Morgunblaðið - 22.03.1964, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 22.03.1964, Qupperneq 3
Sunnudagur 22. marz 1964 M 0 RC U N B L AÐ I Ð Séð heim afi Sauruiu „Við skulum ekki hafa hátt“ Sr. Eirikur J. Eiriksson: Allir senn hon- um flýðu frá FLESTUM ber saman um, að draugum hafi fækkað mikið í seinni tíð. Hins vegar eru ekki allir á eitt sáttir um orsök þeirr- ar fækkunar. Sumir kenna nana raflýsingunni, aðrir hlýrra veður fari en áður fyrr, enn aðrir geisl unum frá kjarnorkusprengjum og telja að draugar þoli hana mun verr en menskir menn, þar sem þeir séu ekki gaeddir jafn- þéttuim efnisihjúpi. En staðreynd mun þó það, að draugum var farið að fækka verulega, áður en menn hófu kjarnorkusprenging- ar, og gæti það rýrt gildi síðast töldu kenningarinnar. Hinir dularfullu atburðir á Saurum, sem enn hafa ekki verið skýrðir á viðhlítandi hátt vekja mann til umihugsunar um reim- leika fyrri ára, á velmektardög- um drauganna hér á landi. Sem betur fer eru til svo margar skráð ar heimildir um drauga, að þótt menn innan við miðjan aldur ihafi lítið átt saman við þá að sælda, þá geta þeir kynnt sér hið margvíslega hátterni þeirra með lestri fræðibóka. Segja má, að þar sé um allauðugan garð að gresja. Verður hér á eftir gefið lítið sýnishorn af reimleikum, sem hafa orðið mönnum sérstak- lega minnisstæðir: Hjaltastaðafjandinn. Arið 1750 hófst upp magnaður draugur á prestsetrinu Hjaltastað í Útmannasveit. Hann hélt oft uppi samræðum við fólk, jafn- vel um bjartan dag, en þótti Iheldur óheflaður í orðum, svo við hélt klúrleika. Hans sýslumaður Wíum, hefur gefið nokikra lýsingu á Hjalta- 6taðafjandanum svonefnda í eendiíbréfi, sem varðveitzt hefur. I>ar segir sýslumaður m.a.: „Hjaltastaðafjandinn lét sig heyra nógu skorinorðan í vetur, jafnvel þótt enginn sæi hann. Ég hafði þá vanæru ásamt öðr- um að heyra hann loquentem uærri tvö dægur á hverjum hann ávarpaði mig og prestinn séra Grím þeim orðum, hverjum lík ei hefur auga séð og ekki eyra Iheyrt. Það fyrsta við komum þar á hlaðið kom upp í dyrunum svo látandi ferrea vox: „So nú er Hans á Eiðum kominn, bölvaður beinasninn og vill tala við mig“. Sá titill hans hjá öðrum mér gefnum mátti álítast sem lauda- biiis hjá haud contemendo . . . Nær ég spurði svo, að hver mig Blikum Orðum ávarpaði svaraði Ihann voce feroci: „Ég hét í fyrstu Lúsifer, en nú heiti ég djöfull og endstooti". Hann fleygði að okikur bæði grjóti og steinum og trjám og Jíka öðru, braut glugga tvo úr etofu prestsins. Hann talaði svo nær okkur, að við vissum ei bet- wr en hann væri rétt við hliðina é okkur. Kerling var þar ein að nafni Opia hverja hann kallaði konu sína og „himneska blessaða Bálarlóm", bað og séra Grím að eorpulera þau með fleiri að lút- andi circumstantiis, er ég ei muna vil. Iðulega bað þessi fjandi kerl- inguna um það að mega hátta 'hjá henni et quae praeterea puiblica verba juvant .... Ég spurði þennan karl hvort guð væri góður. Hann sagði já. Hvort hann væri sannorður. — Hann svaraði: „Það er ekki að tvíla eitt hans orð......“ Bréfinu lýkur sýslumaður svo: Þessi óvinur kom sem fjandi, fór burt eins á sig kominn og hagaði sér meðan hann var sem fjandi og engum r.ema fjandan- um hæfir að útskýra það allt með orðum er hann rausaði. Samt er ekki því að leyna að ég þykist ekki yfirtoevísaður að öllum um það að þetta hafi andi verið Guðmudur bóndi á Saurum hverjar mínar passioner ég fæ þó ekki hér til fært vegna tímans óhentisemi". Merkilegar eru þær efasemd- ir, sem koma fram hjó sýslu- manni eftir að hafa þó átt inn- virðulegar viðræður við draugsa meðal annars um trúmál. Bréfið verður að teljast ennþá merki- legra heimildargagn fyrir þá sök, því það sýnir varfærni sýslu manns að fullyrða ekki meira en öruggt má teljast. Hjaltastaðafjandinn mun hafa dregið sig í hlé eftir tiltölulega skamman tíma. Skálabrandur Draugur sá er kenndur við Skála á Berufjarðarströnd. Ekki eru sagnir samihljóða um upp- runa hans. Hermir ein sögnin, að hann hafi í lifanda iífi verið kokk ur á hollenzkri skútu, skipið hafi farizt, en hann verið magnaður hálfvolgur og sendur að Skála af kunnóttumanni. Var það í hefnd- ar skyni fyrir skammavísu. Brandur gerðist brátt allum- svifamikill og fylgdi Skólamönn- um, þá þeir brugðu sér bæjarleið, án þess þó að yfirgefa heimilið á meðan, að því er bezt verður séð. Brandi var bæði laus höndin svo hann gat verið hættulegur mö-nnum, jafnvel þótt hraust- menni væru, en var auk þess næsta fjölhæfur á óknytti m. a. gerðist hann eitt sinn hjónadjöf- ull eða gerði a.m.k. heiðarlegar tilraunir í þá átt. Halldóra hét stúlka af ætt þeirri er Brandur fylgdi. Giftist hún Einari Þorvarðssyni fró Núpi Hófu þau búskap á bænum Stræti yzt á Berufjarðarströnd. Um þetta segir svo nánar í þjóð- sögum Sigfúsar Sigfússonar: „Eigi höfðu þau hjón lengi saman verið, þegar menn sögðu, að Brandur gerðist þar hjóna- djöfull. Unnust þau heitt í fyrstu, en kom brátt upp ósamlyndi. Jafnaðarlega sóst Brandur hossa sér þar í efstu stigarimunum í rökkrum, og óróuðust hjónin og fóru að þræta .... Einu sinni gekk Þorvarður frá Núpi út að Stræti að hitta son sinn. Þorvarður gekk inn. En þeg ar hann lyftir uppgöngulokinu, sér hann Brand sitja tvovega á skammbita baðstofunnar, þá á stærð við tólf ára §trák. Hjónin voru í innra enda baðstofu og þráttuðu. Stóð hurð opin. Þor- varður sló eigi lokinu alveg upp og athugaði allt vel. Þá var Brandur með stóran barðahatt og slúttu börðin niður að framan, í mólitri mussu og mórauðri prjónabrók. Sögðu menn þetta hversdagstoúning hans. Þarna hossaði hann sér og ýskraði ill- girnislega af kæti, því meira sem hærra lét í hjónunum. Voru þetta sögð mörg dæmi í ætt þeirri. Þorvarður reiddist og stekkur harkalega upp á loftið. Hvarf þá Brandur í rifu eftir fjöl sem losn- að hafði úr og ofan undir loftið. Og jafn fljótt hættu hjónin að þrátta ......“ Eigi tókst Brandi að koma í kring hjónaskilnaði þarna, að getið sé, hafi sú verið ætlun hans. Talið er, að Skálabrandur sé nú mjög til húðar genginn og ekki nema svipur hjá sjón miðað við það, sem áður var. Þó mun enn vera geigur við hann meðal eldra fólks á Berufjarðarströnd, eða var það til skamms tíma. Krossaði sumt gamalt fólk sig og bað fyrir sér, þegar minnzt var á hann. Reimleikarnir í Þistilfirði 1913 Ýmsa eldri menn mun enn reka minni til reimleikanna í Hvammi í Þistilfirði 1913. Um þá hefur Benjamín Sigvaldsson, fræðimaður, skrifað fróðlegan bækling. Það var fyrri hluta vetrar 1912, sem fyrst fór að bera á reimleikunum. Fóru þá ýmsir hlutir að færast til í baðstofunni ekki ólíkt því og nú er lýst á Saurum, en stundum hurfu mun- ir alveg í bili, en fundust þó oft- ast aftur. í fyrstu færðust hlutir einkum til að nóttu tíl, en siðar einnig um hábjartan daginn. Margir fléiri óskýranlegir at- burðir gerðust. Var nú hreppstjóri sveitarinn- Pálmasunnudagur. Guðspjallið. Lúk. 19, 29—40. „Allur flokkur lærisveina hans“, segir í guðspjallinu. Mik- ill mannfjöldi þyrptist um Jesúm og hyllir hann sem konung: „Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drottins". Þann- ig má segja, að í dag, á pálma- sunnudag, sé mikið um dýrðir. En svo kemur það í hugann, að í dag byrjar vikan, þegar Frelsarinn er svo einn, það er eins og þetta fólk minni á veð- urfar hér hjá okkur: Oft eru „kjör“ um þetta leyti árs, en skyndilega þústar að. Breytingin frá deginum í dag verður mikil. Að vísu getur að líta fjölmenni, en svo fer, að fólkið hrópar: „Burt með þenna mann“. Mannfjöldinn virðist hafa mis- skilið Jesúm á pálmasunnudag. Hann heldur, að hér sé um sig- urför að ræða. Sjálfsagt fara margir út til móts við Jesúm þess vegna. Það er ríkt í mann- legu eðli að fylgjast með fjöld- anum, fylla flokk þess, sem sigr- ar. En þegar til kemur, þá sést, að sigur er ekki fenginn, að bar- átta er fram undan. Fólkið hef- ur ekki athugað, hvað það var að segja: „í nafni Drottins“. Þessi orð höfðu aldrei verið yfirskrift neinnar sigurfarar. Lengra var ekki komið mann- kynssögunni en að þau orð gátu aðeins táknað upphaf baráttu — hinnar mestu að vísu og ein- stæðustu. Og enn er baráttan fram undan og hlutdeild hins guðdómlega sigurs takmarkið handan hennar. Mörgum þykir það - lítil bjart- sýni, að kristindómurinn skuli bjóða enn upp á b’aráttu í stað sigurgöngu. En menn verða að gæta þess, að málstaður Krists á sér djúp rök og rætur. ar tilkvaddur, til að kanna reim- leika þennan, sem sumir töldu, að einhverjir þorparar þessa reims kynnu að vera valdir að. Um komu hreppstjóra segir Benjamín m. a. svo: Þegar hrepp stjórinn var nýseztur niður ætl- aði konan að víkja sér frá og ná í eitthvað, en um leið valt kaffi- kannan á gólfið — alveg eins og henni væri kastað á eftir hús- freyjunni. Kannan stóð á elda- vél rétt framan við dyrnar á hjónaherberginu, en hreppstjór- inn sat á stól fast við dyrnar. Etoki sagðist hann hafa getað séð, að neinn kæmi við könnuna, en hélt þó fram svona til mála- mynda, að húsfreyja hefði komið við könhuna með pilsinu um leið og hún hefði gengið fram hjá elda vélinni .... Ekki liðu nema nokkrar mín- útur, þar til annar atburður gerð ist. Diskur, sem stóð á borði í frambaðstofunni, kastaðist ufn 3—4 álnir frá borðinu og niður á gólf og brotnaði í rúst. Hrepp- stjórinn reyndi að finna eðlilega skýringu á þessu og kenndi um ketti, sem sat á kommóðu rétt hjá borðinu, en samt þótti hon- um það furðulegt, að diskurinn skyldi kastast þannig, þó kött- urinn hefði komið við hann .... Þegar þeir voru farnir að borða, heyrðist afarstór smellur utan við gluggann alveg eins og skotið hefði verið í hann. Hrepp- stjórinn stóð samstundis á fætur og þreifaði á öllum rúðunum, og voru þær fastar og ósprungnar. Allt heimilisfólkið af því búi var í baðstofunni og bjart um hana alla. Áður en staðið var upp frá borðum, heyrðist annar smellur, sýnu meiri en sá fyrri og á sama stað“. Fleira gerðist merkilegt við þessa heimsókn hreppstjórans. Meðal annars fannst yfirfrakki hreppstjórans breiddur yfir hlóð Framhald á bls. 31 Margir kannast við Sigurð Hoel skáldsagnahöfundinn, sem þykir hafa lýst snilldarlega mann gerð samtíðar okkar. Hann seg- ir: „Ég hefi oft spurt sjálfan mig að því, hvað það sé, sem hafi haldið og haldi enn lífi í kristindóminum. Ekkert bendir til þess, að hann sé að dauða kominn. En ég tel hreint krafta- verk, að ekki skuli hafa verið gert út af við hann. Hann hlýtur að geyma djúp mannleg og sál- fræðileg sannindi. Tal hans um synd, sekt og endurlausn hlýtur að svara til mikiilar þarfar mannsins“. Reiðskjóti Jesú er enginn gunnfákur. Það er eirinig ógert að vinna þessa borg, sem er fram undan. Var það furða, að fólk endurskoðaði afstöðu sína, er því varð ljóst, að þótt starfs- ferill Jesú væri orðinn nokkur, var sjálf úrslitabaráttan eftir? Einkennilegt má það virðast að halda sigurför, að óháðri hinni tvísýnustu baráttu, og sigurinn raunar umdeild staðreynd enn í dag. Skáldið talar um hinn sigrandi styrkleika. Um er að ræða styrk- leikann, sem baráttan — hin góða barátta — veitir. Þannig skiptir sjálf stríðsyfirlýsingin mestu máli. „f nafni Drottins". Þar er kjarni guðspjallsins, pálmasunnudagsins. Fólkið breiddi klæði sín á veg- inn, lim trjáa og strá af ökrum sínum. Guðspjöllin benda þann- ig fagurlega á, hve baráttan fyr ir málstað Jesú Krists er marg- þætt. Skjóllítill smælingi, klæð- laus, getur verið „sigurbraut“ hans. Hungrað barn úti í heimi altari hans, er menn af gjafmildi safna á afrakstri nokkrum iðju sinnar. Of mikil ákefð manna eftir þessa heims gæðum og marg víslegur hégómaskapur trjá- greinar, er skyggja á för hans og höggva þarf af málstaðar hans vegna. Það er dapurlegt að sjá, hve fólkið snýr fljótt baki við Jesú eftir pálmasunnudaginn. Margir snúast jafnvel gegn honum og verða handbendi óvina hans. Hinir eru þó vafalaust fleiri, sem taka ekki upp baráttu gegn hon- um beinlinis, en telja sig mæta vel geta komizt af án hans með sjálfa sig og meira og minna fög ur hugðarmál sín. Menn vilja forðast viðbótina: „í nafni Drottins". Þannig hefur mann- úðar- og menningarbarátta kyn- slóðanna gleymt krossinum og sigri hans og þess vegna ekki náð þeim árangri sem skyldi. Það er eðlilegt, að menn vilji sjá árangur viðleitni sinnar. Fá menn málum sínum framgengt með því að yfirgefa nú ekki Jes- úm á þessum fyrsta degi efstu viku, dymbildaganna? Öllu máli skiptir, hvert stefnt er með baráttunni, að hún sé í sannleika góða baráttan. Fálið- inn, Krists megin, er betur kom inn óréttindamanninum hversu víðtækt, sem bræðralag hans kann að vera og sigurstranglegt. Sigur kristins manns birtist ein- att í vanmætti. Oft stendur mál- svari sannleika, réttlætis og góð- leika einn uppi. Þannig urðu ör- lög Jesú Krists næstu daga. En hann einn, og ég einn og þú, hans málstaðar vegna. Hvert samfélag mundi vera dýrmæt- ara? Guðsríkið er þar og bar- áttan hafin, er ein boðar sann- an sigur. „Allur f lokkur lærisveina hans“. Hann einn. í margmenninu get- ur þú verið einn. Fylgdu hon- um og þér hlotnast samfélag, sem eitt fær fullnægt þér og allri þinni þörf. Taktu fylgdina fram yfir flóttann. AMEN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.