Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 3
Firrtmtiadagur 23. aprfl 1064 MQRGUN BLAÐIÐ «3 ingshöggi Björgvins Björgvins sonar, sem við það komst til ríkis sem iunnukóngur. Þá var eftir að höggva nið- ur „köttinn". Kylfurnar voru lagðar til hliðar, en sverð mundað í þeirra stað. Þar kom, að „kisi“ féll til jarðar við mikil fagnaðarlæti áhorf- enda. 14 ára hestamaður. Þór HESTAMANNAFÉLAGIÐ Léttir á Akureyri sló köttinn úr tunnunni á sunnudaginn. Á þriðja tíimanum duirtdu Akur- eyrargötur af jódyn og hófa- hljóði, svo að forvitnin rak margan væðrarfullan góðborg- ara út í glugga. Þar gat_heldur en ekki á áð líta. Tuttugu og tveir skartbúnir riddarar þeystu á gangvörum sinum í skrúðfylkingu gegnum bæinn. Fremstur fór fánaberi í lit- klæðum, en síðan hið fríðasta lið í margs kon'ar gervum. Þar mátti kenna skikkjuklædda fornmenn, borðalagða kóngs- ins bífalingsmenn, vestræna kúreka, þriflega búhölda og jafnvel sjálfan Zorro, með svarta grímu fyrir andliti og með svartan stromphatt eigi alllítinn. Margir gæðinganna voru undir skrautlegum reið- verum. Fylkingin staðnæmdist á utanverðri Oddeyri, og hafði þar safnazt múgur manns til að horfa á kattarsláttinn. — Þetta var heldur ekki smá- ræðis viðburður í bæjarlífinu. Á opnu svæði austur af Lindu, en sunnan Kaffi- brennslu Akureyrar, hafði skrautmáluð tunna verið hengd upp í gálga. Hún smá- dinglaði fyrir hægum norðan andvara og beið tortímingar. Riddararnir fengu nú kylf- ur í hendur, þeysitu hver eftir annan að tunnunni og greiddu henni bylmingshögg, eitt högg í einu hver maður. Lengi vel lét tunnan ekki á sjá. Hestarnir voru * sumir svo- lítið hvumpnir við dinglandi tunnuna og hertu duglega á sprettinum, þegar höggin buldu á henni. En knaparnir misstu ekki taumhaldið. Við bar, að hestur hljóp út undan sér við höggið, sem þá varð vindhögg. Við eitt slíkt var minnsti knapinn, Þórarinn Sigurbjörnsson, 7 ára, nær fall inn af baki, því að hann dró ekki af högginu, en á síðustu stundu gat hann krækt hönd- um og fótum utan um makka vinar síns og klöngrazt upp í hnakkirun aftur. Þá var klap>p- að. Brátt tók tunnan að láta undan. Fyrst datt gjörð, svo fóru stafir að brotna. Þá kom „kötturinn" í ljós, dauður grá- máfur, dinglandi á löppunum. Zorro (Ingólfur Magnússon), gerðist nú þunghöggur og sundraði þeim tunnustöfum, sem enn héngu, en þó vár botn inn eftir ósigraður. Erfitt var Þrir af yngstu knöpunum, kat tarkóngurinn, Þór Sigurðsson (14 ára), Þórarinn Sigurbjörnsson (7 ára) og Valdemar Valdemars- son (11 ára). Ljósm.: Jóhanna Þórarinsdóttir. að koma á hann góðu höggi, þar sem hann dinglaði mjög, en loks lét hann undan bylm- Sigurðsson, réð niðurlögum hans og hlaut fyrir sæmdar- heitið „kattarkóngur". Akureyringar höfðu átt skemmtilega stund, lýsta frægðarljóma. — Þakklátir Léttis-mönnum fjrir skemmt- unina og framtakið sneru menn heimleiðis, sumir eilítið blánefjaðir. — Sv. P. Skrautbúnir knapar slá knöttinn úr tunnunni STákSTEIIVAR „Tíminn“ og NATO „Tíminn“ minnist fimmtán ára afmælis Atlantshafsbandalagsins með nokkuð sérstæðum hætti í gær. Birtur er níðbragur um bandalagið, þar sem meðal ann- ars er fátið að því liggja, að hið hörmulega ástand á Kýpur sé At lantshafsbandalaginu að kenna! Er það næsta nýstárleg kenning og eng’um samboðín — nema auðvitað „Timanum". Þá skilst lesandanum einnig, að NATO beri ábyrgð á stjórnarfarinu í Portúgal! Og þá má ekki gleyma garminum honum Katli; vitan- lega er minnzt á sjónvarpið í lokaerindinu. Ritstjóri „Tímans“ hefur nú leikið þann gráa leik fulllengi að glotta til hægri eða vinstri, eftir því sem hann telur að þjóni persónulegri framagirnd sinni innan Framsókn arflokksins bezt í hvert sinn. Undanfar- in ár hefur Þór- arinn Þórarins- son talað og skrifað þannig, að engum þjón- ar nema komm- únistum. Þetta gerir hann e. t. v. ekki af sann- færingu, heldur til þess að laða að Framsóknarmaddömunni fylg ið, sem er að slitna aftan úr hala kommúnistaflokksins. Á hinn bóginn situr hann í varastjórn Samtaka um vestræna samvinnu (var að vísu felldur úr aðal- stjóm af eigin flokksmönnum) og hefur mætt sem öldungur á fundum Varðbergs, hvaða erindi, sem hann þykist nú eiga þang- að. Þá hefur hann tekið þátt í alþjóðasamstarfi NATO-vina og skrifað m. a. undir skelegga yfir lýsingu. Hvernig væri nú, að maðurinn reyndi að vera heiðar- legur a. m. k. gagnvart sjálfum sér? Reyndi að ákveða í eitt skipti fyrir öll, hvort hann á að fara í hægri eða vinstri sokkinn fyrst, þegar hann stígur fram úr á morgnana? Annars gerir líklega ekki mikið til, hvað þessi maður hugs ar eða skrifar. Hans dagar eru brátt taldir innan Framsóknar. Hermann er farinn, og röðin er nú komin að Eysteini og Þórarni. Yngri menn eru orðnir óþolin- móðir. Þeir munu erfa landið fyrr en margur hyggur. Mene, mene tekel ufarsin, er skrifað á vegginn. (Dan. 5.25). Kratar hér og kratar þar »Alþýðublaðið“ segir í gær í leiðara undir fyrirsögninni: „Sömu jafnaðarmenn": „Hér á landi er rekinn harð- vítugur áróður gegn Alþýðu- flokknum þess efnis, að hann hafi brugðizt hugsjónum sínum og sé orðinn íhaldssamari en jafnaðarmannaflokkar annarra landa, og er oft bent á norska Alþýðuflokkinn því til sönnun- ar. Þessi áróður hefur byggzt á því, að Alþýðuflokkurinn hefur, þegar hann hefur setið í rikis- stjómum, staðið að ýmsum óhjákvæmilegum aðgerðúm til að vernda hag heildarinnar, þótt stundum gangi það út yfir ein- stakar stéttir. Fregnin um lausn vinnudeil- unnar miklu í Noregi ætti að sannfæra þá, sem vilja hlusta á rök, um að þessi áróður gegn Alþýðuflokknum er fjarstæða. Jafnaðarmenn annarra landa, ekki sízt á Norðurlöndum, gera sanibærilegar ráðstafanir, þcgar þjóðarhagur krefst þess. Flokk- arnir þar og hér hafa sömu stefnu“. *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.