Morgunblaðið - 22.03.1964, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.03.1964, Blaðsíða 28
28 MORCUNBLAÐIÐ ! Sunnudagur 22. marz 1964 — í afmæli^jöf? Maðurinn minn gaf mér koss og smitaði mig af kvefi. xin. ' Nú, svo hann veit þá allt um Marguerite og Lester, hugsaði Kuth. Sjálf hefði hún ekki getað sagt, hversvegna hún komst að þess- ari niðurstöðu. En það var eitt- hvað í orðum og svip Ranzis, sem kom henni til að halda, að hann væri með látalæti. Og einn ig hitt, að hann gerði þetta með hálfum huga. Hann sá eftir því sem hann var búinn að segja. En ef hinsvegar yrði að fórna ann aðhvort konunni hans eða Ruth, þá yrði konan hans ekki fyrir valinu. Ruth fann til furðu lítillar reiði. Hún var einmitt farin að brjóta heilann um, hvernig hún ætti að komast inn úr þessari framkomu hans, sem henni hafði alltaf staðið nokkur ógn af, og fullvissa hann um samúð sína. Ekki svo að skilja, að hann hefði svarað slíku með öðru en drambi ©g óvild. En hversu mikið vissi hann fyr ir víst, og hversu mikið var get gitur? Vissi hann, að Margue- rite ætlaði að yfirgefa hann og stijúka með Lester Ballard? Vissi hann um glæpastarfsemi Ballards í Napóli? Vissi hann, að Marguerite hafði vafalítið að- stoðað Lester við að fremja morð? Vissi hann, að það var hennar eigin sök, sem hún var að reyna að koma yfir á Ruth? Eða hafði hann aðeins orðið þess var, að Marguerite var ástfang in af Lester og þurfti nú aðstoð ar hans við til að hindra, að það ævintýr? kæmi fram í lögreglu- rannsókninni? þennan eftirmiðdag? sagði hann. Er enginn, sem getur vottað, að þér hafið ekki verið .hér, þegar morðið var framið? — Hér? Hafa þeir nú komizt að þeirri niðurstöðu, að það hafi verið framið hér? Eg hefði gam- an að vita, hvernig þeir hafa komizt að hennL Fölt andlitið roðnaði. Hann sá, að hann hafði hlaupið á sig. — Það ert þú, sem virðist hafa svo mikinn áhuga á að sanna, að þú hefðir ekki getað verið hérna, sagði hann. — Sá þig eng inn? Er nokkur, sem getur stað- fest það, að þú hafir verið fjar- verandi? Ruth sá þegar gildruna og á- setti sér að ganga ekki í nana. Enda þótt hún hefði nokkra sam úð með Ranzi og kynni að meta hollustu hans við konu sína, sá hún enga ástæðu til að leggja málið upp í hendurnar á hon- um. Ef hann vildi komast að því, hvort nokkur vissi Marguerite hafa hringt til Ruth um morgun inn áður en morðið var framið, eða hefði séð Ruth fara inn í eða út úr húsi Ranzis í San Anti oco, þá ætlaði hún að minnsta kosti ekki að hjálpa honum um svar við því. — Eg ætla að hugsa mig um, sagði hún. — Ef til vill hefur ein hver verið. Ef til vill . . . Henni datt snögglega nokkuð í hug og nú er henni hafði dottið það í hug, var hún mest hissa á, að það skyldi ekki hafa orðið fyrr. Ef til vill hafði einhver hlustað á símtalið um morguninn og heyrt hana tala við Marguerite. Ef til vill hafði Nicky heyrt það. Samt vissi hún nú ekki, hvort Nicky hefði verið inni í húsinu þegar síminn hringdi, og jafn- vel þótt svo hefði verið, þurfti hann ekki að hafa heyrt nema lok samtalsins. Ranzi hafði verið að horfa á hana. — Datt þér eitthvað í hug? sagði hann. Henni fannst rétt eins og ein- hver ofurlítill vonarneisti væri í málrómnum. Það var eins og hann væri að vonast eftir að hún gæti sigrazt á þessum svikum, sem hann var sjálfur að beita hana. En hún yppti bara öxlum. — Eg veit ekki, svaraði hún. — Jæja, ég má ekki láta hann Sebastiano bíða lengur, sagði Ranzi. — Þetta er alltsam an mikið áfall fyrir hann, því að ég býst við, að vörubirgðirnar verði seldar -og búðinni lokað og þá stendur hann uppi atvinnu- laus. Vitanlega er hann velþekkt ur maður á sínu sviði. Hefur mikla þekkingu og gott orð á sér. En þetta eru erfiðir tímar og maður, sem er jafngamall og heilsulaus og hann, getur ekki verið útgengilegur á vinnumark aðnum. Eg vona, að hann hafi sparað eitthvað saman. Hann hneigði sig ofurlítið og bjóst til að fara. Ruth var feg- in, að hann skyldi ekki hafa reynt að kveðja hana með handa- bandi, eins og hann var vanur, og hún varð enn fegnari, þegar hún heyrði bílinn aka burt. Sperman, sem milli þeirra var, hafði far- ið vaxandi, með hverju orði, sem sagt var og hún hafði átt æ erf iðara með að tala rólega. Ruth vissi aldrei, hve lengi hún hafði staðið þegjandi, með- an þessai hugsanir brutust um í huga hennar. Hún hafði bara staðið þegjandi og horft á Ranzi. En það var ekki fyrr en hún sá óróna og vandræðasvipinn í augnaráði hans, við svar hennar við spurningu hans, að henni datt í hug, að hún yrði eitthvað að segja. Hún svaraði því: — Já. ég skil hváð þér eigið við. En svo sá hún eftir að hafa sagt það, af því að orðin voru svo bersýni- lega illkvittnisleg. — Þér megið trúa mér, að ég vil ekki vinna yður neitt mein, eagði Ranzi. — Nei, ég þykist skilja það svaraði hún. — Yður verður hollast að lok um að halda yður við sannleik- ann. — Að ég verði að finna upp á einhverri annarri sögu, eigið þér við? — Það þyrfti að vera eitthvað til að styðja þá sögu, ef mögu- legt er. * — Eitthvað, sem ég get reitt mig á. Hann kinkaði kolli alvarlegur á svip, og virtist ekki skilja háð ið, sem í orðunum lá. — Hefur ekki neinn séð yður Þetta ástand hefði mátt teljast vonlítið: Efst keisarinn, sem er einráðinn í að halda í völd sín, eftir því sem hægt væri; undir honum í öllum mestu valdastöð unum þýlynt ríkisráð ráðherra, manna, sem keisarinn sjálfur hafði valið. Og svo þessi hópur af óvönum og óreyndum viðvaning um, heimtandi að fá sinn hluta valdanna í sínar hendur. Þetta var nú fullslæmt, en Nikulás gerði illt talsvert verra með því að leysa Witte frá for- setastörfum í ríkisráðinu, daginn áður en Dúman kom saman í fyrsta sinn. Hann hafði aldrei get að þolað Witte — skoðaði hann sem keppinaut sinn og gat ekki fyrirgefið honum, að það var fyrst og fremst hann, sem hafði barið í gegn stofnun Dúmunnar. Hann rétt beið eftir því, að Witte lyki við að útvega geysi- stórt lán frá Frakklandi — það jafngilti 150 milljónum sterlings punda — en rak hann síðan. Mönnum finnst nú, að Witte hefði að minnsta kosti átt að gefast kostur á að vinna með Dúmunni, en eftirmaður hans sem forsætisráðherra, roskinn skrifstofuherra, að nafni I. L. Goremykin, var ekkert í þann veginn að reyna neitt slíkt. Eng in sála, vinstramegin við keisar ann — og það er aftur sama sem öll þjóðin, eða svo til — virðist hafa neitt gott orð að segja um Goremykin. Honum er lýst sem smámenni, bragðaref, kaldrana og höfðingjasleikju, og síðasta lýsingin er að minnsta kosti akki langt úr vegi, því að hinn nýi forsætisráðherra var gallharður á því, að keisarinn hefði alltaf á réttu að standa, og að ráð- herrarnir — hvað sem þeirra einkasannfæringu liði, væru ekki til annars en að túlka vilja hans. Dúman, sem kom saman í fyrsta sinn í Taurishöllinni í Petrograd í maímánuði 1906, var alls ekki neinn byltingarhópur. Cadetarnir, með yfir 150 þing- menn voru langsamlega stærsti flokkurinn og bæði að útliti og hugsanagangi líktust þeir veru- lega hinum virðingarverðu, frakkaklæddu frjálslyndu þing- mönnum í Englandi Gladstones, Englandi, sem svo vildi til, að þeir dáðust að og voru einráðn ir í að endurskapa í Rússlandi, ef hægt væri. Næststærsti flokk urinn var klofningur úr sósial- byltingarflokknum, verkamanna flokkur, sem kallaðist Trudovik ar, og hafði meira en hundrað sæti, og enda þótt þessir þing- menn væru fulltrúar verka- manna og bænda, voru þeir ekki keisaranum eindregið fjandsam- legir. Yfirleitt hafði kosningin ekki verið nein markleysa, þar eð hvorki skýjaglópar né öfga- menn höfðu ráðið þar úrslitum, og kjósendurnir höfðu raunveru lega reynt að kjósa ‘færustu mennina — menn eins og þá, sem höfðu staðið fyrir zemstvó- unum á hverjum stað. Þinghaldið hófst með „ræðu til hásætisins" samkvæmt ensk- um sið. í henni fór Dúman fram á heila röð réttarbóta, sem í hverju lýðræðisríki hefðu ver- ið taldar sjálfsagðar og sann- gjarnar. í hásætinu varð stutt þögn, og þegar Nikulás ákvað að svara ræðunni, kom hann ekki fram sjálfur. Hann sendi Goremykin til Tauri.íhallarinn ar og Goremykin lýsti því yfir, skýrt og skorinort, að kröfur Dúmunnar — einkum þó sú, sem gekk út á réttarbætur til bænda — væri blátt áfram „ótækar“. Þá samþykkti Dúman ávítur til rík isst j órnarinnar. Bernard Pares, sagnfræðingur þessa tímabils, sem þarna var viðstaddur segir: „Enn þegar hér var komið, hafði allt farið fram samkvæmt enskri fyrirmynd, og eftir samþyktina á vítunum hefði líklega stjórnin (þ.e. Gore mykin og ríkisráðið) átt að segja af sér. Það gerði hún ekki, og svo sat stjórnin og Dúman og horfðu hvor á aðra, og báðir að- ilar brutu . heilann um, hvaða skref þeir þyrðu að stíga, og hvaða stuðnings þeir mættu vænta frá þjóðinni“. ITHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu ei langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blöðum. Kópavogur Afgreiðsla Morgunblaðsins í Kópavogi er að Hlíðarvegi 63, sími 40748. Carðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, sími 51247. Hafnart/örður Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Hafnarfjarðarkaupstað er að Arnarhrauni 14, simi 50374. Ketlavík Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Keflavíkurbæ er að Hafnargötu 48, sími 1113. Afgreiðslur blaðsins hafa með höndum alla þjónustu við kaupendur blaðsins og til þeirra skulu þeir snúa sér, er óska að gerast fastir kaupendur Morgunblaðs- ins. KALLI KUREKI Teiknari; FRED HARMAN Y" — Hér er e<nginn ókunnugur hest- t*r. Bófinn sá arna hlvtur að vera íarinn. l — Frsenka! — Hættu að emja þama eins og villuráfandi kvíga og komdu þér hing að að leysa mig úr böndum. — Ertu ómeidd? \ — Ojá, nema hvað virðingu minni hefur verið freklega misboðið. Litli- Bjór hefur farið að sækja þig, sé ég. Hann á það til að vera bara greindur, strákgreyið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.