Morgunblaðið - 03.03.1964, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.03.1964, Blaðsíða 1
28 siður 168 fórust slysum um Báðar flugvélarnar rákust á fjöll — Önnur í Austurríki, hin i LSA • Um helgina urðu tvö mikil flugsiys, annaff í Austurríki, hitt í Bandarikjunum. 168 menn voru meS vélunum og er talið, að allir hafi beðið bana. • Constellation-flugvélarinnar, sem fórst í Bandaríkjunum, var saknað á sunnudag. Síðdegis i gær fannst hún í Sierra-Nevada- fjöllum og þótti þegar augljóst, að allir, sem með henni voru, 81 farþegi og 4 manna áhöfn, hefðu beðið bana. Flak vélarinnar fannst i 2,740 metra hæð. • Flak flugvélarinnar, sem saknað var á laugardag i Austur- ríki, fannst á sunnudaginn skammt frá Innsbruck. Hafði hún rekizt á fjallshlið i 2,700 metra hæð. Þegar var ljóst, að allir höfðu beðið bana, 75 farþegar og 8 manna áhöfn. Dimm þoka var, þegar slysið varð og talið er að hæðarmælir flugvélarinnar hafi bilað. Flugvélin var af gerðinni Bristol-Britannia. • Þess má geta, að aðeins vika er liðin frá því að þota af gerðinni DC-8 hrapaði i Bandaríkjunum og 58 menn létust. • Snjór og hvassviðri Tahoe Valley, Kaliforníu, 2. marz (NTB:AP) Á sunnudaginn var fjög- urra hreyfla flugvél af gerð- inni Constellation saknað, er hún var á leið frá Kaliforníu til Nevada. Mikil snjókoma var þegar flugvélin hvarf. í dag fann þyrla flak flugvél- arinnar í Sierra-Nevada-fjöll- um í 2,740 metra hæð. Þegar þótti ljóst, að allir, sem með vélinni voru, 85 menn, hefðu látið lífið. Það var skömjmiu eftir hádegið á sunnudaginn, sem síðast heyrð- ist til flugvélarinr.ar. Átti hún að hafa viðkomu á Tahoe-flug- velli við Tahœ-vatn og þegar heyrðist til hennar, kvaðst flug maðurinn vera að búa sig undir að lenda á flugvelli þessum, — Skyggni var mjög slæmt vegna snjókomu, var honurn ráðlagt að London 2. marz NTB, AP. f DAG lauk fiskimálaráðstefnu 16 þjóða, sem Bretar boðuðu til í London. Á ráðstefnunni náðu 13 þjóðir samkomulagi um 12 mílna fiskveiðilögsogu með sveima yfir vatninu og bíða átekta. Framhald á síðu 27 Ljósmóðii í Buckingham- höll London 2. marz NTB. LJÓSMÓÐIRIN, Helen Rowe, sem tekið hefur á móti öllum börnum Elísabetar Englands- drottningar, flutti í dag í eitt af gestaherbergjum Bucking- ham-hallar org er nú talið, að ekki líði margir dagar þar til drottningin fabi sitt fjórða barn. Talsmaður við hirðina sagði í dag, að gert væri ráð fyrir að barnið fæddist um miðjan mánuðinn, en bætti við, að erfitt væri að segja fyrir um slikt. þeirri undantekningu, að þjóðir, sem hefðbundinn rétt teljast hafa, fá að veiða innan ytri sex mílna lögsögunnar í 20 ár. ís- lendingar, Norðmenn og Sviss- lendingar tóku ekki þátt í sam- komulagi þessu og ekki heldur Framhald í siðu 27 Fiskimálaráð- stefnunni lokið Yfirlýsing um störf hennar gefin i dag Stefánsson látinn Davíð DAVfÐ Stefánsson, skáld frá Fagraskógi, lézt í Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri á sunnudagsmorgun, 69 ára að aldri. Davíðs Stefánssonar er sárt saknað af öllum. Hann var framvörður íslenzkra Ijóð- skálda um hálfrar aldar skeið, arftaki gamallar ljóðmenning- ar íslendinga, en gerðist ung- ur að árum nýsköpuður í þeirri þróun, sem síðar hefur átt sér stað, og ófeiminn við „að höggva á hclgustu bönd“, ef honum þóttl nauðsyn krefja. Kannski var það ein- mitt þess vegna sem þjóðlif í deiglu fékk útrás í ljóðum hans, í þeim sá aldamótakyn- slóðin speglast sína eigin sál, þrá sína og vonir, og i sumum þessara ljóða — og einungis i þeim — hafa sumir draumar hennar rætzt. Ljóð hans eru borin uppi af heitri tilfinningu augnabliksins, en standa þó ávallt fast í jarðvegi samtíma raunsæis og umróta. Kannski er það einmitt þess vegna sem óhætt er að fullyrða, án þess á nokkurn sé hallað, að Davið hafi verið vinsælasta ljóða- skáld fslendinga undanfarna áratugi, ástsæll af öllum, met- inn og virtur af skáldbræðr- um sínum og samstarfsmönn- um. Davíð Stefánsson var fædd- ur og uppalinn í Fagraskógi við Eyjafjörð og sótti á æsku- slóðirnar aflið í fegurstu ljóð sín. Hann undi hvergi hag sín- um nema þar og tók raunar slíku ástfóstri við Eyjafjörð, að hann mátti þaðan aldrei hverfa. Við fráfall hans hefur islenzka þjóðin verið slegin miklum harmi og ekki þó sízt fæðingarsveit hans og Akur- eyri, þar sem hann lifði og starfaði til dauðadags. Davíð Stefánsson var fædd- ur að Fagraskógi 21. janúar 1895. Stefán faðir hans var merkur bóndi og alþingismað- ur. Móðir hans var systir Ól- afs Davíðssonar, þjóðsagna- safnara. Rætur Davíðs skálds stóðu þannig djúpt í frjóum akri íslenzkrar menningar. Hann ræktaði þennan akur í sjálfum sér frá unga aldri með þeim árangri sem öll þjóðin kann skil á, ungir sem gamlir. Sum Ijóða hans eru meðal dýr ustu perlanna í íslenzkum skáldskap þessarar aldar og þó lengra væri seilzt. Er óhætt að fullyrða, að þau eiga eftir að lifa með þjóðinni eins Iengi og hún ann listum og fögrum bók menntum. Davíð Stefánsson fór utan i leit að ævintýrum og nýju veganesti, og kynntist ungur við menningu Evrópu. Reynsl unni ríkari kom hann aftur heim með ný viðhorf, styrk og óbilandi þrótt, og hóf ó- trauður að slá þann nýja streng, sem hann bætti við hörpu íslenzkrar ljóðlistar. Æ síðan hafa ljóð Davíðs verið partur af lífi og starfi þjóðar- innar. Er óhætt að fullyrða að Davíð hafi notið meiri virð- ingar og ástsældar en skáld eiga almennt að fagna í lif- anda lífi. Hann leysti úr læð- ingi samhljóminn í brjósti þeirrar kynslóðar, sem átti æsku sína undir sama himni og hann. Davíð Stefánsson varð bóka vörður á Akureyri 1925 og gegndi því starfi um langt ára bil. Hann var unnandi bóka og af einkasafni hans fóru miklar sögur. Kemur ást hans á bókum einnig tíðum fram í ljóðum hans. Fyrstu ljóð Davíðs Stefán- sonar birtust í Iðunni og Eim- reiðinni 1916 og þóttu mikil nýjung. Þremur árum síðar, eða 1919, kom út fyrsta ljóða- bók skáldsins, S v a r t a r fjaðrir, og fór um allt þjóðlíf íslendinga eins og vor- þeyr um greinar. Nýr höfund- ur hafði tekið sæti á skálda- bekk íslendinga, frábrugðinn öðrum, persónulegur, jafnvel byltingarsinnaður í stíl og mati á viðfangsefnum. En þrátt fyrir það má óhikað telja að fáar ljóðabækur, sem út hafa verið gefnar á íslandi, hafi þegar í upphafi fundið jafngóðan hljómgrunn og þessi fyrsta bók Davíðs. í fyrsta ljóði þessarar bók- ar, „Mamma ætlar að sofna“, koma fram beztu þættirnir. í ljóðlist Davíðs og þeir sem urðu honum einna drýgstir til vinsælda. Þetta var nýr tónn, Framhald á 2. síðu. Vilja tokmarka landanir íslendinga BREZKA blaðið „Fishing New“, skýrir frá því 28. febr., að fyrir skömmu hafi fulltrú- ar félaga, sem nái til allra, er fiskveiðar stundi, koinið saman til fundar í London og rætt hugsanlegar afleiðingar þess, er undanþágur Breta til þess að veiða innan 12 mílna við Færeyjar renna út 12. þ. m. Segir hlaðið samtök hrezkra og skozkra togaraeigenda vilja, að landanir íslenzkra og færeyskra totgara í Bretlandi verða takmarkaðar eftir 12. marz, þegar lokað verði stór- um veiðisvæðum við Færeyj- ar, sem Bretar hafi um langt skeið haft aðgang að. Togara- eigendur áformi að gripa til aðgerða til þess að koma í veg fyrir að íslendingar og Færeyingar landi auknu afla- magni í Bretlandi. Hafi þeir skýrt Soames, landbúnaðar og fiskveiðimálaráðherra frá áformum sínum. í flug- helgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.