Morgunblaðið - 25.01.1964, Blaðsíða 1
24 siður
51. árgangur
20. tbl. — Laugardagur 25. janúar 1964
Prentsmiðja Morgunbla^fins
Góöur árangur af för
Kennedys til Asíu
Sukarno hefur íioðoð vopna/i/é, og
\ '
l'ikur eru nú fyrir friðsamlegri lausn
London, 24. jan. — (NTB)
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
-»
Bandaríkjanna, Robert Kenn
edy, kom í dag til London,
eftir för sína til Asíu. Mun
hann nú gefa brezku stjórn-
inni skýrslu um árangur ferð-
•r sinnar. Megintilgangurinn
var að koma í kring nýjum
umræðum, er leitt gætu til
samkomulags milli ríkjasam-
bandsins Malaysía og þeirra
aðila, sem mest hafa haft á
móti stofnun þess.
Kennedy bar á móti því, að
Sukarno, Indónesíuforseti,
hafi ákveðið að láta af and-
stöðu sinni við ríkjasamband-
ið. Mun sá misskilningur
stafa af því, að Sukarno til-
kynnti í gær, að hann hefði
fyrirskipað vopnahlé á Norð-
ur-Borneo.
Kennedy lýsti því yfir, er hann
kom á flugvöllinn við London,
að hann vonaðist til þess, að
Bretar og EBE
taka sameigin-
lega oistöðu
London, 24. janúar — AP
BRETLAND og lönd Efna-
hagsbandalags Evrópu, sem
saman mynda V-Evrópu
bandalagið, gáfu í 'dag út yfir
lýsingu, þar sem kveðið er á
um nánari samvinnu þessara
sjö ríkja.
Yfirlýsingin var gefin út,
að loknum fundum bandalags
sins, en þeir hafa staðið
London, undanfarna tvo daga.
Tilkynning þessi hefur
vakið nokkra athygli, vegna
viðræðna þeirra um tollamáf,
sem framundan eru. Vitað er,
að sjónarmið Breta og ann-
arra EFTA-landa varðandi
þau mál hafa verið ólik sjón
armiðum Efnahagsbandalags-i
ins. f lok mánaðarins eru fyr-
irhugaðar viðræður um
ójafna tolla beggja vegna’
Atlanshafsins, og í Evrópu, en
í maí hefjast þær viðræður,
,sem ganga undir nafninu
„Kennedy-viðræðurnar".
Sukarno myndi sýna samnings-
vilja er komið yrði saman til
frekari viðræðna.
Síðar í dag átti Kennedy við-
ræður við R. A. Butler, utanrík-
isráðherra Breta, og ræddu þeir
þá nánar niðurstöður viðræðna
þeirra, sem Kennedy hefur tékið
þátt í, undanfarna daga. Auk
hans og Sukarnos tóku Tunku
Abdul Rahman, forsætisráðherra
Malaysíu og Macapagal, forseti
Filippseyja þátt í þeim.
Tilkynningin um vopnahlé á
Norður-Borneo vakti mikla á-
nægju í London. Nokkuð dró úr
henni, er Sukarno birti nýja yfir-
lýsingu, þar sem sagði, að „bar-
áttuaðferðir“ kynnu að hafa
breytzt, rn í grundvallaratriðum
væri afstaðan til Malaysíu ó-
breytt.
Kennedy skýrði hins vegar frá
því, að Sukarno hefði fallið frá
allri beitingu valds og vopna,
þar til fram hefði komið, hvers
væntai mætti af frekari viðræð-
um deiluaðila. Dómsmálaráð-
herrann skýrði ennfremur frá
því, að hann væri þess fullviss,
að ráðamenn í Indónesíu hefðu
fullan hug á að leysa þau- vanda-
mál, sem að steðjuðu, á friðsam-
legan hátt.
Á morgun, laugardag, ræðir
Kennedy við Sir Alec Douglas
Home, forsætisráðherra Breta,
og Duncan Sandys, nýlendumála-
ráðherra.
BJARNI BENEDIKTSSON, forsætisráðherra flytur ræðu sina
á Alþingi í gær. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Hagkvæmasta og almenningi hollasta
aiferðin til þess ai firra vandræðum
Söluskattsaukningin mun valda
1,4% verðhækkun
Fargjaldasam-
þykkt IATA
• *.
, Montreal, Kanada, 24. jan.
í Einkaskeyti frá AP.
IATA, Alþjóðasamband flug-
félaga, hefur samþykkt ný
farmgjöld í flugi. Hér er þó
aðeins um að ræða sameigin-
afstöðu meðlima til til-
Framh. á bls. 17
Ræða forsætisráðherra, Bjarna
> •»
Benediktssonar, á Alþingi í gær
Á FUNDI neðri deildar Al-
þingis í gser mælti Bjarni
Benediktsson, forsætisráð-
herra, fyrir framkomnu frum
varpi til laga uin ráðstafanir
vegna sjávarútvegsins o. fl.
Forsætisráðherra kvað
flesta gera sér þess ljósa
grein, að hinar miklu kaup-
hækkanir á síðasta ári hljóti
að hafa svo mikil áhrif á efna-
hagslíf íslenzku þjóðarinnar,
að brýn nauðsyn sé skjótra
gagnráðstafana, ef komast á
hjá hreinum vandræðum.
-jk- Haldgóð órræði fáist hins
vegar ekki, nema uni þau
sé víðtækt samkomulag. Því
sé æskilegt, að svigróm gef-
ist til þess að íhuga allt frá
rótum, og stjórnvöld og full-
tróar helztu atvinnustétta
reyni til þrautar að koma sér
saman um framhóðarráðstaf-
anir. Það svigróm er fyrir
hendi vegna hinna ríflegu
gjaldeyrisvarasjóða.
-^- Hinar fyrirhuguðu ráð-
stafanir eiga að létta
byrðar togara og frystihósa,
sem þau fengju ella ekki und-
an risið eftir hinar gífurlegu
launahækkanir, sem yfir hafa
dunið á skömmum tíma.
NATO-floti ekki í vegi
tyrir dreifingarbanni
— segir Tsarapkin — Frakkar yrðu
að eiga aðild að sliku banni,
segir fulltrúi USSR
Genf, 24. jan. — (NTB) —
AÐALFULLTRÚI Sovétríkj-
anna á afvopnunarráðstefn-
unni í Genf, Seymon Tsarap-
kin, lýsti því yfir í lok um-
ræðna í dag, að hann hefði
aldrei sagt, að Sovétríkin
vildu ekki ræða um bann við
frekari dreifingu kjarnorku-
vopna, nema Bandaríkin
hyrfu frá hugmynd sinni um
kjarnorkuflota Atlantshafs-
bandalagsins, NATO.
Sagði Tsarapkjn, að Sovét-
ríkin væru þess albúin að
ræða slíkt hann. Gjarnan
mætti ræða kjarnorkuflotann
samtímis, þó væri það ekk-
ert skilyrði.
Fulltrúi Rúmeníu, V. Dimi-
trescu, og fulltrúi Búlgaríu, Karlo
Lukanov, héldu því fram í dag,
að næsta skrefið í áttina til frek-
ara samkomulags á ráðstefnunni
yrðu Vesturveldin að stíga.
Lukanov vék að tillögu Krús-
jeffs, forsætisráðherra Sovéj-
ríkjanna, um bann við valdbeit-
ingu í landamæradeilum. Taldi
hann, að ekki bæri eins mikið á
milli Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna í þessum efnum, og
margir teldu.
Eftir fundi ráðstefnunnar I dag,
skýrði Tsarapkin fréttamönnum
svo frá, að það, sem mestu máli
skipti í afvopnunarmálunum,
væri, að V-Þýzkaland fengi ekki
í hendur kjarnorkuvopn. _
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Síðar í kvöld var haft eftir
öðrum sovézkum fulltrúa á
ráðstefnunni, að samningur
um bann við frekari dreifingu
kjarnorkuvopna yrði að und-'
irritast af Frökkum, ásamt
öðrum, — en Frakkar telja, að
svo lítils árangurs sé að vænta
af ráðstefnunni, að þeir eiga
þar enga fulltrúa.
-^- Aukning söluskattsins
mun sennilega valda u.þ.b.
tveggja stiga vísitöluhækkun,
en raunverulega ekki hækka
verðlagið nema um 1.4%.
-^- Forsætisráðherra rakti
rækilega tilefni og tilgang
lagafrumvarpsins og sagði að
lokum: „Það, sem nó liggur
fyrir, er að taka verkefnin
raunhæfum tökum, — með
raunhæfum ráðstöfunum,
leysa þau eins og þau liggja
fyrir, og það er ótvírætt, að
hvort sem mönnum líkar bet-
ur eða verr, — og enginn
gleðst yfir því að þurfa að
gera tillögur um verulega
skattþyngingu —, þá er sú
skattþynging, sem nú er bor-
in fram tillaga um, að lang-
samlega mestu leyti afleiðing
af þeim orsökum, sém þegar
eru orðnar, og ef menn vilja
ekki, að orsakirnar skapi enn
þá meira tjón og glundroða,
þá er þetta í bili hagkvæm-
asta og almenningi hollasta
aðferðin, til þess að firra vand
ræðum af afleiðingum orsak-
anna.“
Ræða torsætisráðherra
fer hér á eftir:
Ótvírætt er, að hinar miklu
kauphækkanir, sem urðu á sL
ári, hljóta að hafa margvísleg
áhrif á efnahag okkar íslendinga.
Þessi áhrif verða misskjótvirk og
munu lýsa sér með mismunandi
hætti. En flestir munu hafa gert
sér grein fyrir því, að viðbúið
sé, að verði ekki gagnráðstafan-
ir gerðar, sé líklegt, að til hreinna
vandræða horfi. Hins vegar er
æskilegt að þessi áhrif fái lýst
sér í framkvæmd, svo að allir
aðilar geti áttað sig á þeim og
mönnum gefist færi á að íhuga,
hver úrræði séu líklegust til þess
Framh. á bls. 8.
/