Morgunblaðið - 08.03.1964, Síða 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Surinudagur 8. rrtarz 1964
75 ára
■ dag
Bjarni Snæbjörnsson læknir í
Hafnarfirði verður 75 ára í dag.
Hann er í dag staddur um borð
í Gullfosi á leið utan.
Forsætisráðherra
talar í Blaða-
mannaklúbbnum
BLAÐAMANNAKLÚBBURINN
verður á þriðjudagskvöld í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Bjarni
Benediktsson, forsætisráðherra,
mun þar tala við blaðamenn um
nafnbirtingar sakamanna og gang
réttarmála. Hefjast umræður kl.
9.30. Að venju verður blaða
mannaréttur framreiddur.
Lög um laun for-
r
seta Islands og
alþiiigismanna
o.fl.
A FUNDI ríkisráðs í Reykjavífk
í dag voru staðfest lagafrumvörp
um laun forseta íslands og al-
iþingismanna, svo og lög i»m
breyting á löguim nr. 43/1947, um
iinnlenda endurtryggingu, stríðs-
slysatryggingu skipshafna o. fl.
Enn fremur voru staðfestir ýms-
ir forsetaúrskurðir, sem gefnir
böfðu verið út utan rílkisráðs-
fumdar.
Rvík, 6. marz 1964
(Frétt frá ríkisráðsritara).
Hinn nýi slökkviliðsstjóri
Reykvíkinga, Valgarð Thor-
oddsen, verkfræðingur, tók
formlega við starfi í gær og
er myndin tekið við það tæki
færi í dyrum slökkvistöðvar-
innar. Frá vinstri: Gunnar
Sigurðsson, varaslökkviliðs-
stjóri, Kjartan Ólafsson, elzti
starfandi brunavörðurinn,
varð 69 ára í fyrradag, og
hinn nýi slökkviliðsstjóri, Val
garð Thoroddsen.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Brúðkaupið ef til vill ■ ár
Kaupmannahöfn, 7. marz.
(AP): —
Þriggja vikna sorg hefur verið
boðuð við dönsku hirðina vegna
andláts Páls Grikkjakonungs. Þá
hefur verið gefið í skyn að Anne
Marie prinsessa muni ef til vill
Stofnað fiskræktar- og
veiðifélag á Elliða-
vatnssvæðinu
ganga að eiga Konstantin kon-
ung á þessu ári, en áður var fyr
irhugað að brúðkaupið yrði hald
ið í Aþenu í janúar 1965. Fer það
eftir því hve lengi sorgarástand
á að ríkja í Grikklandi.
Talsmenn dönsku hirðarinnar
segja að ekkert verði ákveðið um
brúðkaupið fyrr en eftir að Páll
konungur hefur verið jarsettur
nk. fimmtudag. Anne-Marie er í
Aþenu hjá unnusta sínum, en
foreldrar hennar, Fririk Dana-
konungur og Ingrid drottning,
fara þangað til að vera viðstödd
útförina.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
■ð taka þátt í stofnun fiskirækt-
ar oig veiðifélags, er nái yfir
vatnasvæði Elliðavatns með
Vatnsendavatni Hólmsé upp að
fossi neðan við Selvatn og Suð-
urá í Nátthagavatn, enda taki
allir jarðeigendur á vatnasvæð-
inu þátt í féiagsstofnuninni.
Var Einari Sæmundssen, skóg
•rfræðingi og Hjörleifi Hjörleifs
ayni fjármálafuiltrúa Rafmagns
Hið vinsæla ævintýri um
Mjallhvíti og dvergana sjö er
ýnt við mikla hrifningu í Þjóð
leikhúsinu um þessar mundir.
Uppselt hefur verið á allar
sýningar og oft hafa margir
þurft frá að hverfa. Leikurinn
verður á næstunni sýndur
þrisvar sinnum í viku.
Myndin er af þrem dverg-
um úr sýningunni, þeim: Treg,
Stubb og Ljút
veitunnar, falið að fara með um
boð boryarinnar við stofnun fé-
lagsins, enda verði frumvarp að
samþykkt fyrir félagið lagt fyr-
ir borgarráð til staðfestingar.
Nokkurs glundroða hefur gætt
á undanförnum árum um veiði
á þessiu svæði, en auk bæjar-
ins munu 7 bæir eiga veiðirétt-
indi þar. Telja margir að fisk-
ur hafi minnkað á þessu vatna-
svæði, en með skipulagningu
geti það orðið gott veiðisvæði
fyrir stang@rveiði. Er ætlunin
að reyna að koma betra lagi á
þessi mál fyrir vorið með stofn-
un fiskiræktar og veiðifélags.
- Sundmót í Sund-
böll Hafnarf jarðar
HAFNARFIRÐI — í dag kl. 2.30
fer fram í Sundhöll Hafnarfjarð-
ar sundmeistaramótið og verður
keppt í 13 greinum. Meðal þátt-
takenda keppir sem gestir afit
bezta sundfólk landsins, svo sem
Guðmundur Gíslason, Hranfhild-
ur Guðmundsdóttir frá Rvík,
Davíð Valgarðsson frá Keflavík
og Ingunn Guðmundsdóttir frá
Selfossi, en hún er aðeins 12 ára
gömul og mjög efnileg sundkona.
Og ekki má gleyma Hafnfirð-
ingunum. Allt bezta sundfólk
bæjarins keppir, m. a. Ásta
Ágústsdóttir, Erling Georgsson
og Gestur Jónsson.
Þetta verður eitt fjölmennasta
sundmót, sem háð hefur verið
hér á landi eða um 70 þátttak-
endur.
Einnig verður háður sund-
knattleikur milli suður- og
vesturbæjar, og er það í fyrsta
skipti sem keppt er í þeirri grein
hér. En sem sagt, í dag má búast
við metaregni, íslandsmetum, í
Sundhöll Hafnarfjarðar og má
búast við að áhorfendur verði
margir. — G.E.
Þegar fregnin um lát Páls kon
ungs barst til Kaupmannahafnar
fyrirskipaði Friðrik konungur
fallbyssuskyttum flotans að
skjóta 63 viðhafnarskotum. —
Sendi Friðrik konungur síðan
samúðarkveðjur dönsku konungs
fjölskyldunnar til aðstandenda
Páls konung, en Jens Otto Krag,
forsætisráðherra, Per Hækkerup,
utanríkisráðherra og Gustav
Pedersen, forseti danska þings-
ins, sendu þingi og stjórn Grikk
lands samúðarkveðjur.
Á morgun fást
úrslitin í hand-
knattleiknum
í GÆR lék íslenzka landsliðið í
handknattleik gegn Svíum á
heimsmeistarakeppninni í Tékkó
slóvakíu. Á morgun, mánudag,
lýkur keppninni í riðlum og
halda þá 8 lið áfram keppninni
en 8 hverfa heim. Vegna þess
hve blaðið fer snemma í prentun
á laugardögum er ekki hægt að
skýra frá leiknum við Svía en
frásögn af báðum leikjunum
birtist á þriðjudag.
Hver er með sjó-
stakka í bí|
síínum?
í FYRRINÓTT ók leiguibílstjóri
úr Reykjavík tveimur hafnfirzk-
um sjómönnum um borð í ms.
Bjarna Jóhannesson. Sjómenn-
irnir gleymdu sjóstökkunum sín-
um, og er viðkomandi bílstjóri
beðinn að hafa samband við lög-
regluna í HafnarfirðL
Hvað á að gera
við börnin?
NÚ á dögum verða foreldrar að
horfast í augu við ný vandamál.
Foreldravaldinu er okki alltaf
beitt eins og áður fyrr. Börnin
losna undan eftirliti heimilanna
tiltölulega snemma. Sextán ára
gömul eru þau á bak og burt á
skellinöðrum sínuim og enginn
veit hvert né með hverjum. Þeim
lærist eitt og annað miður áikjós-
anlegt af kvikmyndum þeim og
skáldsögum sem mest eru í tízku.
Okkur er það ekki meira en svo
að skapi að viðunkenna það, en
oft og tíðum vita þau meira en
foreldrar þeirra. Vísindunum hef
ur fleygt svo fram, að eldri kyn-
slóðin á fullt í fangi með að
fylgjast með. Við lifum á þeim
tímum, ,.að liðþjálfinn veit meira
en liðsforinginn, af því sá fyrr-
nefndi var síðar í skóla“.
Við þessu vandamáli er til
meira en ein lausn. Foreldrar
geta lagt það á sig að kynna sér
nám og tómstundaiðju barna
sinna. Þetta er engan veginn
óframkvæmanlegt, og það myndi
margborga sig, með því að börn-
in fengju þá á ný áhuga á for-
eldrunum. Kostir þeir sem full-
þroska hugi hefur til að bera og
hagnýtt gildi reynslunnar ganga
ekiki úr sér. Ef þið hafið heil-
brigðan skilning á heiminum og
lífinu, ef þið getið miðlað öðrum
af því sem þið hafið lært á lífs-
brautinni, mun verða hlustað á
ykkur, þó svo það taki tíma að
fá hljóð. Það er ekki um það að
ræða að prédika (þau myndu
heldur ek/ki hlusta á ykkur),
heldur verðið þið að gefa þeim
fordæmi — virðingarvert for-
dæmi — vizku í verki. Þetta er
vel hægt. Mesti vandinn kemur
upp þegar velja á ævistarfið. í
sumurn fjölskyldum skýtur þetta
vandamál ekki einu sinni upp
kollinum. Faðirinn á kannske
bóndabæ, rekur smáverzlun eða
verkstæði. Sonurinn er honurn
til aðstoðar framan af og heldur
síðan einn þar sem faðirinn hætt-
ir.
Við fyrstu sýn kann þetta að
virðast einfalt mál. En reyndin
vill verða önnur. Það kemur æ
oftar fyrir, að syninum mis-
líkar starf föðurins eða sér sér
enga framtíð búna í því. Ævi-
skeið einstaklingsins er nú miklu
lengra en áður var. Ef foreldr-
arnir „halda sér“ vel (og því
skyldu þeir ekki gera það?) er
þá trúlegt, að ungu hjónin láti
sér vel líka, að vera tæplega
sjálfs sín ráðandi unz þau eru
komin um fertugt eða fimmtugt?
I sveitinni hefur þetta orðið
fleiri en einni tengdadótturinni
ásteytingarsteinn.
Sakir nýrra uppgötvana og
nýrra lífsvenja er framabrautin
önnur en áður var. í Frakklandi
(eins og í nær öllum öðrum
löndum,) eru ekki nógir verk-
fræðingar og iðnlærðir menn til
þess að fullnægja eftirspurninnu_
Þessvegna hneigljast ungir menn
að þessum störfum. En til þess
að vera vel hlutgengur — og
ganga vel — í þessum starfsgrein
um verða menn að hafa hlotið
raunvísindalega menntun. Börn-
in ökkar þarfnast fyrsta flokks
menntunar. Árið 1970 mun þriðj-
ungi frönsku þjóðarinnar ekki
nægja gagnfræðaskólamenntun
heldur mun þurfa háskólapróf.
Mörgurn fjölsikyldum kann að
þykja þetta ótrúlegt, en þessari
áskorun verður að mæta. Það
er um líf og dauða að tefla fyrir
þjóðina og fyrir æskuna.
Hvað stúlkunum viðkemur, er
vandinn sami. Þær gáfuðustu
geta nú gengið að sömu störfum
og mennirnir höfðu áður einka-
rétt á. Þær eru duglegir verk-
fræðingar, framúrskarandi kenn-
arar og standa sig með prýði í
læknisfræðinni. Aðrar leggja
heldur fyrir sig þau störf er þær
verða mönnunum til aðstoðar í,
og aðstoð þeirra er oft og tíðum
alveg ómetanleg. Þetta á við t.d.
um sumar aðstoðarstúlkur á rann
sóknarstofuim en einkuim og sér
í lagi á þetta þó við um einika-
ritarana. Þær síðarnefndu þekkja
eins vel inn á fyrirtækið og for-
stjórinn sjálfur (og stundum bet-
ur). Þær verða að vera öllum
hnútum kunnugar, til þess að
geta forðazt slcyssur, þær verða
að auðsýna staika háttvísi til þess
að leiðbeina vinnuveitenda sín-
um án þess að virðas+ gera það.
Síðast en ekki sízt, verða þær að
vinna verk sín skipulega og
af vandvirkni. Einkaritari sem
er öllum þessum kostum búinn
á framtíðina fyrir sér.
í stuttu máli sagt, séuim við að
hugsa um hamingju barna okkar,
verðum við að taka tiðarandann
með í reikninginn. Við verðum
að beina þeim inn á aðalibrautir
framtíðarinnar en ekk: að hliðar-
götum hennar. Hvort sem þau
hafa samþykkt að vinna fyrir
okkur á bænum eða búgarðinum
eða ekki, verðum við að muna,
að þau eiga rétt á að lifa sínu
eigin lífi. Við verðum að vera
minnug þess, að sá tími kemur
að við eigum að draga okkur i
hlé. Það er betra að hætta og
hljóta að launum ást og virð-
ingu en að vera of fastur í sessi
og eiga á hættu að vera álasað
fyrir það. Við verðum að gefa
börnum okkar tækifæri til þesa
að koma í okkar stað.“ „Donner
et retenir ne vaut“ segir fransik-
ur málsháttur, eða „Sú gjöf .er
lítils virði sem óheimilt er að
nota“.
KLUKKAN 5 í gærmorgun
var 1 stigs frost íLondon og
Osló; 4 stiga frost í Stokk-
hólmi og París; 5 stiga frost
í Kaupmannahöfn; 6 stiga
í Madrid; 2 stiga hiti í New
York, 5 stiga hiti í Washing-
ton. I Reykjavík var 6 stiga
hiti, og er það einnig meðal-
hiti fyrstu vikuna í marz.
frost í Brússel, um frostmark