Morgunblaðið - 02.02.1964, Page 28

Morgunblaðið - 02.02.1964, Page 28
MORCUNBLAÐIÐ 28 Sunnudagur 2. febröar 1964 n GAVIN HQLT: 47 ÍZKUSÝNING — Ég skal játa, að ég var dá- lítið lausmáll, sagði ég, — en afleiðingin af því varð sú, að Sally Dutton var gerð saklaus að tálbeitu. Og afleiðingin af þessari tálbeitu er sú, að þið haf- ið morðingjann í höndunum. Ég sagði Joel frá þessu um skrif- borðið, eins og þú veizt. Auk Joels minnist ég á það við einn ma-nn, og hann hófst handa í til- efni af því — með mistökum og öllu saman! Ef þér nægir ekki þessi upplýsing, hef ég annað smáatriði að segja þér. Sally er ekki dauð. Hún er lífseig. Eftir nokkra klukkutíma verður hún orðin hress og reiðubúin að gefa ykkur þær upplýsingar, sem ykkur kann að vanta. í>að var nú hátt undir loft þarna og hvorugur þeirra lyftist í sætinu, auk heldur sprakk í loft upp. Jarðsprengjan var ónýt. Þeir spurðu mig ekki einu sinni um nafn á morðingjan- um.. Þeir þekktu hann — það gat ég séð á öllu. — Auðvitað, sagði Joel ró- lega, — verður fjarvera hans við seimni tilraunina áðan skiljan- legri, úr því að þú sendir eftir honum fyrir einurn klukkutíma. — Burchell kinkaði kolli. Nú kom allt heim og saman. Hann sneri sér að mér.. — Þú hefur fært okkur mikilsverðar upplýs- ingar Ritzy, — en þú hefðir átt að segja okkur það allt saman strax. Þú hefur legið á mikil- vægu atriði, og það get ég ekki þolað þegar morð er annarsveg- ar. Þó að við Joel séum kunn- ingjar, þá hafa einkaspæjarar engan rétt til að. taka fram fyrir hendurnar á lögreglunni. Þú vanst hér að rannsaka innan- húsmál, það er að segja kjóla- stuldinn. Þú varst mikilvægt vitni, svo að óg gaf þér tíltölu- lega frjálsar hendur. — Sjáðu nú til, sagði ég. — Ef ég hef verk að vinna, þá vinn ég það eins og ég ákveð sjálfur. Ef ég hefði sagt þér í gærkvöldi, að allt lægi ljóst fyrir — hvaða gagn hefðirðu af því? Þú hefðir farið að spyrja Sally Dutton spjörunum úr. Ef til vill líka Jos ette. Hún hefði logið þig fullan, til að forða sér, af því að þú hafðir ekkert haft fast undir fót um. Ég fór til hennar með vissu í huga, og henni tókst ekki að ljúga að mér. Einu mistökin, sem mér urðu á, voru þau- að tala við morðingjann. Joel sagði: — Ég held, að þú getir staðið þig við að gleyma því, Ted. Ef ekki hann- Ritzy hefði farið að herma eftir tals- mátanum hans Schlussbergs, hefði ég aldrei farið að leita í gömlu blöðunum. Nú kom að mér að spyrja: — Hvað um það? Ted Burchell glotti. — Jæja, Ritzy, við gefum þér heiðurs- pening þrátt fyrir allt. — Mér er fjandans sama um alla þína heðiurspeninga, sagði ég. Ég var enn vonur og enn verri vegna þess, að ég vissi ekki, hvað Joel átti við. Burchell sagði: — Vissirðu, hver var tilgangur þessarar La- coste kvensu með því að leita í skrifborðinu? — Já, svaraði ég. — Hún sagð ist hafa verið að reyna að hjálpa Clibaud. — Það er nú dálítið óákveðið, sagði hann. — Hún er nú líka dálítið óákveðinn kvenmaður, sagði ég og snarlokaði svo munninum. Hva'ð sem hann kynni að halda um að liggja á staðreyndum, hafði ég mínar aðferðir og mín- ar kenningar um þetta og ég hafði lofað að gera mitt bezta að hjálpa henni. — Kannskx hún sé ástfangin af Clibaud? sagði ég. — Hún hélt, að Selina væri að liggja á einhverju, sem hon- um gæti orðið gagnlegt. — Og kannski hefur hennf líka dottið í hug, að hún gæti haft einhvern aur út úr Thelby? Burchell var nú aftur orðinn vin gjarnlegur, sýndist jafnvel vera ánægður. — Ég verð að ná í þennan kvenmann og tala dá- iítið yfir hausamótunum á henni. Hún gæti haft gott af þvi. — En vissirðu annars, að hún var dóttir Schlussbergs? Ég gerði honum vonbrigði með því að láta mér ekkert bregða. Svaraði honum engu nema augnatilliti, __ fullu með- aumkunar. Ég hafði of mikið að gera að hugsa um Schlussberg, málhreim hans og talsmáta. Ég hugsaði til hans í París, þegar Selina ofurseldi hann innrás naz istanna. Ég hugsaði um hatur hans á Selinu og Clibaud. Schlussberg. Mér fannst ég skilja þetta, en vissi ekki um þýðingu þess. — Það er fullt af óákveðnu fólki hér, sagði ég. Burchell tók upp minnisblað af borðinu og leit á það. — Gott og vel. Ég skal út- skýra þetta allt. Það er ekki eftir neinu að bíða. XXV. Hann gekk á undan inn í sýn- ingarsalinn. Schlussberg sat enn í hnipri úti í horni, Thelby á röndinni' á leigúbekknum, en Clibaud var á gangi um gólfið. Verðinum var skipað að koma með Gussie Ochs. Hún var nú hætt að gráta, en hafði samt ekkert lagað á sér andlitið. Hún var alveg úrvinda. Hún laut höfðinu og horfði á gólfábreið- una, eins og hún væri hrædd við að líta á nokkum mann. Vörðurinn leiddi hana að stól og tók að sér stöðu við hlið hennar. Hinn aðstoðarmaðurinn skellti minnisbókinni sinni á lítið borð og settist við það. Við Joel stóðum kyrrir í bogadyr- unum, en vorum ekki að halda neina tízkusýningu fyrir Clibaud h.f., að minnsta kosti. Burchell leit kring um sig, og ég gat ekki betur séð en hann væri enn eitthvað hikandi. Hann leit út eins og ieynilögreglu- maður í einhverjum jólaleik, sem gæti ekki ráðið við sig svar- ið við fyrstu spurningunni. Hann leit á Schlussberg, Clibaud, Thelby og loks á Gussie Ochs. Það var eins og honum dauð- leiddist þetta og það kom einnig fram í rödd hans, sem þó var aiíltvarpiö Sunnudagur 2. febrúar 8:30 Létt morgunlog. 8:55 Fréttir og úrdruráttur úr forustu greinum dagblaðanna. 9:10 Veðurfregnir. 9:20 Morgunhugleiðing um músik: Leifur Þórarinsson kynnir strengjakvartetta Ludwig van Beethovens. 9:40 Morguntónleikar: a) Strengjakvartett í cis-moll op 131 eftir Beethoven (Ama- deus-kvartettinn leikur; — endurtekið frá síðasta sunnu- degi). b) Hermann Prey syngur lög eftir Schumann og Schubert Við píanóið: Karl Engel. c) Sinfónía nr. 1 í D_dúr (Klass- íska hljómkviðan) op. 25 eftir Prokofjeff (Hljómsveit Tón- listarháskólans i París leikur; Ernest Ansermet stj.). 11:00 Messa 1 Dómkirkjunni (Prestur: Séra Óskar J. Þorláksson. Organ leikari: Dr. Páll ísólfsson). 12:15 Hádegisútvarp. 13:15 Hverasvæði og eldfjöll; IV. er- indi: Hveravellir á Kjalvegi (Hallgrímur Jónsson kennari). 14:00 Miðdegistónleikar — Óperukynn- ing: „Rósariddarinn’* eftir Richard Strauss (Elisabeth Schwarzkopf, Otto Edelmarm, Christa Ludwig, Stich Randall, Eberha-rd Wáchter o.fl. syngja. Hljómsveitin Fhil- harmonia í Lundúnum leikur, Stjórnandi: Herbert von Karajan — Sveinn Einarsson kand. lic. kynnir). 15:30 Kaffitíminn: —► (16:00 Veður- fregnir). a) Aage Lorange leikur á píanó. b) The Outlaws leika lög eftir Robert Duke 16:30 Endurtekið leikrit: Þættir úr ^Paradísarheimt" eftir Halldór Kiljan Laxness, saman teknir af Lárusi Pálssyni og stjórnað af honum (Áður útv. i sept. s.l.). 17:30 Barnatíml (Skeggi Ásbjarnar- son>: a) ^Ósarmindi hefna sínM, smá- saga eftir Hannes J. Magnús- son (Tryggvi Tryggvason les) b) Úr póstkassanum. c) -,Illu traðir“, leikrit eftir Louise Sublette Perry. — Ævar Kvaran þýðir og stjóm ar flutningi leiksins. 18:20 Veðurfregnir. 18:30 ,.Ég veit um systkin*': Gömlu lögin sungin og leikin. 19:00 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 ,,Riddaraliðið‘\ forleikur eftir Suppé — og „Skautavalsinn** eftir Waldteufel (Hljómsveitiu Philharmonia 1 Limdúnum leik- ur; Herbert Von Karajan stj.). 20:15 í erlendri stórborg: Feneyjum (Guðni Þórðarson). 20:40 Einsöngur: Rita Steich syngur létt lög með Promenaden-hljóm- sveitinni 1 Berlín; Hans Carsta stjórnar. 21.00 Sunnudagskvöld með Svavari Gests. — spurninga- og skemmti- þáttur. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Syngjum og dönsum: EgiU Bjarnason rifjar upp íslenzk dægurlög og önnur vinsæl lög. 22:30 Danslög (valin af Heiðari Ást- valdssyni danskennara). 23:30 Dagskrárlok. Mánudagur 3. febrúar 7:00 Morgunútvarp. 12:00 Hádegisútvarp. 13:15 Búnaðarþáttur: Kristinn Jónsson ráðunautur á Selfossi talar um viðhorf í búnaðarmálum. 13:35 „Við vinnuna“: Tónleikar. 14:40 ,,Við, sem heima sitjum": Ása Jónsdóttir les söguna „Leyndar- málið“ eftir Stefan Zweig, í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi (8). 15:00 Síðdegisútvarp. 17:05 Stund fyrir stofutónlist (Guð- mundur W. Vilhjálmsson)., 18:00 Úr myndabók náttúrunnar: Sæ- skjaldbökur (Ingimar Óskarsson nátturuf ræðingur). 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Þingfréttir. — Tónleikar. 18:50 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Um daginn og veginn (Lárus Sigurbjörnsdóttir). 20:20 Tónleikar: Sónata 1 C-dúr fyrir selló og píanó op. ©5 eftir Benjamin Britten (Mstislav Rostropov itsj og höfundurinn leika 20:40 Á blaðamannafundi: Dr. Sturla Friðriksson jurtaerfðafræðingur svarar spurningum. Spyrjendurj Gylfi Gröndal og Jón Helgason. Stjórnandi: Dr. Gunnar G. Schram. 21:15 íslenzk tónlist: Lög ©ftir Pál ísólfsson. Tónlistarfélagskórinn syngur ,.Lofsöng“ og „Fánasöng* úr Alþingishátíðarkantötunni 1930. Einsöngvari: Sigurður Skagfíeld. Söngstjóri: Dr. Victor Urbancic. 21:30 Útvarpssagan: „Brekkukots. análl“ eftir Halldór Kiljan Lax- ness; XXVII. (Höfundur les). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Lestur Passíusálma (7). 22:20 Daglegt mál (Arni Ðöðvarsson). 22:25 HljómplötusafniO (Gunnjir Guð- mundsson). •** 23:15 Dagskrárlok. JÚMBÓ og SPORI Teiknari: J. MORA Vinimir þrír héldu lengra inn í skóginn og námu staðar hjá fallegu bananatré. — „Bananar; Stórir, gulir og stórkostlegir bananar!“ hrópaði Spori. — „Já, í þetta skipti verðum við ekki af matnum!" sagði Jumbo ánægður. En bananamir voru.of hátt uppi til þess að Spori næði til þeirra. Hann tók þá það til bragðs að lyfta Jumbo upp á öxl sér svo hann gæti náð til þeirra. kápan úr því klæðinu. Bak við bananana hafði nefnilega stór slanga fahð sig í þeirri frómu von að ein- hver sem hún gæti fengið sér til miðdegisverðar glæptist á freist- andi ávöxtunum. Spori datt aftur En — því miður varð þeim ekki yfir sig og sleppti Jumbo. KALLI KUREKI — Xr~ ~Xr~ Teiknari; FRED HARMAN f Gamli klöngrast upp úr gildraginu »em Skrattakolla hefur sparkað hon- / um niður í .... ^ .— Hvað er nú þetta? ftunni! Þar sem runni er, þar er vatn undir, jafnvel þó það geti verið langt niðri í jörðinni. Ég fer strax að grafa. — Kannske ég sé búinn að fá sól- %ting og farinn að sjá hér eitthvað sem ekki er — en mér finnst sand- urinn orðinn rakur ....

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.