Morgunblaðið - 03.03.1964, Qupperneq 28
,E LE KTROLUX UMBOÐIÐ
iAWGAVEOl « sími 21800
[ benzin eða díesel 1
LANJt^ ‘-kOVER
HEKLA
Akureyringar
minnast Davíös
Utförin verður frá IViöðruvallar-
kirkju á mánudag
Akureyri, 2. marz.
ÞJÓÐSKÁLDIÐ Davíð Stef-
ánsson frá Fagraskógi, heið-
ursborgari Akureyrar, andað-
ist kl. 7.50 í gærmorgun í
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri. Þar hafði hann legið
rúmfastur síðan á sunnudags-
kvöld, 23. febrúar, stundum
þungt haldinn. Á laugardag-
inn var hann heldur hressari,
þar til honum þyngdi aftur á
laugardagskvöldið.
Þegar er andlát hans spurðist
voru fánar dregnir í hálfa stöng,
hvarvetna í Akureyrarbæ. Við
geysifjölmennar æskulýðsguðs-
þjónustur í Akureyrarkirkju og
Glerárskóla, minntust prestarnir
skáldsins nokkrum orðum, en
söfnuðirnir risu úr sætum til virð
ingar við hinn látna.
Öll fundahöld, skemmtanir og
kvikmyndasýningar á Akureyri
féllu niður í gær vegna fráfalls
Davíðs.
í morgun fór fram minningar-
athöfn í Gagnfræðaskólanum. —
Skólastjórinn flutti minningar-
orð um skáldið, en nemendur
lutu síðan höfði litla stund í
djúpri þögn.
Þá var Davíðs Stefánssonar
minnzt í öllum efri bekkjum
Barnaskóla Akureyrar í dag. Tal-
að var við börnin um ævi hans
og störf og lesin kvæði eftir hann.
Hans var einnig minnzt við morg
unsöng í Oddeyrarskóla í morg-
un.
Framhald á síðu 27
Stóriðjan rædd á
Varðarfundi
ANNAÐ kvöld verður hald
inn fundur í Varðarfélag-
inu, þar sem fjallað verður
um efnið: Framtíð íslands
— Fjölþættari framleiðsla
— Orku- og iðjuver.
Fundur þessi verður með
nokkru nýju sniði. Iðnaðar
málaráðherra gerir ráð fyr
ir að framsaga hans taki
ekki nema 30 mínútur, en
síðan verður fyrirspurna-
tími, og mun þá iðnaðar-
málaráðherra og fulltrúar
úr Stóriðjunefnd svara fyr
irspurnum í klukkutíma
eða svo, en að lokum verða
frjálsar umræður og er
gert ráð fyrir að menn
flytji þar stuttar ræður,
5—10 mínútna.
Stóriðjan er mál mál-
anna í dag. Iðnvæðing Is-
lands er á næsta leiti, ef
menn hagnýta þau tæki-
færi sem bjóðast. Þess
vegna er ekki að efa, að
Sjálfstæðismenn muni fjöl
menna á Varðarfundinn
annað kvöld og kynna sér
þessi mál, jafnframt því
sem þeim gefst tækifæri til
að láta sjónarmið sín koma
í ljós.
Hér urðu tvö umferðarslys á laugardagskvöldið, bæði með samahætti og með aðeins tveggja klst.
millibili. Myndin er tekin örstuttu eftir síðara slysið. Sjá má hve Volkswagenbíllinn hefur
beyglast. Hanzkar konunnar liggja á 'milli bilanna. (Ljósm. MbL sv. Þ.).
Þrjú umferðar-
slys um helgina
— Þar af tvö alverlegs eðlis
SI. laugardagskvöld urðu tvö
umferðarslys með sama hætti á
mótum Miklubrautar og Eski-
hlíðar. Um kl. 21 varð maður fyr
ir bíl, en mun hafa sloppið til-
tölulega lítið meiddur. Tveimur
klst. síðar varð öldruð kona fyrir
bil á sama stað og slasaðist al-
varlega.
Fyrra slysið varð eins og fyrr
getur um kl. 21. þá var Guð-
m,und.ur E. Guömundsson, Álfta-
mýri 26, á leið leið norður yfir
Miklubraut en varð fyrir bíl,
sem kom austan Miklubraut, Guð
mundur meiddist eitthvað, þó
ekki alvarlega. Hann var fluttur
í slysavarðstofuna.
Um kl. 23 var kona á leið norð
ur yfir Miklubraut á sömu gatna
mótum. Heitir hún Símonía Jóns-
dóttir, Hverfisgötu 91, 78 ára
gömul. Varð hún fyrir Volkswag
enbíl á sama stað og Guðmundur
tveimur tímum áður. Símonía
hlaut mjaðmagrindarbrot, fót-
brot, áverka a höfði og mun
einnig hafa skaddast innvortis.
Mun hentni hafa liðið eftir at»
vikum í gær. Hún var flutt í
slysavarðstofuna en síðan á
Landspítalann.
Þriðja umferðerslysið um helg
ina varð um þrjúleytið í gærdag.
Þá ók vörubíll af Hverfisgötu
inn á Laugaveg fyrir ofan
Hlemmtorg, í veg fyrir 8 ára
dreng sem kom á hjóli niður
Laugaveginn. Lenti drengurinn,
Hörður Þórsson, á hlið vöru-
bílsins. Fékk liann mikið höfuð-
högg, skaddaðist í andliti og er
talinn höfuðkúbubrotinn. Hörður
var fluttur í slysavarðstöfuna og
síðan í Landakotsspítala.
björguðust
Kona og börn
fáklædd út
Eitt elzta hús á Dalvík brennur
DALVÍK, 2. marz. — Um kl. 9
í gærmorgun kom upp eldur i
húsinu nr. 9 við Grundargötu á
Dalvík, en það er eitt af elztu
húsunum hér á staðnum,
tveggja hæða múrhúðað timbur-
hús. Virðist eldurinn hafa átt
upptök á efri hæð hússins og
náði hann fljótt útbreiðslu. Eig-
andi hússins, Július Snorrason,
var á sjó, en kona hans Aðal-
björg Árnadóttir svaf á neðri
hæð með 3 börn þeirra hjóna.
Vaknaði h^n við reykjasvæilu
og björguðust hún og börnln
fáklædd út úr hinu brennandi
húsi.
Slökkvilið staðarins kom á
vettvang og tókst að slökkva eld
inn. Veður var stillt og auðveld-
aði það slökkvistarfið.
Öll innrétting hússins er gjör-
eyðilögð og einnig munu hús-
m-unir og fatnaður hafa skemmzt
mikið. Hús og innbú var vá-
tryggt. Þó er skaði hjónanna tví-
mælalaust mikill. Ekki er kunn-
ugt um upptök eldsins. — K. S.
Fulltrúar á þingi Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Margar ályktanir gerðar
á fjölmennu SUS-þingi
Árni Grétar Finnsson, kosinn formaður
samtakanna
SEVTJÁNDA þingi Samoands
ungra Sjálfstæóismanna lauk s.l.
sunnudag. Á þinginu var rætt um
mörg málefni og um þau gerð-
ar ályktanir. Meðal málefna,
sem ályktað var um voru utan-
ríkismál, húsnæðismál, menning
armál og ítarleg ályktun var gerð
um efnahagsmál. Á þingfundin-
um á sunnudag fór lram stjórn-
arkjör. Þór Vilhjálmsson, borgar
dómari, sem verið hefur formað
ur sambandsins í fjögur ár, baðst
undan endurkosningu og formað
ur var kjörinn Árni G. Finnsson,
hdl. Hafnarfirði.
Eins og áður he*’ur verið getið
hér í blaðinu, var þing S.U.S.
sett s.l. föstudag. Á laugardag
fyrir hádegi störfuðu nefndir
þingsins. Miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins bauð þingfulltrúum til
hádegisverðar á laugardag, en
eftir hádegi hófst almennur þing-
fu-ndur þar sem ræddar voru til-
lögu-r, sem hinar einstöiku nefnd-
ir höfðu gert um ályktanir þings
ins. Fundarstjóri á þeim fundi
var Stefán Jónsson Kagaðarhóli.
Fyrst voru teknar fyrir tillög-
ur allsherjarnefndar urn almenna
stjórnmálaályktun. Framsögumað
ur þeirrar nefndar var Árni G.
Finnsson, hdl. Því næst var tekið
fyrir álit skipulagsnefndar. Fram
sögumaður hennar var Birgi-r ísl.
Gunnarsson, hdl. Loks var tekið
fyrir álit menningarmálanefndar
og var framsögumaður hennar
Jóhann Kagnarsson, hdl.
Á sunnud. störfuðu nefndir
áfram eftir því sem ástæða var
til, en kl. 13 á sunnudag hó-fst
almennur þingfundur á ný. Fund
arstjóri var kjörinn Sverrir Her-
mannsson, Reykjavík. Fyrst var
tekið fyrir álit utanrífcismála-
nefndar og var framsögumaður
hennar Hörður Einarsson, stud
jur. Þá var tekið fyrir áli-t bús-
Fram-hald á síðu 27
Enn 3 Eyjn-
bótar í lnnd-
helgi
AÐFARANÓTT sunnudags
kom varðskip að Frigg VE
316 að veiðum um 0,9 sjómíl-
ur innan við fiskveiðimörk-
in undan Vík í Mýrdal. Var
skipstjórinn tekinn fyrir rétt
í Vestmannaeyjum og viður-
kenndi hann brot sitt. Frigg
var nýlega sýknuð af ákæru
um landhelgisbrot.
Aðfaranótt mánudags kom
sam-a varðskip að tveimur
öðrum Eyjabátum að togveið-
um á sömu slóðum. Það voru
Farsæll VE 12 og Björg VE 5.
Komu skipstjórar fyrir rétt í
Vestmannaeyjum í gær og við
urkenndu brot sín. Báðir þess
ir bátar voru teknir í land-
helgi í fyrra.
í gær hafði dómur ekki ver-
ið kveðinn upp. Eins bíða mál
þriggja annarra Eyjabáta
dómsuppkvaðningar.