Morgunblaðið - 03.03.1964, Qupperneq 10
10
MORGU N BLADIÐ
Þriðjudagur 3. marz 1964
DE GAULLE, Frakklands-
forseti, reynir nú að auka
áhrif þjóðar sinnar á al-
þjóðavettvangi. Hér á eftir
fer útdráttur úr grein um
þessar tilraunir hans og
erfiðleika, sem þær geta
valdið Bandaríkjamönn-
um. Greinin birtis í „The
New York Times“ fyrir
skömmu.
Frá lokum síðari heims-
styrjaldar hefur verið litið á
Frakka sem annars flokks
stórveldi. Kjarnorkuher þeirra
er lítill og frumstæður, her-
menn þeirra hafa verið reknir
heim þúsundum saman eftir
De Gaulle (lengst t. h.) ræðir við rúmlega eitt þúsund fréttamenn í Elysée-höllinni í lok janúar
sl. Á fundinum ræddi forsetinn m.a. stjórnmálasamband Frakka við Pekingstjórnina og hlut-
leysi Suðaustur-Asíu.
Aukin áhrif Frakka
á alþióðavettvangi
ósigra í nýlendustyrjöldum og
efnahagsstyrkleiki þeirra er
takmarkaður. — Þrátt fyrir
þetta leika Frakkar æ stærra
hlutverk á sviði heimsmál-
anna undir stjórn de Gaulles,
og fyrir skömmu tóku þeir
t.d. frumkvæðið í þremur
heimsálfum.
• Franskur sendifulltrúi
er kominn til Peking og ræðir
hann við kommúnistastjórn-
ina stefnu de Gaulles varð-
andi hlutleysi Suðaustur-Asíu
og hugsanlegt samstarf við
Kínverja til þess að hún nái
fram að ganga.
• í Mið- og Suður-Amer-
íku er hafinn umfangsmikill
undirbúningur undir heim-
sókn de Gaulles síðar á þessu
ári, en þá ætlar hann að bjóða
löndum álfunnar efnahagsað-
stoð og reyna að auka áhrif
Frakka þar.
• í Afríku lét de Gaulle
franskan her berja niður bylt-
ingu gegn stjórn Gabon, sem
áður var frönsk nýlenda. Með
því að veita stjórn landsins
aðstoð, styrkti de Gaulle að-
stöðu Frakka í Gabon á ný.
Hvað ofangreind atriði
snertir, kemur stefna de
Gaulles í ýmsum atriðum illa
heim við stefnu Bandaríkja-
manna. Hvað Suður-Ameríku
viðkemur, sagðist Johnson for
seti að vísu fagna því, ef vinir
í Evrópu biðust til þess að að-
stoða við lausn vandamála
þar. Þrátt fyrir ummæli for-
setans er ljóst, að innan
Bandarikjastjórnar gætir tor-
tryggni í garð de Gaulles og
stefnu hans og ótti við afleið-
ingar hennar.
Breytt ástand í heimsmál-
unum hefur gert de Gaulle
kleift að hefja aðgerðir til
þess að auka áhrif Frakka.
Áður báru Bandaríkin ægis-
hjálm yfir hin vestrænu ríki,
eins og Sovétríkin yfir lönd
kommúnista. Veldi Bandaríkj
anna var eina von vestrænna
ríkja um vernd gegn stórárás
kommúnista, og þjóðernisleg
áhugamál urðu að víkja þegar
samstaðan við bandamennina
var annars vegar. En þegar
Ijóst varð, að hvorugt stór-
veldið myndi hefja kjarnorku
De Gaulle Frakklandsforseti.
styrjöld af fúsum vilja, breytt
ist ástandið. Bandamönnum
finnst ekki lengur nauðsyn-
legt að láta þjóðernisleg á-
hugamál víkja, og Sovétríkin
biðja þjóðir um að fyigja sér
í stað þess að neyða þær til
þess. Gömul bönd eru að
slitna, og allt bendir til þess
að ný verði tengd. Þetta gef-
ur manni eins og de Gaulle
tækifæri, og hann hefur sýnt,
að hann muni nota þau.
Allt hefur virzt ganga sinn
vana gang í bústað de Gaulles,
Elysée-höllinni, að undan-
förnu, en í París hafa menn
á tilfinningunni að eitthvað sé
að breytast. Það, sem sagt er í
Elysée-höllinni, bergmálar um
heiminn með auknum krafti.
í fjarlægari Austurlöndum
eru þegar hafnar viðræður um
stefnu de Gaulles varðandi
hlutleysi Suðaustur-Asíu. —
Franskur sendifulltrúi er kom
inn til Peking og kinverskur
til Parísar, en eftir á að koma
í ljós, hvort beint stjórnmála-
samband við kommúnista-
stjórnina hraðar því, að stefna
de Gaulles nái fram að ganga,
að minnsta kosti í löndum,
sem nú fylgja stefnu Kínverja,
en voru áður nýlendur Frakka.
Af ummælum Ayubs Khans,
forseta Pakistans, fyrir
skömmu má álíta, að Kínverj-
ar séu ekki frábitnir einhvers
konar nýskipan mála Suðaust-
ur-Asíu. Ayub Khan sagði
þetta, er hann ræddi heim-
sókn Chou En-lais, forsætis-
ráðherra Kínverska alþýðulýð
veldisins, til Pakistan. Ayub
Khan sagði, að þeir Chou En-
lai hefðu rætt ágreining
Bandaríkjamanna og kín-
verskra kommúnista í Suð-‘
austur-Asíu. — Hefði Chou
kveðið Kínverja reiðubúna til
þess að vera sanngjarnir við
alla, sem sýndu þeim sann-
girni. Einnig kvaðst Ayub
hafa boðizt til þess að jafna
ágreining Bandaríkjanna og
kínverskra kommúnista með
málamiðlun.
f Mið- og Suður-Ameríku
vinna sendimenn de Gaulles
nú ötullega að undirbúningi
heimsóknar hans, og fregnir
herma, að Frakklandsforseti
hafi á prjónunum áætlun um
að veita löndum heimsálfunn-
ar efnahagsaðstoð og bjóða
þeim hagstæða viðskiptasamn
inga. De Gaulle heldur til
Mexíkó um miðjan marz nk.
og í haust til Brasilíu. Honum
hafa borizt heimboð frá tíu
öðrum löndum Mið- og Suður-
Ameriku, og ráðgert er, að frá
Brasilíu fari hann til Argen-
tínu, Perú, Bólivíu og Chile,
en þetta hefur enn ekki verið
ákveðið.
Aðgerðir de Gauiles í Gabon
virðast miða að því að bæla ó-
róann, sem ríkt hefur í Afríku
löndunum 13, sem voru ný-
lendur Frakka. Eins og áður
segir, sendi forsetinn franska
hermenn til Gabon til þess að
bæla niður byltingu þarlendra
hermanna.
Enn er ekki unnt að meta
erfiðleikana, sem stefna de
Gaulles getur valdið Banda-
ríkjamönnum, en talið er að í
henni megi finna bæði já-
kvæð og neikvæð atriði, nýjar
spurningar og erfiðleika.
í Washington þótti viður-
kenning Pekingstjórnarinnar
og tillagan um hlutleysi Suð-
austur-Asíu ganga í berhögg
við stefnu Bandaríkjamanna.
Johnson forseti lagði áherzlu
. á, að Bandaríkjamenn myndu
halda áfram að styðja íbúa S-
Vietnam í baráttu þeirra við
skæruliða kommúnista og
ekki væri um neina stefnu-
breytingu að ræða af þeirra
hálfu. Formaður meirihlutans
í öldungadeild Bandaríkja-
þings, Mike Mansfield, kvaðst
hins vegar telja, að Banda-
ríkjunum bæri að örva við-
leitni Frakka til þess að ná
samkomulagi við Peking-
stjórnina um málefni Suð-
austur-Asíu.
Áætlanir de Gaulles um
efnahagsaðstoð við Mið- og
Suður-Ameríku virðast betur
til þess fallnar að hljóta stuðn
ing Bandaríkjamanna, því að
með henni myndu Frakkar
taka á sig hluta þeirra byrða,
sem Bandaríkjamenn hafa
einir borið til þessa. En sá
hængur er á, að efnahagsað-
stoð fylgja oftast stjórnmála-
leg áhrif og Bandaríkin eiga
erfitt með að sætta sig við
stjórnmálalega „innrás“ Ev-
rópuríkis í Mið- og Suður-
Ameríku. Auk þessa gerir de
Gaulle Bandaríkjunum gramt
í geði með því að halda áfram
að verzla við Kúbu og tala
um endurnýjun gamalla vin-
áttubanda Frakka og Kúbu-
búa.
Hvað viðkemur aðgerðum
Frakka í Afríku, hafa Banda-
ríkjamenn fyrst og fremst á-
hyggjur af því, að þær veki
nýjar ásakanir á hendur Vest-
urveldunum um nýlendukúg-
un. Þegar hefur komið í ljós,
að þessi ótti er ekki ástæðu-
laus. — Fregnir frá Afríku
herma, að á fundi ráðherra
Afríkjuríkja hafi verið lagt til
að komið verði á friðarsveit-
um Afríkubúa til þess að
koma í veg fyrir að leita verði
á náðir nýlendukúgara, ef til
átaka komi.
Þau vandamál, sem tilraun
de Gaulles til þess að auka á-
hrif Frakka virðist ætla að
skapa Bandaríkjunum, bætast
ofan á ágreininginn, sem ríkt
hefur að undanförnu milli
stjórnanna í Washington og
Paris. Td. varðandi Atlants-
hafsbandalagið, kjarnorku-
vopn og samninga við Sovét-
ríkin. Þykir það benda til þess
að grundvallarbreytingar séu
framundan í stefnu vestrænna
ríkja og sambúð þeirra við
kommúnistaríkin.
Á svæðinu, sem kortið sýnir, reynir de Gaulle nú að auka áhrif
Frakka. Mennirnir fyrir neðan eru frá vinstri: Lopez Mateos,
forseti Mexíkó, M’ba, forseti Gabon, og Chou En-lai, forsætis-
ráðherra Kínverska alþýðulýðveldisins.