Morgunblaðið - 25.03.1964, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
23
Miðvikudagur 25. marz 1964
— Kólnandi veður
1 Framh. aí bls. 24
barnaskólans með nemendur
sína á sýningu í Þjóðleikhúsinu.
Sáu þau Mjallhvít og dvergana
sjö. Skemmtu þátttakendur sér
hið bezta, enda er Mjallhvít eft-
irlætisævintýr allra ungra kyn-
slóða.
Mikil atvinna er hér í Árnes-
sýslu og að sjálfsögðu aðallega í
útgerðarstöðvunum og margur
sækir sér viðbótartekjur við að-
gerð og fleira. — Gunnar,
Sigurpáll með 14
tonn af slægðri ýsu
'| Þorlákshöfn, 24. marz.
Sigurpáll landaði hér í dag 14
tonnum af slaegðri ýsu, sem hann
fékk í nótt rétt vestan við Þor-
lákshöfn. Bjarmi II. var að koma
áðan með 3—4 tonn af slægðri
ýsu, sem hann fékk við Þrí-
dranga.
Afli Þorlákshafnarbáta glædd-
ist í gær og var hæsti báturinn,
Guðbjörg, með 22 tonn, sem
fengust í net.
Ágætt veður er hér, rétt fölað
á jörðu, en hiti er kominn niður
undir frostmark. — Magnús.
h. ‘
V
— Sendiherra
' r Framh. af bls. 1
kynnir opinberlega um skipan
•áttasemjarans. En hér virðist
eingöngu um formlega staðfest-
ingu að ræða, þar sem allir við-
komandi aðilar hafa látið ánægju
lína í ljós.
Margra ára reynsla
Sakari S. Tuomioja er 53 ára,
kvæntur og tveggja barna faðir.
Hann á að baki sér margra ára
reynslu í stjórnmálum og stjórn-
arstörfum, bæði heima og er-
lendis. Þegar styrjöldinni lauk í
Finnlandi árið 1944, varð hann
aðstoðar-fjármálaráðherra i
stjórn Paasikivis. Þá var Kekkon-
en, núverandi forseti, dómsmála-
ráðherra. Ári seinna tók Tuomi-
oja við embætti fjármálaráð-
herra, en sagði því lausu sama ár
er hann var skipaður aðalbanka-
etjóri finnska þjóðbankans. Hélt
hann því embætti til 1955, en á
þessum árum átti hann einnig
nokkur afskipti af stjórnmálum.
Árið 1950 var hann verzlunar-
og iðnaðarmálaráðherra, 1951—
52 var hann utanríkisráðherra og
árin 1953—1954 var hann for-
sætisráðherra embættismanna-
stjórnarinnar, sem þá fór með
völd.
Þegar Tuomioja lét ef embætti
við þjóðbankann, gekk hann í
utanríkisþjónustuna, og var
fyrstu tvö árin sendiherra Finna
f Bretlandi. Hann var árið 1956
frambjóðandi íhaldsflokksins við
forsetakosningarnar í Finnlandi,
en tapaði fyrir fyrrverandi starfs
félaga sínum, Bhro Kekkonen.
Frá London fór Tuomioja til
Sameinuðu þjóðanna, og varð
framkvæmdastj óri efnahagsmála
nefndar Evrópu þar. Hann var
ekipaður sendiherra í Stokk-
hólmi 1960, og hefur gegnt því
embætti síðan.
— Íhróttir
Framh. af bls. 22
IBK og hafði KR þar öll tök
á leiknum og vann 6—1.
Úrslitaleikurinn.
Úrslitin stóðu milli Fram og
Þróttar. Þróttur komst í 2 marka
forustu en Fram hafði jafnað
er stóð 3—3 og náðu síðar for-
ustunni. Skiptist nú á jafntefli
eða marks fiorusta á annan
hvom veginn. Fékk þá einn
Þróttara brottvísunardóm um
stund fyrir leikbrot en félögum
hans óx þá svo ásmegin að þeir
náðu ömggri fiorustu og sigur
Þaóttar var 9 mörk gegn 5,
íslenzk tónskóld
á norrænni hátíð
DÓMNEFNDIR þær, sem akveða
hvaða tónverk skuli flutt á nor-
rænni tónlistarfhátíð í Helsiniki í
haust, hafa nú lokið störfium.
Þessi íslenzku tónverk voru kjör-
in:
Til flutnings á kirkjutónleik-
um: Ostinato fyrir orgel eftir
Pál ísólfsson og „Orgel'músík“
éftir Jón Þórarinsson.
Á kammertónleikiun: „Kad-
enzar“ eftir Leif Þórarinsson.
Á hljómsveitartónleikum:
„Punktar“ eftir Magnús Blöndal
Jóhannsson og forleikurinn
„Hekla“ op. 52 eftir Jón Leifs, en
það verk verður þar fmmflutt,
og þarf til þess að sameina hljóð-
færaleikara úr tveim helztu
hljómsveitum borgarinnar. Jussi
Jalas stjórnar.
Norræna tónskáldaráðið og
TónSkáldafélag Finnlands standa
fyrir þessari hátíð.
Spassky sigraði í
Moskvu
Á NÝAFSTÓÐNU svæðamóti í
skák í Moskvu sigraði sovézki
stórmeistarinn Boris Spassky
með 7 vinningum af 12 mögu-
legum.
í öðm og 3. sæti vom Bron-
stein og Stein, fengu 6% vinn-
ing, í 4. sæti var Cholmow með
6 vinninga, í 5.—6. sæti vom
Korsnoj og Suttin með 514 vinn
ing hvor, og í 7. sæti var Geller
með 5 vinninga.
Þrír þeir fyrsttöldu, ásamt
þeim Smyslov og Tal, komast
áfram til keppni í millisvæða-
mótinu, sem fram á að fara í
Hollandi síðar á þessu ári.
Nú er lokið öllum undanrásum
og munu alls 22 keppendur keppa
um 6 efstu sætin, sem veita rétt
til þátttöku í næsta kandddata-
móti. Þeir sigurstranglegustu í
millisvæðamótinu em álitnir
vera Bobby Fisher og Gligoric,
auk allra rússnesku þátttakend
anna.
JARÐSKJÁLFTAR
Lissabon, 24. marz (AP)
í frétt frá Sao Jorge-eyju í
Azoreyjaklasanum segir að
þar hafi fundizt 6 jarðskjálfta-
kippir á undanförnum tveim-
ur sólarhringum. Miklir jarð-
skjálftar gengu yfir eyjuna
fyrir hálfum mánuði, og eyði-
lögðust þá hundruð húsa.
— Tilræði
Framhald af bls. 1.
fjórir japanskir skurðlæknar
gerðu að sári hans. Tók aðgerðin
nærri hálfa aðra klukkustund,
og þurfti að gefa Reisdhauer mik
ið blóð. Þremur klukkustundum
síðar skýrði frú Haru Reischauer
frá því að maður hennar væri á
góðum batavegi, og væri þakk-
látur þeim mörgu Japönum, sem
sent hefðu innilegar kveðjur og
bataóskir. Tilræðismaðurinn er
aðeins 19 ára. Hann var eitt sinn
lagður í geðveikraspítala til
lækninga, og hefur lengi þjáðst
af svimaköstum og sjóndepru.
Þegar fréttist um tilræðið við
Reisohauer, boðaði Ikeda, for-
sætisráðherra, til ríkisstjórnar-
fundar. Sendi hann og Ohira ut-
anríkisráðherra síðan Bandaríkja
stjórn orðsendingu þar sem þeir
harma atburð þennan og láti í
Ijós þá von að hann verði ekki
til þess að skyggja á þá góðu
samibúð, sem ríkt hefur milli
landanna. Auk þess var sendi-
herra Japans í Washington falið
að ganga á fund Johnsons for-
seta og Rusks utanríkisráðherra
og afihenda þeim orðsendingar
Japansstjórnar. Að loknum þeim
viðræðum sagði sendiherrann,
Ryuji Takeuahi, að Rusk hafi
fullvissað hann um að tilræði
þetta hefði engin álxrif á sam-
búð ríkjanna.
Ferðamenn streyma norður í
Yfir 100 manna hópur ætlar að sóla sig á Canaríeyjum. Þes sa mynd tók Guðni Þórðarsoa
þar í janúar.
snjóinn, suður í sólina
STÓRIR hópar fólks eru nú að
leggja upp í páskaferðirnar.
Þeir, sem halda suður í lönd
fiá örugglega sól og hita og þeir
sem kjósa skíðaferðir norður og
vestur ætla lika að fiá óskir
sínar uppfylltar, þar eð farið
er að snjóa. Þegar er fólk farið
að streyma til ísafjarðar með
flugvélum, og komust þrjár flug
vélar þangað í gær. En í kvöld
fer strandferðaskipið Hekla
með fullfermi vestur. Einnig
streyma skíðamenn til Akuxeyr
ar. í kvöld fara 104 íslendingar
með danskri leiguflugvél áleiðis
til Canaríeyja á vegum ferða-
skrifstofunnar Sunnu og verða
komnir í hitann á fimmtulags-
morgun. En um 40 manna hóp-
ur fiór fyrir helgina með Útsýn
áleiðis til Madeira.
Aðal straumurinn sunnanlands
liggur að venju í Öræfasveit-
ina. Þangað haldia a.m.k. 16
öræfabílar á fimmtudagsmorg-
un með um 365 manns, sem
Mbl. er kunnugt um, með Guð
mundi Jónassyni og Úlfari
Jacobsen, eða í samfloti við þá.
Minni hópur, um 50 manns, fer
með Ferðafélaginu í Þórsmörk-
ina. Og um 100 manna hópur frá
Akureyri í Mývatnssveit.
Skíðamenn til fsafjarðar
og Akureyrar.
Ágætur snjór mun vera á fsa
firði og Akureyri. En þá byrja
erfiðleikarnir á að fljúgía. —
Viscount-flugvél Flugfélagsins
þurfti að snúa við þaðan í gær
morgun, en síðdegis lenti bún
og trvær Douglasflugvélar, með
skíðafólk. Aúk þriggja Dacota-
filugvéla mun Flugfélagið hafa
Viscount-flugvélina Gullfaxa í
flutningum á ferðafólki um
páskana. Einkum er mikil sisókn
í flugfar til Akureyrar og ísa-
fjarðar.
Ferðaskrifstofan Lönd og leið
ir hefur skipulagt sérstakar 5
daga ferðir á þessa staði, og fara
a.m.k. 60—70 manns á hennar
vegum til fsafjarðar. Þá hefur
skrifstofan á Akureyri efnt til
5 daga ferðar í Mývatnssveit og
munu um 100 manns fara þang-
að.
300—400 manns í Öræfin
Guðmundur Jónasson fer að
venju með stóran hóp í Öræfa-
sveitina, um 170 manns í 6—8
bílum, gistir á Kirkjubæjar-
klaustri og í samkomuhúsinu
og í tjöldum á Hofi. Úlfar Jacob
sen fer með fjóra bíla og var
í gær búinn að bóka fast 108,
en reiknaði með 120 manns. —
Hann lætur gista í Öræfum,
bæði á Fagurhólsmýri og Hofi
og ætlar að koma við í Ingólfs-
höfða á leiðinni, en þaðan er
mjög skemmtilegt útsýni upp til
landsins, allt frá Lómagnúpi til
Hornafjarðar. Þá fara Reykhylt
ingar að venju í Öræfin á pásk
um, koma um 30 manns í bæinn
á miðvikudagskvöld til að ná
bílalestinni á fimmtudagsmorg-
un, en þeir eru í 2 bílum. Auk
þess er vitað um tvo 10 manna
hópa og einn 20 manna hóp, sem
verða í samfloti við hina vönu
Öraafabílstjóra.
Ferðafélagið fer í Þórsmörk
með 50 manns, bæði á fimmtu
dagsmorgun og 1 au ga rdagsmorg
un. Þaðan var skotfæri fyrir
hálfum rrvánuði, þegar farið var
inn eftir. Áfiormað hafði verið
að reyna að komast að Haga-
vatni, en Bláfiellsháls mun vera
blautur og ófær.
1 fyrramálið í sólinni
og hitanum.
Hópurinn sem leggur af stað
með ferðaskrifstofunni Sunmu
í kvöld suður á bóginn, fer frá
Keflavíkurflugvelli kl. 11 með
sérstaklega leigðri DC-7C frá
Flying -Enterprice, sem tekur
104 farþega. Ef hægt verður að
fljúgja beint til Canaríeyja, lend
ir flugvélin þar næsta morgun
kl. 7—9, en annars verður milli
lent í Lissabon. Hópurinn dvei-
ur svo á Canaríeyjum í viku,
flýgur með viðkomu í Marakes
til Mallorca, dvelur þar í 4 daga
og kemur um London heim þann
8. apríl.
Annar hópur er farinn, um
40 manns með ferðaskrifstofunni
Útsýn. Fór hópurinn á laugar-
dag og er ætlunin að koma til
Lissabon, Parísar, Sevilla og
Madeira og vera þar um pásk-
ana.
Þannig er fólkið nú farið að
streyma í snjóinn fyrir norðan,
sólina í Suðurlöndum, upp til
fjalla og í fjarlægar sveitir.
og austur í öræfin