Morgunblaðið - 08.10.1963, Qupperneq 24
218. tbl. — Þriðjudagur 8. október 1963
SGÖGK
STERKog
STÍLHREIIV
Elzta hús á Flateyri,
Torfahúsiö, brunnið
Tveir menn hætt komnir í eldinum
Flateyri, 7. október.
KL. -18.30 í gærkvöldi
var slökkviliðið á Flateyri
kvatt að svonefndu Torfa-
húsi við Hafnarstræti,
framarlega á Flateyra-
tanga. Er húsið mjög illa
farið af eldinum, sennilega
ónýtt.
Fjórir menn voru í hús-
inu, er eldurinn kom vfjíþ.
Tveimur tókst von bráðar
að komast út, en tveimur
varð bjargað með erfiðs-
munum. Við þá björgun
slasaðist einn slökkviliðs-
mannanna, þó ekki alvar-
lega.
Eldurinn var um tíma
mjög magnaður, og tók um
3 tíma að ráða niðurlög-
um hans. Ekki voru önn-
ur mannvirki í hættu, ut-
an benzíntankur, sem þó
tókst að verja. — Torfahús
var elzfa hús á Flateyri,
byggt um 1820.
Eldurinn kom upp í suð-
urhorni hússins, á efri hæð,
og magnaðist allfljótt. Eins
og fyrr" segir, voru 4 menn í
húsinu, er-hans varð vart.
Tveimur tókst að komast út
án aðstoðar, en tveimur varð
slökkviliðið að bjarga, og var
þá mikill eldur og reykur
kominn í húsið. Brjóta varð
glugga til að ná öðrum mann
anna út, og við það skarst
einn slökkviliðsmaðurinn illa
á ökla. Varð að flytja hann
í sjúkrahús staðarins, þar sem
hann dvelst nú. Ekki er hann
hættulega særður, en fullvíst
er þó talið, að hann muni
verða alllangan tínia að ná
sér.
Torfahús er byggt 1821, og
er elzta hús á Flateyri. Var
það reist á sínum tíma af
Svensen, kaupmanni. Húsið
hefur nú löngu látið af upp-
runalegri m.vnd sinni, þar
sem byggt hefur verið við
það, og ofan á það. Aðeins
miðhlutinn niðri hélt upphaf-
legri mynd sinni.
Húsið er eign Fiskiðjunnar
á Flateyri, og í norðurenda
voru skrifstofur fyrirtækisins
til húsa. í suðurehda voru
húsakynni nokkurra manna.
Eldsupptök eru ókunn.
— Kristján
Stálu áfengissendingu
úr skipaafgreiðslu
# /
Þjófarnir rufu þakið á geymsluskála
Aðfaranótt sunnudag var rif-
ið gat á þakið á afgreiðslu Rík-
isskips í Vestmannaeyjum, til'að
komast að áfenglssendingum, og
stolið þaðan kassa af Vodka og
sígarettulengjum, en í Vest-
mannaeyjum er engin áfengisút-
sala og félög og einstaklingar fá
áfengissendingar með skipum og
flugvélum. Lögreglan í Vest-
mannaeyjum hafði upp á tveim-
ur mönnum, sem hafa játað á
sig innbrotið. Jafnframt hafa
komizt upp fleiri innbrot og ó-
lögleg áfengissala.
Mennirnir tveir höfðu setið
að drykkju á laugardag, en ann-
ar þeira mun hafa verið búinn
að undirbúa eitthvað áður inn-
brot í afgreiðsiuna. Rifu þeir
upp tvær bárujárnsplötur á þak-
inu, og söguðu klæðninguna und
ir í sundur og skriðu inn um op-
ið. Þá brutust þeir inn í geymsl-
una í afgreiðslunni og stálu 12
flöskum af Vodka. Þetta munu
þó vera vandlátir vínmenn, því
þeir hafa fyrst opnað kassa með
brennivínsflöskum, en litu ekki
við innihaldinu.
Mennirnir, sem eru heima-
menn í Eyjum, brutust síðan
út úr húsinu um aðaldyrnar, þar
eð erfitt var útgöngu upp um
þakið. Varð enginn var við ferð-
ir þeirra um nóttina. Drukku
þeir nokkuð af víninu og seldu
eitthvert magn af þvL
Lögreglan í Vestmannaeyjum
hafði upp á þjófunum á sunnu-
daginn og handtók þá. Fannst
þá um helmingur áfengisins hjá
beim. >
Við yfirheyslu kom í Ijós að
annar þeirra hafði átt þátt í
Framh. á bls. 23
Fernt slasast í
hörðum árekstri
LAUST eftir kl. hálf fjögur í
gær varð mjög haröur árekstur
milli sendibíls og lítils fólksbíls
á mótum Barónsstígs og Eiríks-
götu meö þeim afleiðingum aö
tvær konur, og tvö börn í fólks-
bílnum slösuðust. Var fólkið
flutt í slysavarðstofuna, en
reyndist ekki alvarlega slasað.
Nánari atvik voru þau að
sendibíllinn kom vestan Eiríks-
götuna en fólksbíllinn, sem er af
Daf-gerð, kom sunnan Baróns-
stíg. Segja sjónarvottar að bóð-
um bílunum hafi verið ekið við-
stöðulaust út á gatnamótin, þar
sem þeir skullu saman, án þess
að tilraun yrði gerð til þess að
hemla, að því er séð varð. ■
Við áreksturinn snerust báðir
bílarnir og skullu með framend-
ann á steinvegg suðaustan gatna-
mótanna, og stórskemmdust.
í Daf-bíinum voru vtvær syst-
ur, Ingibjörg Jónasdóttir, Birki-
mel 10A og Guðný Jónasdóttir,
Reynimel 28, auk tveggja barna
Ingilbjargar, Önnu Þóru Björns-
dóttur, 1 árs og Jónasar Björns-
sonar, 5 ára. Voru þau öll flutt
í slysavarðstofuna, en ekki
munu meiðslin hafa reynzt alvar
leg.
Umferðardeild rannsóknarlög-
5600 -manns sáu úrslitaleik
Bikakeppni KSÍ milli KR og
Akraness á sunnudaginn. KR
sigraði meö 4 mörkum gegn
1 og hefur ekkert annaö félag
enn unnið bikarinn, sem nú
ver keppt um i 4. sinn. — Sjá
íþróttasíðu á bl.s 22.
— Ljósm.: Sveinn Þorm.
reglunnar tjáði Mbl. í gær að á
þessum gatnamótum hafi oft orð
ið harðir árekstrar. Nú væri hina
vegar búið að koma upp merkj-
um um stöðvunarskyldu, þannig
að þeir bílar, sem um Baróns.
stíg aka, eiga forgangsrétt. Ekkl
hafði umferðardeildin hugmynd
um þessi nýju merki fyrr en á
slysstað kom í dag, og telur að
uppsetning þeirra hafi ekki ver-
ið auglýst sem skyldi.
Suðvesturlandssíldin
reykt og soðin niður
Nýtt fyrirtæki reisir verksmiðju í Hafnarfirði
NÝLEGA var stofnaö fyrirtækiö
Norðurstjaman hf. í þeim til-
gangi að reisa verksmiðju til
framleiðslu á niðursoðinni
reyktri Suöurlandssíld, en Suður-
landssíld, en Suöurlandssíldin
mun einkum vera hentug til að
sjóðast niður reykt, þar eð hún
er ekki eins stór o.g feit og
Norðurlandssíldin. Á verksmiðj-
an að vera í Hafnarfirði, en
norskt fyrirtæki hefur tekið að
Glæsilegt bílhap pdrætti
S jálf stæðisf lokksins
Vinningur Mercedes Benz fólksbifreið
320 þús. kr. virði — Dregið eftir mánuð
í DAG hefst sala á miðum í
glæsilegu skyndihappdrætti,
sem Sjálfstæðisflokkurinn
efnir til. Er vinningurinn
Mercedes Benz fólksbifreið,
árgerð 1964, 320 þús. krónur
að verðmæti. Um þennan
glæsilega vinning verður
dregið 8. nóvember nk. Er
því skammur tími til stefnu,
og er skorað a fólk að tryggja
sér miða strax. Verð miðans
er 100 kr.
Sala happdrættismiðanna hefst
eins og fyrr greinir í dag. Eru
stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks
ins sérstaklega hvattir til þess að
taka höndum saman um sölu
happdrættismiðanna. Með sam-
stiiitu átaki verða miðarnir allir
seldir svo sem jafnan áður, og er
þess einnig vænzt að allir þeir,
sem fá miða senda, geri skil hið
fyrsta, og dragi það ekki til síð-
asta dags. I Reykjavík fást mið-
arnir í skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins við Thorvaldsenstræti
og einnig verða miðar seldir úr
vinningsbifreiðinni.
Talið hefur verið nauðsynlegt
að efna til skyndihappdrættis
þessa til þess að treysta fjárhag
Sjálfstæðisflokksins og undirbúa
þá fjölþættu flokksstarfsemi, sem
framundan er. Er því treyst á
samhug og samhjálp þeirra, sem
til er leitað og ætíð hafa sýnt
fullan skilning á nauðsyn þess
að styrkja Sjálfstæðisflokkinn í
hvívetna, — skipulag, starfs-
hætti og haráttuaðstöðu. Með
samstilltum huga sækist leiðin
að settu marki: — Betra og traust
ara þjóðfélagL
sér að selja framleiðsluna er-
lendis og er hún einkum ætluð á
Bandaríkjamarkað.
Hluthafar í fyrirtækinu eru
Tryggvi Ólafsson, forstjóri Lýsia
hf., Pétur Pétursson, framkvstj,
Lýsis, Ólafur O. Johnson, forstj.
O. Johnson & Kaaber, Ólafur
Finsen, forstj. Vátryggingarfé.
lagsins hf., Árni Kristjánsson,
forstj. Dósaverksmiðjunnar hf.
og frú Kristine Eide Kristjáns-
son, meðstjórnandi Dósaverk.
smiðjunnar hf.
Mbl. leitaði í gær upplýsinga
um hið nýstofnaða félag hjá
Árna Kristjánssyni. Hann sagði
að nýlega væri búið að fá lóð
undir verksmiðjuhúsið við höfn-
ina í Hafnarfirði, við hliðina á
frystihúsi Bæjarútgerðarinnar. —
Yrði þar reyst 2 þús. ferm. bygg.
ing, að mestu á einni hæð og
væri undirbúningur hafinn. Væri
keppt að því að byggingum yrði
lokið og verksmiðjan tilbúiu
fyrir haustvertíð 1964. Fyrirtæk.
ið Chr. Bjelland A/S í Stavanger
hefði samþykkt að senda fag-
menn til að kenna öll handbrögð
um framleiðsluna og vera ráð-
gefendur um vélauppsetningu,
og síðan að selja alla framleiðsl
una erlendis.
Slík reykt niðursoðin síld nefn.
ist á ensku Kippered herring og
þykir víða góð. Norðmenn selja
mikið af henni til Bandaríkjanna
og er ætlunin að þangað fari ís«
lenzka framleiðslan að mestu
einnig. Suðvesturlandssíldin hér
hefur sem kunnugt er verið fryst
og söltuð, en ekki fyrr soðin nið-
ur reykt