Morgunblaðið - 22.03.1964, Side 1
32 siður og Lesbók ^
Særöum
flugmanni
sleppt
Berlín, 21. marz (AP)
Sovézk yfirvöld létu í dag
lausan einn flugmannanna
þriggja, sem voru með
bandarísku flugvélinni RB-
S6, er skotin var niður yfir
Austur-Þýzkalandi fyrir
rúmri viku. Er það Harold
Welch, en hann hefur leg-
ið í rússnesku hersjúkra-
húsi í Magdeburg vegna
meiðsla, sem hann hlaut,
er hann lenti í fallhlíf eftir
að flugvélin var skotin nið-
ur. —
f>að var talsmaður Vestur-
veldanna í V-Berlín, sem
skýrði frá þessu í dag og sagði
hann, að Welch hefði verið
fluttur til V-Berlínar í kvöld.
Einn lækna bandaríska flug
hersins hefur þrisvar sinnum
fengið að heimsækja Welch
Framhald á 2. síðu.
Gordon Cooper rétt áður en
lagði upp í geimferðina 15.
mai í fyrra.
Óe/rð/r Múhameðstrúarmanna og Hindúa \ Indlandi:
64 létu lífíð í gær
Nýju Dehli, Jamshedpurv,
21. marz (NTB-AP)
A Ð minnsta kosti 64 menn
létu lífið í óeirðum milli
Hindúa og Múhameðstrúar-
manna í Indlandi. Óeirðirnar
brutust út á nokkrum stöðum
í landinu og víða skarst her-
inn í leikinn til þess að koma
í veg fyrir frekari blóðsút-
hellingar.
í vikunni hafa óeirðir geis-
að víða í landinu. í iðnaðar-
borginni Jamshedpurv í Bit-
har-héraði hafa 30 menn fall-
ið frá því á sunnudag. — Ut-
göngubann hefur verið fyrir-
skipað í borginni.
í stáliðnaðarborginni Rour-
kela létust 28 menn í gær, er
trúarflokkum tveimur lenti sam
an og 59 særðust. óeirðirnar í
Rourkela hófust, er Múhameðs-
trúarmenn réðust á verkamenn,
sem voru að koma frá vinnu
sinni í verksmiðju einni i borg-
inni. Verkamennirnir voru flest-
ir Hindúar, en Múhameðstrúar-
mennirnir meðal þeirra snerust
í lið með árásarmönnunum. Börð
ust flokkarnir tveir af hörku
með áðurgreindum afleiðingum
þar til herlið kom á vettvang.
Urðu hermennirnir að beita skot
vopnum til að dreifa mannfjöld-
anum. 150 menn 'voru handtekn-
ir.
MIKII, veðurbliða hefur
verið undafarna daga og hef-
ur fólk notið þess í rikum
mæli. En það eru fleiri en
mannfólkið', sem grípa tæki-
færið til að fá sér göngutúr
ÓI. K. M. tók þessa mynd af
valinkunnum borgurum á
göngutúr í Hljómskálagarðin
um í gærdag.
/
U THANT í GENF
New York, 21. marz (NTB)
U Thant, framkvæmdastjó'ri
SÞ, og 123 menn aðrir úr
framkvæmdaráði samtakanna
fóru í gær flugleiðis til Genf-
ar. Þar munu þeir sitja ráð-
stefnu á vegum SÞ um verzl-
un og viðskipti. Setur U
Thant ráðstefnuna á mánudag
en heldur síðan heimleiðis til
New York á þriðjudag.
Upplýsingar bandarisks ofursta:
Cooper var mjög hœtt
kominn eftir geimferðina
„Bróðir" Bormans
segir hann á lífi
Leit hafin / Dourados / Brasiliu
• Bandariskur ofursti, Charl
es W. Upp, skýrði frá því fyr
ir skömmu, að geimfarinn
bandariski, Gordon Cooper,
sem i maí í fyrra fór 22 hringi
umhverfis jörðu, hefði verið
nær dauða en lífi eftir ferð-
ina.
í fyrirlestri þessum, sem
Upp hélt við Michigan State
University, Sagði hann, að
Cooper hefði misst svo mik-
inn vökva úr líkamanum, að
hann hefði létzt um 3!4 kg. í
ferðinni. Hefði hann verið á
lofti nokkrum klukkustund-
um lengur við sömu aðstæður
hefði ástand hans getað orð
ið mjög alvarlegt.
Geimfarinn hafði verið ný-
búinn út með alls kyns frost
þurrkað góðmeti, sem hann
átti að bleyta upp. En það fór
einhvernveginn í handaskol-
um hjá honum. Framan af
var hann svo upptekinn af
ferðalaginu, að hann gleymdi
að drekka. í 17. umferð bil-
aði svo sjálfstýrða lendingar
kerfið og ákvað Cooper þá að
spara vatn eins og hann gæti,
— enda hafði hann gleymt að
setja í samband mæli, er sýna
átti vatnsmagn í geiminum og
vissi því ekki hvað hann átti
eftir.
í geimfarinu var hinsvegar
í sambandi mælir, er sýndi
magn koldioxyðs í lofti geim
farsins og af honum las Coop
er heldur óhugnanlegar upp-
lýsingar. Tæki, sem áttu að
hreinsa koldioxið úr loftinu
voru ætluð til 40 klst. notk-
unar, en voru í gangi í 43 klst.
því að það hafði gleymzt, að
Cooper var í fimm klst. í gei-m
farinu daginn áður en hann
fór í geimferðina — en ferð-
inni var þá frestað vegna
slæmra veðurskilyrða.
Útbúnaður geimbúningsins,
sem átti að eyða svita starf-
aði ekki rétt og var Cooper
rennandi sveittur inni í bún-
ingnum, er hann var klædd-
ur úr honum. Hefði slíkt get
að haft alvarlega afleiðingar
á lengri ferð, að því er Upp
sagði.
Ýmsu öðru taldi Charles
Upp hafa verið ábótavant,
einkum í gerð búningsins og
taldi hann, að miða yrði að
því í framtíðinni að búa klefa
geimfarans svo örugglega, að
geimfarinn geti setið þar á
léttri skyrtu og athafnað sig
að vild.
Sao Paulo 21. marz (NTB-AP).
LÖGREGLAN I Brasilíu hefur
nú byrjað umfangsmikla leit, að
nvanni, sem talið er að sé Martin
Bormann, einn nánasti samstarfs
maður Hitlers.
Ástæðan til þess að leit er
hafin að Bormann er sú, að fyrir
nokkrum dögum kom maður, sem
kvaðst vera bróðir Bormanns til
lögreglunnar í Sao Paulo. Sagði
hann, að Bormaijn hefðist nú við
í Dourados-héraði í Brasilíu og
gengi undir nafninu Engel. Ric-
hard Bormann er nú á lögreglu-
stöðinni í Sao Paulo, þar sem
'hann hefur verið yfinheyrður. 1
gærkvöldi var framburður hans
pnófaður með lygamæli og
skömmu síðar sendi lögreglan í
Sao Paulo eftirfarandi tilskipun
til lögreglunnar í Dourados:
„Finnið Þjóðverja, sem kallar sig
Engel og er á aldur við Bor-
mann. Handtakið manninn."
Talsmaður lögreglunnar í Sao
Paulo sagði í morgun, að lög-
reglan teldi sjálfsagt að ranrt-
saka máið, þótt hún væri van-
trúuð á að Bonmann væri á lífi.
Frá Vestur-Þýzkalandi hafa
borizt þær fregnir, að ekki sé
vitað til þess að Bormann hafi
átt bróður, sem héti Riohard.
Eini bróðirinn, sem vitað væri að
hann hafi átt héti Albert og
byggi með fjölskyldu sinni við
Icking nálægt Múnehen.
Eftir að fregnir bárust um að
leit væri hafin að Bormann í
Dourados sagði talsmaður vestur-
þýzka utanríkisráðuneytisins, að
finndist Martin Bormann myndi
vestur-þýzka stjórnin gera allt
sem í hennar valdi stæði til þess
að fá hann framseldan.