Morgunblaðið - 15.11.1963, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
NOrðURLJóS :
Veit duftsins son nokkra dýrðlegri sýn
en drottnanna básai í rafurloga?
Sjá grundu og vog undir gullhvelfdum boga! —
Hver getur nú unað við spil og vín?
Sjálf moldin er hrein eins og mær við lín;
mókar í naustsins visnu rósum.
Hvert sandkom í loftsins litum skín
og iækirnir kyssast í silfurósum.
Við útheimsins skaut er allt eldur og skraut
af iðandi nrrðurljósum.
Frá sjöunda himni að ránar rönd
stíga röðiarnir dgns fyrir opnum tjöldum,
en ljóshafsins öldur, með fjúkandi földum,
falla og ólga við skuggaströnd.
>að er eins ög leikið sé huldri hönd
hringspil með glitrandi sprotum og baugum
Nú mænir alit dauðlegt á lífsins lönd
frá lokuðum brautum, frá myrkum haugum,
og hrímklettar stare við hljóðan mar
til himins, með kristallsaugum.
Nú finnst mér það allt svo lítið og lágt,
sem lifað er fyrir og barizt er mótL
Þó kasti þeir grjóvi og hati og hóti,
við hverja smásál ég er í sátt.
Því bláloftíð hvelfist svo bjart og hátt.
Nú brosir hver stjarna, þótt vonirnar svíki,
og bugurinn lyftist í æðri átt,
nú andar guðs kraftur í duftsins líki.
Vér skynjum vorn þrótt, vér þekkjum í nótt
vorn þegnréti 1 Ijóssins ríkL —
Hve voldugt og djúpt er ei himinsins haf
og hásigldar snekkjur, sem leiðina þreyta.
Að höfninni leita þær, hvort sem þær beita
í horfið — eða þær beygja af.
En aldrei sá neínn þann, sem augað gaf,
— og uppsprettur Ijóssins ei fundar né skýrðar.
Með beygðum knjám og með bænastaf
menr. bíða við musteri allrar dýrðar.
En autt er allt sviðið og harðlæst hvert hlið
og hljóður sa andi, sem býr þar.
Einar Benediktsson.
Ákeyrður vörubíll,
Chevrolet 1955, á nýjum
Michelin dekkjum er til
sölu og sýnis að Luindi í
Kópavogskaupstað. Uppl. í
síma 41649.
Bílamálun - Gljábrennsla
Fljót afgreiðsla — Vönduð
vinna. Merkúr hf., Hverfis-
götu 103. — Sími 11240.
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dún- og fið-
urheld ver. Dún- og gæsa-
dúnsængur og koddar fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3. — Sími 18740.
(áður Kirkjuteig 9.).
Til sölu
er 6 herb. fbúð í Smáíbúða-
hverfinu. Félagsmenn hafa
forkaupsrétt lögum sam-
kvæmt.
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur.
Leikföng
úr tré, bílar, dúkkur og
hjólbörur, fást að Arnar-
hrauni 23, Hafnarfirði. Enn
fremur gert við gömul leik
föng úr tré. Arnarhrauni 23
Símí 50902.
Röskur unglingspiltur
óskast í sveit strax á Norð-
urlandi. Nánari uppl. að
Njálsgötu 30 fyrir 17. þ. m.
Ottó Ryel
hljóðfærasmiður.
Sími 19354.
Málverk
Til sölu eru nokkur mál-
verk, meðal annars eftir
Kjax-val. Tilboð sendist afgr
Mbl., merkt: „Málverk —
3527“.
Atvinna óskast
Vantar heimavinnu. Hef
gott vinnupláss. Lagtækur.
Ákvæðisvinna. Tilb. sendist
afgr. Mbl. fyrir sunnud.,
merkt: „Heimavinna —
5691“. ✓
Reykjavík — Kópavogur
Hafnarfjörður — Keflavik.
2ja—3ja herb. íbúð óskast.
Sími 40888.
Herbergi
Stúlku utan af laodi vantar
herbergi sem fyrst. Uppl. í
síma 16550.
Kápur til sölu
með skinnum og skinn-
lausar á hagstæðu verði.
Kápusaumastofan Diana
Sími 18481. — Miðtúni 78.
Ung hjón
með eitt bam óska eftir að
taka á leigu 2—3 herb.
íbúð. Virtsamlegast hringið
í síma 3-36-18 etftir kl. 7.
Selmer — Saxófónn
Til sölu er nýlegur altó-sax
á tækifærisverði. Uppl. í
síma 10643 milli kl. 10—12
f. h. í dag og næstu daga.
Til sölu
Thor strauvél og klæða-
skápur úr eik að Karfav. 54
frá kl. 1—6.
Vakið þvi, þar eö þér vitiö
eigi hvaöa dag herra yöar kem-
ur. (Matt. 2Jf, b%)-
í dag er föstudagur 15. nóvember
og er það 313. dagur ársins 1963.
Árdegisháflæði var kl. 4.52.
Síðdegisháflæði verður kl. 17.05.
Naeturvörður verður í Vestur-
bæjarapóteki, Melhaga 20—22
vikuna 9. nóv. til 16. nóv.
Næturlæknir í Hafnarfirði
vikuna 9. nóv. til 16. nóv. er
Bragi Guðmundsson.
Slysavarðstofan ■ Heilsuvernd-
arstöðinni. — Opin allan sólar-
hringinn — sími 2-12-30.
Neyðarlæknir — simi: 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
100 ára. Útgáfudagur: 15. nóvember
1963. Verðgildi: 3,00+0,50 kr.
3,50+0,50 kr. Litur: Marglitt. Prent-
unaraðferð: ,,Hélio"-prentun. Stærð
hvers merkis: 26x36 mm. Fjöldi
merkja í örk: 50. Prentsmiðja:
Courvoisíer S. A., La Chaux-de-
Fonds, Sviss.
Bilanatilkynningar Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Sími 24361.
Vakt allan sólarhringinn.
Köpavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9:15-8 laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 eJi. Sími 40101.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavikur eru opin alla
virka daga ki. 9-7, nema laugar-
daga frá ki. 9-4 og helgidaga
írá kL 1-4. e.h.
□ EDDA 596311167 = *
I.O.O.F. 1 = 14511158!i = 9. O. II.
□ GIMLI 596311187 — 1 Frl.
Orð lífsins svara 1 sima 10000.
i FRÉTTASÍMAR MBL.:
— eft»r lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Málfundafélagið Óðinn. Skrif-
stofa félagsins í Valhöll við Suð-
urgötu er opin á föstudagskvöld-
um frá kl. 8V2—10. Sími 17807.
Föstudagur 15. nóv. 1963
Kristilegt
Stúdentafélog
Sjötug er í dag frú Magnúsína
Jónsdóttir, Grettisgötu 83.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
BjörnssynL Frk. Marólína Arn-
heiður Magnúsdóttir Snorrabraut
24 og Bogi Sigurðsson Vestur-
götu 144, Akranesi. Heimili ungu
hjónanna verður á Akranesi.
KRISTILEGT stúdentafélag
hefur fyrir nokkru hafið vetr-
arstarfsemi sína. Verður hald
inn fundur á vegum félagsins
í kvöld á Gamla Garði, og
flytur þar Sverrir Sverrisson,
skólastjóri á Akranesi, erindi
um afstöðu kaþólsku kirkj-
unnar til mótmælenda. Eins
og kunnugt er hafa ýms um-
Pmæli verið höfð eftir tveim
síðustu páfum kaþólsku kirkj
unnar, er bent gætu til þess,'
að um stefnubreytingu væri
að ræða hjá kaþólskum, og
hafa menn velt því fyrir sér,
hvort skoðanamunur væri
minni nú en á dögum siðbót-
arinnar — hjá kaþólsku kirkj-
unni annars vegar og mótmæl
endum hins vegar. — Fund-
urinn á Gamla Garði í kvöld
hefst kl. 20,30, og nefnist er-
indi Sverris Sverrissonar:
„Evangelisk-lúthersk og róm-
versk-kaþólsk viðhorf. Ber
minna á milli í dag?“ öllum
stúdentum er heimill aðgang-
ur að fundinum.
Svona á EKKI að aka
Myndin, sem Sveinn Þor-
móðsson tók, sýnir bifreið,
sem er að aka norður Tjarn-
argötu, og þó blasir við öku-
manni skilti það sem er til
hægri á myndinni og þýðir
að aliur innakstur sé bann-
aður. Það er rautt skilti með
gulu þverstriki. Hitt skiltið,
sem á myndinni sézt þýðir að
allur akstur sé bannaður, og
er það gult með rauðum
hring utanum. Til þess eru
vítin að varast þau, og þess
vegna er mynd þessi birt, og
mega ökumenn búast við því,
svona annars slagið, að ljós-
myndarar Morgunblaðsins
smelli á þá mynd, þegar þeir
eru ekki i réttL
Stjórn félagsins er þá til viðtals
við félagsmenn, og gjaldkeri fé-
lagsins tekur við ársgjöldum
félagsmanna.
Frá Guöspeklfclaginu. Enginn fund-
ur í kvöld. Afmælisfundur. Reykja-
víkurstúkunnar verður sunnudags-
kvöld 17. nóv. kl. 2 e.h.
Bústaðasókn. Umsækjandi, séra Ólaf
ur Skúlason, messar í Réttarholtsskóla
sunnudaginn 17. þ.m. Messunni verð-
ur útvarpað á bylgjulengd 212. Sókn-
arnefnd.
Ljósmæðrafélag íslands heldur baz-
ar sunnudaginn 17. nóvember kl. 2.
e.h. i Breiðfirðingabúð uppi.
Bazar Kirkjukórs Langholtssóknar,
verður i félagsheimilinu við Sólheima
laugardaginn 16. nóv. n.k. kl. 2 e.h.
Ágóði rennur í orgelsjóð. Vinsamlega
styrkið málefnið.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunn-
ar hefur slðdegiskaffisölu í Sigtúni
við Austurvöll, sunnudaginn 17. nóv-
ember og hefst hún kl. 3 e.h. Kaffi-
gestum er gefinn kostur á að kaupa
fallegar handunnar jólagjafir.
Skotfélag Reykjavikur. — Æfing aS
Hálogalandi kl. 8.30 á miðvikudögum.
+ Genaið +
21. október 1963.
Kaup Sala
1 enskt pund _ 120.16 120,4«
1 Banoarikjadollar „ 42 95 43.0«
1 Kanadadollar 39,80 39,91
100 Danskar krónur . _ 621,73 623,63
100 Norskar kr. .. 600,09 601,63
100 Sænskar kr. 826,75 828,90
100 Finnsk mörk _ . 1.335,72 1.339,14
100 Franskir fr. _ 876.40 878.64
100 Svlssn. frankar ... 993.53 996.08
100 V-þýzk mörk .... 1,079,83 1.082,59
100 Austurr. sch. .... 166,18 166,60
100 Gyllini . 1.191,81 1.194,87
100 Belg. franki 86,17 86,39
Botnarnir fara
að birtast