Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 21
^ Fimmtudagur 23. apríl 1964
MORGUNBLAÐIO
21
— Hann sveik
Framhald af bls. 17.
Wennerström, njósnarinn
óviðjafnanlegi, hefur um
langt skeið aflað Sovétríkjun-
um ómetanlegra upplýsinga
um strandvarnir, áætlun, sem
nefnd hefur verið „Stril“.
Bezt tókst honuan þó upp í
september 1961. Hann gekk
inn í aðalstöðvar flug'hersins,
las allar nýjustu upplýsingar
um' loftvarnir. t>á aflaði hann
sér allra.helzt upplýsinga um
nýja herflugvél, „Viggen", og
allt, sem máli skiptir um
tækniútbúnað hennar. Upp-
lýsingarnar voru síðan sendar
til Moskvu, þar sem þær voru
lagðar fyrir rafmagnsheila
til úrvinnslu.
Á miðju ári 1962 hafði’
„Stril“ þegar kostað sænsku
stjórnina um 1 milljarð s. kr.
(8 milljarðar ísl.). Sovétríkin
höfðu ekki einu sinni greitt
100.000 s. kr. fyrir leyndar-
málin um standvarnirnar.
Síðari og um leið þýðingar-
meiri innrásarleiðin, liggúr
um landamæri í norðri. Sví-
ar eru ekki í neinu varnar-
bandalagi, en Noregur með-
limur . í NATO. Sovétríkjun-
um er þó fullkunnugt um, að
mikil samvinna er milli Nor-
egs og Svíþjóðar í vamarmál-
um. Grannrikin hafa skipzt á
mjög þýðingarmiklum leynd-
armálum.
Haustið 195ö fór Swedkmd,
hershöfðingi, til Bandaríkj-
anna til að ræða sameiginleg-
ar landvarnir Noregs og Sví-
þjóðar. Swedlund var þá
æðisti maður sænskra her-
mála. Fyrsti maðurinn, sem
bauð Swedlund veikominn til
Washington, var Wenner-
ström, sem þá var flugmála-
ráðunautur sænska sendiráðs-
ins vestra. Allt frá þeim tima
hefur Wennerström fylgzt ná-
kvæmlega meg samstarfi Sví-
þjóðar og NATO. Noregur var
nú raunverulega óvarinn í
norðri. Sakir athafna Wenner
ströms var árlegri fjárveitingu
sænska þingsins til varnar-
mála raunverulega eytt til
einskis — um 26.400 milljón-
um ísl. króna.
Þegar setzt var niður árið
1962, til að áikveða framlög
sænsika ríkisins til varnar-
mála, lá fyrir skýrsla brezku
og bandarísku leyniþjónust-
unnar um 'hluta njósna Wenn
erströms. Ljóst var þá, að
hann hafði komizt yfir og
skýrt frá leyndarmálum varð-
andi NATO. Hins vegar var
ekki ljóst þá, hvort hann
hafði einnig svikið sitt eigið
land.
Stærsta leyndarmálið um
Wennerström var, að hann
hafði um árabil verið mjög
góður njósnari fyrir Sviþjóð.
Hermálafultlrúi sendiráða á
að vera njósnari í vissum
Skilningi. Hann á að afla, með
öllum tiltækum, löglegum ráð-
um, allra þeirra upplýsinga
um hermál þess lands, sem
han dvelst í. Þótt það sé ekki
fyrir hann lagt skriflega, þá
standa honum aðrar leiðir opn
ar til að afla slíkra upplýs-
inga. Wennerström hafði feng-
ið sína kennslu í Svíþjóð, og
árangur hennar kom oft í ljós.
Fáir menn hafa reynzt eins
verðmætir, að þessu leyti, og
Wennerström. Frá honum
streymdu alls konar upplýs-
ingar um herbúnað stórveld-
anna. Helzta meistaraverk
hans var leyniskýrsla frá 1947.
Fyrir ...
Þar skýrði Wennerström í
heild starfsemi sovézku leyni-
þjónustunnar, í smáatriðum.
Skýrslan var talin mjög verð-
mæt. Hún var svo góð og ná-
kvæm, að við sjálft lá, að hún
vekti grunsemdir. Leyniþjón-
ustan lét til skarar skríða, og
í ljós kom, að Wennerström
hafði látið Þjóðverja í té upp-
lýsingar á styrjaldarárunum.
Þetta var þó talið vera kæru-
leysis vegna, en allt frá þess-
ari stundu var Wennerström á
„spjöldum“ sænsku leyniþjón-
ustunnar.
Hann gata þó gefið fullnægj
andi skýringar á því, hvernig
honum hefði tekizt að afla
upplýsinga um starfshætti
sovézku leyniþjónustunnar. —
Málið var látið niður falla.
Næstu ár komu skýrslur frá
Wennerström í hundraðatali.
Honum gekk svo vel, að hann
var látin hafa frjálsari hend-
ur, en almennt gerðist. Hann
skipti jafnt við sovézka og
bandaris'ka aðila.
Njósnir Wennerströms í
þágu Svía voru svo þýðingar-
miklar, að „yfirmenn" fundu
„eðlilegar skýringar" á óeðli-
legum áhuga hans á nýjung-
umí sænskum varnarmálum,
og því, hve mikið hann um-
gekkst erlenda sendimenn.
Það er langt síðan, að
sænska leyniþjónustan gerði
sér grein fyrir því, að njósnir
voru reknar í Svíþjóð. Þegar
í lok áratugsins 1940—50 bár-
ust upplýsingar frá Bandaríkj
unum og Bretlandi, þess efnis,
að Sovétríkin hefðu óeðlilegan
greiðan aðgang að varnaráætl-
un Svía. Athuganir, sem í kjöl
far þess fylgdu, leiddu í ljós,
að Hilding Andersen, sem áð-
ur er nefndur, njósnaði í þágu
Sovétríkjanna. Þegar yfir-
heyrslur yfir honum hófust,
komst lögreglan að því, sér til
mikillar skelfingar, að hann
hafði aðeins afhent hluta
þeirra upplýsinga, sem vitað
var, að fallið höfðu í hendur
sovézkra. Aðrir hlutu að reka
njósnir í Svíþjóð. Leitað var
með logandi ljósi, en allt kom
fyrir ekki. Ástæðan: Wenner-
ström var ekki í Svíþjóð.
Hann var flugmálafulltrúi
sænska sendiráðsins í Moskvu.
Ljóst var, að leyndarmálin
voru ekki óhult, en ekki var
hægt að setja undir lekann.
Oft var minnzt á nafn
Wennerströms, en alltaf var
þó talið, að hann væri sak-
laus. Vitneskja lá fyrir um, að
hann var and-kommúnískur í
skoðunum. Ekki var vitað um
neinn veikleika í fari hans,
sem gerði kommúnistum auð-
velt að knýja hann til starfa
fyrir sig. Efnahagur hans var
talinn góður. Eftirgrennslan
hafði heldur ekkert leitt í
ljós. Þá hafði framkoma hans
aldrei gefið minnsta tilefni til
grunsemda. Samt sem áður
sleppti leyniþjónustan aldrei
alveg augunum af ofurstanum,
sem nú var að komast á eftir-
launaaldur. Með því að beita
„útilokunaraðferðinni“ komst
leyniþjónustan loks að þeirri
niðurstöðu, að Wennerström
hlyti að vera sekur, þrátt fyrir
allt. Hann hafði aðgang að
fjölda leyniskjala, og sum
þeirra áttu ekkei't erindi til
hans. Samband hans var nú
orðið all-náið við ýmsa starfs-
menn sovézka sendiráðsins, en
vitað var, að þessir menn
höfðu njósnir að aðalstarfi.
1959 kom yfirmaður leyni-
þjónustunnar, G. Thulin, að
máli við sænska varnarmála-
ráðherrann. — Wennerström
hafði þó skýringar á reiðum
höndum. Hann var deildar-
stjóri varnarmáladeildarinnar,
og það var innan hans verka-
hrings að umgangast erlenda
sendimenn. Áhugi hans á
hernaðarleyndarmálum gat-
verið tengdur starfa hans. Það,
sem var þó þyngst á metun-
um, var, að Wennerström
hafði aldrei verið staðinn að
blaðri af einu eða öðru tagi.
Enginn hafði nokkru sinni
staðið hann að því að afhenda
nein leyndarmál. 1961 komst
þó nýr skriður á málið. — í
fyrsta lagi tilkynnti gagn-
njósnadeild bandarísku leyni-
þjónustunnar, að Wenner-
ström hefði látið af hendi á-
kveðin leyndarmál, varðandi
NATO. Sovézkur njósnari,
sem flúið hafði á náðir Vest-
urveldanna, gaf þessar upp-
lýsingar. Þetta sannaði þó
engan veginn,. að Wenner-
ström hefði svikið sitt eigið
land. Þetta gat verið ein af
þeim leiðum, sem hann not-
Eftir . ..
aði til að afla Svíum upplýs-
inga.
Þegar Wennerström óskaði
hins vegar eftir starfi yfir-
manns flugráðsins, þá þóttist
G. Thulin nær viss í sinni sök.
Hvers vegna ætti Wenner-
ström, ofursti, að óska eftir
stöðu, sem hæfði manni, sem
var lægri í tign? Var nokkur
önnur skýring fyrir hendi en
sú, að starfið gæfi honum
greiðan aðgang að leyniskjöl-
um. Mál Wennerströms dró
skyndilega að sér mikla at-
hygli. Thulin lýsti því yfir, að
hann teldi það hneyksli, ef
Wennerström fengi embættið.
Varnarmálaráðherrann kom
þá fram með þá hugmynd, að
rétt væri að gera Wenner-
ström flugmálafulltrúa við
sendiráð Svía í París. Thulin,
sem vissi allt, sem NATO
vissi, neitaði þessu. Þetta fyr-
irkomulag myndi leiða til
þess, að Wennerström yrði
ljóst, að ferill hans var senn
á enda .Betra væri að veita
Wennerström nýtt embætti í
Svíþjóð, eitthvað, sem hann
sjálfur teldi eftirsóknarvert,
en væri þó öryggi Svía ekki
hættulegt. Þaijnig gæti lög-
reglan haldið áfram að safna
sönnunargögnum.
Því var Wennerström boðið
að gerast sérfræðingur um
afvopnun, hjá utanríkisráðu-
neytinu. Sá, sem þessu emb-
ætti gegnir, á að fylgjast með
öllum hernaðarnýjungum, sem
koma frá sænska varnarmála- .
ráðuneytinu. Þá gerði Wenn-
erström einnig ráð fyrir, að
hann fengi greiðan aðgang að
öðrum leyniskjölum.
Skömmu eftir að Wenner-
ström aflaði sér upplýsing-
anna um „Viggen'ý flugvélina
nýju (starfsmenn þeir, sem
skjalanna gættu, vissu ekki,
að Wennerström mátti ekki
sjá þau), kom í ljós, að hann
hafði afhent sovézkum erind-
rekúm upplýsingarnar um
hana. Þó tók enn nokkurn
tíma að loka netinu.
í dag er gátan leyst. Wenn-
erström hefur látið af hendi
leyndarmál, sem vart verða
metin til fjár. Hann hefur
skýrt frá . staðsetningu flug-
stöðva, og annarra stöðva hers
ins. Öll virki í norðri eru
sömuleiðis merkt inn á kort
sovézkra heryfirvalda. Wenn-
erström hefur komið upp um
styrk hverrar einustu her-
deildar, og allar jarðsprengj-
ur og önnur sprengjuvarna- ’
kerfi. Sovétríkin vita allt um
tegundir og fjölda flugvéla,
skriðdreka, stórskotaliðsins; í
stuttu máli allt, sem nokkra
hernaðarlega þýðingu getur
haft.
Þá hefur Wennerström feng
ið Sovétríkjunum í hendur
lykilinn að öllu dulmáli, sem
einstakar herdeildir eiga að
nota, ef til átaka kemur,. svo j
og upplýsingar um hvaða leið-
ir þær myndu þá fara, til að
mæta árásarher. Þá munu
engin atriði, varðandi land-
eða strandvarnir, hafa farið
fram hjá athugulum augum
Wennerströms — og þar af
leiðandi lent hjá sovézkum
heryfirvöldum.
Sænsk heryfirvöld hafa orð-
ið að hætta við hverja nýja á-
ætlun af annarri, eftir að
Wennerström var handtekinn,
20. júní sl. Ein slík áætlun
hafði þegar kostað 480 millj.
ísl. króna.
Eitt er það, sem aldrei verð-
ur metið til fjár: Hugsunin,
skipulagningin, hugvitið, sem
að baki býr heilu varnarkerfi.
Svo kann að fara, að Sviar
verði nú að gerbreyta allri af-
stöðu sinni, og í Svíþjóð er
jafnvel rætt um að koma upp
kjarnorkuher. Með tilmæli
Krúsjeffs í huga, um kjarn-
orkulaust svæði á Norðurlönd-
um og þátt Sovétríkjanna í
þessu njósnamáli, verður vart
annað sagt, en það sé grát- j
broslegt' — í fyllstu merkingu
þess orðs.
Alykfun verkalýðsfélaga
á IMorður- og Austurlandi
MBL. barst f gærkvöldi eftirfar-
*ndi fréttatilkynning frá Aliþýðu
samlbanidi Norðurlands;
Dagana 18. og 19. þ.m. var hald
tn á Akureyri ráðstefna verka-
lýðsfélaiga á Norður- og Austur-
landi. Sátu ráðstefnuina fulltrú-
ar Allþýðusambands Austurlands,
miðstjóm Alþýðusambands Norð
urlands og fulltrúar þeirra verka
lýðsfélaga á Norðurlandi.
Verkefni ráðstefnunnar var að
undirbúa samningsgerð um kaup
og kjör, en svo til öll verkalýðs-
félög norðanlands og austan hafa
samninga eða kauptaxita lausa
frá og með 16. maí nik.
Ráðstefnan gerði eiinróma
ályktun þá uim meginkröfur
verkalýðsfélaganna í væntanleg- v
um samningum, sem hér fylgir
með, og um samstöðu félaganna
gagnvart atvinnurekendum.
Ályktun um kaupgjaldsmál
Báðstefna Alþýðusambands
Norðurlands og Alþýðusambands
Austfjarða, haldin á Akureyri
18. og 19. apríl 1964, ályktar að
beina því til sambandsfélaga
sinna og annarra verkalýðsfélaga
á Norður- og Austurlandi, að þau
undirbúi nú þegar samnimgavið-
ræður við samtök atvinnurek-
enda á þann hátt, að þau myndi
sameiginlega samninganefnd og
veiti henni umboð til þess að lýsa
yfir vinnustöðvunum frá og með
20. maí nk., ef samnimgar hafa
þá ekki tekizt. Eigi öll félög, sem
samþykkja aðild að hefndinni
kost á að tilnefna fulltrúa í hana,
en ella gefi þau nefndinni umlboð
til samninga.
Ráðstefnan telur, að samnings-
grundvöllur í þessurn samningum
verði að byggjast á eftirfarandi:
1) Að óhjákvæmileg launa-
ihækikun komi til framkvæmda
15. maí nk. og síðar í áföngum,
ef um langan samningistíma gæti
orðið að ræða.
2) Að verkalýðsfélögin og sam
tök atvinnurekenda bei'ti öUuim
áhrifum sínum til iþess, að af-
numið verði bann við verðlags-
bótum á laun og að því fengnu,
verði samið um fullgilda verð- .
tryggingu á það grunnikaup, sem
um kann að semjast.
3) Gerðar verði raunhæfar ráð
stafanir til styttingar vinnudags-
ins með eða án atbeina löggjafar-
valdsins.
4) Orlofsréttindi verði aukin
svo að lágmarksorlof verði 21
virkur dagur og orlofsfé 8%.
5) Greiðslur til sjúkrasjóða
verði 1% af öllum greiddum
vinnulaunum.
6) Vikukaup með ós-kertu
kaupi fyrir helgidaga verði tekið
upp fyrir allt verkaflók, sem
vinnur að staðaldri hjá sama at--
vinnurekanda.
7) Samningsaðilar beiti sér fyr-
ir aðgerðum til lækkunar hús-
nseðiskostnaðar m. a. með sér-
lánum, sem veitt verði með hag-
stæðum kjörum úr atvinnuleysis-
tryggingasjóði fyrir milligöngu
verkalýðsfélaganna til húsnæðis-
mála félaga í verkalýðsfélögun-
um.
8) Samið verði um aukna
vlnnuvernd barna og unglinga.
9) Óhjákvæmilegar leiðrétting-
ar verði gerðar á töxtui.. og
kjaraatriðum félaga á sambands-
svæðunum og hvorttvegigja sam-
ræmt eftir því sem kostur er á
og launatöxtum fækkað.
Ráðstefnan lýsir yfir stuðningi.
sínum við ályktun miðstjórnar
Alþýðusambands íslands frá 16.
apríl sl. og býður fram fyrir
hönd A.N. og A.S.A. samstarf við
heildarsamtökin til lausnar á
kjaramálunum í samræmi við þá
ályktun.
OPTIK
REVKJAVIK
HAFNARSTR. 1»