Morgunblaðið - 25.03.1964, Side 3
MORCUNBLAÐIÐ
MiðvikudagUT 25. mary 19fí4
BLAÐAMAÐUR og ljósmynd-
ari Morgunblaðsins komu í
gær niður að höfn, þar sem
verið var að skipa kalki upp
úr Gullfossi.
Mikill aldursmunur var á
verkamönnunum. Flestir voru
nokkuð við aldur, en einnig
nokkrir kornungir piltar, sem
komnir eru í páskafrí. Við tók
um tvo þeirra tali, Sigurð og
Þorstein, sem báðir eru 12 ára.
„Við byrjuðum á sunnudag-
inn“, segir Þorsteinn. „Við
vinnum frá kl. 8 á morgnana
til kl. 7 á kvöldin".
„Eruð þið ekki þreyttir á
kvöldin?"
„Nei, nei“, svarar Sigurður".
„Það er ágætt að vinna hérna,
en stundum verða karlarnir
vitlausir og skammast, þegar
Hans og Baldur.
Ungir og gamlir við höfnina
kalkpokunum
góðlátlega, en leggur ekki orð
í belg. Nú ber að fleiri stráka,
sem einnig segjast vera að
vinna sér inn þeninga í páska
(Ljosm. Mbl.: Sv. .Þ.)
fríinu. Allir lýsa þeir yfir á-
nægju sinni með vinnuna og
harðneita því, að hún sé erfið.
Þessir knáu strákar mundi
fyrr láta hægri hönd sína en
að segjast vera þreyttir á
kvöldin, er þeir koma heim
eftir 11 stunda vinnudag.
Sigurður.
Hér getur að líta ölsett úr islenzkum leir. Glit framleiðir nú
bollasett og fleira, og verða munir frá fyrirtækinu til sýnis ásamt
málverkunum. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Páskasýning á nríál-
verkum og keramik
UM PÁSKANA verður opin mál
verka og skrautmunasýning Jó-
hannesar Jóhannessonar, list-
málara, í húsakynnum Hús-
gagnaverzlunar Reykjavíkur að
Brautarholti 2. Sýnir Jóhannes
þarna 15 olíumálverk, og nokkra
skrautmuni og sikartgripi, svb
og kaleik, sem hann hefur gert
úr silfri. Jafnframt verður til
sýnis keramik frá Glit, þar á
meðal nýstárleg kaffi- öl-, og
vínsett úr brenndum leir.
Málverk Jóihannesar eru mál-
uð á undanförnum tveimur ár-
um og eru þau flest til sölu, svo
og nokkuð af skartgripunum.
Um 'kaleiikinn er það að
eegja, að hann gerði Jóhannes
*>ð beiðni Borgfirðinga sem
hyggjast gefa hann Bæjarkirkju.
Á meðan sýningin stendur
verða öll húsgögn fjarlægð úr
verzluninni. Keramiksýning
verður haldin jafnframt og er
hér um að ræða muni frá Glit
svo og nokkuð af skozkri kera-
mik frá listaskólanum 1 Edin-
borg.
Meðal muna frá Glit má nefna
kaffisett, ölsett og vínsett, allt
mjög frumlegt. Er hvert sett
sérstaklega gert, og ef það er
keypt fylgir með í kaupunum
trygging fyTir því að engum
öðrum verði selt samskonar sett.
Hinsvegar er hægt að panta
muni í settið og auka við það.
Sýningin verður opin dagana
26., 28. og 20. marz frá kl. 14-22.
í GÆR var vindátt breytileg landinu. Jafndægri var 20.
hér á landi. Hæg N-átt og marz og dagurinn lengist nú
snjókoma var á N-landi, V-átt um þrjú kortér á viku. Tæpur
og eljagangur á Suðurlandi, en mánuður er til sumars.
SA-átt og rigning austast á
STAKSTEIHAH
Skyldur
stjórnarandstöðu
Lýðræðisfyrirkomulagið og
þingræðið leggur skyldur á herð
ar þeim stjórnmálamönnum og
flokkum, sem ekki styðja ríkis-
stjórn og eru í minnihluta. Þessi
skylda stjórnarandstöðunnar er
að halda uppi heilbrigðri og rök-
studdri gagnrýni á stjómarstefn
una og einstökum málum stjóm
arflokka, ef ástæða þykir til þess
af málefnalegum ástæðum.
Þá verður að krefjast þess, að
stjómarandstaða, sem ákveðið
gagnrýnir stefnu ríkisstjómar í
einstökum málum, bendi á nýj-
ar leiðir og rökstyðji, hvernig
þær megi leiða til velfarnaðar
eða afstýra vandræðum.
f lýðræðisríkjum Evrópu er
stjórnarandstaða vegin og dæmd
eftir því, hvemig hún gegnir
þessu hlutverki. Ef andstaðan
lætur tilganginn um að steypa
stjóminni helga meðalið og lít-
ur ekki til röksemda eða þjóðar
hags, þá er hún léttvæg fundin.
Skemmdarstarf er þar auðvitað
vísasti vegurinn til kosninga-
ósigurs og almennrar fyrirlitning
ar. Andstaða, andstöðunnar
vegna, ef ekki er bent á aðrar
leiðir og rökstuddar veilur í
málatilbúnaði ríkisstjómar, hef-
ur ekki reynzt giftudrjúg bar-
áttuaðferð í hinum grónu lýð-
ræðisríkjum álfunnar.
Málefnasnauð . . .
Hér á landi er þessu því miður
ekki svo farið. Núverandi stjóm-
arandstöðuflokkar hafa með öllu
brugðizt þessari skyldu stjóm-
arandstöðu. Það er því mið-
ur ekki einsdæmi nú, em lengra
er gengið en nokkru sinni fyrr.
Það er ekki aðeins að stjórnar-
andstaðan haldi uppi rakalaus-
um staðhæfingum, heldur bregst
hún einnig þeirri skyldu sinni að
benda á aðrar leiðir, þegar hún
kýs að snúast hart gegn málefn-
um ríkisstjórnarinnar. Hvar er
t. d. stefna stjómarandstöðunnar
í efnahagsmálum? Það er von að
spurt sé, svo hart sem hún gagn
rýnir viðreisnarstefnu stjóm-
arinnar. í þessu efni sem mörg-
um öðrum hefur stjórnarand-
staða Framsóknarflokksins og
kommúnista bmgðizt skyldunni
gagnvart kjósendum sínum og
þjóðfélaginu. Þessi stjómarand-
staða þeirra býður aðeins upp á
neikvæðan niðurrifsáróður, en
málefnin og getuna skortir til
baráttu á málefnalegum grund-
velli.
Það er alvarleg spurning,
hvort kjósendum hafi ekki of
lengi láðst að veita þessum full-
trúum sínum aðhald.
. . . og skemmdarverk
Hið dapurlegasta er þó ekki
skortur málefna af hálfu stjóm-
arandstöðunnar. Bein skemmdar
verk, sem Framsóknarflokkur-
inn ásamt kommúnista hafa haft
í frammi viljandi, og vonandi
stundum af vangát, eru svartur
blettur á þingræðinu og hlut-
verki stjórnarandstöðunnar.
Þessir flokkar hafa vísvitandi
stefnt að því að veikja efna-
hagskerfið með pólitískri kjara-
baráttu. Þessir flokkar hafa
einnig reynt að vinna málstað
íslands tjón með málflutningi
sínum í landhelgismálinu og
utanríkismálum.
Hið íslenzka lýðræði þróast
hægt, en örugglega. Það mun
koma að því, að Hokkar þessir
geta ekki treyst blint á stuðn-
ing núverandi fylgismanna sinna.
Að þeir munu uppskera hin einu
verðugu launin fyrir neikvæða
og stundum óþjóðholla baráttu.