Morgunblaðið - 22.03.1964, Síða 16

Morgunblaðið - 22.03.1964, Síða 16
16 MORGUNBLAÐID Sunnudagur 22. marz 1964 JMttgmtÞIafrifr Útgefandi: Fr amkvæmdast j óri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjóm: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 80.00 I lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 4.00 eintakið. VÍSINDIN í ÞÁGU A TVINNULÍFSINS Oíkisstjórnin hefur fyrir skömmu lagt fram á Al- þingi frumvarp til laga um rannsóknir í þágu atvinnu- veganna. Höfuðmarkmið þess er að efla vísindarannsóknir í þágu atvinnulífsins og skipu- leggja betur en nú er þá dreifðu rannsóknarstarfsemi, sem haldið er uppi í þágu bj argræðisveganna. Samkvæmt frumvarpi þessu verður komið á fót fimm sjálfstæðum rannsókn- arstofnunum. Eru þær þessar: Hafrannsóknarstofnun, rann sóknarstofnun fiskiðnaðar- ins, rannsóknarstofnun land- búnaðarins, rannsóknarstofn- un iðnaðarins og ramnsóknar- stofnun byggingariðnaðarins. Þá er gert ráð fyrir áfram- haldandi starfsemi rannsókn- arráðs ríkisins, en það er ráð- gjafarstofnun, sem vinnur að eflingu hagnýtra rannsókna í landinu, en einnig að efl- ingu undirstöðurannsókna, að því leyti sem þau verkefnl eru ekki í höndum Hásk. íslands. Fyllsta ástæða er til þess að fagna þessu frumvarpi. Við íslendingar hljótum eins og aðrar þjóðir að notfæra okk- ur hin hagnýtu vísindi í vax- andi mæli í þágu bjargræðis- vega okkar. Reynslan hefur líka kennt okkur, að vísindin geta orðið einstökum atvinnu greinum að ómetanlegu liði. Nægir í því sambandi að minna til dæmis á fiskirann- sóknir okkar og hagnýtingu nútíma tækni til síldveiða. Hið gamla máltæki, að bók- vitið sé ekki látið í askana, er fyrir löngu gersamlega úrelt orðið. Það er einmitt bókvit- ið, þekkingin, sem valdið hef- ur aldahvörfum í atvinnulífi þjóðanna. Þekkingin á gróður moldinni, hafinu umhverfis landið, jarðhita og vatnsafli er frumskilyrði þess að ís- lendingar fái hagnýtt auðæfi landsins. Margir ungir og dugandi menntamenn eru nú að þúa sig undir vísindastörf í þágu íslenzkra bjargræðisvega. Því miður hefur enn ekki verið búið eins vel að þessari starf- semi og skyldi. — Með frum- varpi ríkisstjórnarinnar um rannsóknir í þágu atvinnu- veganna er ætlunin að bæta úr þessu. Kjarni málsins er sá, að nú- tímaþjóðfélag getur ekki ver- ið án vísindalegrar vinnu í þágu atvinnuvega sinna. — Þess vegna er óhjákvæmilegt áð efla hverskonar vísinda- lega rannsóknarstarfsemi. — Það fé, sem til hennar er var- ið, mun skila margföldum arði. VIÐREISNAR- SJÓÐUR EVRÓPU RÁÐSINS orvaldur Garðar Kristjáns- son, alþingismaður, hefur hreyft þeirri athyglisverðu hugmynd á Alþingi, að íslend ingar fái aðstoð frá Viðreisn- arsjóði Evrópuráðsins til ýmis konar nauðsynlegra fram- kvæmda og uppbyggingar atvinnulífs í þeim landshlut- um, sem átt hafa í erfiðleik- um vegna fólksfækkunar. Viðreisnarsjóður Evrópu- ráðsins hefur það hlutverk að aðstoða Evrópulönd við lausn vandamála, sem stafa af til- flutningi fólks. Var þessi sjóð ur stofnaður fyrir átta árum af 8 aðildarríkjum Evrópu- ráðsins og var ísland meðal stofnenda sjóðsins. Rækir sjóðurinn hlutverk sitt með því að veita lán eða ábyrgð fyrir lánum til framkvæmda, sem ætlað er að skapa nýja möguleika, þar sem þess ger- ist þörf vegna tilflutninga fólks. Samkvæmt upplýsing- um Þorvaldar Garðars hafa aðildarríki sjóðsins lagt hon- um til stofnfé að upphæð 6.7 míllj. dollara. Síðan sjóðurinn tók til starfa hefur hann veitt lán samtals að upphæð kr. 25,4 millj. dollara. Hafa þessi lán verið veitt til Ítalíu, Vest- ur-Þýzkalands, Grikklands, Tyrklands og Kýpur. Hefur aðstoðin miðað að því að bæta aðstöðu fólksins í þeim lands- hlutum, þar sem fólksfækkun hefur orðið og stuðlað þannig að jafnvægi í byggð land- anna. Þorvaldur Garðar hefur flutt þingsályktunartillögu um það, að athugað verði hvort ísland geti ekki fengið aðstoð frá Viðreisnarsjóði Ev- rópuráðsins í þeim tilgangi að stuðla að jafnvægi byggð- arinnar hér á landi. Virðist sú tillaga vera fyllilega tíma- bær. Það sem fyrst og fremst þarf að gera í þessum málum er að fá aukið fjármagn til margvíslegra framkvæmda og umbóta, sem bæta aðstöðu fólksins í hinum ýmsu lands- hlutum í lífsbaráttunni. Að- staða fólksins og lífsskilyrði þurfa að vera sem jöfnust, hvar sem það býr á landinu. Enginn mannlegur máttur fær fólk til þess að una þar, Salote drottning á Tonga- eyjum vakti heimsathygli við brúðkauip Elísaibetar Breta- drottningar á sínum tíma, þeg- ar bún 6k regnihlífarlaus um göturnar í húðarrigningu til brúðkaupsins. Þótti henni það ókurteisi að spenna upp regn- hlíf við það taekifæri. Drottning varð nýlega 64 ára. Á afmælis- daginn var hún stödd í Auokland á Nýja-Sjálandi, en þar hefur hún dvalizt í fjóra mánuði. Salote bauð öllum Tongabúum, sem búsettir eru í Auokland, i afmælisveizluna, og þar döns- uðu konurnar fyrir hana dans sem nefnist Taualonga. Við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin. Salote drottning situr brosandi á stólnum og horfir á konurnar í litríkum fejólum dansa af fullum krafti. í fréttunum Barbara Hutton, sem nú er ,51 árs, er enn einu sinni í giftingar- •þönfeum í sjöunda sinn. Sá til- vonandi er 48 ára gamall prins, Doan Vinih að nafni, franskur rífeisborgari. Faðir hans var franskur lögfræðingur af aðals- ættum frá Vietnam en móðir hans var frönzk. Búizt er við að brúðkaupið fari fram í Mexico í næstu viku. Doan Vinh sagði við blaða- menn í Tokyo fyrir stuttu, að hann hefði kynnzt Barböru Hutton í Mar- ofekó fyrir 2 árum. Hún væri dásamleg kona, hjartahlý og fögur. Doan Vinh verður þriðji prins- inn sem Barbara giftist. Fyrsti eiginmaður hennar var Alexis Mdvani prins (1933—35) og sá fjórði Igor Trubetskoi, prins. Eins og kunnugt er er Barbara Hutton með ríkustu konum heims, og var á sínum tíma eftir- sótt leikkona. UM fátt hefur jafn mifeið verið skrifað síðustu árin og sam- drátt þeirra Elizaibeth Taylor og Ridhard Burton. En loks er allt komið í kring, bæði skilin að lögum, og sl. sunnudag voru þau gefin saman 1 Montreal. Meðfylgjandi mynd er tekinn daginn eftir þegar hjónin komu til Toronto, og horfir Liz aðdá- unaraugum á mann sinn. Burton átti erindi til Toronto, því sarna fevöld lék hann Hamlet í einu aðalleifehúsi borgarinnar, en eins og feunnugt er er Richard Burton nafntogaður Shakespeare-leikari. Debbie Reynolds leikkona er mifeil kaupsýslukona. Hún hefur mifelar fyrirætlanir á prjónunum í sambandi við sjúkrahúsarekst- ur og hefur þegar keypt einn spítala í Kaliforníu. Það er talin góð fjárfesting að leggja fié 1 sjúkrahús þar vestra. þar sem ekki er fullnægt frum stæðustu skilyrðum til þess að njóta góðrar afkomu og búa menningarlífi. Mikið brestur á það að aðstaða allra íslendinga sé jafn góð í lífs- baráttunni. Þess vegna þarf stöðugt að vinna að því að jafnæ aðstöðuna, þannig að byggð haldist alls staðar þar, sem framleiðsluskilyrði eru góð og mögulegt er að tryggja fólkinu góða afkomu og þroskavænleg lífskjör. LÆKKUN SKATTA \7iðreisnarstjórnin beitti sér ' fyrir því á síðasta kjör- tímabili að skattar voru lækk aðir verulega. Fyrst voru skattarnir lækkaðir á einstakl ingum og þá fyrst og fremst láglaunafólki. Síðan voru gerðar ýmsar lagfæringar á skattalögum, sem höfðu í för með sér lækkun skatta á at- vinnufyrrtækjum og aukna möguleika þeirra til þess að endurnýja tæki sín. Nú hefur ríkisstjórnin í und irbúningi nýja endurskoðun skattalaga. Er gert ráð fyrir að hún leggi fyrir Alþingi eft- ir páskana frumvarp um breytingu á skatta- og út- svarslögum. Er óhjákvæmi- legt að framkvæma slíkar ráð stafanir vegna mikilla breyt- inga á kauptöxtum og verð- lagi í landinu undanfarna mánuði. Stefna Sjálfstæðisflokksins í skattamálum hefur jafnan verið sú, að ekki mætti ganga lengra en svo í skattheimtu á hendur einstaklingum og at- vinnufyrirtækjum, að gjald- þoli þeirra væri ekki ofboðið. Skattheimtan mætti ekki ganga svo langt að einstakl- ingarnir sæju sér ekki lengur hag í því að leggja sig fram um tekjuöflun og sköpun verð mæta í þjóðfélaginu. Hið ís- lenzka þjóðfélag þarf að sjálf- sögðu á miklum tekjustofn- um að halda vegna marghátt- aðrar uppbyggingar og fram- kvæmda í landinu. En óhóf- leg skattlagning felur jafnan í sér þá hættu, að framtak einstaklinganna lamist og á- hugi þeirra minnki fyrir að leggja sig fram um að draga björg í þjóðarbúið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.