Morgunblaðið - 25.03.1964, Síða 17

Morgunblaðið - 25.03.1964, Síða 17
Miðvikudagur 25. marz 1964 MORGUNBLAÐID 17 — Þórir H. Framh. af bls. 8 og stór í senn, þá megum við ekki ár og síð og alla tíð streit- ast við að hafa kirkjurnar okk- ar litlar og lágkúrulegar né skera sífellt við nögl sérhvað það, sem að Guði snýr og kasta til .þess höndum, sem á að auðvelda okk- ur að ávinna og varðveita lif- andi samband við Guð. Ég minnist tveggja bænda, sem ég heyrði sagt frá, þegar ég var unglingur. Þeir voru nágrannar. Báðir voru þeir búmenn miklir og sístarfandi. Þeir voru líka hvor öðrum sparsamari og nýtnari. Þó með þeim mismun, að annar þeirra var þetta um of, en hinn rataði gullna veginn. Hinum fyrri voru allir dagar jafnir. Allt skar hann við nögl bæði sýknt og heilagt. Hátíðir voru honum þyrnir í augum. Hann sveik fólk sitt meira að segja um töðugjöld- in á sumrin. Hinn síðarnefndi var dagsdaglega nægjusemin, spar- semin og nýtnin fram í yztu fing- urgóma. En á hátiðum naut hann þess að gera sér og sínum glað- an dag. Þá veitti hann' af rausn og var hvarvetna hrókur alls fagnaðar. Þá voru töðugjöldin ríkulega gefin. í stuttu máli: Við hátíðleg tækifæri skildi þarna á milli 'hins auvirðilega nirfils annars vegar og höfðiingj- ans hins vegar. Kristnir menn og konur á fs- landi: Hvorum þessara tveggja, nirflinum eða höfðingjanum, eig- um við að fela það trúnaðarstarf að undirbúa og annast helztu há- tíðir okkar með Guði? Hvernig viljið þið, að uppskeruhátíðir okkar verði, þar sem Guð er heiðursgesturinn? Einn atburður frá skólaárum mínum er mér minnisstæður og verður mér oft að íhugunarefni. Þetta var að hausti til. Við vorum nýkomin saman, eitthvað um hundrað unglingar, piltar og stúlkur, í heimavistarskóla. Við vorum enn óðum að kynnast. Augu og eyru voru opin og vak- andi fyrir kostum og löstum ná- ungans. Þá er það einhverju sinni, að ein skólasystir mín varp aði fram þessari spurningu um einn skólabróður okkar: „Hvað heitir hann þessi, sem er eins og hundur í framan?“ Þessi orð stúlkunnar urðu ekki verulega fleyg fyrr en um vorið. En þá rifjuðust þau upp í hugum margra fyrir þá sök, að þá höfðu þau tvö, sú sem spurði um haust- ið og sá, sem um var spurt, á- kveðið að feta saman lífsbraut- ina. Þau opinberuðu trúlofun sína nokkrum dögum fyrir skóla- slit. Þegar ég leit yfir það, sem ég hefi sagt um Pétur Benedikts- son og afstöðu hans til Hallgríms kirkju hér að framan, kom mér ósjálfrátt í hug þetta gamla æv- intýri um stúlkuna forðum og afstöðu hennar til piltsins, sem átti eftir að verða elskhugi henn ar og eiginmaður. Og ég fékk sterkt hugboð. Það er raunalegt að horfa á efnilega og stálpaða drengi frá góðum heimilum hafa í frammi óknytti og strákapör á almanna- færi. Að þessu sinni hefir skril- mennskan og skemmdarfýsnin beinzt að veglegasta musteri þjóðarinnar í smíðum, þar sem er Hallgrímskirkja í Reykjavík. Oft er sagt: Ef Drottinn bygg- ir ekki húsið, erfiða smiðirnir til einskis. Guð gefi, að víkja megi þessu ofurlítíð til og segja: Ef Drottinn byggir húsið, erfiða niðurrifsmennirnir til einskis. Hallgrímskirkjusöfnuður og velunnarar Hallgrímskirkju nær og fjær. Höldum áfram að byggja kirkjuna með hjálp og fulltingi Guðs og góðra manan. Sýnum sjálfum okkur og öðrum, að við séum þess verðug að eiga Hall- grím Pétursson og Passíusálm- ana, með því að reisa þetta fagra og tignarlega musteri og minn- isvarða. Búum þannig í haginn fyrir helgihald og æskulýðsstarf- semi í höfuðborginni okkar, að það síðar verði okkur til sóma, stolt okkar og gleði. Pétur Benediktsson banka- stjóri. Okkur kann að virðast af og til, sem við sjáum hunds- trýni hér og skötubörð þar. En þetta getur verið sjónhverfing. Ef við ölum hið innra með okkur urrandi og glefsandi hundstrýni öfundar, illvildar og afbrýði, þá sjáum við hundstrýni, hvert sem við lítum. Ef við reynum að lyfta okkur til flugs með illa verkuð- um skötubörðum, verðum við jarð bundnari en nokkru sinni fyrr, fyllumst gjarnan' beisku og sjá- um hvarvetna skötubörð. Væri ekki meira æskubragð að því að rækta með sér hugarfar elskhug- ans til manna og málefna? Væri það ekki samboðnara djörfum dreng að klífa og stikla rísandi stuðlaberg en að slá um sig með illa verkuðum skötubörðum? Pétur Benediktsson banka- Samkomur Kristniboðssambandið Samkoman í kvöld fellur niður. Samkoma báða bæna- dagana kl. 8,30 í kristniiboðs- húsinu Betaníu, Laufásveg 13. Sjá nánar á morgun. Páskasamkomur Kristilegar samkomur verða í samkomusalnum Mjóuhlíð 16 á skírdag kl. 8 e.h. og páska- dag kl. 8 e.h. Allir velkomnir, yngri og eldri, til að heyra guðs orð Samkomuhúsið Zion, Óðinsgötu 6 A Samkomur um pásikana: Skírdag, samkoma kl. 20,30. Föstudaginn langa, sam- koma kl. 20,30. Páskad., samkoma kl. 20,30. 2. páskad. samkoma kl. 20,30 Allir velkomnir. Heimatrúlboðið. stjóri. Lestu Passíusálmana, ef þú ert læs á svoleiðis. Spurðu síðan sjálfan þig, hvor sé nirfill- inn og hvor höfðinginn, sá sem fyrir réttum þrjú hundruð árum orti sálmana í lágum torfkofa uppi í Hvalfirði, þar sem hann bjó við lítil efni og þröngan kost, umvafinn sorta og skamm- degi sautjándu aldarinnar, eða hinn, sem hátt settur baðar sig í birtu og sællífi tuttugustu ald- arinnar á íslandi, en þjáist samt af ólæknandi axlaverk vegna þess að verja á andvirði svo sem tveggja til þriggja fiskibáta til að rækta og ávaxta þann arf, er sálmaskáldið fékk okkur til varð- veizlu og velfarnaðar. „Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst, vizka, makt, speki og lofgjörð stærst sé þér, ó Jesú, herra hár, og heiður klár. Amen, amen, um eilíf ár.“ Tapazt hefur skólataska á Mikluibraut (neð an Lidó). Skilvís finnandi hringi í síma 35631. I Miðstöðvarkatlar I I ^ jafnan fyrirliggjandi. ^ VÉLSMIÐJA ® Björns Magnússonar ^ ^Keflavík - Sími 1737, 117! Látið ekkj dragast að athuga bremsurnar séu þær ekki í lagi.. Fullkomin bremsupjónusta. FRAMTÍÐARSTARF Einkaritari — Framtíðarstarf Vér viljum ráða skrifstofustúlku, s em gæti tekið að sér einkaritara- starf hjá oss. Málakunnátta er nauðsynleg ásamt góðri æfingu í vél- ritun. Æfing í að vélrita eftir segulbandi er æskileg. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri S.Í.S., Jón Arnþórsson, Sambandshúsinu. DAUPHIIME Ennþá éinu sinni hefur Renault sannað sérlega lága benzínnotkun. í sparaksturkeppninni sl. sunnudag fór Renault Dauphine 92 km á aðeins 5 1. af benzíni. KAUPIÐ GÓÐAN OG SPARNEYTINN BÍL — KAUPIÐ RENAULT sem nú er fyrirliggjandi. Lækjargötu 4 — Sími 22118. Handknattleiksdómarafélag Reykjavíkur Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 3. apríl. Fundarstaður auglýstur síðar. Stjórn H.K.D.R. Afvinna óskast Hefi menntaskólapróf og hefi stundað skrifstofu- störf. Verið í Englandi og Þýzkalandi. Bílpróf. Tilb. sendist afgr. Mbl. merkt: „Atvinna — 3204“ fyrir mánaðamót. Til sölu Mercedes Benz langferðavörubifreið í mjög góðu lagi á nýjum dekkjum með góðu húsi. Ennfremur Volvo vörubifreið á sama stað í góðu lagi, með hlið- arsturtum, stálpalli, á nýjlegum dekkjum. Upplýsingar í síma 12166 næstu daga. HLJÓIVtöPLÖTlJVIIMIR! lítið inn hjá hverfitónum á HVERFIS- GÖTU 50 OG TRYGGIÐ YKKUR GÓLa MÚSIK UM HELGINA. ÚRVALIÐ ER G O T T. © huerritónar SKRIFSTOFUSTARF GJALDkERASTARF Viljum ráða karl eða konu til gjaldkera- starfa og annarra skrifstofustarfa strax. Nánari upplýsingar gefur starfsmanna- stjóri S.Í.S. Jón Arnþórsson, Sambandshús- inu Reykjavík. STARFSMANNAHALD (|§§) STARFSMANNAHALD

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.