásögn Reykjavíkurbréfs
í einu og öllu.
Sveinn vitnar til einnar könn-
unar atkvæðagreiðslu af möíg-
um á einum fundi og
fer þó ekki rétt með
hana. Um allar hinar, sem
voru honum óhagstæðar þegir
hann, svo og um gang málsins
í heild, þ.á.m. að þessi fund-
ur ákvað að ljúka ekki málinu
heldur kaus til þess sérstaka
menn.
Sveinn veit ofur vel að er-
indi hans til Reykjavíkur haust-
ið 1959 var það, að fá stuðning
„Reykj avíkurvaldsins" til að
knýja sig inn í efsta sæti fram-
boðslista flokksins á Austur-
landi eftir að mistekizt hafði að
fá á því samþykki eystra og
þeir, sem kjörnir höfðu verið
til að ráða málinu til lykta,
höfðu ákveðið aðra skipan. Köp-
uryrði Sveins um fulltrúa mið-
stjórnar koma úr hörðustu átt,
því að þeir reyndu að ná sam-
komulagi um Svein en tókst
ekki. Þegar það mistókst, lýsti
hann syðra berum orðum .yfir
fylgi sínu við Jónas Pétursson
í efsta sæti listans. Sárindi hans
duldust raunar ekki, en það vai
fyrst eftir að hann kom austur,
að hann umhverfðist. Framkoma
hans síðan sannar, að frábærri
búhyggju þarf ekki að fylgja
stjórnmálaþroski að sama skapi
Bardögum Sokiö
Robert S. McNamara, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, og
Maxwell Taylor, yfirmaður her-
foringjaráðs Bandaríkjanna, eru
nú komnir til Bandaríkjanna,
eftir nokkra dvöl í S-Vietnam.
Eftir því, sem bandaríska blað-
ið „The New York Times“ skýr-
ir frá s.l. mánudag, þá var er-
indi tvímenninganna þetta:
• Fá svar við því, hvaða
áhrif deilur stjórnar Diem við
Búddista hefðu á baráttuna við
skæruliða kommúnista.
• Benda á, hvaða stefna væri
líklegust til þess að stytta þessa
baráttu, tn jafnframt að gera
hana áhrifameiri.
Svörin eru á þessa leið: Sendi-
'mennirnir segja, að Bandaríkin
muni ekki þurfa að halda áfram
hernaðaraðstoð sinni við stjórn
Diem, yfir 1965. Þeir telja, að í
lok næsta árs, verði sigur unn-
inn yfir skæruliðum kommúnista
eða a.m.k., að þá verði aðstaða
hermanna stjórnar Diem það
sterk, að aðstoðar sé ekki þurfi.
• Við fyrri spurningunni,
sérstaklega, eru sendimennirnir
sagðir hafa gefið þetta svar: Af
staða stjórnar Diem 'gegn Búd-
istum er ekki sögð hafa haft til-
takanlega slæm áhrif á barátt-
una við kommúnista. Hins veg-
ar er tekið fram, að óbreytt
stefna ráðamanna í S-Vietnam
geti haft hættuleg- áhrif í fram-
tíðinni. Hvergi hefur enn kom-
ið fram beint svar við síðari
spurningunni. Hins vegar er
því lýst yfir, að Taylor og Max
well hafi flutt Kennedy, Banda-
ríkjaforseta, margvíslegar „leyni
legar upplýsingar, sem athugað-
ar verði nánar.“
Opinberir talsmenn vestra
segja yfirleitt, að niðurstaðan
sé sú, að svo framarlega, sem
stjórn Diem grípi ekki til alvar-
legri aðgerða gegn Búddamunk-
um, þá muni hernaðaraðstöð-
unni í S-Vietnam ekki stefnt 1
hættu. Miðað við núverandi
herstyrk kommúnista muni því
styrjöldini í Vietnam að mestu
lokið að ári — með sigri and-
kommúnista.