Morgunblaðið - 08.10.1963, Qupperneq 23
Þriðjudagur 8. okt. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Glfurlegi tjón
Framh. aí bls. 1
inum mældist úrkoman þar 28
sentímetrar á 30 tímum, og hef-
ur aldrei verið jafn mikil á þess-
ari öld.
Mikill vöxtur hljóp í ár á
Jamaica og sópaði vantsflaumur-
inn víða burtu húsum, brúm og
járnbrautum. Víða olli úrkoman
einnig miklu uppskerutjóni og
sumsstaðar skriðuföllum. Gripið
hefur verið til víðtækra björgun-
araðgerða.
Eyjan Tobago varð fyrst fyrir
barðinu á „Floru“, og leikur nú
grunur um að taugaveiki hafi
brotizt þar út, að sögn Erics
Williams forsætisráðherra To-
bago og Trinidad. Hefur forsætis
ráðherrann gert ráðstafanir til að
koma upp einangrunardeild við
sjúkrahúsið í Scarborough, en
þegar hafa 14 þúsund manns ver-
ið bólusettir. Williams forsætis-
ráðherra skýrði frá þessu í út-
varpsávarpi, sem hann flutti í
dag, og sagði hann þá jafnframt
að fyrir augum manna á Tobago
blasti nærri ótrúlega skelfileg
mynd eyðileggingar og dauða, en
jafnframt hengi yfir íbúunum sú
ógnun, sem er til vill væri verst
allra, þ. e. hættan á taugaveiki-
faraldri.
Aðstoðar framkvæmdastjóri
hjálparsamtakanna CARE í
Bandaríkjunum, Fred Devine,
skýrði frá því í New York i
dag að samkvæmt nýjustu upp
lýsingum frá Haiti væri óttazt
að alls hafi fjögur þúsund
manns farizt af völdum felli-
bylsins „Floru“. Hefur Devine
upplýsingar sínar frá Philipp
eaux félagsmálaráðherra
Haiti. Sagði ráðherrann að
fellibylurinn hafi eyðilagt um
2/5 alls ræktaðs lands á Haiti
og að milli 50 og 100 þúsund
manns væru heimilislausir.
— Kennedy
Framh. af bis. 1
Samkvæmt samningi þessum
eru allar tilraunir með kjarn-
orkuvopn bannaðar í geimnum,
andrúmsloftinu og neðansjávar,1
en hinsvegar eru neðanjarðartil-
raunir ekki bannaðar. Samning-
urinn var undirritaður með fyrir
vara í Moskvu hinn 5. ágúst s.l.,
og voru það fulltrúar Bandaríkj-
anna, Bretlands og S.é/étríkj-
anna, sem það gerðu. Siðan hafa
rúmlega 100 ríki bætzt við sem
aðilar að samningnum.
Viðstaddir undirskriftina, sem
fram fór í Hvíta húsinu, voru 16
fulltrúar ríkisstjórnar og þings
Bandaríkjanna. Samningurinn er
í þremur eintökum, og verða þau
geymd í washington, London og
Moskvu. Gengur samningurinn í
gildi á fimmtudag, en þá er áætl-
að að eintökin verði komin hvert
á sinn stað.
Við undirskriftina notaði Ken-
nedy fyrst 16 sjálfblekunga, og
útbýtti þeim síðan milli við-
staddra til minningar um merk-
an áfanga. En þegar allir penn-
arnir voru gengnir út, greip for-
setínn þann 17, bætti nokkrum
strikum við undirskriftina, og
fagði: „Ég 'verð sjálfur að fá
einn“. Stakk hann svo pennan-
um í brjóstvasann.
— Einn brauzt inn
Þjóðleikhúsið frumsýnir sjónleikinn „Flónið“ annað kvöld.
Myndin hér að ofan var tekin á æfingu. Sýnir hún þá Rúrik
Haraldsson og Baldvin Halldórsson í hlutverkuin sínum.
Leikstjóri er Ævar Kvaran.
Erlendoi frétiir
• MACMILLAN DÁIR
ADENAUER
Bonn, 7. okt. (NTB): —
Harold Macmillan, forsætis-
ráðherra Breta, segir í viðtali,
sem birtist í vestur-þýzka
vikublaðinu „Der Spiegel", að
Konrad Adenauer fráfarandi
kanzlari sé einn af mestu
mönnum nútímans. Segir
hann að endurreisn Þýzka-
lands, endursköpun lýðræðis
í landinu og efnahagsviðreisn
in þar hafi allt átt sér stað
undir forustu Adenauers.
• BIFREIÐ HRAPAR —
21 FERST
Manila, 7. okt. (AP): —
Hemlar langferðabifreiðar bil
uðu í dag með þeim afleiðing
um að bifreiðin steyptist út
af þjóðveginum, skammt frá
borginni Cebu á Filipseyjum
, og ofan í 65 metra djúpt gil
21 maður fórst en um 30 særð
ust.
Nýr bátur sjósett-
ur í Eyjum
eVsnnaat
Vestmannaeyjum, 6. okt. — Sjó
settur var hér nýr bátur á
sunnudagsmorgun hjá Skipavið-
gerðum h.f. Heitir bátur þessi
Gullberg NS 11 og er áætluð
stærð hans um 160 smálestir.
Báturinn er búinn 625 ha Krom-
haut vél. Eigendur þessa nýja
báts eru Ólafur Ólafsson, útgerð
armaður á Seyðisfirði og Jón
Pálsson, skipstjóri.
Gert er ráð fyrir að báturinn
verði fullbúinn um miðjan des-
ember. Þetta er þriðji bátur-
inn, sem Skipaviðgerðir h.f.
smíða og sá langstærsti.
— Bj. Guðm.
í stuttu muli
• HÆKKERUP í BRUSSEU
Brússel, 7. okt. (NTB):
Per Hækkerup, utanríkisráð-
herra Danmerkur, kom i morg
un flugleiðis til Brússel frá
New York. Verður hann for-
maður dönsku nefndarinnar,
sem tekur á morgun upp að
nýju viðræður við stjórn Efna
hagsbandalagsins. Viðræður
þessar hafa legið niðri frá því
í nóvember í fyrra.
Talsvert um
innbrot og hnupl
ALLMARGIR þjófnaðir voru
framdir í Reykjavík um helgina,
og var í sumum tilvikum stolið
talsverðum verðmætum. Mestu
var stolið úr Kaffivagninum á
Grandagarði, en þaðan hurfu 10
til 12 þús. kr. virði af ýmsum vör
um.
Innbrot þetta var framið að-
fararnótt sunnudags. Braut þjóf
urinn rúðu og komst þannig inn.
Þar stal hann tóbaki, sígarettum,
vindlum, sælgæti, matvörú og
litlu útvarpstæki, en samanlagt
verðmæti þessa er talið yfir 10
þúsund krónur.
Þessa sömu nótt var stolið fatn
aði og útvarpstæki úr húsi einu
í bænum, og útvarpi úr bifreið,
sem stóð við Lokastíg. Á föstu
dagskvöldið var nær fullri flösku
af Genever og 3.700 krónum stol
ið úr mannlausri íbúð í Hlíðun
um. Telja húsráðendur sig hafa
læst er þeir fóru út um kvöldið,
og er líklegt talið að þjófurinn
hafi komizt inn um ókræktan
glugga.
Akranesi, 7. október: —
Trillubátar 5—6 reru héðan á
laugardaginn. Afli var 700—1200
kg á bát. Farsæll fiskaði á skötu
lóðina 2 stofnlúður, girnilegar á
diskinn og gómsætar að snæða.
Hvor þeirra vóg 70—80 pund.
— Oddur.
— Hugsjónaágrein-
ingur
Framh. af bls. I
semi þeirra flokksbrota, sem
snúast gegn eigin kommúnista-
flokki og flokknum í Sovétríkj-
unum. Þessar aðgerðir geta ein-
ungis verið skaðlegar alþjóða
einingu flokksins."
Pravda og vikuritið Komm-
unist saka Kínverja um að
rjúfa einingu kommúnísta og
koma óorði á þá á alþjóða vett-
vangL Einnig þar er vikið að
stuðningi Kínverja við klofn-
ingsöfl innan kommúnistaflokk-
anna. „Þetta jafngildir beinni
andstöðu við alþjóðaeiningu
kommúnista og samstöðu með
fjandmönnum kommúnismans,"
segir í greininni.
Samskonar yfirlýsingar hafa
borizt frá flokksdeildum margra
landa.
— Stálu
Framh. af bls. 24
innbroti í apótekið í Vestmaníia
eyjum í sumar, en þá var m.a.
stolið spritti og pillum, sem
þjófarnir neyttu sjálfir ásamt
fleirum. Einnig upplýstist um á-
fengissölu annarra manna.
Er annar maðurinn í gæzlu-
varðhaldi en hinum hefur ver-
ið sleppt. Á sunnudag afhenti
lögreglan bæjarfógetaembætt-
inu málið og heldur rannsókn á-
fram þar.
Sendisveinar
óskast hálfan eða allan daginn.
Morgunblaðið vantar nú þegar duglega krakka, unglinga eða
eldra fólk til blaðadreifingar víðs vegar í Reykjavík.
í þessi hverfi í Austurbænum:
GRETTISGATA lœgri húsnúmer — HVERFISGATA
innanverð — LAUFÁSVEG lœgri húsnúmerin
LAUGAVEGINN neðst
ÞINGHOLTSSTRÆTI - BÓLSTAÐAHLÍÐ og ÚTHLÍÐ
Ennfremur í þessi hverfi:
KLEPPSVEGUR - KLEIFARVEG - LAUGARÁSVEG
FÁLKAGÖTU
Framh. af bls. 3
Hvolfdi stolnum btl
Laust fyrir hádegi á laugardag
sta[ 14 ára drengur, sem var
undir áhrifum áfengis bíl í
Hafnarfirði. Tók hann bílinn
framan við Fiskiðjuverið, þar
sem eigandinn hafði hlaupið frá
honum, ók bílnum út fyrir bæ-
inn og hvolfdi honum skammt
frá Garðshorni, þar sem hann
hafði lent í lausamöl. Lögreglan
fann drenginn skömmu seinna á
götu í Hafnarfirði. Hafði hann
drukkið áfengan bjór um borð í
skipi í höfninni.
Bíllinn var mikið skemmdur,
svo sem Hafnfirðingar máttu
glöggt sjá á laugardaginn, er
eigandinn ók honum illa löskuð-
um um götur bæjarins, þar til
lögreglan stöðvaði hann.
Steinn
braut framrúðuna
UM SJÖLEYTIÐ í gærkvöldi
var maður einn á leið austur
fyrir Fjall á Moskvitsbíl sínum.
Er hann var kominn kippkorn
upp fyrir Lögberg, mætti hann
ljósleitum fólksbíi, og hrökk
steinn frá bíl þessum og skall í
framrúðu Moskvitsins, sem möi-
brotnaði. Sneri ökumaðurinn við
og reyndi að elta bílinn, en tap-
aði af honum. Eru það vinsam-
leg tilmæli til ökumanns ljós-
leita bílsins, að hann gefi sig
fram við umferðardeild ransókn-
arlögreglunnar. — Moskvits-
bíllinn er blár og drapplitur.
KLEPPSVEGUR 8 til 38
Morgunblaðið vantar duglegan ungling eða krakka til að bera
Morgunblaðið til kaupenda milli Kleppsvegs 8 og 38.
Gjörið svo vel að tala við afgrciðsluna eða skrifstofuna.
KLEPPSVEGUR 40 til 60
Morgunblaðið vantar duglegan krakka eða ungling til að bera
Morgunblaðið til kaupenda milli Kleppsvegs 40 til 60.
Gjörið svo vel að tala við afgreiðsluna eða skrifstofuna.
MORGUNBLAÐIÐ sími 22480