Morgunblaðið - 08.10.1963, Page 2

Morgunblaðið - 08.10.1963, Page 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 8. okt. 1963 Ársþing IATA í Róm Ræðir m.a fargjaldastríðið á N. Atlantshafi Ráku stóðið á ís yfir Ströngukvísl Hreindýr, margæsir og andategundir á borðúm í Nausti yfir veiðitímann Róm, 7. okt. (NTB) ÁRSÞING Alþjóðasamtaka flugfélaga, IATÁ, hófst í Róm í dag, og sitja það 250 fulltrúar frá 93 flugfélögum í 70 löndum. Stendur þingið yfir í fimm daga og verður þar rætt um ýms sam eiginleg vandamál, m.a. um fyr- irhugaða lækkun fargjalda á flugleiðunum yfir Norður Atl- antshaf. Fráfarandi forseti samtakanna J.F. Dempsey frá írlandi, flutti erindi við setningu þingsins, og sagði m.a. að fráleitt væri á þessu stigi að taka í notkun far- þegaþotur, sem færu hraðar en hljóðið. Fyrst yrði að gefa flug- félögunum tækifæri til að af- skrifa allan þann mikla kostn- að, sem stafaði af því að breyta yfir í þötur frá skrúfuvélum. Björg Bjarnadóttir frá Haga á Þingi á leið í göngur. Hún var önnur þeirra kvenna, sem gengu Grímstunguheiði. Nær öll vatnsföll voru lögð þykkum is og ráku gangna- menn stóð á ís yfir Ströngu- kvísl, sem er lengsta og vatns mesta upptakakvísl Vatns- dalsár. Segir Lárus að hann viti engin dæmi þess að stóð hafi áður verið rekið á ís yfir kvíslina á þessum árstíma. I fyrri göngum var skyggni slæmt að nýafstaðinni hríð. Af þeim ástæðum varð fleira fé eftir á heiðinni en venju- lega. Sagði Lárus að féð, sem þeir fundu nú, liti ágætlega út, og miklu betur en fé í Forstjóri ítalska flugfélagsins Alitalia var kjörinn forseti IATA fyrir næsta starfsár. I ávarpi sínu lagði hann áherzlu á að nauðsynlegt væri að finna leið- ir til að bæta þann mikla fjár- hagslega halla, sem flugfélögin hafa orðið fyrir á undanförnum árum. Minntist hann á sífelldar tilraunir ýmissa flugfélaga til að undirbjóða hvort anilað í far- gjöldum, en þetta væri brot á reglum IATA. Hvatti hann fé- lögin til samstöðu um reglur IATA þótt dregið hafi úr halla- rekstri félaganna á síðasta ári. Farþegafjölgunin nam á síð- asta ári 12,5%, en var árið 1961 9%. Fluttu flugfélögin á síðasta ári alls 123 milljón farþega, og er þetta mesta farþegaaukning frá því árið 1959. Frábær gestrisni VIÐ HEIMKOMU sína til Ler- wick í Englandi, úr för til íslands til að hreinsa tundur- duflasvæði í Eyjafirði og t Seyðisfirði, sagði Capt. Barry | Anderson í viðtali við frétta- mann Fishing News: « — Nú kom ég í fyrsta skiptií í land á íslandi síðan þorska-J stríðinu lauk, og ég var ekkij viss um hvaða móttökur ég« mundi fá. En allt slíkt er nú« fyllilega gleymt og mér mættitt frábær gestrisnL / ÁSI, Vatnsdal 7. okt. Gangnamenn af Grímstungu heiði komu til byggða um kl. 16 í dag, eftir að hafa leitað heiðina í annað sinn. Átti ég í dag tal við Lárus Björnsson i Grímstungu, foringja gangna manna, og sagðist honum svo frá: Mikill snjór var á heiðinni og þungt færi með hesta nema á stórum fönnum. Þær héldu hestum að mestu Ieyti. t Forsæludalskvíslum var minni snjór en vestur á heið- inni, og sæmileg jörð. Á vest- urheiðinni var knappur hagi, einkum framundir Stórasandi. heimahögum í Vatnsdal. — Krafsjörð hefur alltaf verið sæmileg á heiðinni, en í Vatnsdal mátti heita að féð krafsaði ekkert. Var snjórinn blautur fyrstu dagana, en þegar birti upp var frost á hverri nóttu og kom þá hörð skel á snjóinn. — Björn. Veitingahúsið Naust, sem oft hefur fitjað upp á ýmiskonar ný- breytni í mat svo sem að bjóða upp á íslenzkan þorramat og helga réttum ýmissa þjóða ákveð inn tíma, hefur nú að undan- förnu boðið gestum upp á ís- lenzka villibráð. Þetta hefur fengið mjög góðar undirtektir og fjöldi gesta komið til að smakka á réttunum, svo veitinga húsið hefur ekki fengið nóga veiði. Verður þessu haldið á- fram, þar til veiðitíma lýkur 15. október. Og hvers konar villibráð er hægt að bjóða á íslandi? Það er fýrst og fremst hreindýrakjöt, sem borið er fram í heilsteikt- um hryggjum, ofnsteykt eins og lambakjöt og í gullashi, sem lík- ar einna bezt, þar eð þá kemur svo vel fram villibráðarbragðið, sem á allri íslenzkri villibráð minnir á rjúpnabragð. Þá eru endur og gæsir. Steikta stokk- öndin þykir góð. Margæs, veið- ist einmitt um þfetta leyti, þegar hún er að koma frá Grænlandi á leið til Skotlands, og einnig veiðasf" toppendur og straum- endur. Þessir fuglar eru fram- reiddir í Nausti bæði steiktir og með sósu, eins og rjúpur, og einnig ofnsteiktir og glóðasteikt- ir. Nefnd SÞ faoðið New York og Saigon 7. okt. (NTB-AP), TILKYNNT var á Allsherjar- þingi SÞ í New York I dag að stjórnin í Suður-Vietnam hafi boðið samtökunum að senda nefnd til að kynnast af eigin raun afstöðu stjórnarinnar gagn- vart Búddatrúarmönnum. Til- kynnti fulltrúi Suður-Vietnam þetta boð stjórnar sinnar skömmu áður en Allsherjar- þingið hóf umræður um ákæru 16 rikja á hendur Vietnam- stjórninni um ofsóknir gegn Búddatrúarmönnum. Fulltrúi Suður-Vietnam, Buu Hoi, sagði á fundi með frétta- mönnum að ríkisstjórn hans hafi ákveðið að bjóða heim sér- stakri nefnd SÞ vegna þess hve einhliða fréttirnar væru, sem berast frá landinu um afskipti til S. Vietnnm stjórnarínnar og Búddatrúar- manna. Sl. laugardag vildi það til í Saigon, höfuðborg Suður-Viet- nam, að Búddamunkur á þrit- ugsaldri brenndi sjálfan sig til bana á götu úti í viðurvist fjölda áhorfenda. Komið hefur í ljós að munkur þessi skildi eftir síg nokkur bréf, og er eitt þeirra skrifað Diem forseta. Þar segir munkurinn m. a.: „Til yðar, herra forseti, • sem ávallt lof- syngið frelsi og lýðræðL sendi ég hin síðustu orð manns, sem geng- ur í dauðann til þess í það minnsta að geta sagt sannleik- ann. Við munum halda áfram baráttu okkar. Gleymið ekki ráð- um Páls páfa VI. um að ekki megi vanmeta réttindi íbúa Vietnam.“ 1 öðru bréfi segir munkurinn að hann hafi kosið að fremja sjálfsmorð til þess á þann hátt að mótmæla stöðugum fangels- unum, pyntingum og morðum á Búddatrúarmönnum og stúdent- um. Flateyrar settur Flateyri, 7. október. BARNA- og unglingaskólinn hér var settur’ í gær. Skólinn mun starfa með svipuðum hætti og undanfarið. Fastir kennarar eru 4, stundakennarar 3. Alls eru nú í skólanum rúmlega 100 nem- endur, eða um fimmti hver íbúi hér. Kristjáa Togarasölur ÞRÍR togarar seldu erlendis í gær. Kaldbakur seldi í Grims- by 149,7 lestir fyrir 8587 sterl- ingspund. Verulegur hluti aflans var upsi og smáupsi. Jón Þor- láksson seldi í Cuxhaven 88 lestir fyrir 76.910 mörk. Júpiter seldi í Hull 140,8 lestir fyrir 8809 sterlingspund. FuIItrúaráðsfundur verður í Valhöll í kvöld kl. 6. Dagskrá: 1. Kosning uppstillingarnefnd- ar. 2. Önnur mál. Fulltrúar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Heimdalur F.U.S. Tveir veiðihópar hafa aðalleg* selt veitingahúsinu veiði sína, auk þess sem það hefur keypt fugla og hreindýr af öðrum veiðimönnum, en eftirspurnin eftir réttunum verið svo mikil, að hráefni vantar. Tveir fyrirlestrar í Háskólanum Dr. Eyvind Fjeld Halvorsen, prófessor í norænu máli og bók- menntum við Oslóarháskóla, er hér staddur í boði heimspeki- deildar Háskóla íslands og flyt- ur tvo fyrirlestra í þessari viku sem hér segir: Miðvikudaginn 9. október: Den norske hoff-litteratur i middel- alderen. Föstudagur 11. okt.: Lærd og folkelig stil — er betegnelsene adekvate? Fyrirlestrarnir verða haldnir í I. kennslustofu Háskólans og hefjast kl. 5.30 e.h. Skúr stolið | í Laugar- nesi RANNSÓKNARLÖGREGL- ^UNNI í Reykjavík hefur ver . ið tilkynnt að á miðvikudags- morgun sl. hafi skúr verið stolið á Laugamýrarbletti 33 i í Laugarnesi. Börn, sem voru | þarna nærstödd, skýra frá þvi ( að um morguninn hafi menn komið á vörubíl og með krana óg kippt húsinu upp á bílinn ■ og farið með það. Skúrinn . stóð spölkorn frá húsinu og urðu menn þar því ekki varir við þjófnaðinn. ! Skúr þessi er pappaklædd- i ur og pappinn málaður hvít- \ ur. Er hann að stærð 1x1,60 m og um hálfur annar meter á hæð. i J Rannsóknarlögreglan biður þá, sem kynnu að geta gefið 7 upplýsingar um þennan þjófn að, um að gera aðvart.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.