Morgunblaðið - 22.03.1964, Side 2

Morgunblaðið - 22.03.1964, Side 2
MQRGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. marz 1964 Óð/nn finnur grynn ingor v/ð Surtsey YFIRMENN varðskipsins Óðins hafa tekið eftir því að undanförnu þegar skipið hef- ur siglt að austanverðu við Surtsey, þ.e. milli Surtseyjar og Geirfuglaskers, að dýptar mælirinn, sem hafður er í gangi þegar siglt var við gos- stöðvarnar, hefur sýnt að að- eins er um 30 metrar í botn þar sem dýpið á að vera yfir 100 metrar. Eina skýringin, sem varðskips mönnum hefur dottið í hug, er sú, að barna hafi orðið neð ansjávargos. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að þess- ar nýju grynningar eru ekki á því svæði þar sem nýju gos- stöðvarnar við Surtsey komu upp rétt fyrir áramótin. Virðist sem hryggur hafi hlaðizt þarna upp, en ná- kvæmari mælinga er þörf til þess að fá ítarlegri mynd af fyrirbrigðinu. Atvinnu og verkalýðsmál rædd á Óðinsfundi ATVINNU- og verkalýðsmál voru rædd á almennum félags- fundi í Málfundarfélaginu Óðni í fyrrakvöld. Framsögumaður á fundinum var Gunnar Helgason, form. Verkalýðsráðs Sjálfstæðis flokksins. Taiaði hann fyrst al- mennt um þróun verkalýðsmála hér á landi undanfarin ár og vék síðan sérstaklega að kaupgjalds- og verðlagsmálum. Benti hann m.a. á, að það kapphlaup sem verið hefur í áratugi milli kaup- gjalds- og verðlags væri engum til góðs og dýrtíðin kæmi jafn- an harðast niður á þeim, sem verzt eru settir í þjóðfélaginu Einnig ræddi frummælandi sér- staklega horfur í atvinnumálum og lagði áherslu á að auka þyrfti fjölbreytni í atvinnurekstri og væri stóriðja sú. sem ríkisstjóm in væri nú með í undirbúningi stærsta sporið sem stigið hefði verið hingað til í þá átt. Að lokinni ræðu frummæl- anda voru frjálsar umræður og tóku þessir til máls: Friðleifur I. Friðriksson, Sigurjón Bjarna- son, Guðjón Hannesson, Stefán Þ. Gunnlaugsson, Halldór Briem Tryggvi Halldórsson, Haraldur Sumarliðason, Einar Jónsson, Þorsteinn Kristjánsson, Bjarni Guðbrandsson og Guðm. Berg- mann Björnsson. Að síðustu svaraði frummælandi framkom- num fyrirspurnum. A fundin- um ríkti mikill áhugi á því, að leysa þyrfti efnahagsmálin á raunhæfan hátt og að launþega- samtökin tækju þátt í því starfi til hagsbóta fyrii meðlimi sína. Notiö fluor tannkrem BEZTA leiðin til lausnar á hinu mikla vandamáli, sem tann- skemmdirnar eru hjá menningar þjóðum í dag, er meiri notkun fluors. Bezt er að setja það í drykkijar- vatnið, eins og mjög víða er nú farið að gera, enda hefur það ekki sýnt neinar aukaverkanir á þeim stöðum, þar sem fluorvatns, I NA /5 h nútar i SV 50 knúísr X Sn/Huna > 'J'ii \7 Skúrir S Þrumur ■///// Rtgn\KMmkH H Hm» HituhH L LetL í gærmorgun var veðurlýs- inin í síma Veðurstofunnar, 17000, þannig: „Klukkan 8 var NA-kaldi og víða él á Austfjörðum, en í öðrum landshlutum var létt skýjað. Út við sjóinn var'eins tii 4ra stiga hiti, en frost í innsveitum, mest 4 stig á Stað arhóli í Aðaldal. í Reykjavík varð eins stigs frost í nótt“. Lægðin yfir Grænlandshafi hreyfðist lítið, en komist hún austur fyrir landið fylgir í kjölfar hennar snjókomu- beltið, sem er á norðvestur hluta Grænlandshafi. með réttum styrkleika, hefur verið neytt um aldaraðir. Nú neyta t. d. um 50 milljónir Banda ríkjamanna drykkjarvatns með fluor eða rúmlega fjórði hver íbúi, og alltaf bætast fleiri við. Vafalaust er það bezta gjöf sem bæjarsjóður getur gefið æsku Reykjavíkur að setja nú þegar fluor í drykkjarvatnið, sér- staklega þegar tekið er tillit til þess öngþveitis, sem ríkir hér um eftirlit og viðgerðir tanna skóla- barna. En fræðslunefnd Tannlækna- félags íslands vill benda fólki á að nota tannkrem sem inniheldur fluor, á meðan beðið er eftir drykkjarvatninu með fluor. Fræðslunefnd Tannlæknafélags íslands. AKRANESLÖGREGLAN tók í gær varnarliðsmann drukkinn við akstur. Var bíllinn stöðvaður í Hvalfirði og var þá annar varn- arliðsmaður með í bílnum, en þeir höfðu verið nóttina áður á hótelinu á Akranesi ásamt þeim þriðja og einni stúlku. Kambódía vill fund í Öryggisráðinu. Sakar LSA og S-Víetnam um árás Phnompenh, 21. marz. (NTB-AP) S T J Ó R N Kambódíu hefur sent U Thant, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, orðsendingu þar sem þess er krafizt, að Öryggisráðið ræði þegar í stað mótmæli Kam- bódíu gegn Bandaríkjunum og S-Vietnam vegna árásar á þorpið Chantera. Árásin á Chantera var gerð sl. miðvikudag. Hafa Bandaríkja- menn sent samúðarkveðjur vegna þeirra, sem létust í árásinni, en þeir voru 17 og einnig lofað að rannsaka hvort bandarískir her- menn hafi tekið þátt í henni. Stjórn S-Vietnam heldur því hins vegar fram, að Chantera sé innan landamæra ríkisins og | komi því stjórn Kambódíu ekki I við. Hafi árásin á þorpið verið gerð vegna þess að þar hafi skæruliðar Viet Cong búið um sig. Sihanouk prins, forsætisráð- herra Kambódíu, hefur skrifað Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, og de Gaulle, Frakk- landsforseta, bréf, þar sem hann biður þá að reyna að hafa áhrif á Bandaríkjamenn þannig að þeir fallist á f ð boðaður verði fundur í Genf til þess að tryggja hlut- leysi Kambódíu. ■>—— Grænlandsjökii Þessa mynd tók Dani nokkur, Aagaard að nafni, úr flugvél- inni Straumfaxa, af Max Con- rad og flugvél hans á ísnum, skömmu eftir að Þorsteinn Jónsson, flugstjóri, kom auga á Conrad á ísbreiðunni. Con- rad Ienti magalendingu á ísn- um og sést farið í ísnum, kannski vegna olíulekans. — Þorsteinn Jónsson, sem sendi Morgunblaðinu mynd þessa, segir í meðfylgjandi bréfi, skrifuðu morguninn eftir björgunina, að Conrad sé þeg- ar farinn að ráðgera að lenda við hlið flugvélar sinnar á annarri flugvél með skíðaút- búnaði, skipta um mótor og reyna flugtak af ísnum. ísland vann Finnland ÍSLAND vann Finnland í norrænu handknattleiks- keppni unglinga með 11 mörkum gegn 10. Leikurinn var jafn og tvísýnn allan tím ann og það var ekki fyrr en á síðustu mínútu að sigur ís- lands vannst. Hermann skor- aði 5 mörk í leiknum og Gylfi 3 en annars var leikur ísl. liðsins ekki eins og þeir geta bezt. í síðari leik íslendinga í dag náðu íslendingar miklu betri leik gegn Svíum sem eru lang sterkastir. hálfleik stóð 9—7 fyrir Svía, en leik lauk með 18—10 fyrir Svía. Þetta var mjög góður leikur sagði Axel Einarsson fararstjóri í símtali í gær. Önnur úrslit urðu: SVíþpóð — Noregur 14—10 Danmörk — Finnland 21—15 l Noregur — Danmörk 16—15 —Flugmanni sleppt Framhald af bls. 1. frá því að hann særðizt. Lækn irinn krafðist þess af yfir- völdum sjúkrah/ússins, að þau leyfðu honum að fara með sjúklinginn til V-Berlín ar, en þau neituðu samkvæmt fyrirmælum, sem þeim höfðu verið gefin. Nú hefur Sovét- stjórnin hins vegar skipt um skoðun hvað Welch viðkem- ur, en ekki er enn vitað hvar félagar hans tveir, David L Holland og Mervin J. Kessler, eru niður komnir. Olav Klokk látinn A MÁNUDAGINN verður til moldar borinn Olav Klokk, fyrr- um ritari Landbúnaðarháskólans að Ási í Noregi. Með honum er fallinn í valinn sannur íslands- vinur, sem ávallt gerði allt, sem í hans valdi stóð til þess að greiða götu íslendinga í Noregi. Hann var fæddur 3. september, 1885, og ólst upp í Vestur-Noregi, þar sem faðir hans var skóla- stjóri landbúnaðarskólans á Stend. Hann lauk kandidats- prófi frá Landbúnaðarháskólan- um 1907, og næsta áratuginn starfaði hann sem ráðunautur. Árið 1918 varð hann ritari Land- búnaðarháskólans og gegndi því starfi þar til að hann lét af starfi fyrir aldurssakir árið 1953. Á þessum 35 árum innti hann frá- bært starf af höndum fyrir Land- búnaðarhóskólann, en ekki skal það rakið rér. A Stend kynntist hann ungur Sigurði Sigurðssyni, síðar bún- aöarmálastjóra, og hélst sú vin- átta alla tíð síðan, og varð það upphaf áhuga hans á íslandi og öllu því, sem íslenzkt var. Hann kom tvívegis til íslands og kynnt ist landsháttum hér betur en flestir útlendingar. Hann reit alla tíð mikið um íslenzk búnað- armál, einkum um búfé og hag- fræðileg efni, og einnig flutti hana marga fyrirlestra um ís- land. Islenzku las hann prýðilega og fylgdist með íslenzkum blöð- um til hins síðasta. Hann tók virkan þátt í félags- lífi Islendinga fyrr á árum, en einkum þó á stríðsárunum, en þá tók hann mjög ákveðna af- stöðu gegn nasistum, og varð sú festa hans mikill stuðningur fyrir íslendinga, er þá voru við nám í Noregi. Heimili þeirra hjóna var alltaf opið öllum ís- lendingum, sem nutu þar ein- stakrar gestrisni. Það voru ekki einungis fastir námsmenn þar, sem nutu fyrirgreiðslu hans í Noregi, heldur flestir þeirra, sem um Noreg ferðuðust til þess að kynna sér norskan landbúnað. Má geta þess að í hvert skipti er framhaldsdeild búnaðarskól- ans á Hvanneyri ferðaðist um Noreg, þá naut hún .mikillar fyrirgreiðslu hans. Fyrir störf sín í þágu íslenzkra málefna hlaut hann riddarakross hinnar íslenzku Fálkaorðu. Um leið og ég votta konu hans og börnum innilegustu samúð vina hans á íslandi, vil ég færa honum, hinztu þakkir fyrir allt, sem hann gerði fyrir okkur ís- lendingana, sem urðum á vegi hans á lífsleiðinni. Blesuð sé minning hans. Haukur Kagnarssou.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.