Morgunblaðið - 08.10.1963, Side 13

Morgunblaðið - 08.10.1963, Side 13
Iriðjudagur 8. okt. 1963 MORGUNBLAÐID 13 v ____________________________________________________________________________________________________f| Hve gamall er Noregur? Á 150 ára afmæli norska stúdentafélagsins hélt skáldið. Arnulf Over- land aðalræðuna. Hún var ekki löng, en minnis verð og fræðandi: „Det gamle Norge med klippeborge . . .** — Ojæja. Hve gamall er Noregur, eiginlega? Háskólinn var stofnaður 1811, Stúdentafélagið 1813 og 1814 eignuðumst við stjórnar- skrána og stjórnmálafrelsið. Hundrað og fimmtíu ár eru liðin síðan þetta var. Á þess- um 150 árum varð Noregur til. Að vísu vitum við að Nor- egur og ísland áttu fyrir 1000 árum sameiginlega hámenn- ingu, og hjá okkur hérna blómgaðist hún svo fullkom- lega, að við gleymdum jafn- vel ritmáli okkar, og neydd- umst til að læra dönsku, með- an við vorum í sambandi við Danmörku — ef við vildum læra að lesa og skrifa. Við skulum ekki gleyma því, að norskir rithöfundar — ég nefni aðeins Holberg og Wessel — lögðu talsverðan skerf til hinna sameiginlegu bókmennta. En þeir áttu heima í Danmörku. Kaup- mannahöfn var miðstöð okkar í stjórnarefnum og menningu, og Norðmennirnir, sem dvöldu þar, töldu sig vitanlega Norð- menn, en þeir voru líka góðir danskir borgarar; annað úti- lokaði ekki hitt. Að samband- inu lauk, var hafnbanni Breta að kenna, sem rauf sambandið milli tvíburaríkjanna. Og þar byrjar saga Noregs. — Þangað til höfum vér ekki látið að okkur kveða sem menningarþj óð. En árið 1802 fæddist Niels Henrik Abel. Hann var kvaddur til háskól- ans í Berlín 26 ára gamall; en þá lá hann veikur og dó nokkr um vikum seinna — úr tær- ingu — þar dó snillingurinn. Hefði hann fengið að lifa þang að til hann varð virkilega full þroska, hefði nafn hans ef til vill orðið hið glæstasta í stærð fræðisögunni. Og svo komu þeir í röð, mennirnir sem skópu norska menning: árið 1807 Welhawen, 1808 Wergeland.' Þeir koma hver eftir annan: P. A. Munch 1810, P. Chr. Asbjörn- sen 1812, Jörgen Moe 1913. Og hyrningarsteinarnir undir húsi okkar: Henrik Ibsen, sem aldrei mun eignast sér efri mann, og Björnstjerne Björn- son, sem átti svo magnað per- ► sónulegt orku-útstreymi, að nærri stappar að maður geti sagt, að hann hafi skapað norsku manneskjuna í sinni mynd. Afsakið þessar smá öfgar. Honum tókst ekki að ljúka sköpunarverki sínu. Hálf fjórða milljón af Björnstjern- um mundi líklega verða of margt. Sophus Bugge gaf okkur aft ur gömlu söguna okkar. Ed- ward Grieg sótti samhljóma sína úr þjóðlögunum gömlu, og þessvegna heyrist norsk tónlist um allan heim. Við leiðum getum að því, hvað Rikard Nordraak hefði getað orðið. Hann dó aðeins 23 ára. En það var hann, sem benti Grieg á, hvað hægt væri að finna í norsku þjóðlögun- um. Við komum seint. Danir eignuðust fyrstu prentsmiðj- una 30 árum eftir Gutenberg, en við urðum að bíða 6Ö ár í viðbót þangað til fyrsti prent- arinn kom í Noregi. Útgáfu- starfsemi og leikhús er tiltölu lega nýtt hjá oss, — ekki nema rúmlega 100 ára. Lands mál Ivars Aaséns er um það bil á sama aldri; við megum ekki láta okkur sjást yfir það, hve miklu það hefur valdið. f gamla daga stóðu Háskól- inn og Stúdentafélagið hlið við hlið, aðeins Háskólastræt- ið var á milli. En síðasta mannsaldurinn hefur Stúd- entafélagið verið á hrakhól- um — og Háskólinn hefur ekki heldur vitað hvar^hann átti heima. Þetta stafar af þeim almenna þankagangi, að fermetrarnir í Miðbænum séu svo dýrir, að við höfum ekki efni á að eiga heima þar. Getur það verið heilnæmt andlegu lífi þjóðar, að vita af því að það sé húsnæðislaust? Mér finnst það blátt áfram vera siömm; en ég um það. Þá verð ég að skammast mín meðan ég stend hérna. Háskólinn og Stúdentafélag ið eru eitt. Háskólinn veitir okkur þá fræðslu sem við verð um að eiga, og Stúdentafélag- ið veitir okkur möguleika á að melta fræðsluna. Við verðum að lesa, en við verðum líka að pexa. Þá kemur það fram að við erum ósammála um margt, en það er gott. Værum við sammála um allt hugsanlegt mundi aldrei ný hugsun kom- ast inn í hausinn á okkur. Við rífumst, svo að fjaðra- fok verður kringum okkur, og þetta er nytsamlegur skóli. Hann er örfandi, og hann er skemmtilegur. Kosningarnar í Stúdentafé- laginu voru oft spegilmynd af stjórnmálakosningunum. Og þegar einn flokkur hafði sigr- ■MHMMWWMa að — hvort heldur var íhalds- samur eða róttækur — feng- um við að lesa í bglöðunum, eftir á, að nú hefði Stúdenta- félagið glatað því litla sem það átti eftir af virðingu sinni. Jæja. En hvað eigum við með virðinguna að gera? — Við eigum að berjast! Annars hefðum við aldrei eignast neina virðingu með því að sitja á rassinum og verá „stúdentareifir". Ef við hefð- um aldrei gert uppreisn eða Arnulf Överland hafið mótmæli, hefði enginn þurft að skipta sér af okkur; en þá hefðum við ekki held- ur haft nein áhrif á almenn- ingsálitið. Við höfum haldið því fram — og erum hreyknir af því — að ræðustóllinn okkar sé sá frjálsasti í landinu. Við viljum hafa leyfi til að leita að því, sem okkur sjálfum finnst rétt- ast. En börnunum vil ég segja, að það er óþarfi fyrir þau að skvetta foreldrum sín- um út, með þvottavatninu sínu. Það hefur verið sam- þykkt, með glymjandi meiri- hluta, að gömlu mennirnir séu fábjánar, og því skal ég fús- lega trúa. Mér dettur ekki í hug að mótmæla, það er engin þörf á því. Þið munuð öll reyna, að allir verða eldri þeg- ar árunum fjölgar. Ég man vel hve vænt mér þótti um að hafa lokið skóla- vist og lexíulestri, — um að fá að kjósa mér bækur í hönd sjálfur og fá að komast á lif- andi menningarsvið, milli vak andi æsku og fullþroska fólks —í þann hóp, sem tæki svo að segja öll mál, sem máli skipta, til umræðu. Stúdentafélagið hefur jafn- an átt rökræðendur — og meira að segja góða. Og ég þori að segja að allar þær hugsanir, sem í Evrópu urðu/' til, hafi ekki eingöngu komið til okkar gegnum blöðin, held- ur einnig gegnum Stúdenta- félagið. Nærri allar andlega virkar konur og menn hafa talað úr ræðustól okkar, og býsna margir þeirra fremstu í menningarlífi Evrópu hafa heimsótt okkur. Hér hafa allar skoðanir get- að komizt á framfæri, hafi þær verið fluttar í akadem- isku formi og skynsamlegu. Að vísu fellur okkur ekki að láta okkur leiðast, en þó höf- um við stundum sætt okkur við það. Stúdentafélagið hefur hald- ið okkur vakandi. Það er kjör- hlutverk þess. Gegni það því hlutvelú getum við kannske staðizt nýja dimmunótt, ef hún kæmi — ef við þá eigum menn á næturverðinum. 'Þá áttum við 1940. Ég á þar ekki við stjórn og stórþing. En við áttum gamla konunginn okkar, en ósveigj- anleg festa hans hélt þjóðinni við. Þáverandi krónprinshjón voru beztu stoðir hans. Við áttum okkar gamla stórþings- forseta C. J. Hambro, sem bjargaði stjórn og þingi út úr höfuðborginni — til Elve- rum og áfram. Við áttum líka liðsforingja aem vissu skyldu sína, og sem líklega hefðu get- að bjargað landinu, ef þeim hefði verið leyft það. Og loks áttum við mann, sem án nokkurrar emibættis- skyldu og án þess að gegna nokkurri trúnaðarstöðu hafði öðlazt áhrifavald, sem enginn einstaklingur hefur haft síðan á dögum Björnsons: — Johan Scharffenberg.- Haustmissirið 1940 var Jo- han Sannes formaður' Stúd- entafélagsins, og hann bauð Scharffenberg að tala á fundi, laugardaginn 21. september 1940. Þá var hætt að berjast 1 Noregi. Smáhópur fólks með ábyrgðartilfinningu var far- inn að ræða um, hvað hægt væri að gera. En eiginleg and- stöðuhreyfing hafði ekki mynd azt ennþá. Hún varð til í Norska stúdentaféJaginu 21. september og óx af tilfinn- ingastyrknum fáum dögum síð ar er Sharffenberg og Sannes voru handteknir. Þessu höfðu þeir búizt við, og þeir vissu að þetta var nauðsynlegt. Fyrirlestur frá Scharffenberg (aðallega sögu- legs efnis) hlaut vissulega að vekja umtal. En þegar í kjöl- farið fylgdi handtaka fyrir- lesarans og formannsins, hlaut þetta að vekja athygli um land allt. Við vitum, yfirleitt, ekki hvað rétt er; við eigum sam- vizku okkar, og hún vaknar við og við. En það er athyglis- vert hve rík= áhrif persónu- leikans geta orðið. Soharrfenberg hafði i meira en tvo mannsaldra tekið þátt í almennum umræðúm, bæði í blöðunum og Stúdentafélag- inu, ávallt með alvæpni sann anlegra staðreynda og ástríðu þess að vera rökfastur. Sið- fræðileg alvara og „renslig frasefrihet" bera stíl hans uppi. Það var ekki alltaf sem hann hlaut lófaklapp. Fyrrum daga var hann kunnastur sem bindindispostuli, og „stúd- entsreifur" var hann ekki. Púns skálarnar voru „stúd- entsreifar". Árið 1905 var hann lýðveldissinni, og það sem verra var — andstæðing- ur samkomulag^ (Norðmanna og Svía) í Karlstad. Allt hans líf hefur verið barátta — fyrir félagslegu og stjórnmálalegu réttlæti og sannleika sögunn- ar. Aldeir hliðraði hann sér hjá óþægindum eða þagði fyr- ir makinda sakir, aldrei tók hann á móti opinberum við- urkenningarvotti eða nokkru sjálfum sér til hagnaðar. En hér stend ég og er að tala um dr. Scharffenberg? Ekki er það þó hann, sem á 150 ára afmæli núna. Ég er að tala um akadem- iska andann, í þeirri mynd sem ég hef lært að dá hann. En í mínum hug er andinn ekki metafysiskt hugtak, heldur mannlegur eiginleiki. Þessvegna hefur mér fundizt nauðsynlegt að nefna nafn — til) þess að losna við að tala um loftkennd almannagildi. Ég skal ekki endurtaka nafnið oftar. En ungum mönn- um væri holt að eiga sér ein- hverja fyrirmynd. Fylgi stúd- entar slíkri fyrirmynd, þá verður það ekki til þess að efla veraldlegt brautargengi þeirra (fjárhagslega), en það mun koma allri þjóð vorri að gagni. Og það gefur ykkur hugarhvíld, sem gerir ykkur kleift að kikna ekki undir því mótlæti og áhyggjum, sem ekki er hægt að hlífa neinum við. Þessvegna er ósk mín, Stúdentafélaginu til handa sú, að það haldi akademiska and- anum lifandi meðal vor. ★ (Dr. Johan Scharffenberg, sem Överland verður tíðrætt um í lok ræðu sinnar, fæddist 1869, varð læknir og lagði sér- staklega stund á sálræna hlið læknavísindanna. Hann gaf sig snemma að þjóðmálum, og var svo róttækur í skoðunum, að hann þoldi ekki við innan vébanda neins stjórnmála- flokks. Til skamms tíma hefur hann ferðast um landið og haldið fyrirlestra um málefni, sem honum lágu sérstaklega á hjarta. í „Studentersamfund- et“ flutti hann í sex áratugi framsöguræður, 'sem jafnan vöktu sögulegar umræður. Hann barðist gegn endurreisn konungsdæmis í Noregi 1905, vildi lýðveldi, en sætti sig síð- ar vel við orðinn hlut. Annars er hann frægastur fyrir af- skipti sín af bættum kjörum og aðbúð fátækra. — í stúd- entafélaginu gengu ræður hans oft út á það, að eggja fundarmenn til andmæla. — „Hann hafði mest gaman af að tala þegar hann vissi, að allir áheyrendur voru á móti honr um,“ segir próf. Jac. S. Worm Múller). — Kristinfræði Framh. ai bís. 10 kristinfræðin sé samhæfð ferm- ingarundirbúningnum, sé liður í honum eða auki við hann. Á undanförnum árum hafa prest- ernir hér í Reykjavík a.m.k., átt erfitt með að koma fermingar- undirbúningnum við vegna skóla anna barnanna. Við svo búið má ekki lengur standa. Fræðsluyfir- völdin hljóta að meta svo mikils gildi kristindómsins fyrir æsk- una, og óskir fjölda foreldra í því sambandi, að þau taki málið til rækilegrar athugunar í sam- vinnu við prestana. Ekki trúi ég öðru en finna megi viðunandi lausn bæði fyrir kirkju og skóla. En kirkjan getur einnig á ann- *n hátt komið inn í kristin- fræðikennslu skólanna. Hin lif- endi, stárfandi kirkja er víðar ea í safnaðarstrfi prestanna, sem óneitanlega hefur verið fremur einhliða hérlendis til þessa. Það er fullkomlega eðlilegt og æski- legt, að starfsmenn kristilegs sjálfboðastarfs og kristniboðs inn an vorrar lúthersku kirkju fái aðgang að skólunum í enn ríkara mæli en hingað til. Kristileg skólasamtök eru starfandi hér í Reykjavík og ættu þau samtök að vera auðfúsugestir í hverjum frmhaldsskóla. Persónulega tel ég, að ekkert sé betur til þess fallið að veita nemendum þekk- ingu á lifandi kristindómi, en frásögur og kynning á nútíma kristnibóði. Þar er fróðlegt og spennandi efni fyrir hendi. Þar kemur kraftur kristinnar trúar glögglega í ljós, og áhrif hins kristna boðskapar. Og þar fá nemendurnir að kynnast kristi- legu hugarfari sem ber ávöxt í blómlegu líknar- og uppeldis- starfi, Og svo að endingu þetta: Mikið er rætt um það, að kirkjan sé að missa tökin í þjóðfélaginu, og að áhrif kristindómsins séu dvínandi. Rætt er um leiðir, sem bætt geti úr þessu. Sumir vilja finna nýtt og betra form fyrir guðsþjónustur kirkjunnar og gefa stofnuninni um leið glæsi- legri svip. Annað er þþ mikil- vægara. Ævistarf þess þjóns ís- lenzku kirkjunnar sem einna lengst hefur náð á þqssari öld, sr. Friðriks Friðrikssonar, er gott dæmi þess. Vér verðum að leggja meiri rækt við sáðmanns- starfið. Sérhver ný kynslóð verð- ur að fá haldgóða þekkingu á boðskap kristindómsins, til þess að hver einstaklingur geti síðan metið gildi hans fyrir sig per- sónulega. Verði þetta ekki van- rækt, þurfum við engu að kvíða um framtíð íslenzku þjóðarinnar. Vér munum þá einnig hafa góða samvizku gagnvart þeim sem eft- ir vorn dag eiga að erfa landið. — Flatey Framh. af bls. 8 þjóðhagsmálum, að heppilegast sé fyrir okkar fámennu þjóð, að byggðin færist saman í landinu, en útkjálkar allir fari í eyði. Það mætti ert.v. færa vísindaleg rök að því, að í augnablikinu væri okkur sæmilega borgið þó Vest- fjarðakjálkinn færi allur í eyði, einnig Austfirðirnir og afskekkt- ari héruð norðan- og sunnan- larids. Þróunin virðist vissulega stefna ört í þá átt. En hvernig liti það út í framtíðinni? Þjóð- inni fjölgar óðum, en auðlindir Faxaflóa og nágrennis aukast ekki að sama skapi. Og eins og stefnan er nú í sam- skiptum þjóða, til nánara sam- starfs og sameiningar við lausn aðkallandi vandamála, þá er hætt við að hungraðar þjóðir í ofsetnum löndum litu það ekki lengi hýru auga, að við létum rándýrum einum eftir mikinn hluta okkar matvælaauðuga lands, vegna þess að þjóðina skorti manndóm til þess að nytja það sem skyldi. Ætli það gæti þá ekki hafizt nýtt landnám á Islandi? Að einhver erlendur fursti sigldi í slóð Þrándar mjó- beins til Breiðafjarðareyja, og aðrir spekúlantar til annara ó- byggðra staða og hæfu ábata- saman atvinnurekstur á hinum yfirgefnu slóðum, meðan hinir innfæddu þjöppuðu sér saman á suðvesturhorni landsins og lifðu þar við meira eða minna ótrygga afkomu. Jakob G. Pétursson,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.