Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.04.1964, Blaðsíða 16
16 MORGUNB LAÐI& Fimmtudagur 23. apríl 1964 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið NORÐURLÖND LEYSA VANDANN ð undanförnu hafa borizt'®- fregnir af því, hvernig deilur um kjaramál eru leyst- ar í Svíþjóð, Noregi og Dan- mörku, en það er sammerkt með aðgerðum allra þessara þjóða að reynt er að spyrna fótum við verðbólguþróun og stilla kaupkröfum og launa- hækkunum í hóf, enda- gera menn sér grein fyrir því, að kauphækkanir umfram fram- leiðsluaukningu eru engum til góðs. Áður hefur verið vikið að lausn launamálanna í Sví- þjóð og Danmörku, en nú hef- ur frétzt af Norðmenn hafi ákveðið, að gerðardómur skuli skera úr um ágreinings- efni launþega og vinnuveit- enda, en vinnuveitendur hafa boðið 2% kauphækkanir, en launþegar fara fram á 5% heildarhækkanir. Þarna er svo mikið talið bera á milli, að ógerlegt sé að brúa bilið með frjálsum samningum og þess vegna verði að ákveða gerðardómsleiðina. Á sl. ári urðu hér á landi almennar kauphækkanir um 30—40%. Fyrirfram vissu all- ir, að slíkar hækkanir hlutu að leiða til almennra verð- hækkanna og erfiðleika út- flutningsframleiðslunnar, en samt voru þessar kauphækk- anir knúðar fram. Slíka þró- un forðast frændþjóðir okkar á Norðurlöndum eins og raun ber vitni. Aðgerðirnar í Noregi sýna, hve fráleitar stórfelldar kaup hækkanir eru. Þar er talið vonlaust að brúa bil sem nem- ur 3%, án þess að fá málið gerðardómi til úrlausnar, en hér hafa menn tíðum gert kaupkröfur, sem numið hafa tugum prósenta. Það er sann- arlega tímabært, að við ís- lendingar tökum ókkur frændþjóðirnar til fyrirmynd ar í þessum efnum, enda hafa þær frá styrjaldarlokum sótt hraðar fram í kjaramálum en við íslendingar, einmitt vegna þess, að skynsamlega hefur verið á málum haldið. Auðvitað er æskilegast að ná frjálsum samningum milli launþega og vinnuveitenda, en ef það tekst ekki, þá er það áreiðanlega bezt fyrir alla aðila, að ríkisvaldið láti málið til sín taka, eins og raun hefur hú orðið á í Noregi. STEFÁN ÍSLANDI IT'áir menn hafa aukið hróð- * ur íslands meir en Stefán íslandi, enda hefur hin und- urfagra rödd hans snortið við- kvæma strengi meðal þús- unda manna innanlands og utan um áratugi. Stefán íslandi hefur nú ákveðið að láta af störfum við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn, enda þótt dönsku blöðin segi að hann hafi að undanförnu enn sung- ið svo vel, að fáir yngri menn mundu jafnast á við hann. En Stefán segist vilja hætta meðan allt leikur í lyndi, því að annars væri hætta á bitur- leik og vonbrigðum. Rödd Stefáns íslandi hefur nú hljómað á sviði Konung- lega leikhússins í 26 ár, en þar hættir nú þessi mesti söngvari íslands að starfa. Morgunblaðið veit, að það mælir fyrir munn íslendinga allra, þegar það sendir Stef- áni íslandi kveðjur og þakk- ir og óskar þess að gæfan fylgi honum. ALA Á KRÖFU- GERÐ í ritstjórnargrein Tímans í * gær er verið að ala á kröfugerð. Þar stendur m.a.: „Enginn getur láð verkafólki, þótt það beri fram kröfur um kjarabætur eins og ástatt er.“ Ritstjórn Tímans er jafn kunnugt um það eins og öðr- um, að launþegasamtökin höfnuðu því í desembermán- uði, að verkamenn fengju hlutfallslega meiri hækkanir en aðrir. Hin kommúníska forysta í launþegasamtökun- um lýsti því yfir, að hún vildi ekki raska launahlutfallinu. Þess vegna er ekki spurning um það að hækka laun verka- fólks, vegna þess að það er yfirlýst stefna launþegasam- takanna, að allir aðrir mundu þá hækka um leið. Landsmenn allir vita nú orðið, að almennar kaup- hækkanir færa þeim ekki kjarabætur, heldur stofna þær einungis til aukinna erf- iðleika og draga úr framför- um og því jafnvægi í efna- hagslífinu, sem tryggir bezt kjör í bráð og lengd. En Framsóknarforkólfarnir geta ekki stillt sig um það að reyna að efna til nýrra deilna. Þeir leggja flokks- pólitískan mælikvarða á öll mál, og þeir halda að þeir geti hagnazt á því pólitískt að efna til nýrrar verðbólgu- þróunar. Þeir hvetja þess vegna kommúnista sem mest írena og Carlos Hugo ganga í hjónaband í Róm <»»'** *r>> Sýningarstúlkur Balmains klæddust fjölda brúðar- kjóla fyrir frenu ogr hún vaidi þann, sem myndin sýnir. um leið og trúlofunin var opinberuð, en ekki hefði verið tilkynnt um hann fyrr vegna ferðar hollenzku konungsfjöl- skyldunnar til Mexíkó. írena fór ekki til Mexíkó með fjöl- skyldu sinni, en hélt í stað þess til Parísar til fundar við unnusta sinn. Talsmaður Júlíönu drottn- ingar lýsti því hins vegar yfir, að henni og manni hennar, Bernhard prins, hefði verið tilkynnt um brúðkaupið sím- leiðis sama dag og opinbera tilkynningin um það var gefin út, en ekkert ráðgazt við þau um málið. Hefur þessi yfirlýs- ing vakið mikla reiði í Hol- landi. írena og unnusti hennar dveljast nú í Frakklandi og er nú verið að sauma brúðar- kjól hennar hjá fræga tízku- konunginum Balmain. TILKYNNT hefur verið, að írena Hollandsprinsessa og Caríos Hugo prins af Bourbon- [ Parma verði gefin saman í hjónaband í Róm miðvikudag- inn 29. april nk. Það voru for- ' eldrar Carlosar Hugos, Xavier prins og Magdaleine prinsessa, > sem skýrðu frá því hvar og hvenær brúðkaupið yrði hald- ið. — Einkaritari Júlíönu Hol- ; landsdrottningar tilkynnti, skömmu eftir að fregnin um brúðkaupsdaginn var birt, að ' hollenzka konungsfjölskyldan myndi ekki koma til brúð- > kaupsins. í tilkynningu Xaviers prins, sem talsmaður hans las fyrir fréttamönnum, er látið að því liggja, að grunnt sé á því góða , milli fjölskyldna hinna ungu brúðhjóna. Þar segir m. a.: | „Okkur þykir leitt, að ýmis stjórnmálaöfl gerðu sitt ítr- asta til þess að koma í veg ' fyrir trúlofunina, en sem bet- ur fer tókst það ekki. Hins veg ' ar tókst að varpa skugga á tengsl fjölskyldna brúðhjón- anna“. Sem kunnugt er vakti trú- lofun Irenu og Carlosar Hugos mikinn úlfaþyt í Hollandi og Irena varð af afsala sér rétt- indum til rikiserfða vegna þess að þing landsins var ekki ánægt með mannsefnið. Stjórn Hollands óttaðist að írena myndi taka virkan þátt í bar- áttu unnusta síns fyrir kon- ungdómi á Spáni og hollenzka konungsfjölskyldan þannig verða bendluð við það mál. Sem kunnugt er hefur Franco einræðisherra Spánar lýst því yfir, að hann hyggist endur- reisa konungdóm í landinu og til skamms tíma hefur Don Juan Carlos, sonarsonur Al- fonsos Spánarkonungs, verið talinn sjálfsagður ríkisarfi, en fjölskylda Carlos Hugos telur sig hafa jafn mikið tilkall til krúnunnar. Þegar tilkynnt var um brúð kaup írenu og Carlosar Hugos, var sagt, að hann hefði verið ákveðinn í samráði við hol- lenzku konungsfjölskylduna írena og Carlos Hugo. „Borgaranefnd Repúblík- ana“ skorar á U.S.A. aá reyna að auka einingu innan NATO Washington 21. apríl (NTB) HÓPUR stjórnmálamanna úr Repúblíkanaflokki Banda- ríkjanna undir stjóm Miltons Eisenhowers, hróftur fyrrv. Ba>ndaríkjaforseta, hefur sent frá sér skýrslu þar sem þess er krafizt, að Bandaríkja þeir mega til þess að leggja enn til atlögu. En hinn al- menni flokksmaður í Fram- sóknarflokknum tekur eftir þessari iðju blaðsins og ekki er víst, að forysta Framsókn- arflokksins eigi eftir að hagn- ast á henni u» það er lýkur. Annars er það athyglisvert, að Framsóknarflokkurinn, h@f ur engin úrræði til lausnar neinum vanda. Hann er á móti öllum góðum málum. menn grípi þegar í stað til aðgerða til þess að efla ein- inguna innan Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Með- al þeirra, sem sömdu skýrsl- una eru hershöfðingjarnir Lauris Norstad og Alfred Gru enther, sem báðir eru fyrr- Hann segir stjórnarstefnuna ranga, en getur þó ekki bent á neinar breytingar til úrbóta aðra en þá að lækka vexti og auka útlán. Vita þó allir, hvað slíkt muncli þýða, þegar vinnu aflsskortur er og meira fram- kvæmt en menn með góðu móti komast yfir. Slík ráð- stöfun hlyti að leiða til óða- verðbólgu, en það virðist vera það, sem fyrir Framsóknar- forystunni vakir. verandi yfirmenn Atlantshaf. bandalagsins. Þeir, sem létu gera skýrsluna, nefna sig „Borgaranefnd Repú- blíkanaflokksins, sem rannsakae mikilvæg mál.“ Sem áður segir er þess krafizt í skýrslunni, að Bandaríkin reyni að auka ein. inguna innan Atlantshafsbanda- lagsins,, og þar segir, að ágrein- ingurinn, sem nú ríki innan bandalagsins, grafi undan samtölc um er eigi að standa vörð um öryggi hins frjálsa heims. I skýrslunni segir, að Bandaríkin verði framvegis að bera stærstu efnahagslegu byrðarnar innan bandalagsins, en þrátt fyrir það finnist bandamönnum þeirra ekki nægilegt að fá fréttir af á. kvörðunum, sem þeir ráði engu um. Þeir geti með réttu krafizt þess að fá að vera með i ráð. um. í skýrslunni er varað við afleið ingum af því að eitt land inna« bandalagsins leiti sérsitakra samn inga og ívilnana af hálfu So>vét« ríkjanna og bent á að slíkt myndi sennilega verða ti'l þes* að bandalagið leystist upp. Seg- ir, að Bandaríkin geti dregið úe þessari haettu með fordæmi »ínu, þ.e.a.s. með því að sýna vissa tregðu í samski»U''U við Sovófc. ríkin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.