Morgunblaðið - 23.04.1964, Síða 25
Fimmtudagur 23. apríl 1954
MORGUNBLAÐIÐ
25
laun og þess utan 10% af á-
góða af sölu myndarinnar. —
Kvikmyndatakan hafi hafizt í
London 28. september 1960, en
vegna alvarlegra veikinda leik
konunnar hafi nokkru síðar
orðið að fresta henni, til 25.
september 1961, er aftur var
hafizt handa, í Róm. Síðan
hafi starfi leikkonunnar fyrir
félagið verið lokið 28. júní
1962 og þá hafi hún verið bú-
in að fá 2 milljónir dollara
fyrir vikið.
Kvikmyndafélagið telur, að
Elisabeth Taylor hafi rofið
gerða samninga með ýmsu
móti, m.a. með því að fylgja
ekki skynsamlegum og eðli-
legum reglum félagsins, með
því að koma of seint til starfa,
eða koma ekki til starfa á um-
sömdum tímum; með því að
leggja ekki tilskilda alúð við
hlutverk sitt; með því að
stunda líferni, er gert hafi
hana óhæfa til starfa og
myndatöku; með því að koma
öðrum til að rjúfa skuldbind-
ingar sínar við félagið og með
því að gera sjálfa sig hlægi-
lega í augum almennings,
brjóta í bága við almennt sið-
gæði og rýra þannig með
framkomu sinni sölgildi mynd —
arinnar. I
Félagið telur sig hafa beðið ■
gífurlegt tjón af framferði I
leikkonunnar. Segir í stefn- ■
unni, að tjónið sé ekki unnt
að meta til fulls nú, en það sé
áætlað ekki minna en 20 millj.
dollara.
í öðrum lið stefnúnnar er
þess krafizt, að Burton, sem
íengið hafi 500.000 dollara að
bótakröfur
50 milljónir dollara
20 th. Century Fox höfðar mdl gegn
Elizabeth og Richard Burton
New York, 22. apríl.
— AP —
Kvikmyndafélagið
20th Century Fox, hefur
höfðað mál gegn Elisabeth
Taylor og Kichard Burton
vegna meintra brota þeirra
á samningum við félagið
vegna töku kvikmyndar-
innar „KIeopatra“. Krefst
fyrirtækið 50 milljón doll-
ara bóta af þeirra hendi og
staðhæfir m.a., að þau hafi
rýrt sölugildi kvikmyndar-
innar með framkomu sinni
og hegðun, bæði meðan á
töku kvikmyndarinnar
stóð og eftir það.
f stefnu félagsins segir m.a.,
að orðið hafi að taka kvik-
myndina á Ítalíu og í Egypta-
landi, sökum þess, að Elisa-
beth Taylor hafi ekki fallizt á
að taka að sér hlutverkið,
yrði myndin tekin í Banda-
ríkjunum. Þá segir, að sam-
kvæmt samningi, sem gerður
hafi verið við Elisabeth Tayl-
or 14. október 1959, hafi henni
verið tryggð 750.000 dollara
launum fyrir leik sinn í mynd
inni, greiði félaginu 5 milljón-
ir dollara í bætur fyrir ýmis
konar brot á samningum.
Þriðji liðurinn kveður á um
25 milljón dollara bótakröfu
til viðbótar af þeim báðum,
Elisabeth og Richard. Er aðal-
efni ákærunnar, að þau hafi
með framferði sínu skaðað
sölugildi kvikmyndarinnar
mjög og auk þess hafi þau
ekki lagt sig fram í hlutverk-
um sínum sem skyldi og sem
hefði mátt krefjast af þeim,
svo ágætum og einstaklega
hæfileikamiklum listamönn-
um, er þau hefðu verið talin
— og hefði verið ástæðan til
að eftir þeim var falazt í hlut-
verkin.
— Heimssýningin
Framh. af bls. 1
kynsins. Því það er ekki aðeins
hugsanlegt að friður ríki, heldur
virðumst við færast stöðugt nær
friði“.
Johnson minntist á heimssýn-
inguna 1939 og sagði, að rættust
vonir mannkyns, myndu gestir
á næstu heimssýningu í Banda-
ríkjunum sjá merki um enn meiri
og stórkostlegri framfarir en orð
ið hefðu frá 1939 til þessa dags.
Hann sagði, að þeir gestir myndu
jafnframt sjá í Bandaríkjunum
Iþjóð, þar sem enginn væri fá-
tækur, engin afskiptur vegna hör
undslitar eða trúarbragða, —
þjóð sem yrði önnum kafin við
að leysa hin erfiðustu vandamál,
sem sköpuðust fyrir sívaxandi
fólksfjölgun.
★
: Sem fyrr segir, kom til nokk-
urra óeiröa áður en athöfnin
hófst og um það bil er hún stóð
yfir. Leiðtogar blökkumanna
höfðu tilkynnt, að þeir myndu
reyna að hefta umferð til sýning-
arsvæðisins. Sú fyrirætlun fór út
um þúfur og var umferð yfirleitt
með eðlilegum hætti. Þó dró til
tíðinda á nokkrum stöðum. Fá-
einir blökkumenn höfðu stöðvað
neðanjarðarlest með því að taka
í neyðarhemla og á öðrum stað
hafði hópur manna tekið sér sæti
á járnibrautarteinum. >á söfnuð-
ust saman margir blökkumenn,
og nokkrir hvítir, þar sem þyrla
forsetans lenti og hrópuðu:
„Við vilium frelsi nú“, meðan
forsetinn steig út. Tugir manna
voru handteknir á þessum stöð-
um öllurn og kom sums staðar
til blóðugra átaka milli þeirra og
lÖgreglu.
Þrjú þúsund manna lögreglu-
liði hefur verið komið á fót til
þess eins að fjalla um hugsan-
legar óeirðir meðan á sýningunni
stendur. Eru margskonar varúðar
ráðstafanir við hafðar.
Aðalleiðtogi blökkumanna í
þessum aðgerðum heitir Isia'h
Erunson og er 22 ára að aldri.
Hann hefur tilkynnt, að mark-
miðið sé að fá sýningunni lokað,
enda sé hún „tákn um hræsni
Bandaríkjanna“. Hinsvegar hef-
ur harnn einnig lýst því yfir að
þeir, sem að aðgerðunum standi
muni ekki beita valdi nema í
sjálfsvörn. Kallaði Brunson fólk
sitt til fundar í kirkju einni á
Manhattan í dag, dreifði þar regl
um, sem því ber að fylgja og
varaði blökkumenn við að bera
á sér odd/hvassa hluti eða beitta.
Ngo Dinh Con
dæmdur til
duuðu
★ Ngo Dinh Can, yngri
bróðir Ngo Dinh Diems, fyrr-
um forseta S-Vietnam, var í
dag dæmdur til dauða í Sai-
gon fyrir morð, misnotkun
valds og margskonar afbrot.
framin í valdatíð bróður hans.
Ngo Dinh Can er 58 ára að
aldri. Hann var handtekinn
skömimu eftir að bróður hans var
steypt af stóli. Hann reyndi að
leita hælis í banidarísku ræðis-
maninsskrifstofumni í Hue, þar
sem aðsetur hans var, en var
synjað hælis. Á valdatíma Diems
hafði Can öll yfirráð í miðhlúta
landsins.
Réttarhöldin yfir Can hafa
staðið í sex daga. Eftir að dómur
var kveðinn upp var tilkynnt, að
hann gæti reynt að senda náðun-
arbeiðni til stjórnarinnar innan
sólarhrings. Verði henni synjað
verður hann hálshöggvinn eftir
fimm daga.
Bretar og
skiptast á njósnurum
London, 22. apríl.
— AP — NTB —
í nótt skiptust Bretar og
Rússar á njósnurunum
Greville Wynne og Gordon
Lonsdalé á landamærum V-
Berlínar og A-Þýzkalands. í
opinberum tilkynningum
stjórnanna segir, að skiptin
hafi verið ákveðin af mann-
úðarástæðum, þar sem Gre-
ville Wynne hafi verið sjúkur
maður. Hann var dæmdur í
fyrra til átta ára fangavistar
af sovézkum dómstóli — en
hann hafði verið handtekinn í
Ungverjalandi, þar sem hann
var í verzlunarerindum. Lons
dale var hinsvegar dæmdur í
London árið 1961 — til 25 ára
fangavistar fyrir að hafa stað-
ið fyrir víðtækri njósnastarf-
semi í brezka flotamálaráðu-
neytinu.
Skiptin á mönnunum fóru
fram kl. 4.35 í morgun, að ís-
lenzkum tíma, við varðstöðina í
Heeresstrasse á brezka hernáms-
svæðinu. Voru viðhafðar hinar
ströngustu öryggisráðstafanir, en
skiptin gengu fljótt fyrir sig. Að
svo búnu var Wynne fluttur rak-
leiðis um borð í brezka herflug-
vél og áfram til London. Eigin-
kona Wynnes, sem fékk að heim-
sækja mann sinn í fangelsið í
Moskvu, ekki alls fyrir löngu,
beið hans fyrir utan hús þeirra
í Chelsea, ásamt 12 ára syni
þeirra.
Wynne sagði við blaðamenn, að
sér hefði komið mjög á óvart, er
hann var látinn laus. Að vísu
hefði hann síðdegis í gær fengið
einhverjar vísbendingar um að-
eitthvað væri á seyði — hefði
verið gefið í skyn, að hagur hans
kynnu að vænkast fyrr en varði.
Wynne kvaðst hafa fengið sömu
meðhöndlun í fangelsina og sov-
ézkir fangar og hafði hann átt
erfitt með að sætta sig við fæðið
þar.
1 400 dra |
1 afmælis
' Shakespeares
1 minnzt
4 í DAG eru liðin 400 ir frá i
/ fæðingu Shakespears og verð-i
J ur þess minnst um allann hinn/
j siðmenntaða heim á margvís-1
4 legan hátt. 1
í Þjóðleikhúsið gengst fyrir 4
Í'sýningu á ýmsum sjaldgaef-i
um og ir. rkum útgáfum af ’
verkum skáldsins. Ennfrem-<
ur verður á sýningunni irékilli
i fjöldi af ljósmyndum úr ýms-í
J um leikritum höfundarins og ,
|úr kvikmyndunr^ sem gerðari
4 hafa verið eftir þeim. Þarnal
i verða einnig myndir úr þeimt
/ leikritum Shakespeares, sem t
j sýnd hafa verið hér á landi. J
1 Sýningin verður í Kristatssall
4 Þjóðleikhússins og verður í
/opnuð ki. 7.15 e. h. 4
] XJm kvöldið verður svo sýn-7
\ing á Hamlet í Þjóðleikhúsinu 1
iog er það 35 sýningin á leik-1
4 um . L
Rómeó og Júlía
A UNDAN syningu a Rómeo
og Júlíu í kvöld í Iðnó, flytur
Helga Bachmann leikkona
á.varp, en í dag eru liðin 400
ár frá því William Shake-
speare fæddist. Þar segir
meðai annars: „Þessa töfra-
manns minnist í dag öll ver-
öldin með aðdáun og þökk.
— Félag vort hyllir hann með
þessari sýningu eins af skáld-
verkum hans, og það er ósk
" i»« i'i in<«S
þess, að einnig á vorum veg-
um, megi þetta fagra verk
lofa sinn meistara, og laða til
kynna við hinn skyggna leið-
sögumann um furðuheima
sögu og ævintýrs, og um
myrkviðu mannlegs hjarta".
Á myndinni eru fóstran og
Júlta, sem þær Anna Guð-
mundsdóttir og Kristín Antu
Þórarinsdóttir Ieika.