Morgunblaðið - 08.03.1964, Side 8

Morgunblaðið - 08.03.1964, Side 8
8 MORGUNBLADIÐ Sunnudagur 8. marr 1964 Krabhameinsfélag Reykjavíkur 15 ára eftir Bjarna Bjarnason lækni, formann félagsins Það hefur löngum reynzt heilladrjúgt að leita til æskunnar og heita á hana til að ryðja mikilvægum málum braut. Mér er nær að halda, að ef hún lætur ekki þetta mál til sín taka, snýr dæm- inu við og gerist fyrirmynd þeirra sem ættu að vera fyrirmynd hennar, þá verði okkur ekki forðað frá reykingunum, sem nú hefur sannast að ógna lífi, heilsu og hamingju fjölda fólks um allan heim. Ég er því sannfærður um að krabbameinsfélögin eru á réttri leið, að beita áhrifum sínum, eins og þau gera nú með því að leita samvinnu við skóla landsins. Þam^j munu þau sinna mikilvægu hlutverki, ef vel og haglega er á vopnum hald- ið. (Úr ræðu formanns á aðalf. Krabbam. f. Rvk). KRABBAMEINSFÉLAG Reykja- vúkur er nú 15 ára. >ó aldur þess sé ekiki hár, er ekki úr vegi að rifja upp nokkur atriði úr sögu þess og starfsemi. Hátt á fjórða hundrað stofn- endur eru skráðir á fyrstu síður aðalfundagerðabókarinnar. Sá langi listi sýnir áhuga fólks fyrir stofnun félagsins og ekiki að ófyrirsynju. Landsmönnum var þá löngu orðið ljóst hversu óhugnanlegur, lævis og hættu- legur gestur hafði haldið innreið sína í landið með krabbamein- inu. Enginn veit hvenær það gkeði. Öldum og áratugum sam- an hefur það herjað byggðir þess. Það hefur gert strandhögg hjá háum sem lágum. Að vísu hefur það hlíft unga fólkinu að mestu, en ráðist að þeim sem orðnir eru við áldur og búnir að glata mesta lífsaflinu og við- námsþróttinum. Úr hópi þeirra velur það sínar fómir og fer ekki í manngreinarálit. Það leyndi sér ekki fyrir 15 árum, frekar en nú, að krabba- meinið var í stöðugri sókn. Margar raddir voru þá uppi um hversu geigvænleg hún væri og hver ráð væru fyrir hendi að skakka hinn ójafna leik þess við fólkið. Þá var það, að Alfreð Gísla- son læknir gekk fram fyrir skjöldu á almennum lækna- fundi, 13. okt. 1!H8, og ræddi nauðsyn þess að komið yrði á stofn félagi eða samtökum, sem befði baráttu gegn krabbameini á stefnuskrá sinni. Er hann hafði reifað málið, bar hann fram svohljóðandi tillögu: „Fundur í L. R., haldinn 13/10 ’48, telur nauðsyn bera til, að nú þegar verði hafizt handa um eflingu baráttunn- ar gegn krabbameini hér á landi, og vill að Læknafélag Reykjavíkur hafi forgöngu í því máli. Fyrir því samþy'kkir Prófessor Niels Dungal fyrsti formaður félagsins. hann, að skipuð sé 3ja manna nefnd til að athuga hverra endurbóta kunni helzt að vera þörf, til greiningar og með- ferðar þessa sjúkdóms. Enn- fremur skal nefndin athuga, hvort heppilegt væri að stofna tii samvinnu við atmenning, um myndun félagsskapar, sem með starfi og fjárframlögum styddi þá viðleitni er hér um ræðir“. Tillagan var allmikið rædd, rnjög vel tekið og samþykkt sam- hljóða. í nefndina voru kosnir 4 læknar, þeir: Alfreð Gíslason, Halldór Hansen, Ólafur Bjarna- son og Gísli Fr. Petersen. Starf nefndarinnar varð til, þess, að 1. febr. 1940, boðaði L. R. til undirbúningsfundar í Háskólanum, að stofnun félags, er skyldi hafa það mark og mið, að hefja markvissa baráttu við ikrabbameinið. Fréttabréf um heilbrigðismál Alfreð Gíslason, aðalhvatamaður að stofnun félagsins. minntist 10 ára afmælis Krabba- meinsfélags íslands í maí-júní blaðinu 1961. Þar eru að noklkru rakin undirbúnings og byrjunar- saga Krabbameinsfélags Reykja- víkur. Þar sem svo skammt er um liðið, er undirbúingisþátt- urinn ekki birtur hér, en vísað til afmælisritsins. Það voru for- ráðamenn Krabbameinsfélags Reykjavíkur, sem áttu hug- myndina að Krabbameinsfélagi íslands og stofnuðu það með þátttöku annárra krabbameins- félaga á landinu, sem þá voru tekin til starfa. Núverandi ritstjóri frétta- brétfsins, Baldur Johnsen læknir, kemst svo að orði í afmælisrit- inu: Saga Krabbameinsfélags íslands verður ekki skráð nema minnst sé brautryðjandastarfs Krabbameinsfélags Reykjavíkur, því innan vébanda þess var grund'völlur baráttunnar lagður. Nefndin, sem undirbjó stofn- un Krabbameinsfélags Reykja- víkur, var þannig skipuð. Próf. Níels Dungal formaður, Alfreð Gíslason læknir, Ólafur Bjarna- son dósent, Gísli Fr. Petersen yifirlækn., Katrín Thoroddsen læknir, frú Sigráður Magnússon, Sveinbjörn Jónsson hrl., Magnús Joohumsson póstmeist. og Gísli Sigurbjörnsson forstjóri. Er nefndin hafði lokið störfum sín- um, boðaði hún til fundar í I. kennslustofu Háskólans. Sá mannfjöldi, sem þar var saman- kiominn, sýndi að þarna var mál á döfinni, sem fólk vildi styrkja og veita brautargengi. Bjarni Bjarnason, læknir núverandi formaður félagsins. Próf. Niels Dnngal setti fund- inn og kvaddi Benedikt Sveins- son fv. alþingisforseta til fundar- stjórnar og Gísla Sigurbjörns- sonar til ritara. Er fundarstjóri hafði lýst fyrir fundarmönnum tilefni fundarins, gaf hann próf. Níels Dungal orðið. Prófessorinn skýrði frá því, að Læknafélag Reykjavíkur hefði fyrir nokkru skipað nefnd og boðað til fundar, er vinna skyldi að undirbúningi félags- samtaka til baráttu gegn krabba meini. Lýsir hann störfum nefnd- arinnar og lagði fram uppkast að lögum fyrir hið væntanlega félag. Fyrst var rætt um að stofna eitt félag fyrir allt land- ið, en fundurinn komst að þeirri niðurstöðu, að stofna skyldi krabbameinsfélög víðsvegar um landið, sem mynduðu með sér samband: Krabbameinsfélag ís- lands. Miklar umræður urðu um lögin. Langmest var deilt um nafngift félagsins. Sumir töldu hana óheppilsga og fráhrind- andi. Ýmsar tillögur komu fram Húseign Krabbameinsfélaganna að Suðurgötu 22. um önnur nöfn, svo sem Krabba vörn og Krabbameinsvörn. Nöfn þessi voru þó feild af yfir- gnæfandi meirihluta fundar- manna, en nafngift undirbúnings nefndarinnar: Krabbameinsfélag Reykjavíkur, samþykkt af öllum þorra þeirra. Stofendur félags- ins eru skráðir: 396. Fyrsta stjórn Krabbameins- félag Reykjavíkur var þannig skipuð: Formaður: próf. Níels Dungal, varaformaður: Alfreð Gíslason læknir, ritari: Gísli Fr. Petersen yfirlæknir, gjaldkeri: Gísli Sig- urbjörnsson forstj. Meðstjórn- endur: Magnús Jochumsson póst- fulltrúi, frú Sigríður Magnússon, Sveinbjörn Jónsson hrl. og Kat- rín Thoroddsen læknir. Vara- stjórn: Frú Sigríður Eiríksdótt- ir, Jóhann Sæmundsson pró- fessor og Þorsteinn Soheving Thorsteinsson lyfsali. Þegar á stofnfundinum barst félaginu rausnarleg gjöf frá Félagi vefnaðarvörukaupmanna: 15 þúsund krónur í peningum. Fyrsti aðalfundur K. R. var haldinn 28. marz 1950. Starf- semi félagsins á fyrsta starfs- árinu varð mikil og fjölþætt. Á fyrsta fundi félagsins var kosin fjáröflunarnefnd, er jafn- an hefur verið starfandj innan stjórnarinnar síðan. Þá varð einn ig skipuð framkvæmdanefnd, er skyldi sjá um fræðslustanf- semi fyrir almenning. Merkustu viðfangsefnj fyrsta ársins. Gefinn út bæklingur um fyrstu eimkenni krabbameins. Hafin útgáfa fréttablaðs um varnir gegn krabbameini og ýms heilbrigðismál. Fjögur fræðsluerindi um krabbamein í útvarpið. Nýr fræðslubælklingur eftir prófessor Niels Duiigul. Með aðstoð landlæknis hlut- aðist félagið til um að samn- ingar komust á milli Rann- sóknarstofu Háskólans annars- vegar og Tryggingast. ríkisina og Sj úkrasamlags Reykjavíkur hinsvegar, um framkvæmd vefj* rannsókna til krabbameinsgrein- ingar, læknum og sjúklingum að kostnaðarlausu. Gert var félagsmerki. Þórarinn Sveinsson laéknir var ráðinn til að annast skrán- ingu krabbameinssjúiklinga. ísland gerðist aðili að alþjóða krabbameinsrannsóknum. Heilhr. málaráðherra skipaði próf. Níels Dungal sem fulltrúa íslands 1 þeir*. Gísli Fr. Petersen var falið að annast fyrirgreiðslu krabba- meinssjúklinga utan af landi, sem þurfa að leita sér lækninga í Reykjavík. Pélagið bauð röntgendeild Landspítalans nýtísku röntgen- tæki að gjöf, til aukins öryggia á geislalækningum. Gunnar Thorarensen var ráð- inn framkvæmdastjóri Krabba- meinsfél. Reykjavíikur. Hvatt var til félagsstofnana utan Reykjavíkur. Stofnug voru krabbameinsfélög í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum, en á ísa- firði var stofnaður krabbameins- sjóður. Krabbameinsfélag íslands stofnað Á aðalfundi K. R. 1951 var rætt um stofnun samibands ísL krabbameinsfélaga. í lok aðal- fundarins flutti Alfreð Giísla- son eftirfarandi tillögu: „Aðalfundur Krabbameins- féíags Reykjavíkur, haldmn 8. marz 1951 felur stjórn félagsins að undirbúa stofn- un sam'bands ísl. krabbameina félaga, og kveðja til fram- haldsaðalfundar að þeim undirbúningi loknum“. 27. júní 1951 var svo Krabba- meinsfélag íslands stofnað. Próf. Níels Dungal var kosinn for- maður Krabbameinsfélags ís- lands og lét um leið af stjóm Krabbameinsfélags Reykjayíkur. Störf stjórnarinnar undir for- mennsku hans einkenndust af framtaki og djörfung. Þannig 'hefur hann verið og er, djarfur og framtaikssamur forustumaður í stjórn Kratíbameinsfélags lands. Með stofnun K. í. urðu miikil þáttasikil í aðstöðu og starfsemi K. R. Það var nú orðið deild f Krabbameinsfél. ísl. og mikið af viðfangsefnum þeim, sem það hafði heigað krafta sína, féllu nú í hlut K. í. Hér eftir átti það að vera aðalhlutverk þess, eina og annarra deilda K. í., að afla fjár til að kosta starfsemi þes3. Framkvæmdir Kxalbbameinsfél- ags íslands hafa fraan á síðustu ár að langmestu byggst á fram- lögum frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, eins og skiljanlegt er. Það er lang fjölmennasta krabbameinsfélags landsins og vegna aðseturs síns í höfuðstaðn um hefur það algera sérsböðu til fjáröflunar. Fræðslustarf Krabbameinsfélags Reykjavíkur Þegar farið er í gegnum ára. skýrslur K. R. ketnur í ljós að það befur látið ýms önnur nxái, Fcamh. á bls. IX

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.